Bloggfærslur mánaðarins, október 2009
26.10.2009 | 18:34
Svínsinflúensa herjar líka á sjálfstæðisbúin Hvöt og Heimdall
Við svínaflensuna á svínabúinu er því að bæta, að svæsinn svínsinflúensa hefur skotið sér niður í sjálfstæðisflokksfélögunum Hvöt og Heimdalli. Hafa margir sjúklingar úr umræddum félögum fengið óráð og farið að tala tungum í þeim mæli að öðrum heimilsmönnum hefur ofboðið. ,,Hún hefur ekki verið í húsum hæf í fulla fimm sólarhringa" sagði þreyttur húsbóndi á sínu heimili um eiginkonu sína, sem er æstur félagi í Hvöt. Þessi maður lét flytja konuna á gjörgæsludeild í Valhöll í fyrradag.
Kunnur læknir í smitsjúkdómum lét hafa eftir sér í dag, að ekki kæmi á óvart þó svínsflensa herjaði með svipuðum hætti á svín í svínastíum og flokksbundna sjálfstæðismenn; eini munurinn á þessum dýrategundum væri að önnur þeirra væri æt en hin óæt, eiginlega hálfeitruð.
Grunur um að svín séu sýkt af svínaflensu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.10.2009 | 14:48
Vilhjálmur Gylfi skeggræðir við sjálfann sig um stóriðju og ESB
Já, ætli fari ekki best á að Vilhjálmur og Gylfi, sem heita einu nafni Vilhjálmur Gylfi Egilsson, láti sér nægja að gjamma hvor uppí annann um stóriðjurugl, ESB og hvernig þeir geti sem best þjónað auðvaldinu og sérhagsmunaaðlinum.
Annars er Gylfi andskotans ósköp knár karl og hraustur, sem á góðum dögum kallar sjálfann sig (og Vilhjálm vin sinn og bróður) Verkalýðshreyfinguna. Enda standa fáir að þessari sérkennilegu verkalýðshreyfingu ASÍ-höfðingjans fyrir utan Gylfa og Vilhjálm.
Fundað um yfirlýsingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.10.2009 | 13:59
Hækkuðu þeir ekki líka kaupið hjá fólkinu?
Það væri gaman að vita hvort Jón Ásbjörnsson og sonur borgi verkafólkinu sem vinnur hjá þeim í ,,nýju fullkomnu fiskvinnslunni" mannsæmandi kaup. Eða láta þeir sér sæma að sletta hungurlús, samkvæmt taxta Vilhjálms Gylfa Egilssonar og Kristjáns í Keflavík, í liðið? Ég trú ekki öðru en Jón og sonur hafi látið kné fylgja kviði, rifið sig uppúr smáninni, og hækkað kaupið hjá fólkinu sínu uppí 250 þúsun krónur á mánuði miðað við 40 stunda vinnuviku.
En mikið andskoti væri gaman að fylgjast með verkalýðshetjunum á Starfsgreinasambandskontórnum, þeim Kristjáni í Keflavík og Skúla Thoroddsen, reyna að pluma sig í lífinu á dagvinnukaupi fiskverkafólks. Ég er hræddur um að það yrði brátt um blessaða kappana að búa við slíka auðlegð.
Reistu stórglæsilega fiskvinnslu í miðri kreppunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.10.2009 | 10:57
Menningarlegur viðsnúningur
Ansi eru það góð tíðindi að drullumallararnir frá McDónalds séu horfnir á braut. Hingað til hefur það þótt óbrigðult merki um hnignadi menningu hvers þjófélags þegar ljósaskilti með McDónalds hafa farið sjást og menninguni hnignað þaðan í frá með hverju nýju auglýsingaskilti. Það verður því að teljast allnokkur menningarlegur viðsnúningu í jákvæða átt að Ísland hreinsist af hakkijukkinu frá amrísku Donnunum. Ef að kókakóla færi sömu leið og McDónalds þá færi landið loks að rísa af einhverju marki uppúr öldudal hinnar menningarsnauðu ómennsku.
Um bragðgæði McDónaldshamborgara þarf ekki að fjölyrða: öðru eins bölvuðu trosi hefur aldrei, hvorki fyrr né síðar, verið haldið að íslendingum. Og ekki kæmi mér á óvart þó ég fengi óyggjandi upplýsingar um að tættum dagblaðapappír væri blandað saman við hakkið í þessari einkar bragðvondu og fráhrindandi matvöru, ef matvöru skyldi kalla.
McDonald's hættir - Metro tekur við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.10.2009 | 21:28
Vilhjálmur Gylfi Egilsson framkvæmdaforseti ASSÍA
Óskaplega held ég hann sé hvimleiður maður þessi Vilhjálmur Gylfi Egilsson frakvæmdaforseti ASÍSA. Svona náunga á að geyma í skepnuheldri girðingu, innan um sína líka, eins og aðra nautgripi. Þó tekur út yfir allan þjófabálk þegar Vilhjálmur þessi Gylfi lætur sig hafa að ganga fyrir ráðherra til að leika hirðfífl, enda hlægja ráðherrarnir víst ótæpilega í hvert skipti þegar karlskjóðan er horfin á braut.
Og hver ætli kæri sig svo sem um heimsókn lítils hrunakarls, jafnvel þó hann þykist vera framkvæmdaforseti ASÍSA eða ASSÍA? Ekki nokkur maður, geri ég ráð fyrir. Það þarf enginn að verða hissa þó að ráðherrarnir kalli á lögregluna næst þegar Vilhjálm Gylfa ber að garði og láti fjarlægja skepnuna; leiðinlegt trúðgerpi verður nefnilega því leiðinlegra sem maður sér það oftar.
Þetta mjakast áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.10.2009 | 22:47
Rauðspritt og hvítidauði árið 1976
Það má mikið vera ef vínþrúgurnar í ár verða betri en árið 1976, en það er að flestra mati albesta þrúgnaár fyrr og síðar. Árið 1976 var grenjandi rigning frá því snemma vors og fram í miðjan júni en þaðan í frá hitasvækja fram í miðjan óktóber. Þetta ákjósanlega veðurfar gerði það að verkum, að þrúgurnar urðu helmingi stærri en í meðalári og svo rótsterkar að fullorðnir menn þurftu ekki að éta nema 3 - 4 beint af trjánum til að verða blindfullir, enda hafa aldrei jafn margir drukkið sig í hel en einmitt af hinum nafntoga 1976 árgangi. Manna á meðal var 76´rauðvínið aldrei kallað annað en ,,rauðspritt" og bar nafn með rentu því fólk lá einlægt eins og hráviður um öll gólf þar sem það var haft um hönd. Á sama hátt kallaðist 76´hvítvínið ´,,hvítidauði" og var svo höfugt að menn svifu hreinlega inní annan heim eftir að hafa slokrað nokkrum glösum af því í sig.
En Guð láti gott á vita. Vonandi verður 2009 árgangurinn ekki síðri en sá sem var bruggaður á því herrans ári 1976 því ekki veitir af alminnilegu rauðspritti og hvítadauða í því ömurlega árferði sem nú gengur yfir hinn siðmenntaða kapítalíska heim.
Von á óvenju góðu ítölsku víni í ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.10.2009 | 21:39
Þetta er nú ekkert miðað við aðra og stærri hýðingu
Húðstrýkt vegna sjónvarpsþáttar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2009 | 19:18
Þegar Ingimundur frjálshyggjuunglingur var handtekinn
Þegar ég las fréttina um innbrotin í bílana í dag kom mér í hug nýlegt afrek frjálshyggjuunglingsins Ingimundar. Ingimundur þessi ku býsna dáður í öllum frjálshyggjufélögum og mikið gert með það sem hann segir og hugsar á fundum frjálshyggjumanna. Svo var Ingimundur hantekinn síðastliðið vor þegar hann var að bisa við að bjótast inn í íbúð í austurbæ Reykjavíkur. Í kjölfarið var gerð árangursrík húsrannsókn hjá drenghænsninu, því auk rita eftir Milton Friedmann og Hannes Hólmstein Gissurarson, fundust hjá Ingimundi byrgðir af kókaíni í neytendaumbúðum, ætlað til sölu, og fúlgur fjár sem piltur hafði krækt í með innherjaupplýsingum varðandi peningaspilakassa og önnur fjárhættuspil.
Hvar Ingimundur er niðurkominn þessa dagana má Fjandinn einn vita, enda eru strákar eins og hann dottnir úr tísku og þykir orðið skömm að, að láta sjá sig með þessháttar labbakútum á götum og á kaffihúsum.
Innbrot í tvo bíla í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.10.2009 | 12:09
Guido verður ekki tengdasonur Íslands
Fyrsti samkynhneigði utanríkisráðherrann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2009 | 22:02
Hin farsæla lausn ASÍ
Höfuðórar ASÍ-Gylfa og atvinnurekenda um einhvern stöðugleikasáttmála er ekkert sem nokkur maður þarf að hafa áhyggjur af. Það er vitað að stöðugleikasáttmálinn á milli ASÍ og Samtaka atvinnulífins er með þeim ágætum að engin skil finnast lengur á milli þessara kynlegu samtaka. Og raunar vefst orðið fyrir mörgum hvort forseti ASÍ heitir Gylfi Arnbjörnsson eða Vilhjálmur Egilsson.
Hin farsæla lausn á höfuðvandamáli ASÍ felst að sjálfsögðu ekki í afdrifum heilaflækju alþýðusambandsforystunnar um stöðugleikasáttamála eða öðrum auðvaldsórum í svipuðum dúr. Hin farsæla lausn felst í algjörri uppstokkun hinnar almennu verkalýðshreyfingar þar sem núverandi fyrirkomulag væri afhrópað og kastað á sorphaug sögunnar. Í stað núverandi bákns risi ný verkalýðshreyfing án Gylfa Arnbjörnssonar, Kristjáns í Keflavík, frú Ingibjargar Err, Skúla Thoroddsen og annarra skoffína af sama kalíberi.
Verkalýðshreyfing verður aldrei verkalýðshreyfing nema henni sé stjórnað af alvöru verkafólki. Enn í dag á verkalýðurinn heilann heim að vinna. Í þeirri baráttu vinnast engir sigrar með skoffín, afætur og leiguþý auðvaldsins við stjórnvölinn.
Þurfum að finna farsæla lausn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 148
- Sl. sólarhring: 285
- Sl. viku: 1388
- Frá upphafi: 1542648
Annað
- Innlit í dag: 123
- Innlit sl. viku: 1219
- Gestir í dag: 122
- IP-tölur í dag: 120
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007