Bloggfærslur mánaðarins, október 2014
21.10.2014 | 16:47
Ingi skólameistari bjargar borgarstéttinni frá yfirvofandi glötun
En sem betur fer sá Ingi skólameistari, eða öllu heldur öryggismyndavélarnar, við hinum brennivínssjúku óráðssíubesefum og bjargaði þannig borgarastéttinni frá endanlegu falli. Það skulum við þakka honum Guði og Jesú og honum Inga innilega fyrir.
16 nemendur reknir vegna drykkju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2014 | 15:02
Þá stofnum við alþýðuher
Það verður mjög gaman að lesa fyrirsagnir fyrirsagnir virðulegra blaða, sem gætu hljóðað eitthvað á þessa leið: ,,Herdeild Sannra Íslendinga felldi í gærkvöldi átta hryðjuverkamenn í Breiðholti". Ekki væri þó síður ánægjulegt að sjá fyrirsögn í ögn óvirðulegra blaði, sem liti þannig út: ,,Alþýðuherinn búinn að hrekja megnið af her yfirstéttarinnar uppá miðhálendið en afganginn af honum í sjóinn."
Þetta er drápstæki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.10.2014 | 14:29
Steingerður ritstjóri ekur krossbölvandi um í hálkunni á jappanum sínum
Ekki hefði ástandið batnað ef Steingerður ritstjóri hefði ákveðið að fara leiðar sinnar fótgangandi, því þá hefði hún trúlega handleggsbrotnað í hálkunni eða lærbotnað - eða mjaðmargrindarbrotnað. Það hafa nefnilega borist fréttir af þessháttar slysförum frá því í morgun.
Best hefði farið á, að ritstjórinn hefði setið heima við prjónana í morgun og látið fíflin um að rorra þvers og kruss um göturnar í Kópavogi, útaf, inná og allavega. Og ekki hefir Steingerður ritstjóri mikla sæmd af að bölva og bæjaryfirvöldum í heimabæ hennar fyrir afglöp og blábjánahátt, því ég trúi því ekki nema svona rétt mátulega að hún hafi ekki kosið viðkomandi afglapa og blábjána í síðustu sveitarstjórnarkosningum.
Aldrei upplifað annað eins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2014 | 14:03
Drap hund með snjóþotu
Þegar hundurinn var dauður, ætlaði frú Fríður að veita morðingjanum eftirför, sennilega í þeim ásetningi að traktera hann á svipaðan hátt og hann trakteraði hinn látna heimilishund. En Kolbeinn litli lét ekki snasa sig svo glatt og komst undan. Á eftir var frú Fríður leidd á brott og fyrir sérfræðing sem veitti henni áfallahjálp.
Þessa stundina leitar lögreglan, vædd léttum vélbyssum, dauðaleit að morðingjanum Kolbeini Ingimarssyni tíu ára og þarf pilturinn sá ekki að hafa áhyggjur af að kemba hærurnar, ef lögreglan kemst í færi við hann.
Loksins, loksins! Snjór! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.10.2014 | 13:24
Gamall stríðsmaður rankar við sér í Fjóshaugnum
Forsaga málsins er víst á þá leið, að á sínum mektar- og góðæristímum sendi fyrrnefndur ástmögur nokkra glámskyggna stráka úr Framsóknarfjósinu alla leið til Íraks að leita að eiturvopnum, sem ástmögurinn taldi að Saddam hefði falið fyrir honum og Bushfeðgum. Strákarnir fundu einhverja ryðgaða járnbelgi utaní sendnu rofabarði og færðu Halldóri yfirhúskarli og gömlu Framsóknarmaddömunni samstundis þær fregnir, að þeir væru búnir að finna eitursprengjurnar hans Saddams. Ennfremur tjáðu þeir Maddömunni, að Halldóri mætti treysta, hann væri óskeikull.
Því miður voru Amríkanar ekki eins upprifnir af fundinum og strákarnir og ástmögurinn, gerðu stólpagrín að þeim og fóru með járnbelgina, sem piltarnir hans Halldórs álitu vítisvélar af lúalegustu sort, í endurvinnslu. Sögðu Amríkanarnir að þessir strákabjálfar hefðu líklegast verið vel drukknir þegar þeir slöguðu framá meintar eiturefnasprengjur, enda hefðu járnbelgirnir atarna verið fullir af venjulegu andrúmslofti en ekki neinu ekkisens sinnepsgasi - það hafi ekki einusinni verið vottur af sinnepi í þeim, hvað þá annað.
En nú gerðist það semsagt í morgun, að helsti ástmögur þjóðarinnar,stríðsmaðurinn Halldór Ásgrímsson, kletturinn í hafinu og kvótakerfinu, vaknar upp með andfælum í Framsóknarfjóshaugnum miðjum eftir áralangan blund og fer að tala tungum um sinnepsgas og kúlur í eyðimörkinni í Írak. Vart er samt að merkja, að karlkvölin sé kominn á það stig að fá móral útaf stríðsátökum sínum við Saddam, en honum virðist samt eitthvað mislíka við Bushfeðga og þeirra menn.
Bandaríkin geri hreint fyrir sínum dyrum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.10.2014 | 11:42
Uppskeruveisla og upprisuhátíð á besta heimili í bænum
En það er af Sigurjóni stjörnubánkustjóra síðast að frétta, að hann hélt þegar, ásamt með lögmenninu Sigurði gjé, á fund frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar að heimili þeirra hjóna. Þar vóru opnaðar margar koníaksflöskur, gull étið og klippt, og sungnir níðsöngvar um Karl Marx, félaga Kastró og helvítið hann Kiljan. Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur skemmtu gestum með afturendasprelli og Máría Borgargagn blés sápukúlum eftir að Truggi Fokk laumaði uppþvottalegi í koníakið hennar. Þetta var semsagt allt í senn: Uppskeruveisla, upprisuhátíð og yfirstéttarleg menningarsamkoma af bestu gerð og minnti á hina dásamlegu daga, áður en einhverjum illa örtuðum kvikindum og svínum hugkvæmdist að setja þennan ekkisens sérstaka saksóknara á laggirnar.
Krummi dæmdur í skilorðsbundið fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2014 | 22:10
Eins og milljón mellur hefðu mígið útum gluggann minn
þegar við fórum saman að kukka."
Þannig hófst ræða Katrínar Jakobsdóttur á glæsifundi VG, sem settur var í dag, að viðstöddu tilhlýðilegu fámenni.
En áður en Katrín muldraði upp VG-frösunum af þeirri undanrennukenndu samviskusemi, sem henni er tamt, hafði yfirbúrtík Steingíms og Flokkseigendanna haldið yfirgripsmikla ræðu, hvar hann lofaði svik Flokkseigendafélagsins í síðustu ríkisstjórn. Það ku hafa verið átakanleg predikun og tilefni margra krókódílatára, sem féllu eins og tíkarhland af skinheilögum hvörmum viðstaddra.
Af glæsifundi VG er að vænta margra tímamótaályktanna um hin ,,ýmsustu" mál, eins og þeir segja í Vinstrihreyfingunni grænu framboði. Meðal annars vilja endemin reka frú Hönnu Birnu úr ráðherrastólnum og kasta Sígmúndi Dávíð í mógröf eins og hundshræi. Af þessu má sjá, að hugsjónir Katrínar og Búrtíkurinnar eru hástemmdar sem endranær og verðskulda pilsnerfylgi.
Þegar Katrín hafði hrökklast úr ræðustóli, eftir að hafa muldrað og mjamtað yfir þingheimi, ruddist sjálfur Steingrímur joð eins og Þorgeirboli fram á sviðið og flutti undanrennuskepnunum mikla herhvöt, sem innhélt dýrlegt lof um Icesavesamning Svavar Sendiherra, kvótakerfið og endurreisn Gamla Íslands. Ræðu sinni lauk afsetti kraftaverkamaður og dugnaðarhólkur með stórgáfulegri fúkyrðaskothríð á forseta Íslands, sem þó var fjarstaddur, og klikkti út með eftirfarandi ljóðmæli:
,,Ef þessi sóðahrappur, sem hann Björn minn Valur kallaði svo réttilega forsetaræfil, stæði fyrir utan heimili mitt, þá myndi hann fá yfir sig svoleiðis gusu frá mér, að það væri eins og milljón mellur hefðu mígið útum gluggann minn."
Vilja að Hanna Birna segi af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2014 | 11:25
Eru og verða alltaf helvítis þjófar og arðræningjar
Skemmst er að minnast þegar frú Ingveldur og Kolbeinn og þeirra fólk lúbörðu kommúnista nokkurn í stöppu, en hann hafði villst inní samkvæmi til þeirra hjóna og farið að predika sameignarstefnu og andfasisma. Á eftir fullyrti frú Ingveldur, að aldrei hefði annar eins viðbjóður borist inn í hús til sín eins og þessi mannræfill; hún og Kolbeinn hefðu orðið að þrífa allt húsið með sterkum sápulög og háþrýstidælu til að reka ólyktina af þessu kommúnistahræi útfyrir dyr.
Og við höldum áfram að njóta þess með sælubros á vör, að láta arðræningjana úr frjálshyggjudeildunum stela af okkur öllu steini léttara.
Þetta var mjög óhugnanlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.10.2014 | 10:00
Upphafið að endalokunum
Því miður er Stjáni Júl hættur, ef marka má orð hans sjálfs, að fá sér eitthvað krassandi ofaní kaffið, hvítvínið og koníakið. Nú vagar hann grútleiðinlegur í hringi í ráðuneytinu, sem hann á að sinna, eins og höfuðveikirolla í svartaþoku og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Mér er sagt að upphafið að endalokum andlegrar heilsu hefjist með því að maður gerist ráðherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Enda hafa þeir sem ratað hafa í þá ógæfu að gangast inná að verða ráðherra fyrir þann Flokk einlægt gengið af vitinu, öðrum til ólýsanlegra leiðinda og þeim sjálfum til ævarandi skammar og háðungar.
Hefur neytt ólöglegra fíkniefna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.10.2014 | 19:54
Uppí fangið á fordæðum og ruslaralýð
Sigurveig dræsa, sem á árum áður gengdi óteljandi trúnaðarstarfa á vegum Flokksins, var að vonum hæstánægð með lokun gamalmennadeildarinnar við Hamrahlíðarskólann og kvaðst meir en sátt við að hefja nám á gamalsaldri hjá Hjallastefnu frjálshyggjumógúlsins Margrétar Pálu eða Hraðbraut Ólafs menntamanns.
Önnur fjörgömul skrukka, Bubba togaragagn, varð ekki eins upprifin og Sigurveig þegar henni bárust tíðindin. Sú aldraða kvinna sagði sem svo, að ef löggjafinn ætlaði að sópa orðlögðum sóknartækifærum í skólamálum uppí fangið á fordæðum og ruslaralýð, þá væri timabært að setja upp tærnar og láta moka yfir sig.
Þetta er algjör andstyggð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 5
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 230
- Frá upphafi: 1539521
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 197
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007