Leita í fréttum mbl.is

Geðbilað óhræsi vegur að húsi Davíðs

egg0.jpg,,Egg og níð á hús Davíðs." Þegar ég las þessa fyrirsögn mbl.is varð mér fyrst fyrir að halda að þarna væri um að ræða tilvitnun í hina helgu bók, Biflíuna, þar sem sagt væri frá árás illræðismanna á hús Davíðs konungs, sem mjög kemur við sögu í Gamla testamentinu. En þegar ég renndi yfir fréttina sjálfa varð mér ljóst að átt var við Davíð þann Oddsson sem ekki kemur ólítið við sögu í testamenntum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar guðspjallamanns frjálshyggjunnar á Íslandi.

Vart þarf að fjölyrða um, að óhræsið sem lagði til atlögu við hús og bifreiðar Davíðs er eitt af þessum vitfirrtu illræðiskvikindum sem fá útrás bilunar sinnar við að svívirða eignir stórmenna sem þau öfunda af sjúklegri heift. Og að skrifa níðkviðling á húsvegg slíks manns, sem Davíð er, flokkast hiklaust undir guðlast, drottinssvik og föðurlanssvik og þess ógæfumanns er þennan svívirðilega glæp framdi bíður ekkert annað en eilíf útskúfun þessa þeims og annars.

En svo ég víki nú að öðru: Þá man ég eftir andstyggilegri níðvísu, eftirmælum, sem mig minnir að illa innrættar systur hafi ort um afa þeirra nýlátinn. Það skal tekið fram að afinn var meiriháttar maður, sómi sinnar sveitar og búhöldur mikill sem í engu mátti vamm sitt vita:

Fjallaskauða foringinn

fantur nauðagrófur,

er nú dauður afi minn,

Oddur sauðaþjófur. 


mbl.is Egg og níð á hús Davíðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Andstyggileg er hún, ekki alveg ókunn og hringhent að auki.

Emil Örn Kristjánsson, 20.7.2009 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband