Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Búrtíkur auðvaldsins

dog6Ætli færi ekki best á að Gylfi Arnbjörns, Kristján í Keflavík, Skúli Thorosen og Gunnar Páll í VR fari sömu leið og Sjálfstæðisflokkurinn og Davíð Oddsson, þ.e. reknir út af kontórunum með öllum þeim skít og öllum þeim skömmum sem þeir verðskulda.

Á umliðnum árum hafa þessir þorparar, sem lifað hafa á stéttarfélagsgjöldum láglaunafólks, lagt sig alla fram um að núa sig upp við upp við digra leggi auðvaldsins eins og undirgefnir hundar. Það er t.d. algjörlaga ómögulegt að þekkja skrifstofusjakalann Gylfa og Kristján í Keflavík frá höfuðpaurum atvinnurekendavaldsins. Á tímum alsherjaruppgjörs verður vonandi ekki látið undir höfuð leggjast að umbylta verkalýðshreyfingunni, svo mikilvæg sem þau samtök eru, og vísa út þaðan öllum búrtíkum auðvaldsins og stéttarvillingum.

 


mbl.is Reiðubúnir til samstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég dauðöfunda Steingrím J. og Jóhönnu

útÁ sama hátt og séra Baldri í Vatnsfirði þótti skemmtilegast af öllum embættisverkum að jarða framsóknarmenn, þá mun Steingrími J. og Jóhönnu Sig. þykja mest spennandi og gefandi að fleygja frjálshyggjukónginum Davíð Oddssyni eins og grálúsugum hundi útúr Seðlabankanum. 

Satt að segja dauðöfunda ég þau skötuhjúin af þeim forréttindum að fá að sparka höfuðmeinvættinum öfugum á dyr. Vonandi að þau sparki bara nóg fast.


mbl.is Einn Seðlabankastjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar hún var borin í burtu dauð ...

piss2Hvernig sem á því stendur, minnir brotthvarf ríkisstjórnar Gjeirs Haaarde á eftirfarandi húsgang:

Hún Stjórna gamla var að baka brauð,

en brenndi sig og gerði skyssu slíka,

að þegar hún var borin burtu dauð

var brauðið ónýtt líka.

 

Hvíli ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins síðastliðin 18 ár í ófriði frá eilífð til eilífðar. Amen.


mbl.is Fráfarandi ríkisstjórn kveður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband