Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

ASÍ í núverandi mynd mun bráðlega líða undir lok

Það hlýtur að fara að hylla undir að ASÍ líði undir lok í þeirri mynd sem þetta úrkynjaða samband er nú. Að 80% fundarmanna á ársfundi ASÍ sé á móti því að raunverulegir eigendur lífeyissjóðanna, fólkið sem greiðir í þá, stjórni sjóðunum án aðkomu atvinnurekenda, sýnir svo ekki verður um villst á hvaða menningarstigi fénaðurinn er, sem smalað er á ársfundina.

Því fyrr sem ASÍ, í núverandi mynd, liðast í sundur, því betra. Samtök launafólks á hinum almenna markaði hafa á umliðnum árum orðið að einhverkonar skítakompaníi alls óskyldu stéttarbaráttu og skynsamlegum jöfnuði í þjóðfélaginu. Að sama skapi hafa forystuskepnur ASÍ orðið æ meira samdauna atvinnurekendum og ríkisvaldi. Hvað voru ASÍ-dólgarnir t.d. að bauka á frjálshyggjutímanum þegar þjóðfélagið stóð alelda af græðgi og skefjalausum ójöfnuði? Ójú, dýrin stóðu þétt að baki þeirra sem réðu ferðinni, æmtu hvorki né skræmtu og virtust kunna best við sig í bálinu miðju. Þegar frjálshyggjubrjálæðinu lauk með efnahagshruni og fólkið reis upp og mótmælti hurfu Gylfi Arnbjörnsson og Kristján í Keflavík ásamt öðrum foyrstsauðum ASÍ af vettvangi eins og jörðin hefði gleypt þá. 

Launafólk verður að losa sig undan úrkynjun forystu stéttarsambanda sinna ef ekki á illa að fara. Það kæmi mér t.d. ekki á óvart þó almennt launafólk færi að neita að borga stéttarfélagsgjöld, enda væri það rökrétt framhald á þeirri óheillaþróun og úrkynjun sem samtök launafólks á almennum markaði hafa ratað í.  


mbl.is Tillaga um lífeyrissjóði felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvaldspervertar nauðga lífeyrissjóðum

Það virðist vera mjög í tísku þessa dagana að slá út digrum og hrollvekjandi yfirlýsingum um hvað gera eigi við fjármuni lífeyrissjóðanna. Þátttakendur í þeirri umræðu eru oftar en ekki skrípi sem virðast ekki hafa hugmynd um að lífeyrissjóðirinir eru eign þeirra sem í þá greiða og engra annarra. Til dæmis kæri ég mig ekkert um, (ásamt fjölda annarra) að lífeyriseign mín sé notuð til að fjármagna áframhaldandi stóriðjubrölt andlausra kapítalista. Og að lífeyrissjóðunum verði nauðgað til að kaupa Landsvirkjun er svo snarbiluð hugmynd að stappar nærri fullkominni geggjun.

Svo er aftur annað mál hvað til er af raunverulegum fjármunum í lífeyrissjóðunum. Ég er t.d. fullur grunsemda um að seðlabunkarnir í lífeyrissjóðunum hafi af þjófsvöldum þynnst á síðustu árum og þar sé ekki til staðar sú ofgnótt gulls sen nægja á til að fylla uppí glufurnar sem þjónar frjálshyggjukapítalismans skildu eftir sig þegar svikamylla þeirra lagðist á hliðina.

Þið auðvaldskrypplingarnir skuluð halda ykkur í sem mestri fjarlægð frá lífeyrissjóðunum okkar, annars er hætt við að ykkur auðnist ekki að fá að kemba hærurnar í friði og ró.


mbl.is Landsvirkjun ekki föl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harmafregn - Hverjum verður næst sópað í Gúlagið?

Jæja, þá hefur þem loksins tekist að flæma þann fróma dáindismann, Baldur Guðlaugsson, úr embætti ráðuneytisstjóra í Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Svona aðfarir minna nákvæmlega á ekkert annað en hreinsanir Jósefs Stalíns í Sovétríkjunum á sínum tíma. Það verður fróðlegt að vita hvar hin stalíníska ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar ber niður næst. Eitt er víst: Grandvart fólk, sem starfar hjá ríkinu og hefur hingað til ekki verið þekkt fyrir að kjósa núverandi ríkisstjórnarflokka, er farið að verða mjög uggandi um sinn hag; enginn veit hverjum verður sópað næst í Gúlagið.
mbl.is Baldur lætur af störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar Gjeir lá ósjálfbjarga í frjálshyggjusvaðinu fór Bjarni á stúfana

Og ætlaði aumingja kallinn hann Bjarni litli Ben að bjóða sig fram á móti Gjeir Haaarde? Hefur ætlað að láta kné fylgja kviði þegar Gjeir lá ósjálfbjarga í frjálshyggjusvaðinu. Þessar aðfarir Bjarna minna á manninn sem hjó hausinn af sofandi manni af því hann lá svo vel við höggi. Já, þeir kunna fræðin sín frjálshyggjuhvolparnir úr Valhöll, ekki ber á öðru.

Hinsvegar er skrýtnara en allt sem skrýtið er, að fylgjast með frjálshyggjutittum Sjálfstæðisflokksins sem enn eiga sæti á Alþingi. Uppúr pestardrullupolli efnahagshruns og stórbrotinnar spillingar emja þessi grey og spangóla eins og halaklipptir hundar og reyna af fremsta megni að telja fólki trú um að þau séu hvítþvegnir englar, saklaus af öllu misjöfnu úr fortíðinni. 

Hvað höfum við að gera með stjórnmálaflokk sem er borinn uppi af hrunadönsurum eins og Bjarna Ben, Torgerði Katrínu, Illuga Gunnarssyni, Tryggva Þór Herbertssyni, Pétri Blöndal, Einari Kr. og Árna Johnsen? Dettur ef til vill einhverjum í hug að taka svona herdeild alvarlega? Fyrir hvað stendur þetta fólk í raun og veru umfram græðgi, spillingu og andsamfélagslega stjórnmálastefnu?

Það væri mikið þjóðþrifaverk að leggja Sjálfstæðisflokkinn niður og banna starfsemi hans. Slíkt er gert við öfga-hægriflokka í nálægum löndum og hefur gefist ágætlega. 


mbl.is „Átti bara að vera okkar á milli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lyf sem gerir fólk afhuga Sjálfstæðisflokknum

Ósköp er ánægjulegt til þess að vita að fransmenn séu í startholunum með að gelda afbrotamenn sína, en eins og kunnugt er geta geltir einstaklingar ekki með nokkru móti framið afbrot. Ekki stendur víst til af hálfu fransmanna að höggva undan glæpamönnunum eins og gert er við graðhesta, hunda og ketti, heldur á að hella ofan í þá ólyfjan sem gengur frá greddunni í þeim í eitt skipti fyrir öll. Ekki hafa enn borist spurnir af því að íslensk stjórnvöld ætli að feta í fótspor frönsku ríkisstjórnarinnar í geldingarmálum, sem sýnir, svo ekki verður um villst, algjöran sofandahátt hinna fyrrnefdu.

Ef ríkisstjórn Íslands væri starfi sínu vaxin væri hún löngu búin að láta finna upp lyf sem gerði fólk afhuga Sjálfstæðisflokknum. Slík íhalds- og auðvaldsgelding myndi með undraskjótum hætti bæta mannlíf á Íslandi svo um munaði og þar með væru möguleikar á öðru efnahagshruni alveg úr sögunni.


mbl.is Boðar lög um lyfjageldingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vargöld í Kópavogi eftir að Gunnari I. var steypt af stóli

Meðan Gunnar I. Birgisson var borgarstjóri í Kópavogi ríkti þar friður og regla, enda bárust þaðan einungis góðar og uppbyggilegar fréttir. En svo kom lítilsigldum vesalmennum í hug að efna til samblásturs gegn Gunnari I. sem lauk með því að þeim tókst að steypa honum af stóli á einkar slóttugan og lágkúrulegan hátt. Síðan það gerðist hafa aðeins vondar fréttir, og sumar furðu ljótar, borist úr Kópavogi. Nú berjast menn opiberlega með hnífum í Kópavogi, knúðir fram af þeim göfuga ásetningi að mega reka hverja aðra á hol. Ennfremur láta óráðsmenn þar í bæ sér ekki minna nægja en að fjarlægja heilu gluggana úr húsum náunga síns svo þeir eigi auðveldara með að ræna hann öllu sem innanstokks kann að leynast að meðtaldri eiginkonu náungans.

Ef Kópavogsbúar hafa einhverja löngun til að koma aftur á almennilegum skikk í þeirra samfélagi, verða þeir að taka sig saman og endurreisa fyrrverandi borgarstjóra sinn, Gunnar I. Birgisson, eins fljótt og auðið er. Takist það ekki er viðbúið að Kópavogi bíði sömu örlög og bæjarfélaganna í Sódómu og Gómorru forðum daga. 


mbl.is Hnífabardagi í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heljarkvendið og óforskömmuðu undanrennuungarnir

Þeir hafa heldur betur verið í stuði helvískir undanrennuungarnir í stjórn Ungra vinstrigrænna þegar þeir voru að sóða saman lofgerðarkássunni um háttvirta frú Swandeesy Sendiherrans. Ef eitthvað er að marka frétt mbl.is af umræddri lofgerð, þá er ekki annað að sjá en hinir ungu vinstrigrænu séu að gera narr að frú Swandeesy með óduldu oflofi. Hvernig undanrennuungunum hefur komið til hugar að skensa umhverfisráherrann á svo ruddalegan hátt og raun ber vitni er flestum sem til þekkja hulin ráðgáta. Sumir eru að geta sér þess til, að undanrennukjúklingarnir hafi verið mjög ölvaðir þegar þeir settu hina megjuðu ályktun saman eða þá að þar fari hópur af götuskríl sem sé forhertur í alskonar skrípamennsku og afkáraskap. Það verður ekki annað séð en að formaður VG, sjálfur Steingrímur J., verði að skerast í leikinn og setja hina hvatvísu og óforskömmuðu stjórn Ungra vinstrigrænna af áður en dagur verður að kveldi kominn á morgun. Svona bölvuð dólgslæti ganga náttúrulega alls ekki.
mbl.is Svandís Svavarsdóttir heljarmenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband