Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
21.11.2008 | 19:42
Hræsnari sem ekki kann að skammast sín
Ja, heyra á endemi, sem samþykkti eftirlaunalögin á sínum tíma, skælbrosandi út að eyrum og myndi eflaust standa að því að hækka umrædd lög enn meir, stæði það til boða.
Orð Valgerðar frá Lómatjörn um að breytingar á hinum alræmdu eftirlaunalögum þess efnis, að þær séu rýrar í roðinu, eru ekkert annað en hræsni sem venjulegu fólki verður óglatt af að hlusta á. Að Valgerður þessi kunni að skammst sín er af og frá, enda er hún framarlega í flokki þeirra mörgu þingmanna sem nauðsynlegt er að hreinsa út af þingi í kosningunum í vor.
Það er orðið tímabært, að fólk fari í alvöru að ræða um hvaða núverandi alþingismenn þjóðin þurfi að losna við í næstu kosningum. Rökin fyrir þeirri umræðu eru augljós: Aldrei áður hefur slíkur fjöldi af ónothæfum, eða blátt áfram hættulegum einstaklingum setið á Alþingi íslendinga.
Gengur of skammt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.11.2008 | 17:54
Situr á sínum íhaldsrassi
Miðað við innanbúðarástandið í Samfylkingunni getur varla verið nema en um tímaspursmála að ræða hvenær Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gengur í Sjálfstæðisflokkinn. Svo virðist þessi undarlegi formaður jafnaðarmannaflokksins reyrð í bak og fyrir við Gjeir Haaarde og hin gjörspilltu samtök hans að þar gengur ekki hnífurinn á milli. Á meðan ráðherrar, þingmenn og almennir félagar í Samfylkingunni lýsa yfir vantrausti á ríkisstjórnina situr Ingibjörg Sólrún á sínum íhaldsrassi sem fastast við hliðina á Gjeir og gerir orð hans að sínum í einu og öllu.
Hver var nú aftur tilgangurinn með stofnun Samfylkingarinnar? Var hann að samfylkja vinstrimönnum til valda, eða samfylkja með Sjálfstæðisflokknum og frjálshyggjukapítalismanum?
Óska eftir launalækkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2008 | 21:58
Skrifstofusjakalar og sníkjudýr
Alþýðusamband Íslands er eins og illa mannaður síðutogari í eigu auðvaldsins. Það vill enginn ærlegur maður heyra né sjá þennan ryðbrunna hlandkopp sem siglir undir stjórn spilltra skrifstofusjakala sem lifa eins og sníkjudýr á launum verkafólks og iðnaðarmanna.
Þegar hafist verður handa um að byggja upp hið nýja Íslands, þegar Gjeir og Davíð og allt það dót verður horfið á braut, verður nauðsynlegt að umbylta ASÍ úr stéttasamvinnubákni í lifandi stéttarbaráttutæki.
Líflegur ASÍ-fundur í kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2008 | 21:14
Komið að leiðarlokum
Það er komið kvöld í ævi ríkisstjórnar Gjeirs Haaardes og Ingibjargar Sólrúnar. Stundarglasið er að tæmast. Kossar á hlaðinu við Þingvallabæinn þornaðir; frjálshyggjukýrin blóðmjólkuð. Spillingin og afglöpin ein eftir á hrjóstrugum mel lyga og baktjaldapukurs.
Nú líður ekki sá dagur, að ekki komi nýjar fréttir af alskyns afglöpum stjórnvalda. Í morgun gerði Davíð Oddsson tilraun til að svifta hulunni af dug- og kæruleysi ríkisstjórnar Gjeirs Haaarde; karlinn kvaðst ítrekað og í langann tíma hafa varað ráðherra, Fjármálaeftirlitið og bankamenn við því að allt væri að fara til fjandans, en án árangurs. Það var ekki annað að skilja á málflutningi Davíðs, en það hafi verið einbeittur vilji umræddra aðila að láta allt fara til fjandans. Í kvöld birtist hægrikratahróið Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, í sjónvarpsfréttunum eins og draugur úr þjóðsögum Jóns Árnasonar, gaf í skyn að Davíð væri pólitískur ódámur sem ætti að passa sig. Í sama fréttatíma kom fram að Gjeir Haaarde man ekki neitt eins og venjulega, nema það helst, að ríkisstjórnin hafi með glöðu geði gert allt sem Davíð hefur sagt henni að gera á umliðnum árum. Og í Kastljósi kvöldsins gaf að líta hvar samfylkingarþingmenn og ráðherrar hlupu aftur á bak og áfram um ganga eins og hjartveikir apakettir.
Og svo var öllu lokið og leitinni var hætt
og líkin þau voru týnd en tjónin þau urðu ekki bætt.
Það skiptir ekki höfuðmáli þó það hafi komið til tals,
að helmingurinn var lýgi og svo afgangurinn fals.
Höf. Megas
6 fundir með seðlabankastjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2008 | 16:32
Er Haaarde að ögra þjóðinni af yfirlögðu ráði?
,,Gjeir H. Haaarde forsætisráðherra segir, að allir hljóti að hugleiða með sjálfum sér hver þeirra ábyrgð er. Hann telur þó ekkert hafa komið fram sem kalli á pólitískar afsagnir."
Hvað er eiginlega að manninum? Er hann haldinn smafélagslegri blindu? Eða er hann að ögra þjóðinni af yfirlögðu ráði? Sér Gjeir Haaarde að pólitísk afglöp hans, Davíðs, Halldórs og fleiri, eru margfalt tilefni til afsagna? Hvað þarf mikið til að pólitískar afsagnir séu hugsanlegar að mati forsætisráðherra?
Og hvað merkir orðið ,,ábyrgð" í huga Gjeirs Haaarde? Ég get svo sem svarað því sjálfur: Orðið ábyrgð er gjörsamlega merkingarlaust hjá Gjeir og hans nótum. Verkamaður í fiskvinnslu ber mikið meiri ábyrgð í raun, en æðstu ráðamenn þjóðarinnar, svo mikið er víst.
Með ofangreindum ummælum sínum hér að ofan, virðist forsætisráðherra vera að biðja um harðari viðbrögð gegn sér og sínu hafurtaski en orðið hafa. Og hann mun fá þau, og það óþvegin, ef hann biðst ekki lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt einhvern næstu daga.
Ekkert kallar á afsagnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2008 | 22:13
Það vantar fleiri raddir í mótmælin
Í kvöld fer fram enn einn fundurinn þar sem ástandinu í þjóðfélaginu er mótmælt, í þetta sinn á skemmtstaðnum Nasa (eða Nösu, eg er ekki viss um hvernig nafn staðarins er fallbeygt). Það er greinilegt að vaxandi þungi er að færast mótmælin og vandséð að stjórnvöldum takist að standa þau af sér með sæmilegu móti nema um það bil fram að áramótum.
Þó verður að segjast eins og er, að það er einhver ráðaleysistónn í mótmælaaðgerðunum. Þau hafa enn sem komið er ekki komist neinn áþreifanalegann farveg; meira að segja eru markmið þeirra óþægilega óljós.
Og það vantar fleiri raddir í mótmælin. Frummælendur á fundunum hafa enda verið af furðu einhæfum toga. Háskólaborgarar, blaðamenn og rithöfundar hafa nær eingöngu haft orðið. Rödd róttæks verkafólks hefur ekki komist að og kanske ekki til þess ætlast. Á nasafundinum í kvöld eru t.d. tveir af fjórum frummælendum bókmenntafræðingar, einn stærðfræðingur og einn blaðamaður. Á laugardagsfundinum á Austurvelli um síðustu helgi var boðið uppá einn heimspeking og tvo rithöfunda. Þetta fyrirkomulag verður að breytast ef mótmælaaðgerðirnar eiga ekki að staðna og trénast upp. Þess vegna fer ég fram á við skipuleggjendur mótmælafundanna að kalla fram á sviðið verkafólk, sjómenn og iðnaðarmenn. Þessi mótmæli ganga aldrei upp fyrr en alþýðan í landinu fær að vera með af fullum myndugleik.
Troðfullt á fundi á Nasa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2008 | 18:49
Náhirðin og tímabær dauði Maddömunnar
Þá hefur náhirðinni í Framsóknarflokknum tekist að slíta upp síðasta vottinn af félagshyggjurótum flokksins. Guðni Ágústsson hefur lengi verið þyrnir í augum spilltasta hluta Framsóknar. Halldór Ásgrímsson lagði fæð á hann, sömuleiðis Valgerður frá Lómatjörn, svo ekki sé minnst á REI-hyskið, ungu gráðugu spjátrungana sem vita hvorki í þennan heim né annan af valda- og peningagræðgi.
Mér finnst ekki ólíklegt að Guðni fylgi afsögn sinni eftir með því að segja sig úr Framsóknarflokknum og leita á önnur mið. Það kæmi mér ekkert sérstaklega á óvart þó Guðni styngi upp höfðinu, ekki innan langs tíma, hjá VG.
Framsóknarmaddaman hefur nú um all langt skeið legið í kör af ellisökum og uppdráttar. Nú er dauðastríð gömlu konunnar brostið á af fullum þunga. Þá er gott að minnast þess, að enginn hefur fram til þessa unnið sitt dauðastríð.
Það verður eflaust einhverjum þungt fyrir brjósti, en öðrum léttir, þegar hið níræða skar verður heygt í túnfætinum að Hriflu í Suður-Þingeyjarsýslu. En þetta er nú einusinni leiðin okkar allra, - líka Framsóknarmaddömunnar
Guðni segir af sér þingmennsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.11.2008 | 12:53
Einlægur flokksþræll með rispuð og mött framsóknargleraugu
,,Þarna kemur öflug baráttukona af Suðurnesjum" segi Guðni Ágústsson um Helgu Sigrúnu Harðardóttur varaþingmann, sem skríður upp í volgt bólið eftir Bjarna.
Við á moggablogginu könnumst ágæta vel við Helgu Sigrúnu. Það er full ástæða til að hvetja alla, sem vettlingi geta valdið, að skoða skrif Helgu Sigrúnar á blogginu því það fer einlægur flokksþræll sem sér alla skapaða hluti í svart/hvítu gegnum rispuð og mött framsóknarflokksgleraugu.
Ég get lofað því að það er skemmtileg lífreynsla að lesa sannann framsóknarsannleika eftir öfgaframsóknarkonu af Suðurnesjum sem nú er í þann veginn að gerast þingkvendi við hliðina á Valgerði Sverrisdóttur.
Guðni: Bjarni axlar ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.11.2008 | 12:39
Bjarni veldur hræðilegum vonbrigðum
Ég skil ekkert í Bjarna Harðarsyni að segja af sér á stundinni útaf bréfsnuddu sem inniheldur einungis fáein sannleikskorn um Valgerði Sverrisdóttur. Heldur hefði ég viljað sjá Bjarna láta kné fylgja kviði og keyra frjálshyggjukerlinguna frá Lómatjörn vel og vandlega undir ásamt öllum hennar afglöpum og vitleysu sem ekki eru all lítil.
Hefði honum ekki tekist að vinna á hinni varalituðu frjálshyggjuskessu innanflokks, hefði hann sem best getað flutt sig yfir í Frjálslyndaflokkinn og farið að gera það gott á valinkunna rólegheitabæ.
En að segja af sér þingmennsku umhugsunarlaust verður Bjarna Harðar ekki fyrirgefið í bráð, - og kanske ekki í lengd heldur.
Það eina góða við afsögn Bjarna er, að þeim þignmönnum, sem berir eru að þeim axarsköftum og niðurrifsstarfsemi sem nú hefur keyrt efnahagslíf þjóðarinnar í gjörsamlega í klessu, er nánast gert ósætt á þingi á eftir. Þeir verða allir sem einn að fylgja í fótspor Bjarna og hafa sig á brott. Og það munu þeir eflaust gera, nema þeir séu þeim mun spilltari og siðlausari.
Bjarni segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.11.2008 kl. 07:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.11.2008 | 21:44
Fjallaskauðaforinginn
Ráðherrarnir koma af fjöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 20
- Sl. sólarhring: 174
- Sl. viku: 1260
- Frá upphafi: 1542520
Annað
- Innlit í dag: 17
- Innlit sl. viku: 1113
- Gestir í dag: 17
- IP-tölur í dag: 17
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007