Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Dularfullur fiskur kveður sér hljóðs

fiskurSatt að segja læt ég mér í léttu rúmi liggja þó götustrákar hafi lagt eld að fiskikörum úr plasti uppvið einhvern vegg í Sandgerði; þessháttar er sígild atvinna götustráka. Hinsvegar þykir mér meira til koma, að fyrirtæki það er umræddur veggur heyrir til skuli heita ,,Skinnfiskur." Leikur mér forvitni á að vita hvaða endemis skepna þessi ,,skinnfiskur" er sem fyrirtækið heitir eftir. Veit ég vel að fiskar heita hinum undarlegustu nöfnum, svo sem marhnútur, lúsífer, þrömmungur, hveljusogfiskur, en ,,skinnfisk" hefi ég aldrei heyrt nefndan fyrr. Mikið yrði ég þakklátur, ef einhver fróður maður gæti upplýst mig nánar um þennan ,,skinnfisk" ef hann á annað borð er til. Mér dettur í hug, að umræddur fiskur hafi skinn utanum sig en ekki roð, þykka leðurhúð álíka og svín hafa á sínum kroppi. Þá væri ágætt að fá vitneskju um hvar ,,skinnfiskurinn" hrygnir, hvort hann sé góður matfiskur og hvar hann heldur sig utan hryggningartíma. 
mbl.is Grunur um íkveikju í Sandgerði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnaverndarnefnd sigað á sjálfstæðan Íslending

egillBlessaður drengurinn, sem þaut eins og eldibrandur og bara 13 ára um götur Keflavíkur á heimilisbílnum, er fagurt dæmi um sjálfstæðan Íslending. Má mikið vera ef þar er ekki á ferð sérstakur efnispiltur, sem á eftir að láta að sér kveða þegar fram líða stundir. Uppí hugann kemur ekki minni maður en Egill Skallagrímsson á Borg þegar hann smásveinn að aldri tók eykhest einn í óleyfi er Skalla-Grímur átti og reið eftir föður sínum til Álftaness, en þangað hafi Skalla-Grími verið boðið til drykkjveislu mikillar. En áður hafði Skalla-Grímur bannað Agli syni sínum ferðarinnar á Álftanes með þeim orðum, að hann kynni ekki fyrir sér í fjölmenni, þar er drykkjur væru miklar, ,,er þú þykir ekki góður viðskiptis, að þú sért ódrukkinn"

Nú berast þær fréttir sunnan úr Keflavík, að lögreglan hafi ekki látið þar við sitja, að stöðva hinn 13 ára sjálfstæða Íslending og fært hann undan stýri, heldur hafi hún bætt gráu ofaná svart með því að siga barnaverndarnefnd á drenginn. En sem kunnugt er fer allt ævinlega í hund og kött þegar barnaverndarnefnd kemst í málefni ungmenna. Sem betur fer höfðu barnaverndarnefndir ekki verið fundnar upp þá Egill Skallagrímsson var á dögum því ef svo hefði verið hefði annaðhvort engin Egilssaga verið skrifuð ellegar Egill hefði gert sér hægt um vik og vegið alla barnaverndarnefndina með öxi förur síns. 


mbl.is 13 ára á heimilisbílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bölvaður viðbjóður er þetta

Það ber Akureyringum ófagurt vitni, að á Akureyri skuli fyrirfinnast 1165 einstaklingar með svo lága siðferðisgreind að kjósa í prófkjöri Sjálfstæðisflokksnins. Fólk sem svertir mannorð sitt með slíkum hætti er ekki aðeins sjálfu sér til skammar, heldur kemur það óorði á sveitarfélag sitt. Um þá sem gefa kost á sér í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins er best að hafa sem fæst orð; auðnuleysi og andleg fátækt er þeirra hlutskipti.

Ef Akureyringar hafa hug á að verða teknir alvarlega í framtíðinni, eiga þeir um fátt annað að velja en að bregðast skjótt við og af festu, og reka hina 1165 óþrifagemlinga, sem kusu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, á fjöll, allar götur inn í Þjófadali og sjá svo um að þaðan eigi þeir ekki afturkvæmt til Akureyrar. Og ekki skulu þjóðþrifasinnaðir og velmeinandi norðanmenn spara hunda sína og svipur við reksturinn því annars er hætt við að illþýðið taki uppá að beita sínum eðlislægu græðgisbrögðum og hlaupi útundan sér.  


mbl.is Öruggur sigur Sigrúnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálakona í annarlegu ástandi

Látum vera þó sprautukvendi reyni að ræna péníííngum í Apóteki. Verra er þegar stjórnmálakonur falla í langvarandi annarlegt ástand af græðgi og frjálshyggjuofsa. Eitt slíkt villidýr er Sigurveig dræsa, sem um árabil hefur stundað kvótasvindl og kúlulán meðfram stjórnmálavafstri. Hún er í miklum metum innan Sjálfstæðisflokksins og á vísan frama þar á bæ. 
mbl.is Reyndi að stela í bílaapóteki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjallræðan og heilbrigðisráðherrann, Sósíalisminn og Mammón

alfÍ Matteusarguðspjalli, 5. kafla, 24. versi, Fjallræðunni, segir Jesús Kristur sem svo, að enginn geti þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hati hann annan og elski hinn eða þýðist annan og afræki hinn. Til frekari áherslu tilkynnir Frelsarinn mönnum, að þeir geti ekki hvort tveggja þjónað Guði og Mammón.

Á sama hátt geta menn og konur ekki bæði þjónað Sósíalismanum og Mammón. Þeir sem það reyna eru vargar í véum, úlfar í sauðagærum. Slíka falsspámenn ber að varast eins og heitan eldinn. ,,Þeir koma til yðar í sauðaklæðum, en innra eru þeir gráðugir vargar" svo aftur sé vitnað í fyrrnefnda Fjallræðu Jesú Krists.

Nú vill svo hörmulega til, að þjónn Lýsingar og verjandi, Sigurmar K. Albertsson hæstaréttarlögmaður, er eiginmaður Álfheiðar Ingadóttur ,,heilbrigðisráðherra", sem hefur um áratugaskeið haldið því að fólki að hún sé einhver mestur sósíalisti sem Ísland hefur alið, réttborinn erfingi Einars heitins Olgeirssonar og þeirra rauðu verkamanna sem að baki honum stóðu á sínum tíma. Hinsvegar virðist þeirri góðu frú ekkert tiltökumál að lifa á aðdráttum bónda síns til heimilisins, sem hann hefur uppskorið á hinum kapítalísku ökrum Mammóns, meðal annars með því að þjónusta fjárplógsvélina Lýsingu. 

Í viðtalsbók Rúnars Ármanns Arthúrssonar við Jónas Árnason þingmann Sósíalistaflokksins og Alþýðubandalagsins segir Jónas á blaðsíðu 91 um ´,,sósíalistana" í sauðargærunum: ,,Meðal innstu koppana í búri flokksins gefur nú að líta menn sem telja það ekki ósamboðið virðingu sinni að safna peningum og fasteignum. Þeir geta talað allra manna fagurlegast um hugsjónir sósíalismans, þessir karlar sumir, það vantar ekki. En mætti ég sem einn óbreyttur flokksfélagi þeirra biðja þá vinsamlegast að þegja. Ef við sósíalistar kæmumst einhvern tímann í þá aðstöðu að hrinda í framkvæmd þeim þjóðfélagsbreytingum sem við boðum, þá mundu þeir þessir óðara snúast gegn okkur. Hjörtu þeirra slá með kapítalismanum, hvað sem líður fagurgalanum um sósíalismann."

 


mbl.is Hæstaréttar að breyta dómum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjáum nú til ...

taliÓskaplega er það sárt fyrir frjáls og friðelskandi stjórnvöld á Vesturlöndum þegar vel þjálfaðir stríðsdrengir þeirra, sem sendir hafa verið í aðrar heimsálfur til að kenna skrælingjum siðmenningu, eru skotnir eins og hundar eða sprengdir í loft upp af heiðnum villimönnum.

Nú hafa Talíbanar, sem eru einir sérdeilis hundheiðnir grimmdarseggir, drepið fimm hrausta og kristna pilta úr herliði NATÓ, samkvæmt frétt mbl.is. Ef ég þekki Talíbana rétt, þá hafa þeir veist að hinum snyrtilegu æskumönnum frá Vesturlöndum úr launsátri og unnið á þeim með bjúgsverðum, að hætti Múhámeðs villuspámanns.

Auðvitað verða Íslendingar að bregðast við þessum voðalegu tíðindum á mannsæmandi hátt. Ég trúi því að herra utanríkisráðherra Íslands sendi þegar í stað fjölmennt lið austur í Afganistan til að hjálpa hinum hraustu og hjartahreinu NATÓ-liðum í baráttu þeirra við ómennska og blóðþyrsta Talíbana. Þegar býður þjóðarsómi, þá á Ísland eina sál ... 

Það væri ósköp upplífgandi á þessum myrku tímum íslandssögunnar, sem vér nú lifum, ef stjórnvöld sendu þó ekki væri nema fimmþúsund Íslands hraustustu syni þangað austureftir til að berjast fyrir vestrænum friði og frelsi. Og mikið myndi það ylja okkur Íslendingum að fá fréttir af afrekum okkar drengja í Afganistan undir fyrirsögnum eins og þessari: Íslenskir víkingar felldu tvöhundruð Talíbana síðastliðna nótt hörðum í bardaga í Helmand dalnum. Aðeins tólf Íslendingar létu lífið í aðgerðinni. 


mbl.is Fimm NATO-liðar fallnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svavarsvæðingin sækir í sig veðrið

Sjáum bara til, vel svavarsvæddur framboðslisti hjá VG í Hafnarfirði; Gestur Svavarsson meira að segja í fjórða sæti til að undirstrika hverskyns galdur er á ferðinni. 

Í Kópavogi ætlar snillingurinn Guðný Dóra Gestsdóttir að hirða fyrsta sætið.

Mest er þó spennandi fylgjast með því hvar sósíalistinn með pípuhattinn, sjálfur Svavar Gestsson, sem svavarsisminn er kenndur við, verður í framboði. 


mbl.is Guðrún áfram í forystu VG í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálafræðingur og forvalssóði

svabbi1Hún er vægast sagt einkennilegur gripur þessi Silja Bára Ómarsdóttir ,,stjórnmálafræðingur" og háskólakennari, enda innanbúðarmær hjá flokkseigendum VG, Svavarsarminum alræmda, sem tekið hefur efri-millistéttarfémínístana uppá sína spilltu arma.

Samkvæmt Silju Báru, er alveg sjálfsagt að beita öllum brögðum í prófkjörforvölum ef tilgangurinn er að leggja ,,miðaldra karla" að velli. Þessi heimskuþvæla í stjórnmálafræðingnum, sem sjálf tók þátt í að forvalssiðleysi svavarsistanna, er byggð á ótrúlegum fordómum, að maður segi ekki  mannfyrirlitningu, gegn karlmönnum. Satt að segja færi best á að innantómt prófgráðufólk af þessu tagi léti sem sjaldnast og minnst í sér heyra.

Hinsvegar hefur fólk átt býsna auðvelt með að rekja slóðina eftir forvalssóðanna í VG í Reykjavík. Það er nefnilega enginn kenndur þar sem hann kemur ekki. Fyrir utan heimskuleg rassaköst stjórnmálafræðingsins, hafa borist fréttir af hringingum Álfheiðar Ingadóttur í fólk þar sem þessi hugljúfi heilbrigðisráðherra og fyrrum fiskeldisdrottning lagði að því að kjósa Þorleif Gunnlaugsson alls ekki í neitt sæti.

Og hver ætli hin raunverulega ástæða sé fyrir óvild flokkseigendafélagsins í VG í garð Þorleifs? Jú, glæpur Þorleifs er sá að vera stuðnings- og samverkamaður Ögmundar Jónassonar og tilheyra þar með vinstriarmi VG. Þessvegna var réttlætanlegt að koma honum á höggstokkinn með öllum ráðum.

Úr því sem komið er, sé ég fátt sem getur komið í veg fyrir að VG klofni í tvo flokka. Gamla flokkseigendafélagið með Svavar Gestsson, Álfheiði Ingadóttur og Steingrím J. Sigfússon í fararbroddi hefur slitið friðinn í flokknum með hátterni sínu. Það er bláköld staðreynd að það er bæði ómögulegt og mannskemmandi að vinna með því fólki. Þetta er lið sem vill engu breyta í raun og veru og kann best við sig við rúllettuborð kapítalismans og að velta sér uppúr hinum borgaralega fláttskap og snobbi.   


mbl.is Moldviðri vegna þess að róttækur femínisti lagði miðaldra mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reffileg kerling knúin af vindvél

divaHelvíti er hún nú reffileg kerling þessi Hera Björk, sem sumir segja að sé söngkona. Hún ætlar breyta laginu, sem mér skilst að hafa unnið EvuogRagnhildarkeppnina í gærkvöldi, jafnvel að skipta um lag ef þannig verkast. En það sem heillar mig sérstaklega eru þau orð Heru Bjarkar, að ,,núna fái hún að standa fremst á sviðinu með vindvélina framan í sér."

En svona okkar á milli sagt, þá átta ég mig satt að segja ekki á þessari dularfullu ,,vindvél" sem sönggyðjan ætlar að hafa framan í sér. Mér dettur helst í hug maskína sem blæs lofti niðrum vélindað á henni til að gera hana stórbrotnari og umfangsmeiri á sviðinu og framleiðir í leiðinni framandi hljóðeffekta sem fara vel við sigurlagið. Þó má vera að þessi andskotans ,,vindvél" þjóni einhverjum öðrum og mun skuggalegri tilgangi, sem best er að hafa sem fæst orð um.

En hvað um það: Ég fer ekki ofan af því að Hera Björk sé helvíti reffileg kerling, - með eða án vindvélar.


mbl.is „Gerum pottþétt breytingar"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðilegt ástand

Jahá, - þeir vita hvernig þeir eiga að fara að hlutunum afbrotamennirnir í Árnessýslu. Nú eru þeir farnir að ganga um í nærfötum af lögreglunni. Úr því að þeir eru orðnir svona bíræfnir hlýtur að vera farið að styttast í að þeir fari að spóka sig á almannafæri í embættisskrúða sjálfs sýslumannsins. Það væri að sjálfsögðu nógu gaman að sjá tveggja metra glæpamann í embættislegum viðhafnarklæðnaði stjörnusýslumannsins Stones á Selfossi. Þessháttar afbrotajúði liti áreiðanlega út eins og geggjaður lúðrasveitarmaður á leið á æfingu.  

 


mbl.is Gripinn í lögreglubol
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband