Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Espa upp undirliggjandi ástandsfíkn

bóndiÞað er laglegt uppátæki, eða hitt þá heldur, hjá hinum stórþýsku dátum að gera tilraun til að espa upp undirliggjandi ástandsfíkn íslenskra kvenna. Mikið má vera, ef þessir bölvaðir stríðsungar, afkomendur herja Adólfs sáluga, hafi ekki heyrt lífgandi kviksögur af meintu ástandi á Íslandi í seinna stríðinu þegar Reykjavík fylltist bókstaflega af ljóngröðum hermönnum, fyrst breskum svo amrískum. Þennan ósvífna orðróm hafa þeir þýsku ætlað að sannreyna með dreifibréfi til ungra íslenskra kvenna í þeirri von að þær séu í engu eftirbátar formæðra sinna og þurfi lítið til að tendra í lærum þeirra uppfuðrandi ástandsins lostabál.

En sem betur fer tókst gömlum mömmum að grípa inní atburðarásina í tæka tíð og siga lögreglunni á kynóðu soldátana frá Þýskalandi.  


mbl.is Partí sjóliða stöðvað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð frétt, sem hefði getað verið mjög slæm

finnur2.jpgÉg skal fúslega viðurkenna að mér brá ónotalega þegar ég sá fyrirsögnina ,,Líkið reis upp" því ég hélt í fljótu bragði að fréttin, sem fylgdi fyrirsögninni, greindi frá því að Framsóknarmaddaman sáluga hefði risið upp frá dauða, eða að minnsta kosti farin að ganga aftur eins og Þorgeirsboli. Ekki datt mér þó til hugar að upprisa Maddömunnar væri af sama leveli og upprisa Frelsarans fyrir hart nær 2000 árum, en sem kunnugt er á Framsóknarmaddaman engan föður á hymmnum en þeim mun fleiri frændur og vini í hinum staðnum.

En ef sú gamla úr Framsóknarfjósinu færi að ganga aftur ljósum logum með húðina af sér í eftirdragi væri sannarlega vá fyrir dyrum því hún myndi eflaust koma víða við og valda ógn og eyðingu.

En sem betur fer fjallaði fréttin atarna ekki um draugagang af völdum Halldórs Ásgrímssonar og Finns Ingólfssonar heldur um upprisu hálffimmtugrar kellingar vestur í Kólumbíu, sem lognaðist sennilega útaf eftir galsafengna kókaíninntöku, en valdhafar handan móðunnar miklu munu hafa hafnað þegar til kom, þannig að hún rankaði við sér hérna megin grafar.


mbl.is Líkið reis upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stundum brosir auðvaldið til vinstri

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Eftirfarandi tilvitnun er úr grein Þórarins Hjartarsonar, "Stundum brosir auðvaldið til vinstri" frá 29. janúar 2010. Grein Þórarins má lesa í heild á eggin.is

"Litlu yngri stéttastjórnmálum klassísks marxisma eru hugmyndir um „annars konar“ vinstrimennsku, „nýja leið“ framhjá þessari hörkulegu stéttabaráttu. Ennfremur sú hugsun að ekki þurfi að afnema kapítalismann heldur endurbæta hann skref fyrir skref. Með tímanum varð algengasta útgáfa slíkrar vinstrimennsku þessi: Stéttarfélög og alþýðusamtök mega takmarka sig við krónupólitík á meðan þessir „annars konar“ vinstrimenn komast með hjálp kjörfylgis í valdaaðstöðu til að stjórna kapítalismanum til hagsbóta fyrir alþýðu. Þá er stutt í næsta skref: „Við erum öll á sama báti“. Borgarastéttin – einkum í hinum ríku Vesturlöndum – lokkar fulltrúa verkalýðsins til fylgilags við sig. Og er ekki bara mannlegt að láta kaupa sig upp, mannlegt að líða betur í hlýjunni en kuldanum? Altént skipuðust mál svo að þessi tegund „umbótasinnaðrar“ vinstrimennsku varð einn meginþáttur í valdakerfi auðsins. Það er sögulegt hlutverk hennar að slæva stéttabaráttuna og vera líftrygging auðvaldsins. Við og við er skipt um stjórn, inn kemur þá nýtt fólk með nýtt tungutak, en stjórnarstefna ríkisvaldsins blívur."


mbl.is Reka þarf ríkið á ódýrari hátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgðarleysi, eða eitthvað þaðan af verra

Mikill meirihluti landsmanna hefur sjaldan eða aldrei verið eins mótfallin aðild Íslands að ESB en einmitt nú. Þessvegna er það algjört ábyrgðarleysi, eða eitthvað þaðan af verra, að eyða hundruðum milljóna í aðildarviðræður við ESB þegar varla er hægt að reka mannsæmandi heibrigðiskerfi og almannatryggingakerfi, svo dæmi séu tekin, og enn meiri niðurskurður blasir við.
mbl.is Aldrei andvígari ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spaugstofa andlegra auðnuleysingja

fisk3_877461.jpgNú berast þær fréttir úr Vestmannaeyjum, að þar hafi verið stofnað félag grínista þar sem inngönguskilyrðið virðist vera að hafa greind vel undir meðallagi. Markmið þessa ágæta félags er að stuðla að því að mafístarfsemi fái að viðgangast áfram óáreytt í sjávarútvegsmálum. Sagt er að félag þetta sé ,,þverpólitískt", hver fjandinn sem það nú er, en samt tekið sérstaklega fram að ungir sjálfstæðismenn séu meðal stofnenda. Það kemur ekki á óvart að svokallaðir ,,sjálfstæðismenn" fari fyrir svona kjánafélagsskap, enda er Sjálfstæðisflokkurinn ekki stjórnmálaflokkur í þeirr merkingu sem almenningur leggur í það orð, heldur samansúrruð glæpasamtök sem meðal annars unnu það sér til frægðar nýverið að leggja efnahag þjóðarinnar í rúst með glæpsamlegum aðförum.

Það er broslegt í meira lagi, að hið nýstofnaða varnarlið gjafakvótaþega og mafíósa skuli bera það á borð fyrir fólk, að svokölluð fyrningarleið sé aðför gegn landsbygginni, eftir að kerfið, sem hinir þverpólitísku elskhugar þess vilja verja með öllum ráðum, hefur rústað fjölda sjávarbyggða allt í kringum landið. Ennfremur segjast þessir misheppnuðu grínistar í Eyjum að þeir vilji alls ekki að misvitrir stjórnmálamenn, fjölmiðlamenn, bitrir fyrrverandi útgerðarmenn og pakk sem hefur ekkert vit á sjávarútvegsmálum (gjafakvótaþegar og erfingjar þeirra eru þeir einu sem hafa vit á sjávarútvegsmálum) afnemi fiskveiðistjórnunarkerfi sem Hannes Hólmsteinn, Ragnar Árnason og Magnús Kristinsson segja að sé það langbesta sem til er í heiminum. Hinsvegar virðast labbakútarnir í þessu nýstofnaða kvótavinafélagi ekki hafi frétt af því ennþá að 75-80% þjóðarinnar hefur skömm á kvótakerfinu og vill afnema það. Og ekki virðast umræddir labbakútar hafa hugmynd um að það heldur, að það er þessi sama þjóð sem á fiskinn í sjónum en ekki örfáir gjörspilltir gjafakvótaþegar.

Hvort á maður heldur að hlægja eða eða biðja Guð að hjálpa mönnum sem tala um misvitra stjórnmálamenn en eru ekki einusinni misvitrir sjálfir heldur fávitrir? 


mbl.is Félag gegn fyrningarleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geldingartengur hans heilagleika

geldNú er svo komið að hans heilagleiki, Benedikt páfi, á varla annars úrkosta en að gera ferð sína til Írlands, með geldingartengur sínar, og gelda alla presta og byskuba katólsku kirkjunnar þar í landi.

Að sögn gagnkunnugra og sannleikselskandi manna, eru slík brögð að viðþolslausum pervertisma, öfughneigð og sódómsku meðal kirkjuhöfðingja á Írlandi að ekki einungis er stórhörmung að, heldur og djöfulleg viðurstyggð. Með fólskulegt lostabros á vör láta þessir anduggar vígja sig til heilagrar þjónustu við fólk í nafni Guðs, Jésú Krists og Maríu meyjar. Daginn eftir vígsluna taka þeir svo til óspilltra málanna með kröftugu drengjastarfi. Að mánuði liðnum vita drengirnir ekki á hvorum endanum þeir eiga að standa. Síðan eiga allir að halda kjafti um aldur og ævi í þeirri von, að með þögninni fái umræddir drottins þjónar inngöngu í Hymmnaríki.

En Benedikt páfi, sem er marghertur af þýsku uppeldi hitlerstímans, veit manna best hvað gagnast best sódómsku þjóna sinna á Íralandi. Og hann mun ekki gefa þessum ónáttúruhausum nein grið þó þeir spangóli og sprikli meðan hann embættar þá með töngum sínum heilögum.  


mbl.is Gjörðir mikilvægari en orð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef Bjarni Ben er heiðarlegur maður

Nú þykir mér tísta í tittlingaborg: Bjarni Ben með utandagskrárumræðu um stöðu efnahagsmála! Það held ég verði nú málatilbúningur.

Ef Bjarni er heiðarlegur maður, þá mun framsöguræða hans að sjálfsögðu fjalla um hvernig Sjálfstæðisflokkurinn lagði efnahag íslensku þjóðarinnar í rúst með áður óþekktri spillinu hér á landi, vanrækslu og pólitískri kreddu.

Einnig má ganga að því vísu, ef Bjarni Ben er heiðarlegur maður, að hann upplýsi þingheim um þátt einstkra þingmanna Sjálfstæðisflokksins í vafasömu fjármálavafstri síðustu ára og alla styrkina sem Flokkurinn og frambjóðendur á hans vegum hafa þegið með þökkum úr gjafmildum lúkum útrásardólga, kjafagvótaþega og annarra siðlausra fjárglæpamanna.

Nú ríður á að Bjarni Benediktsson sýni í verki að hann sé heiðarlegur maður.


mbl.is Rætt um stöðu efnahagsmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar yfirvaldið birtist í lúðrasveitarbúningnum

luðÞað verður eflaust gáll á herra stjörnusýslumanninum Stones þegar hann heilsar uppá drjólana sem plötuðu Skotana uppá Langjökul rétt áður en manndrápsveður skall þar á. Ég sé yfirvald Árnesinga fyrir mér, íklæddan lúðrasveitarbúningi sínum, grípa í hnakkadrambið á ódámunum og hrista þá þangað til allt er komið í buxurnar hjá þeim sem í buxurnar getur farið undir þessháttar kringumstæðum. Og eflaust mun yfirvaldið ekki láta undir höfuð leggjast að flengja ferðamálafrömuðina á vélsleðaleigunni svo rækilega á nauðaber rassgötin, að þeir gleymi aldrei að eilífu vélsleðaleigunni sinni og Langjökli.

Já, þeir eru heppnir, svo ekki sé fastar kveðið að orði, þarna í Árnessýslu að eiga framúrskarandi stjörnusýslumann sem kann að halda uppi alsherjarreglu og góðum skikk í umdæmi sínu. 


mbl.is Sýslumaður rannsakar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rís ekki lengur hold

gitar2.jpgHelvítis ódámur má kallfjandinn Ron Wood vera að leggjast með fyrrverandi kærustu sinni. Þannig lagað gera aðeins hundar og kettir, ekki manneskjur. Og kvenmaðurinn að hlaupa úr buxunum fyrir náunga sem lítur út eins og ofþornuð skreið og er þar að auki ofurölvi alla daga! - Jésús minn góður Guð! Sagt er að Ronnie karl sé svo trénaður og illa fram genginn á miðvígstöðvunum að honum rísi ekki lengur hold; eða öllu heldur: holdið sem á að rísa við vissar aðstæður sé ekki til staðar lengur, dáið, horfið, gufað upp. Til hvers kvensniptin Ivanova var hleypa þessari afturgöngu uppí rúm til sín er í raun og veru óskiljanlegt nema henni þyki þægilegt að hafa illalyktandi drumba undir sæng hjá sér. Ef svo er, er hún algerlega pervert.

Ég vona að karlhelvítinu detti ekki í hug að sækja um vist á Dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík.


mbl.is Svaf hjá sinni fyrrverandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ófyrirleitin hræsni auðvaldsdindla

Auðvaldssví 2Sú var tíðin að leppalúðar á borð við Vilhjálm Egilsson höfðu í flimtingum talsmáta á þá leið að ,,hæfilegt atvinnuleysi" væri blátt áfram nauðsynlegt og áttu þá við að atvinnuleysi væri fyrirtækjum og kapítalismanum almennt afar þénanlegur pískur á launafólk til að halda kjörum þess niðri. Þegar dindlar úr hrunaflokkaelítunni miðri koma núna með grátstafinn í kverkunum fram fyrir alþjóð og formæla atvinnuleysi er það ekki trúverðugur málflutningur heldur ófyrirleitin hræsni. Bág staða atvinnulífsins nú um stundir er atvinnurekendavaldinu, sem að mestu leiti er til heimilis í Sjálfstæðisflokknum, fyrst og fremst að kenna. Með fáheyrðri græðgi keyrðu þessi auðvaldsillyrmi þjóðina svo gott sem í þrot þannig að eftir stendur sviðin jörð hvert sem litið er.

Mætti ég biðja Vilhjálm Egilsson og hans nóta vinsamlegast að halda sér saman og fara á námskeið þar sem siðblindu fólki er kennt að læra að skammast sín.


mbl.is Atvinnuleysið ekki ásættanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband