Leita í fréttum mbl.is

Bjóða uppá að vera nauðgað

Það mega bandarísk stjórnvöld eiga, að þau geta stundum verið þægilega gamansöm. Ekki vil ég þó segja, að vellíðunarbylgja hellist eins og volg vantsbuna yfir mann við að heyra, ,,að auðvitað sé það bölvuðum palestínugaurunum sjálfum að kenna að þeir séu skotnir í klessu; þeir hafi boðið uppá slíka afgreiðslu." Blíðleg röksemdafærsla af slíku tagi minnir á nauðgara sem ber fyrir sig að konan sem lenti í klónum á honum hafi boðið upp á að vera nauðgað af að hún hafi verið í svo þunnum kjól eða berfætt í sandölunum.
mbl.is Segja Hamas ábyrg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Als

Fáránleg rökleiðsla, Jóhannes. Á einni viku hafa Hamas liðar - og tengd öfl - skotið yfir 200 eldflaugum á landsvæði Ísraels. Tungumál stríðandi fylkinga á þessu svæði er sverðið og afleiðingin er dauði og skelfing. Út á það gera Hamas liðar og þrátt fyrir sorgina sem þeir eru reiðubúnir til þess að kalla yfir eigið fólk fagna þeir dauðsföllunum þegar kamerurnar sjást ekki. Dauði þessa fólks er í huga Islamistanna ásættanlegur fórnarkostnaður á leið að því markmiði að gereyða Ísrael. Ef þeir hefðu skilvirkari vopn myndu átökin magnast enn frekar. Hin skelfilega hörðu viðbrögð ísraelsku stríðsmaskínunnar fóstrar hringrás haturs og ofbeldis sem öfgar, beggja megin, fagna leynt og ljóst.

En að líkja Hamas við konu í þunnum kjól andspænis nauðgara lýsir ekki bara vanþekkingu, heldur um leið velþóknun á stríðsrekstri Hamas samtakanna og gerir sér jafnvel dælt við hugmyndafræði þeirra.

Ólafur Als, 27.12.2008 kl. 20:59

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ekkert kjaftæði hér, Ólafur Als, þér er eflaust fullkunnugt um hvernig Ísraelsríki varð til eftir síðari heimstyrjöld og hvernig ólánsgemlingarnir sem þar voru settir niður af stórauðvaldi heimsins hafa hagað sér síðan. Og auðvitað hafa stjórnvöld Bandaríkjanna og leppar þeirra stutt við bakið á illþýðinu, landræningjunum í Palestínum, sem kalla sig Ísraelsmenn, með ráðum og dáð; rétt þeim öll huganleg drápstól uppí hendurnar eins og ekkert væri sjálfsagðara, meira að segja kjarnorkuvopn.

Það er ekki mikill vandi að hafa samúð með þjóð sem hefur verið svívirt og niðurlægð á jafn grimmdarlegann hátt og palestínumenn hafa mátt þola.

Jóhannes Ragnarsson, 27.12.2008 kl. 21:28

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Kananum er vorkunn. Ísraelsmenn eru samviskulausir morðingjar.

Víðir Benediktsson, 27.12.2008 kl. 22:33

4 Smámynd: Ólafur Als

Ég sé að þér er ekki við bjargandi Jóhannes. Mér er vel kunnugt um tilurð Ísraelsríkis og aðdraganda þess árin og áratugina á undan. Ég er hins vegar stórefins að þú þekkir þá sögu til hlítar.

Ef menn kjósa að setja málin fram með orðalagi um stórauðvald er í sjálfu sér fyrirfram dæmt í málinu. Það er sorglegt til þess að vita að þú hafir samúð með hugmyndafræði morðaflanna í röðum Islamista en viðgangur þeirra mun enn um sinn tryggja að Palesínuarabar fái ekki sitt ríki og þann rétt að um síðir lifa í friði með nágranna sínum, Ísraelsríki. Það er ósk stórs meirihluta íbúa í Ísrael og enn sem komið er meirihluta Palestínuaraba. Um það vitna skoðanakannanir.

En vitanlega eru eldflaugaárásir ekkert annað en þunnur kjöll ...

Ólafur Als, 27.12.2008 kl. 22:48

5 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Það er sorglegt til þess að vita, Ólafur Als, að þú hafir samúð með hugmyndafræði morðaflanna í röðum zionista.

Björgvin R. Leifsson, 28.12.2008 kl. 01:27

6 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ólafur. Saga Miðausturlanda segir öllum, sem hana skoða að Palestínumenn fá aldrei land sitt og frelsi aftur öðruvísin en með hervaldi. Þeir geta reyndar hugsanlega fengið frið með því að sætta sig við að Ísraelar fái að halda nánast öllu því landi, sem þeir hafa stolið frá þeim og að palestínskir flóttamenn erlendis fái ekki að snúa aftur heim. Það er þó ekki á vísan að róa því Ísraalar vilja allt land þeirra og munu hugsanlega bara finna nýjar afsakanir til að ræna meira landi af þeim.

Það að svara rekettuárásum, sem valdið hafa óverulegu tjóni vegna þess hvesu máttlitlar og ónákvæmar þær eru með því að strádrepa og særa hundruð manna er ekki bara óréttlætanlegt heldur er þetta alvarlegur stríðsglæpur.

Og annað Ólafur. Pelstínumenn hafa ekki skotið neinu á Ísrael. Þau svæði, sem þeir hafa skotið á eru hluti af ólöglegum hernámssvæðum Ísraela en ekki Ísrael. Fólk, sem sest að á stolnu landi getur sjálfum sér um kennt ef á það er ráðist af réttmætum eigendum landsins. Við hverju býst fólk þegar það sest að á stolnu landi? Íbúar hernámssvæða hafa rétt samkvæmt Genfarsáttmálanum til vopnaðrar andspyrnu við hernámi og telst það til sjálfsvarnar.

Sigurður M Grétarsson, 28.12.2008 kl. 01:48

7 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Sammála þér Jóhannes, en það þýðir ekkert að tala við aðdáendur Ísraela, þetta er trúartengt og því ganga engi rök.

Í raun er best að þetta fólk fái sjálft að kynnast fyrirlitningu Gyðinga á hinum óhreinu kristnu, þeir líta nefnilega á alla aðra sem annars flokks fólk og óhreint, enda telja þeir sig Guðs útvalda og hreina.

Hafa eiginlega þróast í það að vera eftirhermur að Nasista hreyfingunni, "hreinn stofn" með risa stórar fangabúðir.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 28.12.2008 kl. 03:26

8 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Sæll Þorsteinn. Vinsamlega ekki setja alla Gyðinga undir sama hatt. Það eru til Gyðingar, sem skammast sín fyrir þjóðernið vegna síonistahreyfinga, bæði stjórnvalda í Ísrael og t.d. í Bandaríkjunum. Enn fremur eru til hreyfingar eða samtök Gyðinga, t.d. í Bandaríkjunum, sem berjast gegn síonismanum.

Björgvin R. Leifsson, 28.12.2008 kl. 11:29

9 Smámynd: Ólafur Als

Björgvin lepur upp áróðurshjal Kominterns frá því á tímum kalda stríðsins. Ætli hann hafi kynnt þér Zionismann og þær ólíku hreyfingar sem kenna sig við Zionisma?

Ætli fordómar fyrirfinnist ekki á meðal Gyðinga eins og annarra og hvað er þá betra en að grípa til trúarbragða eða annars sem gæti fóstrað hin þröngu sjónarmið, ekki ósvipað og á við ujm almenn stjórnmálaviðhorf Björgvins.

Björgvin er ekki einungis kennari og mótunarmaður í sínu fagi, heldur hefur hann sérstaka sýn á umheiminn og ættu allir að kynna sér kaldastríðsrausið, að ekki sé nú talað um söguskýringar hans, á blogginu hans - það kveikir í nostalgíu af lakara taginu.

Ólafur Als, 28.12.2008 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband