Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, desember 2007

Terrorísk klósettbrussa.

Helvítis ruddakvenmađur held ég ţess klósettbrussa í Penisylvaníu í Bandaríkjunum sé. Ekki vildi ég hafa svona kerlingarvarg inni á mínu heimili. Auđvitađ er alveg sjálfsagt ađ loka ţessa konu inni í a.m.k. 90 daga fyrir sinn ljóta munnsöfnuđ og gribbugang. Ef ég mćtti ráđa fengi hún 90X90 daga fangelsisvist. Og ekki var kvendiđ, Dawn Herb, ađ taka tillit til ţess ađ úti á götu vćru sómakćr og viđkvćm börn, sem urđu ađ neyđast til ađ hlusta á bölviđ og ragniđ í henni og skađast af á geđi fyrir lífstíđ. Fyrir nú utan ađ salernisskálar eru heilög vé á hverju kristilegu heimili. Einusinni varđ ég vitni ađ óguđlegum svarragangi í svona kerlíngu ţegar ég var á gangi um friđsćla götu í Reykjavík á mánudagsmorgni. Svo sá ég ţessa konu koma fjúkandi út um stofugluggann. Húsbóndinn, eiginmađur konunar, var nefnilega heima ţegar hún rauk upp og batt međ skjótum hćtti enda á terrorismadjöfulgang eiginkonunnar.

Og nú kemur spurningin: Var ţarna um kynbundiđ ofbeldi ađ rćđa eđa ókynbundiđ? 


mbl.is Ákćrđ fyrir ađ bölva biluđu klósetti
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Heilnćmi klósettvistar

Ţađ er ekki ađ ţví ađ spyrja: karlfjandinn vildi heldur lokast inni á barnum en klósettinu. Satt ađ segja held ég samt, ađ hann hafi veriđ betur geymdur á klósettinu ţessa fjóra daga, hann gerđi a.m.k. ekkert af sér á međan. Og ţó hann hefđi drukkiđ uppúr salernisskálinni má ganga ađ ţví vísu ađ hann hefđi ekki orđiđ vitlaus og timbrađur af ţví, öfugt viđ ef hann hefđi dandalast sí-drekkandi brennivín á barnum í heila fjóra daga. En nú er karluglan sloppin út af klósettinu og sestur ađ á barnum og af ţví má sjá ađ honum hefđi ekki veitt af ađ dúsa fjörutíu daga og fjörutíu nćtur á hinu rómađa salerni. Eftir slíka maraţonvist hafđi hann komiđ út af klósettinu eins og vćngjađur mannkynsfrelsari.


mbl.is Fastur á salerni í fjóra daga
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sá sem sparar vöndinn hatar son sinn

Ekki lái ég tannlćkninum ţó hann hafi látiđ slag standa og rassskellt bölvađan púkann sem ćtlađi ađ brjóta allt mélinu smćrra á tannlćknastofunni. Ég geri mér hinsvegar ekki alveg grein fyrir hvađ gert yrđi viđ tannlćkni á Íslandi sem gripi til sama óyndisúrrćđis og sá danski. Líklega yrđi hann úthrópađur af siđavöndum samlöndum sínum, sviptur mannorđi og sparkađ í hann eins og hund á götum úti. Annars er snörp flenging ótrúlega holl sjö ára púkum ţví sá sem sparar vöndinn hatar son sinn, en ţá sem hann refsar elskar hann, eins og Pétur heitinn skósmiđur sagđi ţegar hann flengdi strákana sína á kvöldin eftir óknytti dagsins.  
mbl.is Tannlćknir rassskellti sjúkling
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Grjótkast á Suđurnesjum.

Ţessi Árni hlýtur ađ vera rakinn götustrákur ef rétt er ađ hann stundi grjótkast í allar áttir. Ef ég skil rétt, ţá er Árni sá er um er rćtt í fréttinni atarna, bćjarstjóri suđur međ sjó og ćtti ţví ađ vita ađ grjótkast getur veriđ varasamt, ef ekki beinlínis hćttulegt og síst viđ hćfi bćjarstjóra ađ sunda slíka iđju. Enda segja félagar hans í bćjarstjórn Reykjanesbćjar ađ hann ,,ćtti ađ líta sér nćr áđur en hann kastar steini út glerhúsi." Međ ţessum orđum eiga bćjarstjórnarfélagarinr eflaust viđ ađ Árni vćri betur kominn í torfkofa međ sitt steinasafn en í glerhúsi. En ţađ er víst ekki á allt kosiđ hjá glerfínum frjálshyggjubćjarstjóra í einkavinavćđingarham.

 


mbl.is Árni sagđur kasta steini úr glerhúsi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Áfengismenning ölvađra olíubílstjóra

Svo hafa fjölfróđir menn í áfengismenningu sagt mér í trúnađi, ađ fátt sé eins yndislegt og ađ aka fullfermdri eldsneytisbifreiđ vel drukkinn. Fullum manni á olíubíl líđur, ađ sögn ţessara manna, eins og dyggđum prýddum konugi sem er ađ gilja frillu sína í nćsta herbergi viđ drottninguna. Og ađ ljúka slíkri ökuferđ međ góđri veltu út í urđ, kvu líkjast mest stórbrotnum lokahnykk sama konungs og frillunnar. Hinsvegar má ýmislegt ađ slíkum ökuferđum finna og ţá einkum viđkomandi ökumönnum. Satt ađ segja ćtti ađ endurreisa Svartholiđ á Bessastöđum og slaka ţangađ niđur ţeim delum sem komist hafa undir mannahendur fyrir ađ valsa um blindfullir á eldsneytisvögnum. Auk ţess yrđi mjög gaman fyrir forseta vorn og eiginkonu hans ađ taka sér gönguferđ út ađ Svartholinu á sunnudögum og henda brauđmolum niđur til ódámana sem ţar eru fyrir. En áfengi og kvenfólki má ekki fleygja niđur til ţessara manna ţví ţeir kunna sér ekkert magamál ţegar ţessháttar munađur er í bođi.     
mbl.is Ökumađur olíubíls grunađur um ölvun
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sönglist Bo og Garđars Hólm

Ekki veit ég gjörla hvernig á ţví stendur ađ ţegar ég heyri sagt frá söngskemmtunum stórsöngvar dettur mér alltaf Garđar Hólm í hug. Eins og menn muna, ţá bar Garđar Hólm heimssöngvari hróđur Íslands vítt og breitt um veröldina međ tónmennt sinni; söng fyrir kónga og keisara og annađ fyrirfólk sem og páfann í Róm, sem, ađ sögn, lauk miklu lofsorđi á list íslendingsins. Ekki var heimsöngvar ţessi mikiđ fyrir ađ eyđa söng á landa sína. En lokatónleika sína hélt hann ţó á Íslandi fyrir móđur sína, sem raunar var eini áheyrandinn fyrir utan undirleikarann Álfgrím Hansson sem knúđi orgelharmóníum söngnum til styktar og frekari upphafningar. Nú ćtla ég mér ekki ţá dul ađ reyna ađ halda fram, ađ nokkur núlifandi söngvari, íslenskur, ađ Bo Hall međtöldum, komist nokkru leyti međ tćrnar í námunda viđ hćlana á Garđari Hólm ţegar söngur er annarsvegar. Hinsvegar er viđleitni Bó og annarra slíkra ađ halda uppi sönglist á Íslandi virđingarverđ, ţó ţeim verđi aldrei bođiđ ađ flytja list sína fyrir kónga, keisara og páfa. Björgvin Halldórsson verđur ţví ađ láta sér lynda ađ fá náđasamlegast ađ orga yfir lítt tónelskan almúgann í Laugardalshöllinni á jólaföstunni, sjálfum sér til dýrđar en öđrum til nokkurrar Ţórđargleđi.   


mbl.is Björgvin í jólaskapi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Gljárakađ sjónvarpstrýni ASÍ

Jćja, ţá eru jepparnir í ASÍ búnir ađ ráđa til sín blađafulltrúa. Nú á ţekkt sjónvarpstrýni ađ verđa andlit alţýđsamtakana útáviđ, hvađ svosem ţađ á ađ ţýđa. En auđvitađ geta hinir glerfínu stagkálfar á kontornum hjá ASÍ ekki veriđ minni menn en vinir ţeirra í stófyrirtćkjunum, sem á undanförnum árum hafa hafa keypt hvert fjölmiđlasmettiđ eftir annađ til ađ réttlćta tilveru ţeirra og gjörđir. Ef ađ svo illa er komiđ, ađ kjörnir fulltúar verkalýđssamtakanna geta ekki drullast til ađ tala máli umbjóđenda sinna á opinberum vettvangi, er erindi ţeirra í verkalýđspólitík lokiđ fyrir fullt og allt. En ţađ skilja ţessir ömurlegu labbakútar ekki fremur en annađ. Ţví miđur hefur verkalýđshreyfingin, og ţá einkum kjörnir fulltrúar hennar, sćtt ţeim örlögum ađ úrkynjast hćgt og bítandi og verđa samdauna ríkis- og atvinnurekendavaldinu, ţ.e. stórauđvaldinu í sinni skemmtilegu mynd. Hvort verkalýđshreyfingin á Íslandi á nokkurn tíman eftir ađ öđlast ţann sess, sem henni ber, sem róttćkt ţjóđfélagsafl í fylkingarbrjósti stéttarbaráttu, treysti ég mér ekki ađ spá fyrir um, en hitt veit ég ađ ráđning á gljárökuđu sjónvarpstrýni ASÍ gerir ekkert nema undirstrika uppskafningshátt og vesaldóm samtakanna.     


mbl.is Snorri Már deildarstjóri upplýsingadeildar ASÍ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Eđalkratarnir og fátćktin

 „Ţađ er náttúrlega mjög sárt ađ sjá ţá fátćkt sem blasir viđ manni hérna. Ţađ eru alltof margir, sem ţurfa ađ lifa undir skilgreindum fátćktarmörkum." Ţessi stórkostlegi texti er hafđur eftir frú Jóhönnu Sigurđardóttur, sem skreiđ ásamt fleiri eđalkrötum upp í auđvaldsflet íhaldsins fyrir hálfu ári síđan. Ţađ virđist ekki vćsa um eđalkratana í fletinu, enda vađ ţađ hlandvolgt eftir Halldór Ásgrímsson og félaga ţegar eđalkratana bar ađ garđi. Ţađ virđist ekki hvarfla ađ Jóhönnu og hennar slekti, ađ fátćktin, sem Jóhönnu finnst náttúrlega mjög sárt ađ sjá, stafar af stéttarskiptingu. Ţví síđur hafa Jóhanna og eđalkratarnir grun um ađ ekkert gerist í ţessum ,,mjög sáru" málum međan ekki verđur ráđist á stéttarskiptinguna međ afgerandi, byltingarkenndum hćtti. Ónei, eđalkrötunum nćgir ađ nudda sér upp viđ kálfana á íhaldinu og rembast viđ ađ stunda smáskammtalćkningar međ plástur ađ vopni - og gráta krókódílatárum yfir ,,alltof mörgum sem ţurfa ađ lifa undir skilgreindum fátćktarmörkum," eins og frú Jóhanna orđar ţađ svo smekklega.
mbl.is Neyđin eykst
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Hneyksli í tilnefningu til bókmenntaverđlauna !

Mikiđ sakna ég ţess, ađ hin stórbrotna sakamálasaga, ,,Sjórćningjarnir," eftir dr. Lárus Ísleif Úlfsson skuli ekki hafa veriđ tilnefnd til Íslensku bókmenntaverđlaunanna. Ţađ er örugglega ekki á neinn hallađ, ţó fullyrt sé, ađ sjórćningjabók dr. L. Í. Úlfsson sé lang-viđamesta höfuđrit á íslensku, í flokki fagurbókmennta, sem komiđ hefur út á ţessari öld. Í ,,Sjórćningjunum" er rakin á hispurlausan hátt starfsemi íslenskra sjórćningja frá 1984 og hvernig ţeim tóks á afburđa snjallan hátt ađ koma landsbyggđinni á kné og stela heilli milljarđaauđlind međ fagurgala, lygum, fláttskap, grćđgi og miskunarleysi.

Ţađ er ţó huggun harmi gegn, ađ ekki-rithöfundurinn Sjón skuli hafa veriđ tilnefndur til verđlauna, sem ţýđir ađ ţeir sem ađ tilnefningum stóđu, eru ekki minna ringlađir en blindar mýs í tómum búrskáp.


mbl.is Tilnefningar kynntar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Jólakonur fyrir jólasveina - strax !

Ég hefi lengi velt fyrir mér hvernig í andskotanum getiđ stađiđ á ađ jólasveinarnir 13 séu allir karlkyns. Ţrátt fyrir glćsilega framgöngu fémínísta á öllum vígstöđvum, situr allt viđ sama í jólasveinabransanum, sem er algerlega ótćkt á 21. öldinni. Ég geri ţá kröfu, ađ a.m.k. sex af karljólasveinunum verđi ţegar í stađ reknir til síns heima, en í ţeirra stađ verđi fengnar jafnmargar jólakonur. Ég legg til, ađ jólasveinunum Gluggagćgi, Skyrglámi, Pottaskefli, Kjétkróki, Bjúgnakrćki og Kertasníki verđi stampađ. En í ţeirra stađ komi jólakonurnar Kisulóra, Pönnutuska, Bjúgnakrćkja, Vodkasníkja, Piltagýma og Buxnaţefja. Ef ţessi frábćra hugmynd mín nćr fram ađ ganga, yrđi ţađ tvímćlalaust einhver mesti stórsigur jafréttisbaráttunnar frá upphafi. Og reyniđ ţiđ svo ađ bera upp á mig ađ ég sé ekki dugandi fémínísti.


mbl.is Sveinki fékk far međ ţyrlu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband