Leita í fréttum mbl.is

Niðurlæging samtaka launafólks er alvarlegt mál

Auðvaldssví 2Það hefur vægast sagt verið hörmulegt að fylgjast með niðurlægingu samtaka launafólks á almennum markaði síðustu ár. Það er engu líkara en svokallaðir forystumenn þessara samtaka, með örfáum undantekningum, hafi komið sér saman um að fjarlægjast fólkið sem heldur þeim uppi eins mikið og mögulegt er. Þessum auðvirðilega forystulýð virðist yfir höfuð fjandans sama um kaup og kjör launafólks og þá einkum og sérílagi laun þeirra lægst launuðu, verkafólksins. Úrkynjun og sjálftökuhyggja verkalýðsleiðtoga er alvarlegt mál, svo alvarlegt að við svo búið má ekki standa studinni lengur. Þegar svo er komið að örfáar manneskjur hafa tekið sér öll völd í hreyfingu, sem tugir þúsunda félaga greiða félagsgjöld til, og fara með þau að eigin geðþótta er nóg komið. Það er sannast sagna viðbjóðslegt að horfa uppá sleikjuskap og undirgefni Gylfa ASÍ-forstjóra og húskarla hans við atvinnurekendur og fulltrúa kapítalismans. Hvað á að segja um hálaunaða verkalýðshöfðingja, sem ákveða uppá sitt einsdæmi að fella niður áður umsamdar launahækkanir láglaunafólks? Eru svoleiðis kláðagemlingar yfirleitt á vetur setjandi? Og hvað kemur þessu liði til að haga sér á þennan hátt?

Og hvernig stendur á því að ólánsgaarmarnir Gylfi Arnbjörnsson, Kristján í Keflavík og Skúli Thoroddsen lögðust í skítlegan kafbátahernað til að bola Aðalsteini Baldurssyni úr embætti formanns matvælasviðs Starfsgreinasambandsins og komust upp með það? Ástæðan fyrir aðför fyrrnefndra þremenninga á hendur Aðalsteini liggur svo sem í augum uppi: Aðalsteinn er einn af sárafáum forystumönnum í almennu verkalýðshreyfingunni sem hægt er að kalla sannan verkalýðssinna og að sama skapi sjálfum sér samkvæmur, heiðarlegur og fylginn sér. Þessháttar persónu geta skrifstofusjakalarnir á kontórum ASÍ og Starfsgreinasambandsins ekki umborið, því skal hún lögð í einelti og gert útaf við hana.

Hvort almennum félagsmönnum verkalýðshreyfingarinnar tekst að vakna svo til vitundar að þeim auðnist að reka Gylfa Arnbjörnsson og hans hirð af höndum sér veit ég ekki. En hitt veit ég að verði þessum ódámum ekki komið fyrir kattarnef mun úrkynjun og niðurlæging hreyfingarinnar halda áfram og taka stærri og dýpri dýfur í framtíðinni.

Ef heldur fram sem horfir verður hreinlega að stofna samtök gegn Gylfa Arnbjörns, Kristjáni í Keflavík, Skúla Thoroddsen og þeirra líkum innan verkalýðshreyfingarinnar. 


mbl.is Stöðugleikasáttmálinn í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Aðalstein passaði ekki inn í klíkuna gengið og var ekki nógu þægur og vildi hækka lægstu laun.

Rauða Ljónið, 26.10.2009 kl. 22:30

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Etta eru eymíngjar...

Steingrímur Helgason, 26.10.2009 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband