Leita í fréttum mbl.is

Jólagaurinn sem giljar húsmæður og lausakonur

Þeir geta leyft sér það, jólasveinarnir, að skjóta á saklaust fólk þegar þeim býður svo við að horfa. Ég hef alltaf verið afar hræddur við jólasveina, ekki síst þessa 13 íslensku ódáma því þeir eru haldnir óvenjulega einbeittri glæpahneigð, að ekki sé minnst á sauruga kynórana sem þessir þrjótar eru haldnir. Tökum t.d. hann Giljagaur sem dæmi: Hann heitir Giljagaur af því að hann er ,,gaur" sem ,,giljar" konur hvenær sem hann hefur tök á. Þessi lúmski hrossabrestur á sök á fleiri hjónaskilnuðum en nokkurn getur grunað. Hver þekkir ekki kvæðið þar sem sagt er frá litlu telpunni sem horfir uppá móður sína kyssa jólasvein við jólatréð í stofunni í gær? Þar var helvítis þrællinn hann Giljagaur á ferð og lét sér ekki muna um að gilja húsmóðurina á heimilinu á stofugólfinu við hliðina á jólatrénu, meðan eiginmaður og börn konunnar voru í fastasvefni.

Og Gluggagægir, ekki er hann skárri. Sá piltur er sóðalegur öfuguggi og pervert, eins og nafnið bendir til. Þetta kvikindi liggur á gluggum húsa í þeirri von að honum auðnist að sjá fólk, sem hann þekkir ekkert, í hvílubrögðum. Þvílíkt óeðli í einum jólasveisræfli!!! Ojbara!

Og svona má áfram rekja afrekaskrá allra jólasveinana 13. Þetta eru úrhrök og illmenni og merkilegt að ekki skuli vera búið að sljóta þá alla sem einn fyrir löngu.


mbl.is Átta látnir eftir „jólasveinaárás“
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

þetta er nú bara þverskurður af mannlegu eðli Jóhannes svo getur verið að þetta sé besta jólagjöfin sem konan fékk undir trénu. Kallinn hennar hundleiðinlegur, jafnvel blindfullur til einskis nýtanlegur. Hvað veit maður.  Ertu ekki annars búinn að hafa það gott um jólin?

Þórdís Bára Hannesdóttir, 26.12.2008 kl. 14:34

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Jújú, ég hef haft það ágætt um jólin, enda fá jólasveinar ekki að koma nálægt mínum húsum. Síðast þegar jólasveinn reyndi að komast inn til mín barði ég hann í hausinn með hafnarboltakylfu. Þaðan í frá hafa þessir delar tekið á sig krók framhjá mínu heimili.

Ég er ekki alveg tilbúinn að samþykkja, að það sé ,,mannlegt eðli" að liggja á gluggum hjá óviðkomandi fólki og bíða eftir að það fari að gera það.

En það getur svosem vel verið, að karlinn konunar sem var að gamna sér með jólasveininum við jólatréð hafi legið brennivínsdauður inni í herbergi þegar Giljagaur bar að garði. Það er nátúrulega ekkiert gamanmá fyrir hrausta konu að búa við handónýtann, moldfullann eiginmann, kanski alla jólaföstuna. Má vera að svoleiðis kona hafi eitthvað sér til afsökunar þegar hún lætur fallerast af glaðsinna jólasveini sem kominn er í heimsókn.

Jóhannes Ragnarsson, 26.12.2008 kl. 16:04

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, Doríán Grái, vel á minnst. Það féll í fólk í jólasveinaárásinni í Bandaríkjunum, svo smekklegt sem það nú var. En:

Spurt hef ég tíu miljón manns

sé myrtir í gamni utanlands:

sannlega mega þeir súpa hel;

ég syrgi þá ekki;fari þeir vel.

 

Afturámóti var annað stríð

í einum grjótkletti forðum tíð,

og það var alt útaf einni jurt

sem óxí skjóli og var slitin burt.

 

Því er mér síðan stirt um stef,

stæri mig lítt af því sem hef,

því hvað er auður afl og hús

ef engin jurt vex í þinni krús.

(Höf. Halldór Guðjónsson frá Laxnesi)

Jóhannes Ragnarsson, 26.12.2008 kl. 17:06

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Rétt til getið, Sveinn. Jólasveinarnir eru allir á mála hjá Sjálfstæðisflokknum; og til að bíta höfuðið af skömminni eru þeir meira að segja flokksbundnir þar.

Jóhannes Ragnarsson, 26.12.2008 kl. 17:09

5 Smámynd: Hlédís

Svo var'ða íslenska 'kellingin' sem sagði í upphafi heimsstríðs: " Meiri óskapa lætin í þessum mönnum. Það endar með að þeir drepa einhvern!"

Gleðilega hátíð!

Hlédís, 26.12.2008 kl. 18:13

6 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

já rétt hjá þér óeðli auðvitað.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 26.12.2008 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband