Leita í fréttum mbl.is

Búrtíkur auðvaldsins

dog6Ætli færi ekki best á að Gylfi Arnbjörns, Kristján í Keflavík, Skúli Thorosen og Gunnar Páll í VR fari sömu leið og Sjálfstæðisflokkurinn og Davíð Oddsson, þ.e. reknir út af kontórunum með öllum þeim skít og öllum þeim skömmum sem þeir verðskulda.

Á umliðnum árum hafa þessir þorparar, sem lifað hafa á stéttarfélagsgjöldum láglaunafólks, lagt sig alla fram um að núa sig upp við upp við digra leggi auðvaldsins eins og undirgefnir hundar. Það er t.d. algjörlaga ómögulegt að þekkja skrifstofusjakalann Gylfa og Kristján í Keflavík frá höfuðpaurum atvinnurekendavaldsins. Á tímum alsherjaruppgjörs verður vonandi ekki látið undir höfuð leggjast að umbylta verkalýðshreyfingunni, svo mikilvæg sem þau samtök eru, og vísa út þaðan öllum búrtíkum auðvaldsins og stéttarvillingum.

 


mbl.is Reiðubúnir til samstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Það er vonandi að búsáhaldabyltingin leiði til þess að félagsmenn stéttarfélaganna krefjist hreinsunar í sínum ranni líkt og við stjórn landsins.

Björgvin R. Leifsson, 1.2.2009 kl. 20:22

2 identicon

Tek undir með þér

Gullvagninn (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 20:28

3 Smámynd: ViceRoy

Og hvað gefur það í hönd? Koma bara aðrar búrtíkur að borði. Það er nákvæmlega það sem gerðist við stjórnarskiptin... rótgrónar persónur í pólitísku samfélagi sem hafa það eitt sameiginlegt að vilja vera við stjórnvölin

Sjáðu hvernig samfylkingin er búin að snúa baki við sínu... Sjáðu bara hver munu vera loforð sjálfstæðisflokksins fyrir næstu kosningar...  Hvernig Steingrímur J. fór allt í einu úr hlutgervi brjálaðrar grýlu yfir í kampakáts jólasveins þegar hann er loks kominn í stjórn.... Eina sem vantar er að Sigmundur Davíð segi "Góðir Íslendingar" á sama hátt og Halldór gerði.

Fólk hefur verið að fagna yfir stjórnarskiptum.... Held það sé lítið til að fagna yfir.

 Það eina sem árlegar launahækkanir þýða er hækkandi verð sem hefur áhrif á verðbólgu... Og þar að auki áhrif á neysluvísitöluna sem hækkar verðtrygginguna sem hækkar lánin :D hvílíkur vítahringur sem allir eru að koma okkur í. 

Og það versta er að þessar sömu persónur og standa fyrir samningum semja allan andskotann af okkur því þeir eru með of litla bolta á milli lappanna til að standa fyrir því sem þeir standa fyrir :D 

ViceRoy, 1.2.2009 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband