Leita í fréttum mbl.is

Stóðu heimdellingar og SÚS fyrir grjótkastinu í lögregluna?

flokkurinnAuðvaldskrakkiMér er næst að halda að fylliraftarnir og sóðasvínin, sem grýttu lögregluna síðastliðna nótt með gangstéttarhellum, glerflöskum og mannaskít, sé fénaður úr einhverjum undiheimaafkima Ungra Sjálfstæðismanna og aðgerðir þessara þokkagemlinga sé ætluð til að koma óorði á heiðarlega mótmælendur og byltingarsinna.

Heimdallur, en svo heitir félagsskapur öfgafullra unglinga af auðvaldsheimilum, hefur löngum verið gróðrastía fyrir fjandsamlegar skoðanir í garð alþýðufólks, því heimdellingar líta á alþýðufólk eins og hver önnur vinnudýr af þrælastandi og það eigi að halda kjafti og vinna fyrir auðvaldið steinþegjandi og hljóðalaust.

Vonandi verða illkynja meinsemdir eins og Heimdallur, já og sjálfur móðurflokkurinn, leystur upp eins og gert er með samtök stigamanna og bannaður með lögum. 


mbl.is Munu hafa uppi á ofbeldismönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Að undirdjúp Hannesar Hólmsteins hafi opnast ? Þaðs skyldi þó ekki vera.

hilmar jónsson, 22.1.2009 kl. 21:25

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Því ekki það, Hilmar. Annað eins hefur nú gerst.

Jóhannes Ragnarsson, 22.1.2009 kl. 21:30

3 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Drengir! Kalda stríðinu er lokið, það er núna árið 2009.

Flosi Kristjánsson, 22.1.2009 kl. 21:31

4 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Flosi, segðu íhaldinu það frekar.

Björgvin R. Leifsson, 22.1.2009 kl. 21:36

5 Smámynd: Óskar Þór Hallgrímsson

Þú ert ekki lagi, rugludallur

Óskar Þór Hallgrímsson, 22.1.2009 kl. 21:47

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Heyrðu nú, Skari minn Þór Hallgrímsson, það vantar ljósmynd af trýninu á þér á bloggið, svo maður hafi einhverja hugmynd um hvernig þú lítur út. Mér geðjast ekki að mótmælendum með grímu inni á mínu bloggi.

Það lifa ennþá kuldaglæður, býsna skærar meira að segja, innan veggja Sjálfstæðisflokksins, þrátt fyrir að árið sé 2009 samkvæmt okkar tímatali.

Jóhannes Ragnarsson, 22.1.2009 kl. 22:15

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Agents Provacateurs? Það skyldi þó aldrei vera...

Guðmundur Ásgeirsson, 22.1.2009 kl. 23:23

8 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Það eru margar góðar skoðanir á þessu, en bara fáir vita af reynslu hvað svona pólitískar klíkur geta gert og komist upp með það. Það er alltaf til lítill flokkur manna sem eru tilbúnir til að gera skítaverkin fyrir valdhafa. Og menn ættu að fara varlega, þetta eru atvinnumenn sem venjulegt fólk ræður ekki við.

Wolfang (áður Eyjólfur Jónsson)

Eyjólfur Jónsson, 22.1.2009 kl. 23:35

9 Smámynd: Þórbergur Torfason

Jói ég sé að ég verð að drífa mig á ljósmyndastofu svo mér verði ekki úthýst.

Þórbergur Torfason, 23.1.2009 kl. 00:02

10 Smámynd: Páll Jónsson

Ah, enn einn maðurinn að segja sig úr almennri umræðu. Það er gott að vita að ég get sniðgengið þitt blogg samviskulaust héðan í frá Jóhannes.

Páll Jónsson, 23.1.2009 kl. 00:36

11 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Jóhannes - margt hefur þú látið frá þér sem með góðum vilja má kalla heimskulegt - það eru líka til sterkari orð yfir þap.

Þessar vangaveltur þínar eru svo sjúklegar að ég ráðlegg þér að leita aðstoðar. Það er hinsvegar gamalt ráð að bera eigin misgjörðir uppá aðra og láta á neita. En Jóhannes  - meira að segja krónískir andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hugsa ekki svona og vita betur - ég trúi því að þú vitir betur - en framsetning þín er þér til skammar´

Engin stjórnmálasamtök eða hlutar þeirra gera þá hluti sem þú ásakar Heimdellinga um - Engin.

Slíkt er aðeins til í þínum sjúka heila.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 23.1.2009 kl. 03:24

12 Smámynd: Óskar Steinn Gestsson

Fyrirgefðu Ólafur en ég og fleiri sem vorum þarna vitum að margir sem hentu rusli og flöskum í lögguna og voru með klúta fyrir vitum sér ERU í sjálfstæðisflokknum þ.e. SUS. Hvort það var SUS að verki eða bara meðlimir það er annað mál! Enda er þetta ekkert nýtt! Hvítliðar laumuðu sér stöðugt í mótmælahreyfingar á hippatímanum og hleyptu friðsælum mótmælum upp í óeirðir, ekki vera svona barnalegur! Sagan endurtekur sig stöðugt.

Óskar Steinn Gestsson, 23.1.2009 kl. 07:03

13 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Óskar - fyrst þú veist hverjir voru að kasta flöskum og rusli í lögregluna ber þér að tilkynna slíkt enda er það framferði lögbrot. Ef þú tilkynnir það ekki ert þú orðinn meðsekur. Þannig að fyrst þú veist þetta skalt þú gefa þig fram við lögreglu án tafar. Annars mun ég hafa samband við lögregluna og benda á orð þín hér þannig að þeir geti haft upp á þér - Að ráðast gegn lögreglu er graf alvarlegt mál og á ekki að líðast. Hafðu samband við lögregluna í dag og aðstoðaðu þá í málinu - það er borgaraleg skylda þín. Enda vilt þú varla vera talinn meðsekur - eða hvað.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 23.1.2009 kl. 08:50

14 Smámynd: Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir

LOL Jóhannes þetta er allt undan þér komið sem kann sig ekki.

Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 23.1.2009 kl. 20:18

15 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Að gefnu tilefni, Snjólaug, þá skora ég á þig að lesa skrif Ólafs Inga Hrólfssonar hér fyrir ofan. Ólafur Ingi er skemmtilegur náungi og hann leggur alveg frábærlega út af þessum pistli mínum.

En, hvaða lið er það sem er komið undan mér sem kann sig ekki? Er það ekki eitthvað sem vert er að rannsaka nánar?

Jóhannes Ragnarsson, 23.1.2009 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband