Leita í fréttum mbl.is

Hvaða endi fá ódyggðir og svik Samfylkingarinnar?

hangiJæja Samfylkingarfólk, nú stendur flokkurinn ykkar uppi eins og berrassaður svikari eftir að hafa svarið auðvaldinu, frjálshyggjugræðginni, hollustu sína með því að samþykkja svokallað sjúkratryggingafrumvarp og opna þar með heilbrigiskerfið uppá gátt fyrir peningavaldinu. Var það ef til vill meiningin, allt frá upphafi, að ,,sameina vinstrimenn" til að liðsinna frjálshyggjumógúlunum að hjóla í velferðarkerfið? Var gegnrýni ykkar á Framsóknarflokkinn, meðan hann var í ríkisstjórn, eintóm látalæti og fals? Hverskonar eiginlega drullusokkafabrikka er þessi Samfylking ykkar, er enginn ærlegur maður eða kona á Alþingi fyrir þennan brjótumkennanlega, og í leiðinni hættulega, selskap? Til hvers er yfirleitt verið að stofna og halda úti slíkum stjórnmálaflokki? Er nema von, að þingmenn njóti sífellt minni virðingar meðal þjóðarinnar? Eða er það svo, að með hverjum kosningum hækki hlutfall lítilmenna og froðusnakka á Alþingi? Ekki er annað að sjá en að svo sé - því miður. Og hvernig er það með vinstrigarpinn Jóhönnu Sigurðardóttur, sem þið Samfylkingarfólk vitnið alltaf til þegar á flokkinn ykkar er borið, að þar innanborðs séu harla lélegir vinstrimenn. Má vera að Jóhanna Sig. sé akkúrat enginn vinstrisinni? Að minnsta kosti hefur hún ætið verið fljót á sér að hlaupa í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum þegar það hefur verið í boði. Ég ítreka það enn og aftur, að svokallaður ,,vinstrivængur" Íslenskra stjórnmála er svo gott sem ónýtur og þar verður að fara fram gagnger uppstokkun áður en langt um líður - en sú uppstokkun verður að fara fram undir réttum formerkjum.

Júdas sálugi, sem þótti hinn mesti gallagripur og ólánsmaður, seldi meistara sinni í hendur auðvaldi sinnar samtíðar fyrir 30 silfurpeninga en í dag seldi Samfylkingin auðvaldinu heilbrigðiskerfið, samvisku sína og stuðning kjósenda sinna fyrir að því er virðist ekki neitt. Þegar Júdas hafði framið sitt alkunna axarskapt gekk hann út og hengdi sig - en hvað ætlar Samfylkingin að gera? Eða kjósendur Samfylkinarinnar? 


mbl.is Samþykktar sjúkratryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég á nú eftir að kafa betur ofan í þetta, verður þetta ekki einskonar nefskattur eða eins og í gamla daga, þegar við þurftum að greiða í sjúkrasamlagið?  Ég er bara ekki nógu mikið inn í þessu til að mynda mér heilstæða skoðun á þessu.

Hvað ég geri sem kjósandi Samfylkingarinnar er:  Ég mun kynna mér þessi mál betur um leið og ég hef tíma, ég þarf fyrst að jafna mig á tapinu í fótboltanum í kvöld.

Sendi þér  Obama Biden 1svo Single Rose 





Ingibjörg Friðriksdóttir, 10.9.2008 kl. 21:38

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Jóhannes minn, ég þarf að vera vel úthvíld og sérstaklega vel upplögð ef ég á að nenna honum Ögmundi, bjóddu mér frekar upp á SJS.  Kannski á morgun, allavega ekki í kvöld.  En þú ert alltaf velkominn á síðuna mína.  Það nennir hvort eð er enginn að heimsækja mig.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 10.9.2008 kl. 21:49

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nauðsynleg lesning fyrir alla þá sem vilja átta sig á hvað sjúkratryggingarskandall Samfylkingarinnar hefur í för með sér: http://www.ogmundur.is/samfelagsmal/nr/4067/ 

Varla var það þetta sem kjósendur höfðu í huga þegar þeir kusu Samfylkinguna síðastliðið vor?

Jóhannes Ragnarsson, 10.9.2008 kl. 21:52

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

:)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 10.9.2008 kl. 22:05

6 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það er mest merkilegt Jóhannes þetta dugleysi íslenskrar alþýðu að efna til fjöldamótmæla.

Ég er staddur í Thailandi og er búin að vera nokkra daga niður í Bangkok. Í annað sinn hefur gífurlegur mannfjöldi safnast saman og og settist að á skrifstofum forsætisráðherra jafnframt sem honum var stefn fyrir svik við þjóðina. það er meira lýðræði í Thailandi enn á Íslandi.

Þó það hefðu verið nokkrir skotnir þegar kom til átaka, og einn maður dó af þeim sárum sem hann hlaut. Þá var einn lögreglumaður skotin líka sem viðvörun til yfirvalda.

þetta endaði með að hann var settur frá völdum. Ég var þarna til að gangast undir smá skurðaðgerð á sjúkrahúsi og hér rekur ríkið öll sjúkrahús. Einstaka læknar eru með einkastofur.

Að mínu mati þarf að gera eitthvað svipað á Íslandi. Þjóðin kvartar bara og kveinar þegar þeir eiga að sýna þessu pakki í tvo heimanna. Ef BB sendir "herin sinn er bara að taka af þeim vopnin og rasskella þá og senda heim til mömmu sinnar. nema þá sem gana til liðs við réttlæti.

Það er ekki nóg að kvarta þegar trampað er á fólki í hverju málinu á fætur öðru. Það þarf að láta verkin tala. Þessir ráðamenn skilja ekkert annað. Þeir eru fyrir löngu orðnir ónæmir fyrir kvörtunum og treysta á aulaganginn í þjóðinni.

það er hægt að gera svona mótmæli tiltölulega friðsamlega, enn samt ekki að higa við að ganga á á móti spreybrúsum. Alveg furðulegt að hægt sé að halda heilli þjóð í skefjum með piparúða. Ábyggilega einsdæmi á öllum hnettinum.

Íslendingar eru vanir að vera þrælar elítunar og lúffa fyrir fólki sem ætti að tjarga og fiðra marga hverja. Duglaus þjóð sem montar sig af því hversu mikið hún getur unnið og lætur síðan ræna launum sínum á hverjum einasta degi.

Ágúst segir að Guð einn geti hjálpa Íslendingum! Til hvers ætti hann að hjálpa einhverjum sem nenna ekki og þora ekki að hjálpa sér sjálfir? 

Óskar Arnórsson, 11.9.2008 kl. 05:52

7 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Ég verð seint sagður fylgismaður samfylkingarinnar en mér finnst færslan og samlíkingin ósmekkleg.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 11.9.2008 kl. 09:37

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Svik eru alltaf svik, Gísli minn, og svik eru ætíð ósmekkleg og eiga skilið umræði í samræmi við það.

Jóhannes Ragnarsson, 11.9.2008 kl. 11:49

9 Smámynd: Óskar Arnórsson

Vel Mælt Jóhannes!

Þessi Gísli ætti að skammast sín fyrir skekklaust komment...að taka upp hanskan fyrir greinilegum svikum! Því það er rétta orðið..gæti bætt við heilmiklu enn vil það ekki svo viðkvæmar sálir með ofnæmi fyrir sannleikanum fari ekki að gjabba meira...

Óskar Arnórsson, 11.9.2008 kl. 12:39

10 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

ég þarf varla að skammast mín fyrir að hafa skoðun á einhverju máli?  Á Íslandi er jú málfrelsi, er það ekki?

Ég er enganvegin að taka upp hanskann fyrir einn eða neinn, síst af öllu samfylkinguna

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 11.9.2008 kl. 15:55

11 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ríkissjóður er algjörlega fallít eins og ég hef lýst hérna um bloggin og þar með er víst best að viðurkenna að ýmis apparöt þess séu líka á kúpunni. Líklega hangir einmitt það á spýtunni í þessu máli þó enginn þori að ræða það.

Frá því ég man eftir mér hefur heilbrigðiskerfið verið í einhvers konar fjárhagslegri gjörgæslu. Fyrir áratug hefði verið gráupplagt að sparka megninu af staffinu og ráða í staðinn ódýrt og mjög svo hæft staff frá Kúbu, Rússlandi og Kína og auðvitað er það enn afar góður kostur.

Baldur Fjölnisson, 11.9.2008 kl. 18:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband