Leita í fréttum mbl.is

Hún skapar sinn eigin höfuðbana

Borgarastéttin skapar fyrst og fremst sinn eigin höfuðbana. Fall hennar er jafn óhjákvæmilegt og sigur öreigalýðsins.

Kommúnisminn bannar engum að afla sér þjóðfélagslegra afurða. Hann bannar þeim aðeins að afla sér þeirra með því að undiroka vinnu annarra.

Kommúnistar hirða ekki um að leyna skoðunum sínum og ætlunum. Þeir lýsa því yfir afdráttarlaust, að takmarki þeirra verði því aðeins náð, að allri þjóðfélagsskipan verði steypt af stóli með valdi. Lofum hinum drottnandi stéttum að skjálfa fyrir kommúnistabyltingu. Þar hafa öreigarnir engu að týna nema hlekkjunum. Þeir eiga heilan heim að vinna.

Öreigar allra landa sameinist!

Karl Marx og Friðrik Engels


mbl.is Auðmagnið selst vel í kreppunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Amen !

Níels A. Ársælsson., 17.10.2008 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband