Leita í fréttum mbl.is

Ekki eins guðlegs eðlis og óskeikull og áður var talið

herra2Það er dálítið annarlegt að lesa önnur eins býsn og mbl.is hefur eftir Hönnu Birnu íhaldborgarstjóra þess efnis að hún og hennar Flokkur ,,þurfi að gera betur." Ég hef hingað til staðið í þeirri trúarvissu, að Sjálfstæðismennirnir væru fullkomlega þeirrar skoðunar, að allt sem þeir bjástra við, hverju nafni sem það nefnist, sé alls ekki hægt að gera betur. En nú hefur semsé goppast uppúr Hönnu Birnu, að Flokkurinn hennar sé undir þá sök seldur að stunda handabakavinnubrögð og þar með ekki eins guðlegs eðlis og óskeikull eins og haldið hefur verið fram, einkum af Flokksmönnum sjálfum, þar á meðal af fyrrnefndri Hönnu Birnu. Þessi ummæli nýkrýnds borgarstjóra hljóta að vera mikið reiðarslag fyrir þá sem stundað hafa Flokkinn eins og trúarbrögð og benda auk þess til að upplausnarástand kraumi undirniðri á Höfuðbólinu.
mbl.is „Þurfum að gera betur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband