Leita í fréttum mbl.is

Þegar býður þjóðarsómi ...

mafia1_892301.jpgMerkispilturinn Bjarni N1 Benediktsson, sem sagður er formaður Sjálfstæðisflokksins, mun hafa látið ljós sitt skína á Alþingi í dag, ef marka má frétt mbl.is. Meðal annars ku Bjarni hafa haft á orði að kominn sé tími til að ríkisstjórnin fari að tala máli okkar íslendinga. Nú er það svo að þeir sem taka mark á Bjarna má telja á fingrum annarrar handar og er það vel. En betur má ef duga skal.

Ef ríkisstjórnin vill á annað borð tala máli okkar íslendinga á hún að einhenda sér í setja lög um Sjálfstæðisflokkurinn verði lagður niður og starfsemi hans og líkra samtaka bönnuð. Glæpasamtök sem stuðlað hafa að hruni þjóðar sinnar með pólitískri hugmyndafræði, ábyrgðarleysi og víðtækri spillingu á auðvitað að leggja af hið snarasta, annað væri fullkomið andvaraleysi. Það þerf ekki mikla athyglisgáfu til að sjá hvernig allir þræðir fjármálahagsmuna hins gjörspillta auðvalds á Íslandi koma saman í Sjálfstæðisflokknum, utan nokkurra mjög alvarlegra tilfella sem tilheyra sjálfu Framsóknarfjósinu. Þennan forherta íhaldsframsóknaróþverra ber ríkisstjóninni að kveða niður án undanbragða af festu og dugnaði. Þegar býður þjóðarsómi - þá er engra undanbragða auðið. 


mbl.is Ekki öll nótt úti enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Að hann fái sömu með ferð og aðrir öfgaflokkar til hægri í Evrópu.

Ekki myndi ég syrgja það

Kristbjörn Árnason, 10.8.2009 kl. 16:59

2 identicon

Ekki veit ég hvort þú telur þig vera að styðja Samfylkinguna með því að boða fasisma og afnám félagafrelsis.  Stundum er nú betra að halda kj.

Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 17:02

3 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Ekki hef ég verið sammála mörgu sem sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið fyrir, en í þessu máli er ég sammála þeim sem réttilega benda á að lítið verði eftir af sjálstæði þjóðarinnar ef hún lætur tæla sig inn í tröllaukið báknið, allt sem stefnir til meiri miðstýringar er eitur í mínum beinum, tel mig samt litla þjóðrembu. Mikil miðstýring gagnast fyrst og fremst stjórmála-framapoturum, stórfyrirtækjaeigendum og fjármagnseigendum og býður heim hættu á auknu lögregluríki og smásmugulegu reglugerðarfargani. Við eigum að ganga á undan með góðu fordæmi og segja okkur skilið frá svikamyllu-arðráns-fjármálakerfi því sem jarðarbúar búa við, þótt töff yrði það um tíma myndi almenningur annarra þjóða kannski taka við sér og reyna að varpa af sér okinu...semsé, alþjóðleg uppreisn gegn gjörspilltu kerfi, bylting með öllu sem slíku myndi fylgja, því að siðspillta elítan lætur ekki taka af sér forréttindi sín og gullgæs án öflugrar mótspyrnu, það hefur hún margoft sýnt í gegnum síðustu aldir og skirrist ekki við að stofna til styrjalda jafnvel ef með þarf eins og þeir sem eru ágætlega inn í heimi baktjaldamakks og valdabrölts þekkja, á toppi valdapýramídans er aðeins pláss fyrir siðblindingja...enda langar fáa aðra til að synda með hákörlum og velta sér með svínum í forinni.

“The issue which has swept down the centuries and which will have to be
fought sooner or later is the People vs. The Banks.”
- Lord Acton, Lord Chief Justice of England, 1875

"We began planning the Revolutionary War in order to issue our own money
again" -Benjamin Franklin .

"Men fight for liberty and win it with hard knocks. Their children, brought up easy, let it slip away again, poor fools. And their grand-children are once more slaves." -D H. Lawrence

Að láta t.d ESB báknið gleypa sig mun ekki færa komadi kynsóðum neitt annað en að verða einnig skuldaþrælar svikamyllukerfis, það þarf að ganga af því dauðu en ekki endurreisa það á kostnað almennings sem fæstir gera sér grein fyrir því að það er vitlaust gefið og að sumir eru með marga auka ása upp í erminni.

Georg P Sveinbjörnsson, 10.8.2009 kl. 17:07

4 Smámynd: Jón Sveinsson

SAMMÁLA ER ÉG ÞÉR GÍSLI GUNNLAUGSSON

Jón Sveinsson, 10.8.2009 kl. 17:08

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Að banna stafsemi Sjálfstæðisflokksins og hliðstæðra samtaka er sjálfsögð viðleitini til að koma í veg fyrir fasisma.

Meðan Sjálfstæðisflokkurinn var við völd fyrir hrunið glitti víða í einkenni sem oft má sjá þar sem ógnarstjórn ríkir. Eitt af þeim einkennum var almenn hræðsla við að tjá sig; fólk var farið að trúa því að það gæti leitt af sér atvinnumissi og aðra óáran. Í verslun og viðskiptum óx einokun eins og Andskotinn á fjósbita, það sama var uppi á teningnum á öðrum sviðum avinnulífsins. Þeir sem höguðu sér ekki samkvæmt vilja valdsmanna í stjórnmálum og efnahagslífi áttu ekki von á góðu og sumir fengu harkalega á baukinn. Yfirgangur, spilling og glæpamennska var orðin alsráðandi. Þetta ástand var merkt fasísku eðli sem einugis gat magnast þar til það hrundi að lokum fyrir tæpu ári síðan, Guði sé lof.

Jóhannes Ragnarsson, 10.8.2009 kl. 17:42

6 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Verst að okkur og komandi kynslóðum er samt ætlað að borga mikla peninga til að endureisa arðráns-ósköpin, ekki skyldi nokkur halda að mikil alvara sé í orðskrúði valdaaðila heimsins, hvað þá Íslands, um að leikreglur verði gerðar sanngjarnari gagnvart varnarlitlum almenningi.

Georg P Sveinbjörnsson, 10.8.2009 kl. 17:53

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Leikreglurnar eru ævinlega fjármagnsvaldinu í vil. Því verður að breyta og því verður breytt. Langlundargeð alþýðu manna er brátt á þrotum. Ef langlundargeðið þrýtur er bylting óumflýjanleg.

Jóhannes Ragnarsson, 10.8.2009 kl. 18:07

8 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég er bjartsýnismanneskja. Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ekki á hjálp að halda við að leggja sig niður. Ég trúi því einfaldlega ekki að íslenska þjóðin muni leggjast svo lágt að kjósa þessa óþverra sem lögðu þjóðarskútuna á hliðina. Ja, ekki nema að við viljum að hún (skútan) sökkvi til botns. Þá er um að gera að kjósa Barnar N1svínaflensu og alla hans meðreiðarsveina.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 10.8.2009 kl. 21:40

9 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mæl þú manna heilust frú Ingibjörg, en ég hef ekki sömu trú og þú á háttvirtum kjósendum. Villtir minkar eru bannaðir með lögum á Íslandi þar eð þeir eru taldir vargar í véum, það sama á að gilda um samtökin alræmdu sem kenna sig við sjálfstæði.

Jóhannes Ragnarsson, 10.8.2009 kl. 21:50

10 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Vilt þú þá Jóhannes að þeir skulu skotnir á færi hvar sem til þeirra sést eins og blessaður minkurinn?  Þú veist að þeim verður varla útrýmt öðruvísi.

Ég er svo steinstandandi bit á að Bjarni Ben og Sigmundur Davíð skulu fá sig til þess að opna munninn opinberlega að ég er farin að snúa þessu öllu upp í andhverfu sína.

Er meira segja farin að biðja fyrir þessum greyjum. nei fyrirgefðu ég ætlaði að smella þessu tákni inn

Ingibjörg Friðriksdóttir, 10.8.2009 kl. 22:10

11 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég á nú ekki beinlínis við að þeir verði skotnir á færi hvar sem til þeirra sést, en gjörspillt samtök hægrimanna á fortakslaust að banna með lögum. Ég hefi lengi beðið Drottinn um að taka í taumana varðandi Sjálfstæðisflokkinn, en hann hefur af einhverjum ástæðum þverskallast við, fór reyndar með hann niður í 23-24% síðast. En betur má ef duga skal. Rétt eins og Drottinn afmáði Sódómu og Gómorru á hann að afmá Sjálfstæðisflokkinn á Íslandi sem og alla aðra Sjálfstæðisflokka heimsins.

Um dvergmennin Bjarna Ben II og Sigmund Davíð vil ég helst ekki ræða. Það borgar sig ekki að eyða dýru á þessháttar þúfutittlinga.

Jóhannes Ragnarsson, 10.8.2009 kl. 22:57

12 Smámynd: Hilmar

Það voru svona menn, eins og þessi bloggari sem urðu þess valdandi að ég hraktist frá vinstri. Ég hraktist þó ekki svo langt að ég kysi til hægri, en nægilega langt til þess að vita að ég rataði aldrei aftur til forsjárflokkanna.

Ég var líka nægilega mikið í vinstrinu til að upplifa spillingu þar.

Menn eins og blogghöfundur hafa hugsanlega aldrei gert sér grein fyrir hvernig vinstrispillingin virkar, hugsanlega vegna þess að þeir eru uppteknir af því að velta fyrir sér hægri spillingunni.

En vinstrispillingin felst einmitt í því að hafna fólki vegna pólitísks þankagangs og hampa öðrum vegna hreinna og fagurra sósíalískra hugsjóna. 

Því kemur það ekki á óvart að lesa hvatningu frá hreinhugsandi sósanum að best sé að banna pólitíska andstæðinga.

Varðandi Bjarna Ben, þá tel ég hann margfalt skárri kost en Jóhönnu og Steingrím, og þó tel ég manninn hreinræktað spillingar-fifl.

Ég veit ekki um aðra, en ég get engan veginn verið sáttur við að lægsti samnefnarinn skuli verið skársti kosturinn í stöðunni, eingöngu vegna þess að hann hugsar til vinstri

Hilmar, 11.8.2009 kl. 01:31

13 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Við erum sem sagt algjörlega 100% sammála Jóhannes. Við munum ekki hætta að suða í Drottni fyrr en fylgið mælist undir heilögu tölunni 7. 

Við eigum að vera þjóð þar sem félagshyggjan ræður ríkjum, þjóð án spillingar, þjóð þar sem gleðin og málfrelsið ræður ríkjum. Þjóð sem skilur að orð geta táknað ólíka hluti hjá ólíku fólki og svo geta ólík orð táknað það sama. Hvað voru þroskaheftir t.d. kallaðir í þínu ungdæmi? Ég skrifaði um þetta í gær.

Niður með Sjálfstæðisflokkinn

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.8.2009 kl. 08:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband