Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Já, fólki er ofboðið, Kjartan Gunnarsson

herra2Með tárin í augunum segir Kjartan Gunnarsson, sem um árabil bar titilinn framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins: ,,Öllu sómakæru fólki hlýtur að ofbjóða."

Og rétt er það hjá Kjartani, að sómakæru fólki er ofboðið. Sómakært fólk er búið að fá yfir sig nóg af gjörspilltum labbakútum Sjálfstæðisflokksins, þess vegna fór það út á göturnar og krafðist þess að spillingarliðið yrði aftengt, völdin tekin af því og það fjarlægt. Sómakært fólk er nefnilega að átta sig æ betur á hverskonar samtök Sjálfstæðisflokkurinn er og hve hættulegt það er fyrir þjóðfélagið að slík mafía fái að leika lausum hala.

Með réttu ætti að leysa Sjálfstæðisflokkinn upp, með lögum frá Alþingi, og banna starfsemi hans. Slíkt hefur verið gert með öðrum þjóðum við sambærileg þjóðhættuleg og gjörspillt samtök.


mbl.is Pólitískar hreinsanir og ofsóknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalveiðar og flotvörpuveiðar, Steingrímur og Kolbrún

hvala2 Samkvæmt fjölstofnalíkani Hafrannsóknarinnar gæti afakstur þorskstofnsins orðið um 20% minni en ella njóti hvalastofnar algerrar friðunar. Sérfræðingar stofnunarinnar leggja til að hvalveiðar séu stundaðar með sjálfbærum hætti og hvalastofnum haldið í 70% af hámarksstærð.

Afrán hvala umhverfis landið er gífurlegt en 12 tegundir hvala halda sig reglulega við landið. Talið er að hvalirnir éti árlega um tvær milljónir tonna af fiski á Íslandsmiðum. Það er umtalsvert meira en allur íslenski fiskveiðiflotinn veiðir árlega. Tæpur helmingur þeirra sex milljón tonna af fæðu, sem talið er að hvalir við Ísland éti, er sviflæg krabbadýr. Um ein milljón tonna er smokkfiskur og um tvær milljónir tonna fiskur.

Hrefnan ein étur um tvær milljónir tonna og er um helmingur þess fiskur. Það er mat sérfræðinga að þorskur geti numið a.m.k. 3% af fæðu hrefnunnar, eða um 60.000 tonnum.

Bráðabirgðaniðurstöður Hafrannsóknarstofnuarinnar á innihaldi hrefnumaga á árunum 2003-2007 sýna að bolfiskur var ráðandi í 28% tilvika. Þorskur var algengastur greinanlegra bolfiska og var ríkjandi í 8% maga. Aðrar tegundir voru ýsa, lýsa, ufsi, spærlingur og kolmunni. Samkvæmt þessum sömu niðurstöðum voru loðna og síld ríkjandi í 10% maganna hvor tegund og tvær ljósátutegundir voru samanlagt ríkjandi í 10% maganna.

Að ofansögðu má ljóst vera, að VG þeirra Steingríms J. og Kolbrúnar Halldósrsdóttur veður í villu og svíma með því að vera á móti hvalveiðum. Hinsvegar ættu Steingrímur og Kolbrún að taka höndum saman og vinna í því að veiðar með flotvörpu verði algjörlega bannaðar innan íslenskrar fiskveiðilögsögu. Flotvörpuveiðar á hiklaust að flokka undir alvarlegt umhverfisslys af manna völdum og auðvitað á að taka á þeim í samræði við það. 

 


mbl.is Vond stjórnsýsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðærisdólgar og glamúrlið á vit sorptunnuportanna

Útigangsmaðurfugl3Ætli góðaærisdólgarnir mikilu og glamúrliðið eigi enn aura til að kaupa sér dulitla kókaínhressingu? Það verður lag á Læk þegar hinir fyrrum nýríku framtíðarmenn vorir hafa ekki lengur efni á efla andann með kókaíndufti og verða að láta sér nægja drekka sér svartadauðabrennivín og kogespritt til að geta litið glaðan dag. Mér er sagt að allt stefni í að óþægilega stór hópur fólks, sem gaf sig frjálshyggjuspekúlasjónum síðustu ára á vald, muni innan skamms þurfa að leita sér fæðu í sorptunnum og á skarnhaugum í samkeppni við nagdýr, minka og sílamáva. Auðvitað mun slík breyting á lífstíl leiða í ljós úr hverju gróðagræðgisbúrarnir er gerðir. En allt um það, þá verður þetta að teljast farsæll endir á leifturflugi hinna frjálshyggnu froðuframleiðenda því að í sorptunnuportinu munu þeir finna sína einu réttu hillu í lífinu.
mbl.is Tekinn í tollinum með kókaín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harðir sjálfstæðismenn og undirgefnir hundar

RassakissÞað er nú þannig með marga óbreytta ,,sjálfstæðisflokksmenn" að þeir kjósa sinn Sjálfstæðisflokk upp aftur og aftur, hvað svo sem foringjar sama flokks gera á hluta þeirra. Jafnvel þótt foringjarnir tækju húsin þeirra, bíla og eiginkonur og köstuðu hægðum framan í þá þegar ekkert væri lengur að hafa af þeim, myndu þessi grey stjákla á kjörstað við næstu Alþingiskosningar og kjósa sinn Sjálfstæðisflokk með glöðu geði. Svona auðnuleysingjar kalla sig ,,harða sjálfstæðismenn" og eru stoltir af. Þeir taka ævinlega og hiklaust afstöðu gegn stéttarsystkinum sínum og eru þá hortugir og fjandsamlegir, en um leið og ,,íhaldshöfðingi" nálgast breytast þeir á svipstundu í undirgefna hunda og sýna þarmeð í verki hve sjálfstæðir þeir eru í raun og sann.

Fjöldastuðningur við Sjálfstæðisflokkinn er bæði sálfræðilegt og menningarlegt vandamál hjá íslensku þjóðinni. Guð gefi að vísindasinnaðir sálfræðingar og geðlæknar beri gæfu til að finna upp lyf eða meðferð sem gæti læknað þetta andstyggilega mein. 


mbl.is Sjálfstæðisflokkur stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með kjána sér við brjóst

hvala5Það er er svo sem skiljanlegt að Steingrímur J. reyni að koma í veg fyrir að hvalveiðar hefjist þegar haft er í huga hverskonar kjána hann hefur kosið sér að hafa í eftirdragi. Það er blátt áfram hlægilegt, að þessi skeleggi lansbyggarkúnstner skuli hafa leiðst inn á þær aumu villigötur að fara ala apaketti eins og Kolbrúnu Halldórsdóttur og fleiri í þeim stíl sér við brjóst.

Bann við hvalveiðum á ekkert skylt við náttúrvernd. Hvalveiðar má auðveldlega stunda á sjálfbæran hátt. Og ef eitthvað er, stuðla hvalveiðar að betra jafnvægi í hafinu, svo það er ekki eftir neinu að bíða með að leysa landfestar hvalbátanna og brýna skutlana.


mbl.is Ákvörðun um hvalveiðar í endurskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamla rörið skerst í leikinn

Það er áreiðanlega ansi nöturlegt fyrir hagmæltan engeying að þurfa að fara að stússast í eineltismálum á gamalsaldri. En þar sen hann er nú einusinni formaður bankaráðs Seðlabankans verður hann, nauðugur viljugur, að skerast í leikinn þar sem meint einelti fer fram innan veggja Seðlabankans. Nú er það svo, að einelti á vinnustað varðar við lög, þannig að gera má ráð fyrir að gamli Blöndal kalli út lögreglu sér til fulltingis og láti hana um að rannsaka glæpinn. Síðan fer málið hefðbundna dómstólaleið og hafnar að lokum hjá Jóni Steinari og Ólafi Berki í Hæstarétti, sem munu fella sinn dóm yfir gerendum í eineltismálinu, af fullkomnu hlutleysi.
mbl.is Yfirlýsingar jaðra við einelti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumvarp um að Sjálfstæðisflokkurinn verði leystur upp og satfsemi hans bönnuð

jail1Sama dag og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra leiðir Davíð Oddsson eins og kiðling útúr Seðlabankanum ætti hún að leggja fram frumvarp til laga um að Sjálfstæðisflokkurinn verði leystur upp og starfsemi hans bönnuð. Ennfremur: að fyrir brot á umræddum lögum verði hægt að dæma viðkomandi í allt að 25 ára fangelsi, auk hárra fésekta.

Í greinargerð með frumvarpinu verði vísað til þjóðarhagsmuna sem felast í upprætingu á mafíustarfsemi, og annarri iðju af sama toga, sem líkleg er til að steypa þjóðfélaginu í efnahagslegan og siðferðislegan voða eða glötun.  


mbl.is Fyrstu verk sjálfstæðismanna í stjórnarandstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gelgjulegt gaspur, athyglissýki og leikaraskapur

flokkseigendur_786424.jpgPóltískur frami Katrínar Jakobsdóttur á meira skylt við leikaraskap en nokkurn tímann eitthvað sem hægt er að tengja við alvöru. Þegar Steingrímur J. gerði hana að varaformanni VG, duldist engum að hann var að koma sér upp þægilegri skrautfjöður sem gott væri að hampa framan í fólk í lýðskrumstilgangi. Það vita allir sem vilja á annað borð vita, að Katrín Jakobsdóttir er gjörsamlega laus við að vera pólitísk að upplagi, en gelgjulegt gaspur, athyglissýki og leikaraskapur irðist geta fleyt fólki ansi langt við heppilegar aðstæður. Þessi kynduga varaforkona Steingríms J. og Hjörleifs Guttormssonar, er sannarlega mjög í ætt við keisara þann er spókaði sig forðum um á nýju fötunum; sjóndeildarhringur hennar hefur aldrei náð út fyrir lóð Háskóla Íslands og að sjálfsögðu hefur þessi skrautfjöður Steingríms aldrei unnið ærlegt handtak; og á menningarsviðinu hefur hún aldrei komist lengra en uppá þrep innantómra sakamálareyfara eftir Arnald Indriðason og aðra slíka.

En nú er Katrín þessi Jakobsdóttir orðin menntamálaráðherra, sem sýnir svo ekki verður um villst, hverskonar uppskafning er stunduð innan vébanda VG. Og til að kóróna meisteraverkið er Kolbrún Halldórsdóttir líka gerð að ráðherra. Svona vinnubrögð eru langt í frá að vera trúverðug og það mun koma niður á VG í kosningunum í vor. 

Eftir stendur, að raunverulegum vinstrimönnum, sósíalistunum, vantar stjórnmálahreyfingu til að starfa í. Það er hrein og klár sjálfsblekking, að VG þeirra Steingríms, Hjörleifs og Álfheiðar Inga, sé boðlegur vettvangur fyrir heilbrigða, róttæka vinstrimenn.


mbl.is Ógleymanlegur afmælisdagur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn Kaldastríðs leggur á eyðimörkina

aold1Það er óskemmtilegur andskoti fyrir karlálkuna hann Björn Bjarnason að vera sakaður um að vera svifaseinn. Það er ekki nema von að hann rísi uppá afturlappirnar og skræki í áttina að þeirri ósvífnu frú sem bar honum seinaganginn á brýn.

En sennilega hefur frumvarpið um skuldaaðlögunina, sem Björn í Kaldastríðinu, sendi Samfylkingunni verið þess eðlis að það hefur ekki verið afgreiðsluhæft. Enda ku þingflokkur Samfylkingarinnar hafa hlegið mikið og dátt þegar það var lesið upp á þingflokksfundi. Þá er haft eftir mikilsmetnum alvörukrata, að umrætt skuldaaðlögnarfrumvarp, sé fyrir það fyrsta fögur uppspretta fyrir gamanmál, háð og spé, og í örðu lagi álíka þægilegt og íbúðarhús sem heldur hvorki vatni né vindi.

Það er því fátt annað í stöðunni fyrir Björn Kaldastríðs en að leggja á eyðimörkina í tötrum sínum, með fáein rifrildi af afrekum sínum í Dóms- og Kyrkjumálaráðuneytinu í slitinni tösku.


mbl.is Birni þótti lítið leggjast fyrir Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við viljum alvörubyltingu - ekki hálfkák og útúrsnúninga

ausahnefiÉg geri fastlega ráð fyrir að Steingrímur J. og Jóhanna viti uppá hár hvað til þeirra friðar heyrir. Ef svo óhönduglega hefur til tekist, að þau viti ekki í hverju þeirra friður er fólginn, munu þau fá að finna fyrir eldhúsamboðum á borð við steikarapönnur og kökukefli svo um munar og það við fyrsta tækifæri.

Og það skulu Steingrímur og Jóhanna hafa hugfast, að bylting fólksins á götunni var ekki til þess eins að koma þeim í forsætis- og fjármálaráðuneytið. Öðru nær.

Byltingunni lauk ekki með ríkisstjórnarskiptum á Bessastöðum í dag.

Byltingin er ferskt lifandi afl sem stöðvast ekki við einfaldar pólitískar hrókeringar; hún halda ótrauð áfram, og ekki taka tillit til þröngra hagsmuna og samtryggingar flokkseigendafélaga stjórnmálaflokkanna.

Við viljum nefnilega alvörubyltingu - ekki hálfkák, eða platbyltingu, í útúrsnúningastíl. 

 

 


mbl.is Slá skjaldborg um heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband