Bloggfærslur mánaðarins, mars 2014

Ásta eiturbytta var um sína hérvistardaga kvenna einbeittust í óreglu og allskyns löglegum og ólöglegum tiltektum; slóst við fílelfda karlmenn og hafði betur, rétt eins og vinkonur hennar frú Ingveldur og Borgargagnið. Í London heimsókti hún dýragarð og óð beint inní búrið til ljónanna. Það var hennar bani, því þó hún ætti allskostar í handalögmálum við hvaða karlmann sem var reyndust ljónin henni það ofurefli, að tætlurnar af henni voru sendar í kistu til Íslands.
Í tilefni af því að 25 ár voru frá ótímabæru og harkalegu andláti Ástu eiturbyttu, ákváðu fyrrnefndar lagskonur hennar að heiðra minningu hennar á viðeigandi hátt. Að vísu var andakt þeirra Máríu og frú Ingveldar trufluð þar í legstað hinna sáluðu, þegar tveir lögregluþjónar komu þjótandi inn í garðinn og hugðust handtaka þær fyrir ósæmilega iðju í vígðum reit. Svo sem við var að búast, tóku þær stöllur einarðlega á móti lögregluþjónunum, innblásnar af afrekum Ástu eiturbyttu, og hröktu þá á flótta, blóðuga, rifna og tætta. Var ekki örgrannt um, að gamla góða eiturbyttan hefði veitt þeim lið í bardaganum, því lögregluþjónarnir báru, að eitthvað yfirnáttúrlegt og annarlegt hefði gerst í átökunum, m.a. hefðu þeir fenið óútskýranleg pungspörk hvað eftir annað utan úr öðrum heimi.
![]() |
Gómaðir við fíkniefnaviðskipti í kirkjugarði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2014 | 22:37
Tvær merkar barnaætur

Annað mál er með Grýlu, en hún ku enn vera á lífi, að vísu orðin heilsulaus aumingi og mjök uppað knjám gengin, en þó ekki svo farin að kröftum að hún veiði sér ekki endrum og sinnum til matar eins og forðum. Allir eru sammála um, að Grýla sé einn sérdeilis vondur gestur, illþýði, flagð og óhræsi. Og barnungir Íslendingar hafa aldrei getað vanist því eins og sjálfsögðum hlut að verða étnir upp til agna af þessari matvöndu kerlingarsmán.
Nú segja mér ólýgnir menn, að upp sé risinn undanrennískur íslenskur filmudisney af cócópuffskynslóð, sem sé að rembast við að vekja athygli á sér meðal vesturheimskra með kvikmynd um barnaætur. Það held ég verði nú barn í brók. Nær væri þessum unga manni, að semja örstuttsmyndir um gamla ljóta karla sem hafa ofan af fyrir sér með því að segja hverjum öðrum kúka- og klámbrandara, en þessháttar listaverk tel ég meir en fullgóð ofaní fávísa amríkana.
![]() |
Hryllingur í fullri lengd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |

- Nú er vor í lofti og bændur farnir að slá, sagði Bjarni í upphafsorðum sínu og bætti við, "að farið væri að birta til á hverfulu vori og rauðmagi farinn að glæðast, sem væri merki þess komið væri vor á Suðurlandi." - Með sama áframhaldi, með sama áframhaldi, hélt hann áfram, - verður komið sumar á Íslandi um páska og fjármagnshöftin orðin að hverfandi skugga í skítugu eldhúsi Samfylkingarinnar.
Þegar þar var komið sögu, var seðlabankastjóri orðinn ásýndar eins og hlægileg dvergútgáfa af Leppalúða með heimsmeistarann Sigmund Dávíð sér á hægri hönd.
Lokaorð Bjarna Ben voru svo eitt eitt glæsilegt, yfirvellandi prósaljóð: - Ég fer ekki dult með, að helsta fyrirmynd ríkistjórnarinnar er hin kraftmikla og víðsýna frú Ingveldur, sem hikaði ekki við að gefa öfgapervertískum lostahrók svoleiðis á kjaftinn að tönnurnar og slefan þeyttust útúr kjaftinum á honum eins og hrakéljahryðja. Á sama hátt ætlar ríxstjórnin að setja hvert heimsmetið af öðru með kjaftshöggum, sem duga til að koma heiðnum og gölnum skrílnum í skilning um hver það er sem ræður hér um slóðir og hverjir það eru sem eru rétt bornir til valda á Íslandi.
![]() |
Íslenska vorið getur verið hverfult |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Gott er þó að vita, að trúarhöfðinginn Fránklín Graham sé ekki hræddur við homma og lessur og þori jafnvel að slást við þessháttar fólk með berum höndum ef því væri að skipta. Þó ég sé ekki viss um að Fránklín þessi hafi roð við samkynhneigðum í handalögmálum, en kvað hann vanta dulítið uppá að vera kvensterkur, þá skiptir auðvitað mestu máli fyrir hann að vera kokhraustur og sýna þar með veikluðum sálum frammá að hann sé það sem kallað er kræfur karl og hraustur.
Fyrir þá sem ekki vita, þá gengu lagskonurnar frú Ingveldur og Máría Borgargagn Fránklíni Graham á hönd, ásamt byskubi Íslands, þegar hann kom til Íslands á síðast ári til að frelsa og uppbyggja Íslendinga. Síðan þá, hafa frú Ingveldur og Borgargagnið verið skæðar í að ofsækja samkynhneigða, sem þær kalla nú orðið aldrei annað en kynvillinga, og aðra minnihlutahópa. Til að mynda tóku þær stöllur það til bragðs, að króa konu eina af inni í skuggalegu ruslatunnuporti, af því að þær grunuðu hana um samkynhneigð, börðu hana þar og svívirtu á alla lundi í Jésú Franklíns Grahams nafni. En þegar þær komu aftur heim til frú Ingveldar frá velheppnuðu dagsverki, vóru þær orðnar svo upptendraðar af heilögum anda Fránklíns, að þær skutluðu sér saman uppí hjónarúm frú Ingveldar og brugðu sér þar í skemmtilegan leik, sem Fránklín sjálfur hefði verið fullsæmdur af að taka þátt í.
![]() |
Geta safnað liði - ekki ættleitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2014 | 10:06
Hann er meiri velgjörðarmaður þjóðarinnar en Pétur Þríhross og Jóhann Bogesen báðir til samans

En þó að Sigmundi Dávíð hafi tekist vel upp með að panta pizzur og hamborgara og farið létt með gromsa þessu fóðri ofaní sig, þá er ekki þar með sagt, að óbreyttir meðaljónar eigi auðvelt með að melta skuldareddingu Sigmundar Dávíðs án þess að verða fyrir varanlegu heilsutjóni. Það er eitt með öðru í fyrirhugaðri reddingu, að meðaljóninn sjálfur verður víst að greiða hana með eigin lífeyrissparnaði og eigin sköttum, og sennilega verður hann að setja makann, krakkana, köttinn og hundinn í veð fyrir þessum óverðskuldaða happadrættisvinningi til að þóknast stjórnarherrunum og uppfylla kosningaloforð þeirra.
Það er ekki um að villast, að Sigmundur Dávíð hefur gerst meiri velgjörðarmaður íslenskrar alþýðu en Pétur Þríhross og Jóhann Bogesen báðir til samans. Það eitt og sér er óvéfengjanlegt heimsmet. Hann mun og uppskera í næstu kosningum í samræmi við velgjörðir sínar kynlegar og bjarvættisnáttúru með ógurlega miklu fylgi. Varlega áætlað, ætti ekki að koma á óvart, að Framsóknarflokkurinn fái svo sem eins og 85% atkvæða og Sjálfstæðisflokkurinn afganginn. Þannig mun þjóðin sýna sínum veglyndu gullungum innilegt þakklæti sitt, og má slíkt þakklæti vart minna vera af jafn stórgáfaðri þjóð og Íslendingar vissulega eru.
![]() |
Auðveldara en að panta sér pizzu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2014 | 22:22
,,Að hann gisti, eigi vist, oní frystikistu"
,,En árið nítján núll og eitt
um nótt þeim varð á slysni.
Vilja drottins varð ei breytt:
Walt kom undir, Disney.
----------------
Það um listakynjakvist
kveða í máli stystu,
að hann gisti, eigi vist,
oní frystikistu.
(Höf. Þórarinn Eldjárn - Disneyrímur 1978)Svo er sagt, að Walt karlinn Disney bíði þess gaddfreðinn á botni frystikistu, að lækning finnist við sjúkdómi þeim er dró hann til dauða. Enn fremur að affrystingartækni fullkomnist, sem og að nýtilegar gladraþulur finnist sem dugi til að vekja menn upp frá dauðum. Þegar þetta þrennt liggur fyrir tilbúið á borðinu, er heldur ekki eftir neinu að bíða með upprisuna. Að henni lokinn getur Walt tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið og farið að stjórna meðvitundariðnaðinum, sem hann kom á koppinn fyrir margt löngu, eins og ekkert hafi í skorist.
Þegar skemmtifley Disneyveldisins kemur til Akureyrar mun því að sjálfsögðu verða lagt utaná eitthvert skipa Samherjaveldisins.
"Krókódílar glenna gin,
górilluapar hylja sin.
Frussa vatni um frekjuskarð
flóðhestar í von um arð."
(Úr Disneyrímum)
![]() |
Disney siglir til Íslands sumarið 2015 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2014 | 19:45
Syndakvittun afgreidd, - flórmokstri lokið

Því miður fær duglegi flórmokarinn, Steingrímur J., engan heiður að stærst efndunum, enda telja Bjarni og Sigmundur Dávíð, að efnd þeirra standi í beinu sambandi við flórmokstur þeirra sjáfra eftir téðan Steingrím J.
En hvernig sem mokstri á yfirfullum auðvaldsflórnum hefur verið háttað, hver mokaði hverju eftir hvern og svo famvegis, þá má ljóst vera, að ekki svo mikið sem arða af hroðanum hefur náð því flugi að komast útúr auðvaldsfjósinu atarna. Í því gripahúsi er allt á sínum stað eins og endranær: arðránið, kvótakerfið, stéttakúgunin, einokunarblokkirnar, óréttlætið, þjófseðlið og lygavaðallinn. Enda ekki við öðru að búast hjá þjóð, sem er svo gamansöm og hirðulaus að hafa 63 kapítalista á fullum launum við að þjónusta auðvaldið með því að samþykkja fyrir það lög frá Alþingi og annast framkvæmd þeirra.
![]() |
Stærstu efndir Íslandssögunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2014 | 18:21
Viðsjárverður þrjótur loks afhjúpaður
Þar kom að því, að einhver sómakær einstaklingur hefði í sér döngun og þor til að afhjúpa þann viðsjárverða þorpara og þrjót, Guðmund Guðmundsson handknattleiksþjálfara. Og það þurfti hugdjarfan mann eins og Djúsíbjev til að upplýsa ósómann og birta hinn ótrúlega langa lista, hvar glæpir Guðmundar eru rækilega tíundaðir, einn af öðrum í óslitinni röð uppá tugi metra af bréfsefni.
Mér segja lögfróðir menn, að samanlagir glæpir á umræddum lista varði tugthúsvist í minnst 83 ár, svo að Gvendur þjálfari má fara að setja allt sitt hafurtask niður í töskur og undirbúa sig vel fyrir langa, langa vist í þrælakistunni og svartholinu. Enda eiga svona karla ekkert annað skilið, svo fremi að glæpalistinn, sem Djúsíbjev hefur skilmerkilega ritað niður í margar stílabækur, sé á rökum reistur.
![]() |
Dujshebaev: Listi yfir glæpi Guðmundar er langur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2014 | 11:25
Auðvitað styður Ögmundur frekar Þorleif en skrípaframboð VG í Reykjavík

Fyrir þá sem ekki vita, eða vilja ekki vita, þá er VG á landsvísu ekki síður handónýtt fyrirbæri á sama hátt og skrípaframboð Sóleyjar Tomm í höfuðborginni. Fyrir það fyrsta, þá er VG söfnuður einkennilegra manna og kvenna, sem hefur sérhæft sig í að sigla undir fölsku flaggi; þarf ekki að fara lengra en í nafn flokksins til að geta fullvissað sig um það, því óneitanlega er það að sigla undir fölsku flaggi að tiltla sig "vinstrihreyfingu" í orði en vera ágætlega hægrisinnuð klíka á borði. Í annan stað, líkist VG um margt hlutafélagi þar sem vissir hluthafar hafa yfirtekið félagið á óvinsamlegan hátt til eigin afnota. Flokkseigendafélagið alræmda, sem á VG og starfaði áður í Alþýðubandalaginu, hefur á sínum skrautlega ferli tekist að flæma allflesta raunverulega vinstrisinna úr flokknum, stundað innanflokkshreinsanir ásamt með tilheyrandi rógi og baktali á hendur þeim sem eru vinstrisinnaðir og hafa séð í gegnum blekkingariðju flokkseigendanna. Þessi vinnubrögð, eða öllu heldur skepnuskapur, hafa dugað til þess, að allt besta fólkið sem var í VG er horfið á braut.
Að lokum hvet ég alla til að horfa á samræður þeirra Sóleyjar Tomm og Elliða Vignissonar í þætti Mikaels Torfasonar, sem sýndur var á Stöð 2 fyrir skemmstu. En þar sannar Sóley, sem hefur um árabil verið í stjórn VG og borgarstjórn Reykjavíkur, svo um munar úr hverju hún er gerð.
![]() |
Ögmundur styður oddvita Dögunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.3.2014 | 19:17
Grallarann hún grenjar á með grautarask í hnjám

En nú er Bjork öll komin í náttúruna með honum Arkonoský og henni Pattí Klæn, sem minnir svo mikið að vindþurrkaðann golþorsk, þ.e. nígeríuskreið eins og hún getur orðið náttúrulegustjóra.. Og hann Arkomoský, sá er nú skæslegur og klár, búinn að gera filmu um Gamla-Nóa, sem var guðhræddur og vís.
Einusinni var Bjork í menningarlegu og kátu samkvæmi að Frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra. Þá bar þar að garði þá fóstbræður Trugga Fokk og Haffa Frænku. Vóru þeir í annarlegu ástandi. Truggi dinglaði sér ákaflega í mjöðmunum og hljóp rakleitt að Bjork, þreif hana í fang sér og dansaði með hana um öll gólf í rykkjum og skrykkjum og stórum sveiflum í stinna klukkustund. Í síðustu sveiflunni missti Truggi tak sitt á dansmey sinni og endasenntist hún eins og vígahnöttur gegnum rúðuna í stofuglugganum og hafnaði í viðurstyggilegum forarpolli úti á lóð. Í þann forarpoll hefur Kolbeinn bóndi að heimilinu kastað af sér vatni í mörg ár og var hann farinn að þefja ískyggilega þegar Bjork kom þar við. Í dag berst öðlingurinn hún Bjork fyrir því með oddi og eggju, að þessi nytsami forarpollur Kolbeins skrifstofustjóra verði friðaður og hann settur á heimsminjaskrá.
![]() |
Verðmæti náttúru skert með raski |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.3.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 1545616
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007