Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Á ruslahauga ómennskunnar

Það er áreiðanalega margt sem Keflavíkur-Stjáni hjá verkalýðssamtökunum með skrítna nafnið skilur ekki. Eitt með öðru sem þessi andverkalýðssinnaði stagkálfur áttar sig ekki á, eða ölluheldur vill ekki átta sig á, er að kröfugerð í kjarasamningum uppá minni laun en fólk getur lifað á með fullri reisn fyrir 40 stunda vinnuviku er lítið annað en ósvífin kaldhæðni. Í þessu sambandi er vert að geta, að Kristján þessi Gunnarsson formaður Starfsgreinasambands Íslands, hefur ítrekað staðið fyrir klofningi samtaka verkafólks þegar komið hefur að kjarasamningum. En Krisján er sem kunnugt er eitt aðalhjólið undir svokölluðu Flóabandalagi sem virðist hafa það að markmiði að halda launum verkafólks niðri. Að þessi auðvirðilegi manngarmur, ásamt lagsbræðrum sínum, sé í forsvari fyrir landssamtök verkafólks hljómar í mínum eyrum eins og verið sé að gera grín að verkalýðsstéttinni. Fyrir mína parta er ég búinn að fá yfir mig nóg af hugsjónalausum og svikulum verkalýðssamtakarekendum og tel mál til að komið að kasta þeim auðvirðilega lýð á ruslahauga ómennskunnar. Í framhaldi af slíkri nauðsynlegri hundahreinsun myndi fólkið sjálft verkalýðsvæða samtök sín í sína eigin þágu. 
mbl.is Skilur ekki hvað Vilhjálmi gengur til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja kerlingin

Aumingja kerlingin hún Ingbjörg R. að vera svona í óvissu um kjaraviðræðurnar sínar og vina sinna í samtökum atvinnurekenda. Þeir eru aldeilis rytjulegir og rassþungir þessa dagana vesalings verkalýðsfélagarekendurnir okkar þessa dagana enda er þreytandi að halda uppi kjarasamningaleiksýningu í fáeinar vikur. Þar fyrir utan vill enginn heyra eða sjá broddborgara almennu verkalýðshreyfingarinnar lengur því annað eins samansafn af loddurum og leiðindaskjóðum er vandfundinn á byggðu bóli.
mbl.is Kjaramál í mikilli óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bleyðimenni á dauðadeild

Ekki er að sjá að dvöl Kenny Richey að dauðadeild í Ohio hafi verið honum nema í meðallagi heilsusamleg því hvað eftir annað hefur litlu munað að hann yrði sjálfdauður úr hjartveiki meðan hann beið þess að vera leiddur á höggstokkinn. Þessi krankleiki hr. Richey er stórundarlegur, svo ekki sé stærra tekið uppí sig, þar eð löng bið eftir aftöku er undantekningarlaust holl til líkama og sálar fyrir þann sem á að hengja. Til eru dæmi um að Fyrirmyndarfangar á dauðadeildum hafi sökum kapps og áræðis ekki mátt vera að því að bíða eftir að vera embættaðir og hengt sig sjálfir, eða lógað sér á einhverna annan viðkunnanlegan hátt og haft fulla sæmd af. En þessi skoski spólurokkur, hr. Richey, virðist vera annarar og lakari gerðar en vejulegir, frómir og dugmiklir menn sem hafa verið dæmdir til deyðingar. Sennilega er þessi þorpari rakið bleyðimenni og líklega haldinn ergi í þokkabót og þar með fjarri því líklegur til að vinna það stórafrek sem þarf til að verðskulda heiðarlegan dauða í sérhönnuðum elektrónískum hægindastól.   
mbl.is Látinn laus eftir 21 ár á dauðadeild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinavæðing Össurar skarpa

Það er merkilegt að Össur ráðherra skuli ekki tína til meginröksemdina við val hans á orkumálastjóra, semsé að hann og Guðni eru gamlir og góðirkunningjar, m.a. úr djöfladansinum í Alþýðubandalaginu sáluga. Og hvað er svosem að því að Össur stundi smávegis vinavæðingu í embættisfærslum sínum?
mbl.is Segir Guðna hafa sterka framtíðarsýn fyrir Orkustofnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látalæti hugsjónalausra moldarpoka

Satt að segja setur að mér hlátur í hvert skipti sem ég heyri eða sé í fjölmiðlum að aplafylin, í hinu úrkynjaða Starfsgreinasambandi undir forystu Kristjáns í Keflavík og Skúla Thor, séu eitthvað að reyna að derra sig. Það vita allir sem vilja vita, að vanburða holtaþokuvælið í þessum lítilsigldu smámennum og moldapokum er í besta falli ótrúverðug látalæti hugsjónalausra atvinnuverkalýðsrekenda; innistæðulaust skyldubaul nautgripa sem hafa engan áhuga á kjörum verkafólks nema hvað þeim þykir ágætt að vera á launum hjá þessu sama verkafólki. Og varla þarf að taka fram að laun verkalýðsrekendanna eru oftar en ekki allnokkru hærri en launin sem þeir semja um fyrir þá sem hafa þá á fóðrum. Að mínu mati er óþarfi fyrir hina vesölu formannahjörð Starfsgreinasambandsins að teygja lopan í yfirstandandi kjaraviðræðum og undirrita strax kjarasamningana sem hvort eð er eru tilbúnir á bak við tjöldin. Næsta vers gæti svo verið að steypa forystuslektinu í Starfsgreinasambandinu af stóli og í framhaldi af því að verkalýðsvæða þessi hrjáðu og tröllum gefnu samtök verkafólks.  
mbl.is Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins ráða ráðum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draugfullar konur velta út úr bifreiðum.

Hvurskonar andskotans fyllirí er alltaft stöðugt á þessum svokölluðu ökumönnum. Það mætti ætli að núorðið setjist ekki nokkur maður ófullur undir stýri. Og ekki virðast kerlingarnar betri. Það var dálagleg sjón, sem ég var vitni að fyrir fáeinum dögum, þegar ég sá hverja konuna eftir aðra hálfpartinn velta út úr bifreiðum sínum fyrir framan sjálfa Kringluna og skjögra síðan með óstöðugum fótaburði á útsölurnar með glýju í rauðum glyrnunum. Ekki veit ég hvernig á að venja fólk af þessari óþverrahegðun, en líklega verður að banna annaðhvort bíla eða brennivín. En sennilega væri þó affarasælast að banna hvort tveggja.  
mbl.is Ók ölvaður um miðborgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauð frilla og draugur á Stokkseyri

Nújá. Er þessi Bensi Draugur á Stokkseyri virkilega að hvetja til opinbers framhjáhalds í sinni sveit? Aldrei kæmist nokkur maður á Snæfellsnesi upp með slíkt athæfi. Annars man ég vel eftir veglegu vaskafati sem stundaði frillulíferni á árum áður með karlóbermi af einhverri jólasveinaætt. Ég get fullyrt að sú merkilega kvinna myndi auðveldlega sigra í hvað keppni sem er um frumlegustu hjákonuna ef hún væri ekki dauð. Blessuð sé minning hennar.
mbl.is Frumlegasta hjákonan verðlaunuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helludrengir ógna lýðræðinu

Þessir hræðilegu Helludrengir kvu vera skyrktir til dáða af Al-Qaeda samtökunum illræmdu; annað getur bara ekki verið. Þetta segir okkur, að samtök Osama bin Laden hafa teygt anga sína til Íslands, um það vitna vítisvélarnar í fórum drengjanna. Og sennilega hafa þeir ætlað að sprengja Alþingishúsið og Seðlabankann í loft upp og afnema lýðræðið í landinu. 
mbl.is Unglingur ók um með sprengjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svavarsvæddur Ögmundur

 

,,Hún er með félagslegar hugsjónir sínar á hreinu á sama tíma og hún talar það sem kallað er mannamál. Allt þetta, andúð fólks á spillingu, löngun til að halda eignarhaldi á orkulindunum hjá þjóðinni og væntumþykja um hugsjónafólk, varð til þess að Svandís nýtur stuðnings í þeim mæli sem opin kosning hjá RÚV ohf leiddi í ljós."

Ofanritaðan þvætting fann ég á heimasíðu Ögmundar Jónassonar þar sem Ögmundur tekur sér einn ganginn enn fyrir hendur þá ósvinnu að mæra Svandísi nokkra Svavardóttur. Áður hefur Ögmundur látið sig hafa að skrifa oflofskenndar varnaðaragreinar um Svandísi og þá ekki síður þann kynduga ,,hugsjónamann" Svavar, föður Svandísar. Ég man eftir einni slíkri ritsmíð sem bar þá framúrstefnulegu yfirskrift: ,,Mér finnst Svavarsvæðingin góð" og fjallaði um þá óstjórnlegu hamingju í lífi VG þegar Svavar sendiherra og hans nánasta skyldulið komu stormandi inn í VG, löngu eftir að sá flokkur var stofnaður, og sögðu: ,,nú skal ég" og var umsvifalaust troðið innst á jötuna og sumt af því basli meira að segja sett á laun hjá flokknum.

En hvar var þetta ofurmannlega svavarssett með allar sínar meintu hugsjónir þegar Vinstrihreyfingin grænt framboð var stofnuð? Ójú, flest af því slekti var blessunarlega víðsfjarri, gott ef það var ekki í sinni ruglingslegu framsóknarmennsku eitthvað að kjá utaní Samfylkinguna. Því miður vildi Samfylkingin ekkert með hugsjónaþrungna svavarsvæðingu að gera, þannig að hinn vegvillti lýður ákvað að binda endi á eyðimerkurgöngu sína með því að troða sér inní VG - en ekki Framsóknarflokkinn, sem hefði verið mun betur við hæfi.

Hvað Ögmundur er að fara með því að mæra svavarsgengið og svavarsvæðinguna er mér hulið. En þó má vera að hann telji sig skulda þessu liði einhvern andskotann. Ef svo er, er það mesti misskilningur af hálfu Ögmundar. Honum væri nær að halla sér að raunverulegum samherjum sínum í pólitík, en að berjast við að verja mannskap sem er í raun óverjandi í ranni sósíalista.  


« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband