Leita í fréttum mbl.is

Lifa þar fáir og hugsa smátt

fleng0.jpgEkki er hátt á þeim risið á Seltjarnarnesinu fremur en fyrri daginn. Að rúmlega 1000 manns taki þátt í prófkjöri hjá Sjálfstæðisflokknum í þessu litla og lága sveitarfélagi bendir til að þar á bæ hafi fólk lítið lært og enn minna skilið. Það virðist ekki hafa flögrað að Seltirningum ennþá hvað Sjálfstæðisflokkurinn er í raun og veru og hverju hann hefur áorkað í að niðurlægja íslensku þjóðina með öfgum sínum og hræsni, hvað þá að þátttaka í starfsemi þessara illræmdu samtaka sé að öllu leyti ámælisverður og mannskemmandi galskapur.

Hvort einhver Ásgerður eða einhver Gvendur hafi fengið fleiri atkvæði í prófkjöri villimannasamtakanna sem kenna sig við sjálfstæði skiptir engu máli að öðru leyti en því, að með framagosastreði sínu hafi þau gert sig enn minna fólki og auðvirðilegri en efni standa kanske til. En þeim stendur þó til boða að víkja af vegi villu sinnar og segja sig alfarið frá Sjálfstæðisflokknum og bjarga þar með sálarheill sinni, þó ekki væri meira.


mbl.is Ásgerður sigraði á Nesinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Sorglegt helvíti að eitt þúsund manns skulu vera svona vitlausir í einu og sama sveitarféæaginu.

Níels A. Ársælsson., 8.11.2009 kl. 09:03

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Níels minn, fórstu öfugumeginn framúr - þér fer illa þessi geðvonska sí og æ

Jón Snæbjörnsson, 8.11.2009 kl. 10:39

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Jón.

Hvað er í gangi vinur ?

Níels A. Ársælsson., 8.11.2009 kl. 10:56

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hér er ekkert í gangi Níels minn - maður er rétt vaknaður og þá sér maður að það er verið djöflast í sveitarfélaginu mínu

annars er ég bara rólegur

Jón Snæbjörnsson, 8.11.2009 kl. 11:04

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ætli Jón sé ekki að skríða útúr samskonar kjarnorkuvetri og annar Jón, sem við þekkjum Nilli, skríður útúr mörgum sinnum á ári.

Jóhannes Ragnarsson, 8.11.2009 kl. 11:44

6 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Þeir þarna á Seltjarnarnesinu ætluðu sér eitt sinn að hugsa stærra og fluttu inn kommúnistasnúð sem hrakist hafði af öðru nesi. Áður en varði hafði hann komist í vondan félagskap og fundið félagskap í samspillingarsnúð. Sá vildi ólmur í stað þess að taka á verkefnum líðandi stundar, eyða tíma sínum og orku í að bjölluat. Svo mikið ergelsi höfðu þeir gert á nesinu lága, eða þeir hrökkluðust á brott enda vildu íbúarnir ekkert með svona pörupilta að gera. Síðast fréttist af þeim kauðum í Evrópu, þar sem stunda bjölluat í höfuðstöðvum Evrópusambandsins, og þykjast vera fulltrúar heillar þjóðar sem ekkert vill af þeim vita.

Sigurður Þorsteinsson, 8.11.2009 kl. 11:56

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hér vaða menn í vitinu, eða þannig.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.11.2009 kl. 12:02

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, Axel Jóhann, og svo verðum við bara að vona að enginn hérna drukkni í vitinu.

Jóhannes Ragnarsson, 8.11.2009 kl. 12:09

9 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

kann vel við ykkur strákar - hressir og sprækir  annars hjólaði ég niður á höfn áðan og kom við hjá Stebba "glugga" í Kaffivagninum - fékk mér kaffi og smurbrauð með hangikjöti, vona er nú gott að búa nálægt henni höfuðborg því hér sefur allt frameftir um helgar .

Jón Snæbjörnsson, 8.11.2009 kl. 13:59

10 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Æi fyrirgefðu Jón minn kæri skólabróðir.

Ég var búinn að gleyma hvað þú ert mikill sjálfstæðismaður.

Ég átti bara ekki von á að þú værir svona snemma á fótum og stæðir vaktina.

Já er Stebbi karlinn á Vagninum ?

Níels A. Ársælsson., 8.11.2009 kl. 15:41

11 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ekki málið Niels - júbb Stebbi rekur þetta enn þó svo að hann hafi ekki sést þar þegar ég kom þarna við í morgun - sá að vísu í kellinguna fyrir innann svo kanski var kauði þarna í kleinubakstri

Jón Snæbjörnsson, 8.11.2009 kl. 17:02

12 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ekkert að marka þessar kosningar. Fólkinu var talin trú um að það væri að velja næsta jólasvein handa börnunum.

Árni Gunnarsson, 8.11.2009 kl. 19:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband