Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010

Í næstu byltingu getur það gerst

auðvaldEkki skil ég í virðulegum fjölmiðlum eins og RÚV og mbl.is að leggjast svo lágt að hafa eftir undanrennubullið í þessum Magnúsi Orra Schram, sem sagður er alþingismaður. Satt að segja trúi ég því ekki nema rétt mátulega að þessi náungi sé alþingismaður. En ef svo er, þá er óhætt að segja, að allan andskotann séu þeir farnir að kjósa til þings.

Nú, það er á þessum Magnúsi Orra að skilja, að hann vilji endilega nota tækifæri Hrunsins til að vega eins hressilega að því sem eftir er af velferðarkerfinu og unnt er með því að skera það á háls í stað þess að klóra í bakkann með aðstoð skattakerfisins.

Það er ljóst að frjálshyggjudindillinn Magnús O. Schram er góður liðsauki fyrir Samfylkinguna og auðvaldið. En Samfylkingin, kratisminn, er ein af höfuðstoðum auðvaldsins, eins og þeir vita sem hafa óbrenglaða innsýn í pólitíkina. Það er einmitt svona skrípalingum, eins og þessum schrampjakki, sem nauðsynlegt er að sópa útaf Alþingi og úr stjórnmálum yfirleitt. Í næstu byltingu getur það orðið að veruleika.


mbl.is Líst vel á bankaskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merðinum sést yfir eitt

alf2Mörðurinn veit sko hvað hann syngur þegar lygar og sannleikur eru annarsvegar. Alltaf veit hann uppá hár hvenær maður lýgur og hvenær maður segir satt; þetta er eins og yfirnáttúrlegt skilningarvit í höfðinu á honum. Það eina sem Mörðurinn hefur klikkað á varðandi þetta málefni er sú alkunna staðreynd, að Samfylkingin er ein illa lyktandi og löðrandi lygakássa frá upphafi til enda. Hversvegna hinn gáfum hlaðni Mörður hefur ekki áttað sig á svo auðsjánlegu atrið er hreint og beint rannsóknarefni fyrir sálfræðinga og jafnvel geðlækna. En eitt er víst: Mörðurinn er í vondum félagsskap þar sem Samfylkingin er.

Samfylkingin verður ekki sönn fyrr en hún lýsir því skýrt og skorinort yfir með landsfundarsamþykkt að hún sé andstyggilegu hægriflokkur og sem slíkur ekkert skárri en samtökin illræmdu sem kenna sig við framsókn og sjálfstæði.


mbl.is Fráleitt að Gylfi hafi logið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barátta stjörnusýslumannsins við glæpahneigð Árnesinga.

polisMikið ósköp gengur hægt, þrátt fyrir óskaplega elju og dugnað, hjá hinum ástsæla stórstjörnusýslumanni á Selfossi að venja menn af glæpum í Árnessýslu. Það liggur næst að halda að glæpahneigð sé mun ríkari í Árnesingum en fólki annarsstaðar á landinu að Akureyri meðtaldri. Getur verið að umrædd glæpahneigð hafi smitast útí jarðveginn og vatnið í þessari voluðu sýslu út frá glæpamannasetrinu að Litla-Hrauni? Ef svo er, er ekki nema von að stjörnusýslumanninum gangi illa að hemja alla bófana og stigamennina sem sífellt eru á rápi í umdæmi hans. Ég legg til að Árnessýsla verði einangruð frá öðrum landshlutum með tíu metra háum múr með gaddavírsflækju ofaná og stjörnusýslumanninum Stones verð fengin þau meðul sem duga til kveða glæpaartina niður í Árnesingum í eitt skipti fyrir öll.
mbl.is Sviptur ökuréttindum eftir ölvunarakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litlu munaði að Víkingur Ó hampaði bikarnum

víkó1Fyrir skömmu síðan varð ég vitni að því þegar Víkingur Ólafsvík tapaði á afar ósanngjarnan hátt fyrir FH í fjögurra liða úrslitum bikarkeppni KSÍ, sem menningarsnauðir fábjanar kalla ,,VISA-bikarkeppni." Ef og hefðu Víkingar sigrað í þeim leik, eins og þeir áttu skilið, hefði það fallið í þeirra hlut að rassskella KR á Laugardalsvellinum í kvöld og þar með væri bikarinn þessa stundina á leið heim í Ólafsvík.

En óheppnin og ranglæti örlaganna varð til þess að nú eru Hafnfirðingar að þamba brennivín uppúr umræddum bikar af sinni heimsfrægu áfengisfýsn í staðinn fyrir að hann ætti að vera í höndunum á góðu fólki af Snæfellsnesi.


mbl.is FH bikarmeistari karla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá vóru hjálpfúsar höndur tiltækar

drunk9Ekki hefi ég geð í mér að fjalla um jafn smáskítlegan hégóma eins og að lenda flugvél á öðrum hreyfli. Hinsvegar lenti Máría borgargagn, auminginn svorni, á annarri rassakinninni þegar hún datt útúr bifreið sinni, skömmu eftir að hún ók inní bílastæði við heimili sitt. Sem betur fer vóru margar hjálpfúsar höndur tiltækar, þegar slysið varð, sem báru Máríu af slysstað og inn til hennar þar sem Indriði handreður, ektakærasti Máríu, tók við henni.

Það sem vakti mesta furðu hinna hjálpfúsu handa, þegar inn var komið, var sú kynlega staðreynd að Indriði handreður var kviknakin semog Kolbeinn nokkur Kolbeinsson kunningi hans, en frú Ingveldur, eiginkona Kolbeins, lá sofandi á miðju eldhúsgólfinu í samskonar fataleysisástandi og hrjáði þá félaga Kolbein og Indriða. 


mbl.is Lenti á einum hreyfli á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stagkálfurinn í fjóshaugnum og eigendur hans

xbNeineinei ... stingur ekki nema litli ráðsmaður gömlu aldauðu Framsóknarmaddömunnar hausnum upp úr fjóshaugnum baulandi eins og sannur stagkálfur. Í stað þess að heimta að vita hvort Gylfi ráðherra hafi einhverntímann talað við Steingrím J., ætti blessað barnið í fjóshaugnum að segja okkur frá hvernig eigendur hans, Halldór Ásgríms, Finnur Ingólfs, Ólafur bóndi á Miðhrauni, Sigurður í Kaupþingi og Þórólfur kaupfélagsstjóri, léku sér að ríkisvaldinu og fjármálakerfinu þegar hvað mestur skriður var á köppunum.

Þótt Jóhanna og Steingrímur, að ógleymdum Gylfa Magnússyni séu vond og vitlaus, þá standast þau eigendum Sigmundar Davíðs engann snúning þegar kemur að vondum verkum og hroðalegu innræti. Þessvegna á litli stagkálfurinn í fjóshaugnum Framsóknarfjóssins að temja sér hóflegt orðbragð þegar siðað fólk heyrir til.   


mbl.is Lét Gylfi Steingrím vita?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vorum önnum kafnir við að drekka

drunk6Helvíti geðugur náungi þessi Ótarrr Próppe. Sá kann aldeilis ekki að ljúga. Hann segir bara eins og ekkert sé: Við létum fjáhagsáætlunina eiga sig af því við fórum í sumarfrí. Svona eiga menn að vera. Ef Óttarrr og kunningjar hans í gnarrinu, ásamt pissudúkkunum úr Samfó, væru búnir að vera á fylliríí í allt sumar myndi hann eflaust hafa svarað blaðamanninum á eftirfarandi hátt: Við höfum ekkert mátt vera að því að eiga við þessa fjárhagsáætlun af því að við höfum verið önnum kafnir við að drekka.

Ójá. Það er ósköp notalegt, þó það sé afar sjaldgæft, að rekast á stjórnmálamann sem hefur gengið sannleikanum á hönd. Það er eitthvað sem sumir ráðherrar ættu að taka til fyrirmyndar.  


mbl.is Vinnan hefur tafist vegna sumarfría og kosninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og eiginkonan hvetur hann til dáða

kissÆj, ég held honum sé það ekki ofgott, strákgreyinu honum Tomma Hardy, að fá að toga annað slagið í typpið á öðrum köllum, það er að segja ef það eru skikkanlegir menn. Því miður er ég mjög vantrúaður á að að strákurinn hafi sofið hjá köllunum, því lítt veður sofandi mönnum ágengt til afreka. Ég trúi því aftur á móti þeim mun betur, að eiginkona Tomma sé harla glöð og stolt með að maður hennar bregði á leik með strákunum þegar færi gefst og hvetji hann óspart til dáða í þeirri glímu. Reyndar hefur frú Ingveldur aldrei kunnað að meta sambærilega iðju hjá manni sínum, Kolbeini Kolbeinssyni, en það er önnur saga, sem ekki verður rakin hér af velsæmisástæðum.   
mbl.is Svaf oft hjá karlmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sauðnaut eru þetta og fémínísk útrýming á sílamávi

mavurMikil þó endemis sauðnaut geta hönnubirnu-krakkarnir í XD Reykjavík og frú Sóley Tomm fílí-romm-bomm-bomm verið. Gera þau sér ekki enn grein fyrir að meirihlutinn í hreppsnefnd Reykjavíkur ætlar ekki að gera neina fjárhagáætlun, hvorki fyrir næsta ár né þau næstu þar á eftir. Það er nefnilega úr móð að gera fjárhagsáætlanir, meðal annars hafa færustu hagfræðingar fellt þann úrskurð að fjáhagsáætlanir séu algjörlega gagnslausar, í mesta lagi til stórskaða, og öllum til raunar og leiðinda sem að koma gerð slíkrar fíflsku. 

Nú hafa gnarristarnir og pissudúkkurnar frá Samfylkingunni sem sé afráðið að stampa ölllum tilfæringum í átt að fjárhagáætlunum út þetta kjörtímabil og jafnvel lengur ef Guð lofar. Þetta eru góð tíðindi fyrir Reykvíkinga enda er mikill sparnaður fólginn í að gera ekki fjáhagsáætlun.

Úr því að engin fjárhagsáætlun verður gerð á næstunni í Reykjavík verða hönnubirnu-krakkarnir og frú Fílí-romm-bomm-bomm að finna sér eitthvað annað til að fjasa útaf, til dæmir gætu þau efnt til rifrildis við Gnarrana um fémínískar áherslur varðandi útrýmingu á sílamávi í miðborginni.  


mbl.is Engir fundir vegna fjárhagsáætlunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óviðeigandi og ógeðfellt

2JB6Q5CAKKDE2GCAUT44G6CAB3OM5JCAFGMU0JCAYHKKVICARP5M2LCANJBT36CAUZA8LHCAX6FTQBCAI4WKLHCAYSZPSQCA0B2W1ECA8BVDIOCA6HRPVSCAVZJ7PYCAFO9HC2CABP8AH8CAZDJ40YPuff ... óttalegt fúkkabragð er af þessum pólitísku yfirlýsingum Bjarna Ben og hans kónum í samtökunum sem ætti að vera búið að banna fyrir löngu. Það er ljóst að lubbahjörðin í Sjálfstæðisflokknum er ekki á nokkurn hátt marktæk í pólitískum umræðum eftir að hafa eyðilagt þjóðfélagið með tiltektum sínum á sérlega grófan og spilltan hátt. Það er sannast sagna mjög óviðeigandi, að ég segi ekki ógeðfellt, þegar þessir svokölluðu ,,sjálfstæðismenn" fara að sletta sér inní umræðu um hvort Gylfi ráðherra segi satt eða fari með lygimál. Brennuvörgum ferst ekki að hneykslast á eldsvoðum.  


mbl.is Bjarni: „Staða Gylfa í uppnámi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband