Leita í fréttum mbl.is

Súperpúman röknuð úr rotinu

Það má vissulega með sanni segja, að allur andskotinn skjóti upp kollinum þessa dagana. Eitt með öðru er sá súrrealíski atburður, að sjálf Súperpúma litlu ljótu VG-klíkunnar er skyndilega röknuð úr rotinu og farin að tala tungum. Raunar virðist púman með fullkomnu óráði, ef marka má meðfylgjandi frétt mbl.is, en það veður hún elginn um einhverja sátt og REI og sátt Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í REI og REI í 100% Rey ... En til allrar guðslukku er Súperpúman ekki komin til þeirrar meðvitundar að muna að hún sjálf hefur sofið á REI-sáttinni í marga-marga mánuði án þess að rumska. Trúlega hefur Súperpúmunni dreymt marga, djúpa og mergjaða framsóknardrauma meðan hún lá afvelta á REI-sáttinni og þar með er komin skýringin á tungutali hennar í svefnrofunum. 
mbl.is REI tekið úr sáttafarvegi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband