Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009
7.12.2009 | 19:30
Glæsileg hornkerling
Svo er að sjá, að hin samfylkingarlærða framsóknarsál, Guðmundur Steingrímsson, hafi hlotnast sú náð, að gegna embætti hornkerlingar Framsóknarflokksins, en það embætti vísar til, að sá sem því gegnir eigi yfirhúskarlsstöðu flokksins vísa. Þar með er viðbúið að slöttólfurinn Sígmúnd Davíð fái ekki að kemba hærurnar lengi, sem talsmaður Halldórs og Finns.
Þess má geta, að afi og faðir Gvendar Steingríms gengdu báðir embætti hornkerlingar á sínum tíma og uppskáru báðir yfirhúskarlsstöðu úr hendi sjálfrar Framsóknarmaddömunnar. En þar sem Maddaman er önduð verður Gvendur trúlega að taka við sínum framtíðarvegtyllum flokksins úr lúkunum á Halldóri Ásgríms og/eða Finni Ingólfssyni athafnaskáldi.
![]() |
Fundi fjárlaganefndar lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.12.2009 | 16:12
Leyndarpukrari fer af hjörunum
Hann er sannarlega kyndugur dvergurinn, sem Halldóri Ásgrímssyni, Finni Ingólfs og Ólafi bónda á Miðhrauni, hugkvæmdist að gera að yfirhúskarli Framsóknarfjóssins. Auðvitað er dvergurinn Sígmúnd Davíð, aðeins leppur fyrir sér æðri menn, svo engin þarf að taka greyið alvarlega því hann er ekki fullmektugur talsmaður gömlu Maddömunnar, sem sögur herma að hafi andast leynilega í síðustu viku.
Nú er komið á daginn að Sígmúnd litli hefur tekið fullan þátt í leyndarpukrinu, sem hann hefur verið að gagnrýna uppá síðkastið. Allir leynipóstarnir og þöggunarsneplarnir hafa verið á sínum stað í möppu vesalings drengsins í marga mánuði, án þess að honum hafi þótt nokkuð athugavert við umræddra pappíra. En svo loks þegar leyniplögginn úr möppunni eru lekin útá netið, fer Sígmúnd framsókarleppur umsvifalaust af hjörunum með þeim hvalablæstri og bægslagangi, sem engan veginn fer svo sléttgreiddum unglingi.
![]() |
Var kunnugt um bréfaskiptin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2009 | 14:24
Allt vinstristjórninni að þakka
Núnú, fréttin af minni áhrifum kreppunnar hér á landi en við var búist, hlýtur að koma eins og fúl skvetta úr hlandkoppi framaní óaldarlýð Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og mola í leiðinni móðursýkislegan og mökkruglaðan málflutning þeirra.
Það dylst náttúrulega engum sæmilega sanngjörnum og vitibornum manni, að þessi ,,minni samdráttur" er einungis núverandi ríkisstjórn að þakka. Ekkert í þessa átt hefði verið mögulegt ef þjóðin hefði verið svo ólánssöm kjósa sönnu hrunaflokka, sem kenna sig við sjálfstæði og framsókn, yfir sig.
![]() |
Kreppan vægari en búist var við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.12.2009 | 13:34
Meðalgreindarvísitalan hækkaði um 50%
Þegar Höskuldur Þórhallsson og Birgitta Jónsdóttir, sem sögð eru alþingismenn, skakklöppuðust á dyr af fundi fjárlaganefndar í morgun, hækkaði meðalgreindarvístalan við fundarborð nefndarinnar um heil 50% og sátu þó eftir nokkrir nefndarmenn með vægast sagt dapurlega lága greindarvísitölu.
Það fer að verða mjög aðkallandi, að þjóðin hætti að kjósa mjög heimska einstaklinga til að sinna löggjafarstörfum og ráðherraembættum. Ef fer sem horfir verður Alþingi Íslendinga bráðlega eitt alsherjar stórhlægilegt vitfirringahæli, ef það er þá þegar ekki orðið það. Þá er almælt, að aldrei hafi eins margir leiðinlegir, húmorslausir, þingmenn setið samtímis á Alþingi en einmitt nú. Þegar heimska og húmorsleysi fara saman með yfirgnæfandi hætti á einum vinnustað, er skamt að bíða endalokanna.
Ef Íslensku þjóðinni er í mun, að komast útúr vandamálum sínum, á hún að setja sósíalíska byltingu á dagskrá, ekki síðar en strax. Sósíalísk bylting er eina færa leiðin til að losa þjóðina við hinn gjörspillta kapítalisma og vandræðagemlinga hans.
Upp með byltinguna, kæru félagar, og göngum milli bols og höfuðs á úrkynjaðri yfirstétt stjórnmálamanna, atvinnurekendavalds og fjársýsluglæpamanna !!!
![]() |
Óvissa um samkomulagið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.12.2009 | 21:07
Hvaða bordel verður vinsælast?
![]() |
Kveðst bjartsýnn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.12.2009 | 17:21
Burt með Egil Helgason af RÚV
Fuss og svei, það koma nákvæmlega ekkert fram hjá þessum Rogeri Boyes, sem fjölmargir Íslendingar hafa ekki gert sér grein fyrir frá því löngu fyrir hrun. Þeir sem ekki hafa gert sér grein fyrir því sem Boyes var að mala, er sjúkt fólk í alvarlegri afneitun. Annars minnti Boyle einna mest á smjörlíkisklessu, svo ófrumlegur sem hann var í sjónvarpinu með Agla vini sínum.
Það er alveg dæmalaust hvað 101-geltinum Agli Helgasyni tekst að draga mikið af sjálfumglöðu undanrennuliði í þetta yfirborðskennda og útvatnaða silfur sitt. Reyndar er um of að tala um ,,mikið af sjálfumglöðu undanrennuliði" því satt best að segja er þetta mestu leyti sama fólkið upp aftur og aftur sem kemur í þáttinn, þá aðallega fólk sem einhverntímann hefur fengið þá hlálegu grillu í hausinn, að það sé svo undur gáfað, þrátt fyrir að hafa í hæsta lagi meðal gripsvit. En auðvitað draga gestirn dám af gestgjafanum, nema hvað.
Ég er kominn á þá skoðun, að RÚV ætti að afþakka starfsframlag Egils Helgasonar frá og með deginum í dag, þar eð stofnunin hefur sengin efni á að hafa fólk á fóðrum, sem engu skilar öðru en yfirborðsmennsku, froðu og kjaftæði.
![]() |
Boyes: Of mikil áhersla á ál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
6.12.2009 | 10:51
Eitt stökkbreytt tilfelli á Íslandi - sjúklingurinn líklega látinn

![]() |
Ný tilfelli stökkbreytingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.12.2009 | 09:23
Heimdallarar enn á ferð
Ef mér skjöplast ekki því meir, þá hafa eru ungu karlmennin fjögur, sem fóru ránshendi um skóla í Reykjavík í nótt, af heimdellingategundinn alræmdu. Þessi grey hafa alist uppí þeirri vissu, að fátt sé göfugra en að ræna sameignum landsmanna, hvar og hvenær höndum verði yfir komið. Með því móti, telja heimdallarar, að þeir öðlist með tíð og tíma þá sæmd, að fá að leggjast á ríkisspenann og verða miklir menn, jafnvel alþingismenn og ráðherrar og tapa loks í forsetakosningum fyrir einhverjum skítugum kommúnista.
Sumir eru þeirrrar skoðunuar að heimdellinga beri að uppræta með öllum ráðum. Því er ég ekki sammála. Maður lógar ekki hundinum sínum þó hann bíti blaðberann við og við. Heimdellinga eigum við að varðveita eins og draugasögurnar okkar og jólasveinana, en ekki veitast að þeim, þó hvimleiðir séu, eins og vargfugli og dýrbítum.
![]() |
Brotist inn í tvo skóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2009 | 08:32
Þokkaleg frammistaða atarna
Það er þrifalegur andskoti, eða hitt þá heldur, ef það er rétt að Bandaríkjamenn hafi enga hugmynd um hvar fjölskylduvinur þeirra, Ósama bin Laden, er niðurkominn og hafi ekki vitað það í fjölda ára. Svona skítlega frammistaða er náttúrulega ekki boðleg umheiminum, hvað þá kaldastríðshrjáðum móhíkönum á Íslandi, sem hafa um áratugaskeið verið amrískari en allt sem amerískt er, svo sem sjá má á þjökuðum andlitssvip Björns okkar hérna Bjarnasonar.
En líklega er bölvaður þrjóturinn hann Ósami dauður fyrir löngu og sestur að í hymmnaríki með Allah vini sínum, Múhameð spámanni og Rónaldi Reagan. En þó má vera að kallskrattinn tóri einhversstaðar við íllt atlæti og og enn verri heilsu eins og Framsóknarmaddaman hér uppá hrundu Íslandi.
![]() |
Ekkert vitað um Bin Laden |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.12.2009 | 21:59
Gaurinn sem giljar kvenpéníng vorn
Og Stúfur þorði ekki að fækka fötum í Jarðböðunum í Mývatnssveit!!! Nú þykir mér Bleik brugðið. Ég man þá tíð þegar Stúfur hljóp berrassaður um sveitir með stóran hóp af brjáluðum bændum á eftir sér, sem gjarnan vildu hafa höndur í hári Stúfs og hengja hann, því að í þeirra augum var þessi geðugi jólajúði algjört ódó og hjónadjöfull.
Og aldrei hefur Giljagaur verið smærri í sniðum en bróðir hans Stúfur, m.a.s. heldur stærri, ef eitthvað er. Kvensamari jólasveinn hefir aldrei verið uppi frá því jólasveinaöld hófst en einmitt hann Giljagaur. Eins og gefur að skilja, hafa húsfreyjur landsins alið Giljagaur fjöldann allann af börnum, sem öll eiga það sameiginlegt, að vera rangt feðruð, því engin kona hefur, fram að þessu, viljað kenna þessum frjósama og kynsæla jólasveini krakka. Hinsvegar vefst ekki fyrir glöggum mönnum að þekkja afkvæmi Giljagaurs frá öðru fólki. Hinir fróðu menn uppástanda, að synir og dætur Giljagaurs hafi leikið ófá stórhlutverk í októberhruninu fræga á Íslandi í fyrra. -Á ávöxtunum skulu þér þekkja hinar örgu kúlulánagrýlur og þá útsmognu æseifböðla: Allt er það hyski meira eða minna undan gaunum sem giljar kvenpéníng vorn, sagði einn virtasti og frómasti ættfræðingur landsins við mig á dögunum.
![]() |
Jólasveinar fóru í Jarðböðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.4.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 51
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007