Leita í fréttum mbl.is

Baráttusamtök gegn okurstarfsemi peningavaldsins

cap2Það eiga eflaust margir um sárt að binda, þegar upp verður staðið, eftir fjárglæfrapólitík frjálshyggjuhvolpana síðustu ár. Það er eins og hvert annað lögmál, að eftir dúndrandi fyllirí koma timurmennirnir askvaðandi og gefa engin grið. Og hvar eru helvítis labbakútarnir sem stjórnuðu og kynntu undir hrunadansi græðginnar, neyslufárinu, bókstaflega ýttu fólki, með skrumi og lygum, út í foraðið eins og viljalausum fíflum? Hver er ábyrgð þessara hottintotta? Auðvitað firra stjórnmála- og fjárglæframennirnir sig allri ábyrgð enda bera þeir enga ábygð þegar til kastanna kemur. Þessir vesalingar láta sér í mesta lagi sæma, með bros á vör, að hreyta framaní þjóðina, að þeir sem lent hafa í hakkavél frjálshyggjugræðginnar geti sjálfum sér um kennt, þeir hafi reist sér hurðarás um öxl, ásamt fleiri subbulegum aðdróttunum.

Best væri, að þeir sem komir eru í þrot taki sig saman og hætti einfaldlega að borga af okurlánunum sem þeir sitja uppi með. Í því sambandi er nauðsynlegt að fórnarlömb fjárglæfra og frjálshyggju stofni með sér baráttusamtök gegn okurstarfsemi peningavaldsins.   


mbl.is Tekjuhátt fólk í greiðsluvanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kenndu nú ekki lánardrottnum um hálfvitaskap fólks sem er með milljón í tekjur á mánuði og nær ekki að lifa af því.

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 11:52

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er heldur betur ódýrt, að ég ekki segi ófyrirleitið, að kalla fólk sem lendir fjárhagslegum þrengingum eða ógöngum hálvita og fífl. Þessháttar alhæfing nær engu máli ef skyggnst er undir yfirborðið. Nær vær að almenningur dokaði aðeins við og spyrði spurninga eins og hvort ekki geti verið að svokallaðir lánadrottnar hafi lagt sig í framkróka með að hafa fólk að fíflum, hneppa það í ánauð, jafnvel fyrir lífstíð. Frasinn um ,,að hver sé sinnar gæfu smiður" er fyrir sitt leyti einn af þessum málsháttum þar sem sem ekki er gert ráð fyrir að fólk sé af holdi og blóði ásamt þeim göllum sem því fylgir.

Jóhannes Ragnarsson, 20.8.2008 kl. 12:52

3 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Algerlega sammála Jóhannes og kjánalegt að gera lítið úr ábyrgð vitleysinganna sem kyrjað hafa í kór "græðgi er góð" og þú ættir að spila með. Ofmetnasta fyrirbrigði samtímans eru ráðgjafar af öllu mögulegu og ómögulegu tagi...ásamt sérfræðingum.

Georg P Sveinbjörnsson, 20.8.2008 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband