Leita í fréttum mbl.is

Fylgi VG einkennilega lítið

fiskátÞað góða við þessa skoðanakönnun er að fylgi Sjálfstæðisflokksins virðið vera að minnka, hægt og bítandi, þó svo að það sé með endemum að græðgisflokkur að þessu tagi njóti rúmlega 30% fylgis; ef allt væri með felldu væri Sjálfstæðisflokkurinn með fylgi uppá 7-10%, alls ekki meira. Það sem kemur helst á óvart við þessa skoðanakönnun er slakt gengi VG, en sá mikli vinstriflokkur mælist ekki með nema 19%, þrátt fyrir að vera í stjórnarandstöðu gagnvart sljórri og liðónýtri ríkisstjórn, sem hefur ekkert til málanna að leggja annað en niðurrifskennda og heimskulega frjálshyggjuóra. Við þessar aðstæður ætti VG að njóta fylgis þriðjungs kjósenda í skoðanakönnunum. Það fer ekki á milli mála, að andlit VG útávið, þingflokkurinn, þykir fráleitt trúverðugur, og skildi engan undra; fólk eins og Álfheiður Ingadóttir, Katrín Jakobsdóttir, Árni Þór Sigurðsson, Kolbrún Halldórsdóttir og Jón Bjarnason eiga ekkert erindi inn á Alþingi Íslendinga fyrir stjórnmálaflokk sem kallar sig Vinstrihreyfingu. Ef VG ætlar sér einhverja afgerandi hluti í framtíðinni verða flokksmenn að gjöra svo vel að opna á sér glyrnurnar og sópa ofangreindum íhaldsframsóknarröftum á sorphauginn sem geymir ónothæfa stjórnmálamenn og pólitíska loddara.   
mbl.is Samfylkingin með mest fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er synd að vinstri menn skuli ekki geta drullast til að vera í sama flokki. Ég vill meina að það sé einum manni að kenna. Vegna eiginhagsmuna hans sjálfs þá varð hann bara að stofna annan flokk. Eiginhagsmunasemi eins manns varð til þess að vinstrimenn á Íslandi eru sundraðir. Sorglegt og á meðan er Sjálfstæðisflokkurinn búinn að rústa landinu með spillingu og ógeði.

Valsól (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 19:37

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvaða ,,eini maður" er það sem þú átt við, Valsól?

Jóhannes Ragnarsson, 1.9.2008 kl. 19:42

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Um hvaða andsk. vinstra fólk er alltaf verið að tala í Samfylkingunni? Ég veit um einn, Jóhönnu Sigurðardóttur. Hitt eru ráðvilltir bjálfar sem blína í leiðslu eftir einhverri samevrópskri tilskipun um suðutíma á nætursöltuðum þorskflökum. En fyrst og fremst bíða þeir eftir þykkum möppum með eyðublöðum fyrir umsóknir um styrki.

Því "við þurfum auðvitað fyrst að vita hvað er í boði!"

Árni Gunnarsson, 1.9.2008 kl. 20:08

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er orðið nokkuð langt síðan ég fór að efast um ,,vinstrimennsku" Jóhönnu Sigurðardóttur og leyfi mér hiklaust að draga hana í dilk með kindum eins og Gjeir Haaarde og Guðna Ágústssyni. Það er sami fjandans íhaldsrassinn undir þeim öllum. Ég geri mér vel grein fyrir að eintóna vélræna malið í Jóhönnu hefur blekkt marga sem hafa viljað sjá í henni einlægan vinstrisinna. En Jóhanna hefur ekki fram að þessu fúlsað við að fara í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknu, sem eitt og sér ætti að vera sæmilegur mælikvarði á ,,vinstrimennsku" hennar.

Hinsvegar er ég gjörsamlega vanmáttugur gagnvart pólitískri kórvillu Hippakrata vinar míns. Mér finnst að hann, eins og fleiri góðir menn, ætti að ganga sósíalismanum á hönd því þar á hann heima er ég viss um.

Jóhannes Ragnarsson, 1.9.2008 kl. 20:43

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég er hræddur um að það sé ekki alskostar rétt, að Steingrímur J. hafi komið í veg fyrir vinstristjórn eftir síðustu kosningar, einfaldlega vegna þess að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn voru búin að mynda ríkisstjórn á bak við tjöldin fyrir kosningar. Nákvæmlega það sama gerist 1991 þegar Jón Baldvin og Jóhanna Sigurðar fóru í stjórn með Davíð Oddssyni og hleyptu þar með frjáshyggjunni og ójöfnuðinum af stað fyrir alvöru. Það er nefnilega ekki að ástæðulausu, að ég gef ekkert fyrir vinstrimennsku Jóhönnu Sig vegna þess að sú vinstrimennska er innistæðulaus með öllu.

Ég tek síðan undir með Sveini Elíasi, að það vanti fleira fólk eins og Ögmund Jónasson. Að mínu viti er Ögmundur lílega eini alvöru vinstrimaðurinn á Alþingi.  

Jóhannes Ragnarsson, 1.9.2008 kl. 22:52

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Mér líst rosalega vel á þessa þróun í fylgi flokkanna. Við þurfum dreift flokkavald til að hindra myndun tvíhöfða einflokka sem einkenna einræðiskerfi Bandaríkjanna og Bretlands og hafa lengi gert. Margir flokkar kalla á umræður og málamyndanir og það er undirstaða lýðræðisins. Til þess að hægt sé að standa í slíku þarf augljóslega  nothæfa og vitræna hugmyndafræði sem öðru fremur skýrir hvers vegna dreggjar flokkakerfisins hafa fundið upp skammaryrðið "samræðustjórnmál". Þeir vilja bara vaða áfram á upplognum forsendum og þegar þeir standa með allt niður um sig (ásamt erlendum hugmyndafræðingum sínum og samrugludöllum) þá segja þeir okkur að pæla ekki í hinu liðna heldur horfa aðeins fram á veginn.

Landinn er fjandi glöggur að stilla þessu svona skynsamlega upp en hann sinnir ekki nógu vel förgunarúrræðum þess sem fer að mygla yfir síðasta söludag án hugmyndafræði í þessu stjórnmálakerfi. Enginn heilvita maður myndi dömpa mygluðum kartöflum í kartöflugeymslu sem inniheldur heilbrigðar kartöflur en samt erum við með ruslagáma kerfisins td.  í kringum Arnarhól. 

Baldur Fjölnisson, 1.9.2008 kl. 22:59

7 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

´

Í upptalningu þinni um alþingismenn VG sem eiga ekki heima á Alþingi vantar einn, það er Ögmund Jónasson sem er ekkert annað en Kolbrún  Halldórsdóttir, bara með tippi.

Kær kveðja, Björn bóndiïJð

Sigurbjörn Friðriksson, 2.9.2008 kl. 18:40

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Alltaf skal Björn bóndi finna nýja og óvænta fleti á því sem til umræðu er.

Jóhannes Ragnarsson, 2.9.2008 kl. 19:32

9 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Björn bónda hef ég reynt að draga í pólitíska dilka. Honum til hróss er hann ekki Framsóknarmaður. Mér finnst alltaf ánægjulegt að geta hreinsað menn af þeirri andskotans óværu. Ég hef grun um að Kolbrún sé líka með typpi eins og Ögmundur. Ég myndi ekki sænga hjá henni eftir tvær vodkaflöskur. Þetta er ekki fólk sem ég vil sjá í Samfylkingu okkar sósíalista.

Sigurður Sigurðsson, 2.9.2008 kl. 20:05

10 Smámynd: Helgi Guðmundsson

Sæll Jóhannes.

Ekki ætla ég að leggja dóm á það fólk sem þú nefnir, eða gefa því einkunnir, hvort þeir eru góðir eða vondir sósíalistar. Álitsgjafir af þessu tagi eru heldur hvimleiðar. Ekki gleyma því að flokksmenn völdu umrætt fólk og flokkurinn sótti heldur í sig veðrið í síðustu kosningum. Mér finnst að vinstri sinnar verði að koma auga á að VG er ekki stéttapólitískur flokkur. Flokkurinn hefur sjálfur skilgreint sig sem feminískan fyrir utan að leggja áherslu á umhverfisvernd. Vissulega er hann lengst til vinstri og flokka líklegastur til að standa á rétti þeirra sem minna mega sín. Það er því full þörf fyrir slíkan flokk. Að hann hafi ekki "nema" fimmtung þjóðarinnar á bak við sig kemur ekki á óvart. Síðan "fjórflokkurinn" varð til hefur ysta vinstrið alltaf verið á þessu bili. Ég sé enga ástæðu til að það breytist á næstu árum.´Hrifin ráðast ekki eingöngu af mælanlegu fylgi. Að hald tilteknum málstað á lofti án tillit til vinsælda skiptir lýðræðið gríðarlegu máli.

Bestu kveðjur.

hágé.

Helgi Guðmundsson, 2.9.2008 kl. 21:15

11 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Rétt hjá þér Sveinn.

Ögmundur er gæddur flestum, ef ekki öllum, þeim eiginleikum sem góðan sósíalista getur prýtt.

Jóhannes Ragnarsson, 2.9.2008 kl. 21:41

12 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er hárrétt hjá þér, hágé, að VG er ekki stéttarpólitískur flokkur, sem gerir það að verkum að umdeilanlegt er hvort hann sé yfirleitt nokkur ,,vinstrihreyfing." Femínismi og umhverfisvernd gera stjórnmálaflokk ekki sjálfkrafa að vinstriflokki. Það má vel vera að þér þyki einkunnin sem ég gef nafgreindum einstaklingum í þingflokki VG hvimleið, en það vill bara þannig til að þetta lið er ekki hafið yfir gagnrýni af neinu tagi og í þessu tilfelli er ekki um góða eða vonda sósíalista að ræða, heldur fólk sem ég fæ ekki með nokkru móti séð að séu sósíalistar. Þó að sumir vilji skilgreina VG sem þann flokk, sem hvað lengst er til vinstri á Íslandi, þá er hann, þrátt fyrir það, ekki nema í mesta lagi örlítið vinstra megin við miðju og um róttæknina þarf ekki að fjölyrða því að hún miðast öll að því að komast í ríkisstjórn með hverjum sem verkast vill.

Jóhannes Ragnarsson, 2.9.2008 kl. 22:10

13 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég held það sé rétt munað hjá mér að Hamas-liðarnir séu ágætir Sjálfstæðismenn.

Jóhannes Ragnarsson, 2.9.2008 kl. 22:35

14 Smámynd: Ísleifur Egill Hjaltason

Mér finnst þetta nú bara ágætasta niðurstaða fyrir VG, þetta myndi þýða að við værum að bæta við okkur þrem þingmönnum þótt fylgi sjálfssóknarflokksins sé alveg gjörsamlega fáránlegt.

Hippókrates, hvað útskýrir hatur þitt á andspyrnuhreyfingu eins og Hamas. Afl sem sprettur uppúr gríðarlegri kúgun sem veikt mótsvar móti fasisma ísraelskra stjórnvalda. Hvað finnst þér þá um frægustu andspyrnuhreyfinu allra tíma, þá frönsku í seinni heimsstyrjöldinni? Voru það öfgasamtök?

Ísleifur Egill Hjaltason, 3.9.2008 kl. 01:18

15 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Ingibjörg mín trúði nú á byltingu og skrifaði byltingarsinnað áróðursrit sem Einarssonur Olgeirssonar skrifaði upp á.

Síðan datt hún á hausinn, en ég trúi því að hún fari að koma til að nýju og stofni byltingarsinnaðan vinstriflokk með mér, Jóhannesi og Hippókratesi framsóknarmanni.

Sigurður Sigurðsson, 3.9.2008 kl. 07:34

16 Smámynd: Helgi Guðmundsson

Sæll aftur.

Ég orða það svo að VG hafi stundum verið seinheppnir með frambjóðendur en hvort aðrir frambjóðendur hefðu aukið fylgið meira er annað mál. Ég treysti mér einfaldlega ekki til að fullyrða neitt um það. Að flokkurinn sé bara "örlítið vinstra megin við miðju" þá er hann þrátt fyrir allt það sem ég kalla yst til vinstri. Veit vel að ýmsum finnst þetta þunnur þrettándi, en eru aðrir skárri kostir í stöðunni fyrir vinstri sinna? Ég held ekki.

Mér finnst meginvandi flokksins vera að hann skortir nauðsynlegt samband við verkalýðshreyfinguna. Væri það samband í lagi myndi verkalýðshreyfingin verða róttækari og flokkurinn líka. Reynsla tuttugustu aldarinnar staðfestir þetta hvað eftir annað. Þegar Sósíalistaflokkur og Alþýðubandalag voru hvað öflugust var verkalýðshreyfingin það líka.

Sennilega verður ekki hjá því komist að viðurkenna að almennt er öldin önnur nú en þá (í tvennum skilningi). Mannlífið er gerólíkt, önnur mál eru nú ofar á áhugalista fólks. Breytingarnar sem verkalýðshreyfing og vinnstri flokkar hafa knúið fram valda meðal annars þessu. Ég er ansi hræddur um að ekki verði vikist undan því að taka þetta með í reikninginn og skilgreiningin á vinstri breytist um leið.

Bestu kveðjur.

hágé.

Helgi Guðmundsson, 3.9.2008 kl. 08:15

17 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ég held að þið, Helgi og Jóhannes, kæru félagar, missið marks þegar þið segið að VG sé ekki stéttapólitískur flokkur. Það gæti maður vissulega ætlað af því hvernig talsmennirnir tala, en auðvitað eru allir flokkar stéttapólitískir og öll stjórnmál eru stéttapólitísk. Sé sem lætur eins og hann sé hafinn yfir stéttapólitík tekur auðvitað afstöðu með hinni ríkjandi stétt.

Í glænýrri ályktun flokksráðs VG um stöðu og aðgerðir í efnahagsmálum er til dæmis sitthvað nefnt, en það er æpandi vöntun á aðalatriðinu, sem er auðvitað að auðvaldsskipulagið er ekki á vetur setjandi. Byltingin -- það er málstaður sem á sér meira falið fylgi en margur hyggur.

Ítarefni:
VG eru vinstrikratar
Líkt og ólíkt með Samfylkingunni og VG

Vésteinn Valgarðsson, 5.9.2008 kl. 02:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband