Leita í fréttum mbl.is

Formaðurinn og pólitísku viðrinin í VG

flokkseigendur_786424.jpgÉg vil byrja á lýsa því yfir að ég hjartanlega sammála því sem fram kemur í bréfi tólfmenninganna í NA-kjördæmi til Steingríms J. Sigfússonar. Það hlaut að koma að því að einhversstaðar færi að sjóða uppúr í VG. Það getur varla verið ásættanlegt fyrir sómakært fólk í flokknum, að formaðurinn, ásamt nokkrum pólitískum viðrinum í þingflokki hans, selji stór stefnumál VG fyrir persónulega valdgræðgi sína og ráðherrastóla.

Ég hef lengi haft miklar efasemdir um hluta af forystufólki VG, hvaða erindi það á yfirleitt í stjórnmálaflokki, sem í öndverðu átti að vera róttækur flokkur vintrisósíalista. Það er löngu ljóst, að Steingrímur J. Sigfússon hefur ekki auðnast að velja sér heppilegasta félagsskapinn innan eigin flokks. Niðurstaðan af eilífu slagtogi Steingríms með Svavarsfjölskyldunni, Hjörleifi Guttormssyni, Álfheiði Ingadóttur, Árna Þór og öðru slíku tækifærissinna- og framsóknarslekti, sem ekki er á vetur setjandi, kann ekki góðri lukku að stýra. Fólkið sem í góðri trú stofnaði VG fyrir 10 árum stendur nú illa svikið frammi fyrir klofnum flokki þar sem hugsjónalausi framsóknararmurin hefur ekki einungis traðkað á sósíalistaarminum, heldur leitt flokkinn útí botnlaust svikafen. Um það vitnar umskiptingshátturinn hvað varðar ESB og Icesave best um.

Eina von Steingríms til að endurheimta traust flokksmanna og annarra kjósenda VG er að hann losi sig alfarið undan álögum endemana sem telja sig eiga VG með húð og hári að meðtöldum formanninum Steingrími J. Sigfússyni. 


mbl.is Steingrímur „ómerkingur orða sinna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Sæll Ólsari góður,

þú skrifar ansi merkilegan texta svo ekki sé meira sagt. Þú segir að VG hafi átt að vera rótækur flokkur vinstri sósíalista. Þetta finnst mér býsna merkilegt þar sem þeir sem voru íhaldsamastir í AB fóru í þennan flokk með Steingrími og Ögmundi. Þar á meðal gömlu þjóðernissinnarnir. Unga róttæka fólkið stofnaði sameiningarflokk sem kallaður var Samfylking ásamt öðru fólki úr Alþýðuflokki og úr Kvennalistanum.

Vinstri Grænir hefur aldrei verið rótækur flokkur í mínum hugaog  fyrst hann varð það ekki á meðan hann var á mótunarskeiðinu áður en hann fór að kíkja á aðra flokka verður hann það aldrei. Samfylkingin útvatnaðist einnig mjög verulega með tilkomu Ingibjargar Sólrúnar sem hefur aldrei verið til vinstri í pólitík og viðundrinu Össuri.  Einnig að mjög margir gamlir félagar úr AB lögðu á flótta úr Samfylkingunni  en það voru ekki nema mjög fáir þeirra sem söfnuðust til VG. Þá helst þeir sem áttu von á einhverjum bitlingum þar.

Það er rétt hárrétt skilgreining að Steingrímur er hreinræktaður framsóknarmaður af gamla skólanum og ræddum við það oft í AB.  Svavar var í Samfylkingunni í blábyrjun og verður seint talinn til framsóknarmanna hann er að mínu mati jafnaðarmaður með ríka réttlætiskennd en ansi mikill skútukarl í sér, um skoðanir barna hans veit ég ekki. Álfheiður Ingadóttur er jafnaðarmaður með ríka jafnréttiskennd  en einnig með sterka þjóðerniskennd, en Árna Þór (var í Samfylkingunni) þekki ég lítið en mér hefur alltaf að fundist hann verið mikill stofnana-karl og sennilega einnig tækifærissinna. Þessi þrjú sem undan eru talin tilheyrðu svonefndum flokkseigendum innan AB. og félagar í ABR. Hjörleifi Guttormsson er einnig jafnaðarmaður með ríka réttlætiskennd en einnig mjög fastur þjóðernissinni og beinlínis mjög íhaldssamur. Þetta fólk voru ekki neinir rótæklingar á þessum tímum. Ragnar Arnalds og Jón Bjarnason voru einnig Samfylkingarmenn. Alli vita hvers vegna þeir fóru yfir.

Þú kanski útskýrir þetta allt betur fyrir mér.

Kristbjörn Árnason, 14.7.2009 kl. 20:36

2 Smámynd: Rafn Gíslason

Engin er ég sósíalistinn eða komanistin, en ég tilheyrði VG þar til í dag að ég sagði mig úr flokknum. Ég hef starfað fyrir VG hér í suðurkjördæmi sem stjórnarmaður í svæðisfélagi VG í Hveragerði og Ölfusi og verð að segja eins og er að mér líkar það illa að vera gerður af ómerkingi, ég taldi mig geta treyst forustunni en því miður eru það einungis fáir þingmen VG sem standa við gefin loforð og þá á ég við bæði félaga sína í flokknum og kjósendur hans, því get ég illa unað.

Rafn Gíslason, 14.7.2009 kl. 21:03

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ekki geri ég mér grein fyrir, Kristbjörn minn, hvernig þú skilgreinir róttækni, íhaldssemi, jafnaðarmennsku og ríka jafnréttiskennd þegar vinstripólitík er annarsvegar. Hinsvegar hafna ég því alfarið að Svavar Gestsson, Álfheiður Inga, Hjörleifur Gutt reiði réttlætiskennd sína í þverpokum. Umræddir einstaklingar hafa um langan aldur angað af yfirstéttarmennsku og velgjandi snobbi, en á einhvern óskiljanlegan hátt hefur þeim samt tekist villa á sér pólitískar heimildir.

Um ,,róttæka" unga fólkið sem stofnaði Samfylkinguna hef ég aldrei heyrt minnst á fyrr og því síður í hverju  ,,róttækni" þess var/er fólgin.

Þá átta ég mig ekki á hverjir þessir ,,íhaldsömu" eru sem fóru í VG. Í hvað héldu þessir menn?

Hinsvegar er ég sammála þér um að VG hefur aldrei verið róttækur flokkur til vinstri. Það hafa vissir aðilar komið í veg fyrir af mikilli elju. 

Jóhannes Ragnarsson, 14.7.2009 kl. 21:38

4 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Sæll Jóhannes.

Kanski eru það bara smá skjattar. Þetta er auðvitað alltaf spurning um mat og viðhorf. En okkur fannst þetta þá, fyrir hundrað árum. Það var fólkið sem vildi slíta sig frá íhaldsama liðinu og fara í það verkefni að gera nýja hluti. 

Kristbjörn Árnason, 14.7.2009 kl. 21:54

5 Smámynd: Sævar Einarsson

Þetta eru dásamlegar fréttir, vonandi verður þetta til þess að þetta sé síðasti líkkistunaglinn í áratuga alþingissetu Steingríms og Jóhönnu.

Sævar Einarsson, 15.7.2009 kl. 12:22

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Í dag sýnist mér fjórflokkurinn svonefndur vera orðinn ansi þreytt fyrirbæri í samfélaginu. Tækifærismennskan er það eina sem ræður afstöðu flestra þegar komið er að erfiðum pólitískum ákvörðunum. Enginn pólitískur leiðtogi á minni tíð hefur valdið mér meiri vonbrigðum en Steingrímur J. Sigfússon. Honum tókst svo vel að blekkja mig að ég er ekki búinn að ná mér til fulls eftir þetta síðasta afrek hans í dag. 

Árni Gunnarsson, 16.7.2009 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband