Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
28.11.2008 | 22:25
Henni verður hjálpað ef á þarf að halda
Ég geri fastlega ráð fyrir, að þær ráðstafanir sem ríkisstjórnin hyggst kynna eftir helgi felist í afsögn hennar.
Geri hún það ekki verður henni hjálpað til þess af fólkinu í landinu.
Aðgerðir kynntar eftir helgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.11.2008 | 22:08
Hvort viljum við þjóðfélag eða þjófafélag?
Hvernig ætli standi á því að hinir gifturíku þorparar sem véluðu um með fjármuni Giftar hafi ekki verið hnepptir í gæsluvarðhald? Hins sama má spyrja viðvíkjandi útrásarskoffínin og bankaséffana. Þetta ólánslið gengur laust eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Svarið liggur náttúrlega í því að við búum í þjófafélagi sem fengið hefur að þrífast og fara sínu fram í skjóli valdhafa. Það er skemmtilegt fyrir þann fróma stjórnmálaflokk, Samfylkinguna, sem stofnuð var til höfuðs Sjálfstæðisflokknum og spillingunni kringum hann, að hljóta þau örlög að deyja svo að segja inní þennann sama Sjálfstæðisflokk, gerast hans hjálparhella í að viðhalda þjófafélaginu við völd, ásamt öllu sem því fylgir, þvert ofaní vilja meirihluta þjóðarinnar. Af vinnubrögðum og framgangsmáta Samfylkingarinnar síðustu 20 mánuði er aðeins hægt að draga einn lærdóm: Að stofnun Samfylkingarinnar voru ein stór alsherjarmistök.
Vilja opinbera rannsókn á fjárþurrð Giftar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.11.2008 | 19:16
Hyskið er hvergi nærri hætt
Það er áreiðanlega afar erfitt fyrir Pál Magnússon að vera senditík fyrir háborgaralegu glamúrgelluna með frjálshyggjuþráhyggjuna, Þorgerði Katrínu, sem sögð er ,,menntamálaráðherra. En það hlýtur líka að vera gefandi fyrir sálina og samviskuna, að standa í því fyrir frjálshyggjuhugsjónina að gera harkalega aðför að flaggskipi íslenskrar menningar, Ríkisútvarpinu, með það að markmiði að leggja það í rúst.
Það er nöturlegt, að sama dag og senditíkin hleypur gjammandi um sali og ganga Ríkisútvarpsins með uppsagnarbréfin á lofti, boðar ,,menntamálaráðherrann" að nú sé sérlega gott lag til að svipta RÚV öllum tekjum af auglýsingum. Þessi makalausa aðför frjálshyggjuvesalinganna rímar líka undur vel við fréttir dagsins af hrakandi heilsufari Útgáfufélagsins Árvakurs, sem gerir Morgunblaðið út, og sýnir í leiðinni til hvers refirnir eru skornir.
En árás frjálshyggjuaflanna á RÚV sýnir okkur þó umfram allt, að þessi öfl eru hvergi nærri hætt skemmdarverkum sínum og niðurrifi, þrátt fyrir endanlegt hrun frjálshyggjukreddurnar. Auðvitað ætlar þetta fólk, sem meirihluti þjóðarinnar vill hvorki heyra né sjá, ekki að hunskast frá völdum fyrr en í fulla hnefana, enda telur það sig eiga allt og mega allt.
Sem betur fer dregur senn að því að ráðherragægsnin, ásamt þeirra gjörspillta skilduliði, verða dregin á afturlöppunum útúr stjórnarráðinu og fleiri valdagrenjum, og kastað út á malbikið.
Tími þjóðfélgsbyltingar liggur í loftinu. Það er skylda okkar, almennings í landinu, að framkvæma þá byltinguna.
Meiri aðgerðir en starfsfólk vænti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2008 | 17:51
Efnilegur klæðskiptingur - Össur í fötum Valgerðar
Það er afar göfugt af hálfu Össurar Skarphéðinssonar að eiga sér þann draum að feta í fótspor Valgerðar Sverrisdóttur og Halldórs Ásgrímssonar. Þau eru alls ekki slæmar fyrirmyndir fyrir jafn mikinn hugsjónamann og Össur. Þó hef ég miklar efasemdir um að blessaður drengurinn hann Össur komist nokkurn tímann í fötin af Valgerði og Halldóri. (Það væri reyndar nógu gaman að sjá iðnaðarráðherra í fötum af núverandi formanni Framsóknarflokksins).
Á fundinum á Háskólabíói í gærkvöldi kvaddi maður nokkur sér hljóðs sem sagðist hafa gert kaup við Össur ráðherra fyrir síðustu kosningar. Maðurinn sagðist hafa lofað að kjósa Samfylkingunna gegn einhverju sem Össur lofaði sem maðurinn vildi ekki nefna. Var á þessum náunga að skilja, að félagi Össur hefði svikið sinn hluta samkomulagsins. Þá vakanar spurningin: hverju lofaði Össur? Það skildi þó ekki vera að hinn mikli samfylkingarlautinant, Össur Skarphéðinsson, hafi lofað að fara ekki í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum? Ef svo er, þá er þetta ekki eini maðurinn sem Össur lofaði fyrir kosningar að fara ekki í sjórn með íhaldinu. Efndirnar þekkja svo allir.
Af loforðunum skuluð þér þekkja þá!
Í draumi sérhvers manns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2008 | 17:25
Gjeir stendur sig framúrskarandi vel
Aumingja karlinn hann Gjeir, að lenda í því að óvandaður fréttasnápur skuli hafa svipt tjöldunum frá skemmtilegri viðureign fréttasnápsins og forsætisráðherrarns. Það má svo sem vel vera, að það sé óþægilegt fyrir Gjeir að fólk sjái myndband á netinu hvar hann beitir óforskammaðann fréttamann ritskoðunartökum. Maður hefði trúað svonalöguðu uppá Brésnev heitinn aðalritara en ekki Gjeir okkar, þó að þeir séu að sönnu líkir.
En skaðinn er því miður skeður, Gjeir situr í súpunni sem geðillur ritskoðunnarþrjótur, og er þó ekki á bætandi fyrir mann í hans stöðu. En fólk verður að virða Gjeir til vorkunnar, að það er erfitt að vera frjálshyggjuforsætisráðherra þegar frjálshyggjan er hrunin. Það er eins og að reyna að fara á sjó á skipi sem búið er að rífa kjölinn úr.
Við getum þó huggað okkur við að Gjeir ætlar ekki að segja af sér í miðri á, eins og illkvittnir ódámar hafa verið að hvetja hann til. Gjeir stóð sig framúrskarandi vel á borgarafundinum í Háskólabíói í gærkvöldi. Það er huggun harmi gegn; gaf sér stund til að mæta þó hann ætti engann tíma aflögu frá stórbrotnum björgunaraðgerðum.
Krafa um að viðtali við Geir verði skilað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.11.2008 | 17:35
Er Pinochet hér?
Það er vægast sagt mjög alvarlegt mál ef rétt er að maðurinn með bónusfánann hafi tekinn fyrivaralaust og settur í afplánun. Þar væri þá á ferðinni valdníðsla sem Pinochet frjálshyggjuböðull í Chile hefði getað verið fullsæmdur af. En að slíkt skuli gerast undir handarjaðri frelsis og mannréttindahetjunnar Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra er ótrúlegt, enda ætla ég ekki að trúa þessu fyrr en 100% upplýsingar liggja fyrir um málið.
En nú er full ástæða fyrir valdastéttina í landinu að fara að fara með bænirnar sínar.
Mótmæli við lögreglustöðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.11.2008 | 16:26
Ófyrirleitinn stjórnmálamaður og lítil kerling
Það fer ekki á milli mála að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er mjög ófyrirleitinn stjórnmálamaður og að sama skapi lítil kerling. Það sem haft er eftir henni á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag er þess eðlis að allir ærlegir vinstrisinnar Samfylkingarinnar hljóta að standa upp og krefjast afsagnar hennar eða segja sig úr flokknum.
Þvættingurinn sem frú Ingibjörg lét eftir sér að demba yfir flokkssystkyni sín á umræddum fundi er sorglegt dæmi um einstakling sem er samdauna því valdakerfi sem ríkt hefur áratugum saman.
Ingibjörg Sórún er afar ánægð með að Ísland sé komið á klafa Alþjóðagjaldeyissjóðsins. Hún er ekki síður ánægð með fólkið sem mætir á Austurvöll helgi eftir helgi til að mótmæla henni sjálfri, Gjeir vini hennar, Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. Svo bætir þessi litla kerling því við að Samfylkingin eigi sér rætur í ,,lýðræðishefð!" Þvílíkt orðagjálfur, þvílík öfugmæli, þvílík hræsni og hroki.
Maður skyldi ætla að flokkur sem á sér rætur í lýðræðishefð vildi ólmur fara að kröfu fólksins í landinu um kosningar strax. En ... ónei ... Ingibjörg hin lýðræðissinnaða vill ekki kosningar á næstunni. Hún kýs að hlusta ekki á þjóð sína, til þess eru henni völdin og samveran með auðvaldinu of kær. Henni hugnast ekki að því að lýðurinn ráði, - er það nú öll lýðræðishefðin í Samfylkingunni, eða hvað?
Skilur frú Ingibjörg, og Samfylkingin hennar, ekki að fólkið í landinu kærir sig ekki um að núverandi ríkisstjórn leiki sér lengur í rústunum? Fólkið treystir henni ekki fyrir næsta húshorn, hvað þá lengra.
En eftir vill síast einhver skilningur innfyrir höfuðskeljarnar á Frú Ingibjörgu og Herra Haaarde, þegar lýðurinn, sem þau hlusta ekki á, kemur í heimsókn til þeirra einhvern daginn og fleygir þeim öfugum út úr stjórnarráðinu með berum höndum.
Áfallastjórnuninni lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.11.2008 | 11:07
Ungir ESB-talíbanar
Hann er ekki einleikinn talíbanalærdómurinn um ESB sem Samfylkingin berst við að koma á framfæri. Það vægast sagt hörmulegt að verða vitni að öðrum eins vinnubrögðum.
Annars ættu páfagaukar ESB-talíbanatrúboðsins að halda sig sem lengst frá Austurvelli í dag. Þangað eiga þeir ekkert erindi.
Boðið að kasta krónunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.11.2008 | 10:04
Ómerk orða sinna?
,,Báðir formenn ríkisstjórnarflokkanna neituðru því í gær að Jónasi Fr. Jónssyni, forstjóra FME, hefði verið skipulega haldið frá umfjöllun fjölmiðla á undanförnum vikum." (mbl.is)
Þessi kokhrausta yfirlýsing ríkisstjórnarforingjanna er sérdeilis undarleg í ljósi upplýsinga sem komu fram í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Í Kastljósinu var nefnileg skýrt frá því að hinn snjalli lautinant úr norska hernum, sem Gjeir og Ingibjörg réðu sér til halds og trausts þegar frjálshyggjan þeirra hrundi, hafi einmitt ráðlagt þeim að halda forstjóra FME algjörlega frá fjölmiðlum.
Sé það sem fram kom í Kastljósinu rétt, eru Gjeir og Ingibjörg, bæði tvö, orðin ómerk orða sinna. Ef það reynist rétt að þau hafi logið vísvitandi uppí opið geðið á þjóðinni, verða skötuhjúin að segja af sér undir eins.
Frammistaða FME ekki undirrót sameiningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.11.2008 | 09:15
Hornkerling í eigin flokki
Miðað við fréttir innan úr herbúðum Samfylkingarinnar virðist hinn hægrisinnaði formaður flokksins, frú Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, vera búin að mála sig útí horn gagnvart flokksmönnum sínum. Það er engu líkara en hún sé buin að gera upp við sig, að hún vilji fremur Gjeir Haaarde og valhallarliðið en fólkið í flokknum sem hún á að heita formaður fyrir. Þó má vera að frú Ingibjörg eigi enn einhverjar leyfar af baklandi í Samfylkinunni því þar hefur, fram að þessu, mátt finna heilmikið slangur af frjálshyggjupáfagaukum, sem Sjálstæðiflokkurinn gæti verið stoltur af.
Stjórnarsáttmáli heyrir sögunni til | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 23
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 1495
- Frá upphafi: 1542365
Annað
- Innlit í dag: 22
- Innlit sl. viku: 1317
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 22
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007