Leita í fréttum mbl.is

Fallinn í kynferðislega ónáð

Enn á ný hefur kær vinur okkar, Kolbeinn Kolbeinsson, fallið í kynferðislega ónáð hjá frú Ingveldi eiginkonu sinni. Tildrög málsins eru þau, að Kolbeinn hvarf að heiman frá sér á gamlárskvöld og skilaði sér ekki heim fyrr en að kvöldi annars í nýári, þá allnokkuð þrekaður og hafði, af einhverjum óútskýranlegum ástæðum, týnt sokkum sínum, nærbuxum og bindi. Grunar frú Ingveldi að Kolbeinn hafi jafnvel framið sóðalegt hjúskaparbrot, að sér forspurðri, meðan hann var fjær, en Kolbeinn neitar öllum ásökunum í þá veru, og liggur því mikil spenna í loftinu á heimili þeirra hjóna.
mbl.is Sögulegur hádegisverður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herra

Uuuu....

Ha?

Herra, 7.1.2009 kl. 22:57

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það ekkert ha með það, Herra minn.

Jóhannes Ragnarsson, 7.1.2009 kl. 23:04

3 Smámynd: Herra

Ég bara skil ekkert hvað þú ert að tala um.

Hver á Kolbeinn að vera?

Herra, 7.1.2009 kl. 23:12

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þetta þekkja bara þeir sem í hafa lent...

Steingrímur Helgason, 7.1.2009 kl. 23:48

5 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Var Kolbeinn nokkuð með vindil, eða...

Ólafur Þórðarson, 8.1.2009 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband