Leita í fréttum mbl.is

Þvílík djöfulsins hræsni og viðbjóður

hannez5_897707.jpgÞað væri nær að þeir andlegu krypplingar sem hyggjast reisa minnisvarða um þá þingmenn sem samþykktu Icesave-frumvarpið ættu að breyta áætlun sinn þar um og tileinka minnisvarðann frekar þeim ólánsgemlingum sem voru þess valdandi að efnahagslíf þjóðarinnar hrundi og ófreskjur eins og Icesave urðu til.

Og það skulu íhalds- og framsóknardruslurnar vita, að þeirra spillingarsamtök komast ekki til valda þó Icesave-samningurinn verði ekki að lögum. Um það verður séð af fólkinu í landinu. Stjórnmálaöfl sem ekki sýna minnstu iðrun eftir að hafa komið þjóðinni á vonarvöl eiga vart tilverurétt, hvað þá að hreiðra um sig í stjórnarráðinu á nýjan leik.

Og mikill óskapar viðbjóður er að verða vitni að hræsni og slepjulátum sjúklinganna sem tilheyra óaldarsamtökunum sem kenna sig við sjálfstæði og framsókn; þetta hyski hefði með glöðu geði samþykkt mikið verri Icesave-samninga en þá sem liggja þessa stundina á skrifborði forseta Íslands, ef það væri við völd. Ég lagði það á mig að hlusta á nokkra þingmenn stjórnarandstöðunnar tala við þriðju umræðu Icesave-málsins og satt að segja hef ég aldrei heyrt fólk tala jafn fjálglega án snefils af sannfæringu þvert um hug sér. Guð forði okkur frá því að slíkur óþrifafénaður komist til valda aftur á Íslandi.


mbl.is Iceslave safna 800 þúsundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Hvað er þetta maður. Þetta er auðvitað allt félagshyggjuflokkunum að kenna.

Þeir störtuðu Icesaveklúðrinu. Við munum ekki lengur en viku aftur í tímann..

hilmar jónsson, 3.1.2010 kl. 21:58

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ef þeir sem standa að baki snilldarhugmyndarinnar um fyrrnefndan minnisvarða er ekki einvalalið fábjána, veit ég ekki hvað fábjáni er.

Jóhannes Ragnarsson, 3.1.2010 kl. 22:04

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Segðu..

hilmar jónsson, 3.1.2010 kl. 22:06

4 Smámynd: Halla Rut

Var ekki Björgvin úr Samfó bankamálaráðherra þegar allt hrundi. Gerði hann einhvern tíman eitthvað? Hann vissi ekki einu sinni hve fjármálaeftirlitið var spillt og vel á minnst því hefur aðgerðaleysi þess ekki verið sérstaklega rannsakað?

Þetta sama fólk sem nú er á þingi fyrir VG og Samfó var líka á þingi þegar þetta var allt í pottinum að sjóða, þau voru í nefndum og fl. og engin sagði neitt. Ingibjörg Sólrún hét t.d. ennþá fast í að sækja um í Öryggisráðinu eftir hrun jafnvel þótt það mundi kosta okkur milljónir árlega og það í gjaldeyrir. Forgangsröðin var slík.

Þetta er nefnilega allt sama tóbakið og allir tóku þátt. Hægri - Vinstir hefur ekkert með þetta að gera.

Halla Rut , 3.1.2010 kl. 22:09

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Halla er gangandi sönnun um gleymskuna frægu..

hilmar jónsson, 3.1.2010 kl. 22:10

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þetta er einfaldlega ekki rétt hjá þér, Halla Rut. Ef þú manst lengur en eitt ár aftur í tímann, ættir þú að muna eftir baráttu VG, ekki síst Ögmundar Jónassonar, gegn þeirri þróun sem lauk með því að íslenskt efnahagslíf féll fyrir björg.

Frasinn: ,,allir tóku þátt" er ekki einasta ömurleg lygaþvæla, heldur sérlega fyrirlitlegur og ósvífinn áróður úr herbúðum auðvaldsóbermana, sjálfstæðis- og framsóknarmanna. 

Jóhannes Ragnarsson, 3.1.2010 kl. 22:20

7 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þeir sóma sér vel saman á skammarminnisvarða.

Annars var mín tillaga að þeim sem stóðu gegn þessu yrði reistur heiðursbautastein. Þar mætti nafn Ögmundar vera feit- og gullletrað.

Sigurður Þórðarson, 3.1.2010 kl. 22:32

8 Smámynd: Halla Rut

Ég var nú að meina að allir sem stóðu þessi ár á þingi og voru í öllum þessum nefndum sem aldrei gerðu neitt. Ég var alls ekki að tala um fólkið í landinu almennt.

Halla Rut , 3.1.2010 kl. 22:39

9 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég held, Halla Rut, að þú verðir að einskorða þig við þá sem voru í meirihluta, réðu ferðinni. VG barðist einarðlega gegn straumnum, frjálshyggjuváinni og einkavæðingunni, og uppskar fátt annað en háðsglósur fyrir frá framsóknaríhaldinu, m.a. að þeir væru á móti öllu og stunduðu fjallagrasa- og torfkofapólitík.

Þannig er nú það.

Jóhannes Ragnarsson, 3.1.2010 kl. 22:49

10 identicon

Er ekki bara sjálfsagt að reisa þeim veglegan minnisvarða

Svona til frekari glöggvunar væri gott að hafa myndir

t/d af bankamálaráðherranum sem svaf á vaktinni

Guðmundur Baldursson (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 23:00

11 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Sjálfumgleðin og vanþroskinn er yfirgengilegur

Kristbjörn Árnason 3. janúar 2010

www.visir.is Hafa safnað einni milljón vegna Iceslave minnisvarða

Fer oft saman.  Enda fólk með milljónakosningasjóði  í vösum sínum

Milljónabörnin eru að sýna félgsþroska sinn, fólki sem þarf að greiða

hækkaða skatta vegna mistaka þeirra sjálfstæðismanna

  • Þetta eru auðvitað dæmigerð hugsun Þessara sjálfstæðismanna þarna á Suðurnesjum sem eru með allt niður um sig í atvinnu málum og hafa lengi verið. Það var ekkert sem kom upp á núna, nei það  er gamalt vandamál sem sjálfstæðismenn hafa aldrei viljað takast á við.
  • Þetta er nokkuð sem öll eðlileg samfélög hugsa um samfara uppbyggingu á öllu því félagslega sviði sem sveitarstjórnar mál. Á Alþingi var þessi kona fulltrúi fyrir áköfustu hægri mennina á þingi og samábyrg fyrir þeim mistökum og aumingjaskap sem Sjálfstæðisflokkurinn hefu sýnt af sér þegar eiit hvað bjátar á.

Það eru allir sammála um sekt Sjálfstæðisflokksins og mistök varðandi einkavæðingu bankanna.

Allir vita hver setti seðlabankann á hausinn

og enn fleiri vita, að það var forsætisráðherra Ísands Geir Haarde sem klúðraði þessum Icesave - málum.

Þótt þjóðin hefði gjarnan vilja vera laus við að borga þessa blóðpeninga fyrir þessi mistök ráðherra Sjálfstæðisflokksins

sem betur fer hafi tekist að laga aðeins greiðsluskilmálana örlítið.

Geir Haarde hefur þegar viðurkennt þessi mistök.

  • Þá eitt víst í öllu þessu máli, að Sjálfstæðisflokkurinn getur aldrei þvegið af sér þessa skömm og alls ekki með skrípalátum og heldur ekki með því að undirgangast ekki mistök sín.
  • Þetta fólk hefur ekki verið lengi að því að safna einni milljón, eitt handtak með hægri fæti.
  • Því þetta eru hjá þessu fólki hreinir smáaurar.
  • Því fólkið í þessum hóp hefur fengið í prófkjörstyrki allt upp í 25 milljónir.

Það færi eflaust vel á því að reisa þennan minnisvarða við Tjarnargötuna í Keflavík í landi Höskuldarkots.

Kristbjörn Árnason, 3.1.2010 kl. 23:07

12 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú ert þó ekki að tala um bankamálaráðherrann Valgerði Sverrisdóttur, Guðmundur minn? Þú manst eflaust hvað hún gerði á ,,vaktinni"?

Jóhannes Ragnarsson, 3.1.2010 kl. 23:18

13 Smámynd: Halla Rut

Vissulega gerði Steingrímur það sem þú hér segir. Sannleikurinn er hins vegar sá að hans stefna gengur ekki upp. Sú skattpíning sem hér er að verða og verður enn frekar mun hér allt lifandi drepa.  Hans stefna er að skjóta þá niður er ná í vatnið.

Að ég tali nú ekki um hans svik að vilja skrifa undir IceSave og samþykkja að sækja um í ESB. Og til hvers og af hverju ...jú til að halda áfram í ríkisstjórn, vera ráherra og fá feita tékka á mánuði. Græðgi hans í völd og aur er engu minni en forvera hans.

Það var regluverkið og eftirlitið sem brást og spillingin lak hér um allt og fáir sögðu eitt eða neitt við því og fannst þetta bara allt í lagi. Það er mörgum að kenna og mikið þeim er hér voru á þingi og enn meira þeim er voru í ríkisstjórnum á þessum tíma. En það hefur ekkert með hægri eða vinstri að gera. Spilling verður á báða bóga ef fólkið í landinu stendur ekki vörðinn yfir þeim sem það ræður til verka. 

Halla Rut , 3.1.2010 kl. 23:25

14 identicon

Halla Rut, það er ástæða fyrir því að það þurfi að skattpína okkur; við erum á hausnum. Og þú veist líklega, sem lántakandi að þegar lánið hækkar þarftu að fá meiri tekjur. Ríkissjóður er í sömu stöðu.

Það er rétt hjá þér að regluverkið og eftirlitið brást. En hverjir sjá um að setja reglurnar og að fylgjast með? Það voru Sjálfstæðis- og framsóknarflokkurinn með Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson í fararbroddi. Þú s.s. viðurkennir það?

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 03:34

15 Smámynd: Halla Rut

Já, það er það sem ég var einmitt að segja. Ekki ætla mér að bundir með  hausinn við einhvern flokk. Ég vil vera frjáls hugsandi manneskja, laus við flokksátrúnað, ESB og IceSave.

Þú færð í raun minna í kassann með því að skattpína. En það skilja nú því miður fáir. Það er eins og t.d. þú værir með snúðabúð og ætlaðir að reyna að selja einn snúð á þúsundkall. Það mundi engin kaupa hann því engin hefur efni á svo dýrum snúð einhverjir mundu jafnvel reyna að stela honum ef þeir væru snúðasjúkir. Ef þú mundir hins vegar haga framleiðslunni þannig að hann kostaði 95kr þá gætir þú jafnvel selt milljón snúða og fáum þætti taka því að hnupla frá þér.

Það er ekki hægt að borga neitt af engu og þessi ríkisstjórn mun með ráðum sínum skjóta þá niður sem vilja leggja það á sig að ná í vatnið.

Halla Rut , 4.1.2010 kl. 04:12

16 identicon

Mig minnir að ég hafi átt í skoðanaskiptum við þig um hversu heppin við íslendingar værum að eiga mann eins og Davíð Oddsson. Skjátlast mér?

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 11:09

17 Smámynd: Baldur Hermannsson

Ég hafði nú ekki ráð á meiru en 2500 krónum, en greiddi þær umyrðalaust - sumir greiða 5000 eða jafnvel 10 000 krónur. Það er spurning hvar þessi smánarsteinn á að standa - ég efast um að hann fái reit í garði Alþingishússins, sem þó væri auðvitað við hæfi.

Þegar þessi snjalla hugmynd var kynnt stakk ég sjálfur upp á því að heldur yrði reistur bautasteinn til sæmdar þeim sem kusu gegn samningnum, en sú hugmynd fékk engan byr í seglin.

Það er afar mikilvægt að halda til haga nöfnum landráðamannanna til þess að þingmenn seinni tíma minnist þess hvað ber að varast.

Baldur Hermannsson, 4.1.2010 kl. 13:12

18 Smámynd: Halla Rut

Ágúst: Ekki man ég sérstaklega eftir þessu en getur samt vel verið. Davíð er auðvitað snilldar stjórnmálamaður og mikil stjarna þótt vissulega beri hann ábyrgð á því að selja þessum glæpamönnum  bankann okkar og gæta því svo ekki að almennilegt eftirlit væri. En þessi athugasemd þín sínir svo vel hve menn eru fastir í þessu flokkadrætti. Allt er hugsað út frá flokkum. Það er nákvæmlega það sem er að og þessvegna munu hlutirnir seint breytast.

Ef ég dáist af Davíð þýðir það þá að ég muni kjósa Sjálfstæðisflokkinn endilega. Ég dáist af nokkrum stjórnmálamönnum (fáum samt) og eru þeir fáir í sama í sama flokki. Allir sem verið hafa lengur en 2 ár í stjórnmálum eru spilltir. Spilltir á þann hátt að þeir fylgja ekki eigin sannfæringu heldur láta flokkinn sinn ganga fyrir öllu. Ráðamenn okkar flestir eru keyptir á einn eða annan hátt og er það auðvitað ástæðan fyrir því að engin hefur verið handtekin og engar eignir frystar eins og VG lofaði svo heitt.

Heldur einhver að Davíð hafi verið sá eini sem var boðið fé. Nei og svo aldeilis ekki. Hann var bara eini sem sagði NEI. Og ég mynni á að hin heilaga Jóhanna fékk líka aura frá FL Groub en það er aldrei talað um það. Þau eru öll eins og hafa flest þegið peninga frá einkafyrirtækjum sem verður að teljast óeðlilegt.

Halla Rut , 4.1.2010 kl. 13:50

19 identicon

Heill og sæll Jóhannes; æfinlega - sem og, þið önnur, hér á síðu hans

Ágúst Valves !

Á þér má skilja; að þú viljir viðhalda gamla þjóðfélags kerfinu, hvert hrundi til grunna, haustið 2008.

Það eigið þið þá sameiginlegt; ungu Marx-Lenínista skrattarnir, með helvítis Heimdellingunum, eða hvað, Ágúst minn ?

Halla Rut !

Davíð Oddsson; er einhver mesti drullusokkur, hvern; Ísland hefir alið, sé þér ekki farið að skiljast það, mín forna vinkona - og spjall vinkona.

Með beztu kveðjum; sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 14:24

20 Smámynd: Auðun Gíslason

Já, þeir fara mikinn hinir andlegur krypplingar!  En munum bara að vera góð við aumingja, að minnsta kosti meðan jólin vara!  Ég hef reynt í lengst lög að vera ekki vondur við Höllu Rut, hálfpartinn vorkennt henni!  En nú get ég ekki orða bundist lengur!  Halla Rut:  Grow up!  Opnaðu augun! (Það er og seint fyrir Baldur Hermannsson.  Hann verður áfram í hlekkjum hugarfarsins í búri með Davíð, góðvini sínum).  Davíð Oddsson er skaðvænlegasti stjórnmálamaður, sem þjóðin hefur eignast.  Hrunið var óhjákvæmilegt vegna þeirrar stefnu, sem hann mótaði fyrir Sjálfstæðisflokkinn (ásamt meðreiðarsveinum sínum) og svo Seðlabanka Íslands. 

Sem vintri(öfga)maður verð ég að vera sammála Óskari Helga!  Það þarf ekki bara að moka útúr kamrinum!  Það þarf að kveikja í honum!  Svo hann brenni til grunna!

Lifi byltingin!  Rauð og blóðug!

Auðun Gíslason, 4.1.2010 kl. 15:16

21 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hehe heyra í þessum sófakommúnistum. Sá held ég geri nú byltingu. Maður sem mígur á sig þegar hann sér blóð.

Baldur Hermannsson, 4.1.2010 kl. 15:26

22 Smámynd: Auðun Gíslason

Æ, Baldur minn!  Ég segi ekki meir!  Það eru enn jólin.  Já, og talandi um landráðamenn (svakalegt orð, og notað af miklu ábyrgðarleysi).  Eru það ekki mennirnir, sem völdu að gæta frekar hagsmuna einkafyrirtækja en hagsmuna þjóðarinnar?  Ég hefði haldið það!  Icesave-málið allt er ávöxtur þess.  Hagsmunagæslu ríkisstjórna Sjálfgræðisflokksins fyrir einka- og aðal-.  Ekki satt?  Eða hefurðu ekki lengur lyst á að verja einkaframtakið og frjálshyggjuna?

P.s. Sveitamenn hafa sjálfsagt einkarétt á blóðinu og kartöfluræktinni!

Auðun Gíslason, 4.1.2010 kl. 16:00

23 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Sem talað úr mínu hjarta Jóhannes og er ég nú ekki alltaf sammála þínum vísdómsorðum.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 4.1.2010 kl. 19:56

24 Smámynd: Auðun Gíslason

Helvíti góð skoðanakönnun hjá þér, Jóhannes!  43% vilja að Sjálfstæðiðflokkurinn verði bannaður og leystur upp!!!  Glæsilegt!!!

Auðun Gíslason, 5.1.2010 kl. 03:05

25 identicon

Ég veit nú ekki hvernig þú færð það út að ég vilji sama gamla kerfið... og að ég sé lenínisti. Í báðu hefuru rangt fyrir þér og ég veit ekki hvernig þú lest það út.

Ef Davíð er svo frábær Halla, afhverju lánaði hann kaupþing 100 milljarða þremur dögum fyrir hrun? Spilltur eða heimskur?

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 5.1.2010 kl. 18:09

26 Smámynd: Auðun Gíslason

Nema hvorttveggja sé?  Ágúst!

Auðun Gíslason, 5.1.2010 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband