Bloggfærslur mánaðarins, maí 2014
11.5.2014 | 19:52
Orð í tíma töluð um tómhyggju Framtíðarinnar hans Gvendar Steingríms
Svo sem algengt er með tómhyggjuflokka nútímans, þá hefir fólk ekki minnstu hugmynd um fyrir hvað þeir standa eða hvort þeir hafa einhverja sérstaka staðsetningu eða hugsjón. Sumir eru svo vegvilltir og vánkaðir um hagi Björtu framtíðarinnar hans Gvendar, að þeir halda að fyrirbærið sé vinstriflokkur, jafnvel róttækur sem slíkur. Hvernig slík firra hefur komist inní höfuðið á fólki er með öllu óskiljanlegt, enda ætla ég ekki einu sinni að gera tilraunendur ekki til að skilja þá reginheimsku eða hvernig hún er tilkomin.
Björt framtíð er vel til hægri, dæmigerður hægriflokkur tilgangslausra lukkuriddara, sem haldið er úti fyrir eigendur sína. Það stendur ekki til til hjá Gvöndi Steingríms og Heiðu Pé að breyta einu eða neinu sem máli skiftir í íslensku samfélagi og varðandi pólitísk grundvallaratriði er Framtíðin hans Gvendar jafn mikið dólgaíhald og höfuðpaurar sjálfs Erkiíhaldsins í Sjálfstæðisflokknum.
BF býður fram á níu stöðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.5.2014 | 10:32
Liðsmenn úr Heimdalli og Pírötum á ferð
Nú er það svo, að miklir innileikar eru á milli Heimdellinga og Pírata, enda er frjálshyggjubreimið þeim í blóð borið. Það segir sig sjálft, að þegar svona óvitar taka sig til og fara að fikta með eldspýtur og sprengiefni er voðinn vís. Þarna verða barnaverndaryfirvöld að gríp strax ínní og ganga svo frá hnútum, að Heimdallur og Píratar verði sendir til uppeldis í sveit til góðra framsóknarbænda.
Voru með heimatilbúnar sprengjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2014 | 23:46
Nú á víst að fara að reisa nýtt erfðagreiningarver, sem verður mun áhugaverðara en klamburballið hans Díkót-Kára
En nú er víst nýtt erfðagreiningarver að fara að rísa, suður með sjó að mér skilst. Í þeirri erfðagreiningu á einkum að leggja áherslu á að rannsaka útrásarbófa og svikul og hraðlýgin stjórnmálaóféti. Markmiðið er að kortlegga erfðagenamengissúpuna í þessu furðulega fólki og kanna hvort ekki sé hægt að þróa gott ormalyf sem hreinsar græðgina og eiginhagsmunagirnina úr görnunum á því. Ekki væri amalegt að geta dælt svoleiðis gumsi í þá þrjóta og þorpara sem fara með stjórnmála- og fjármálavöldin hverju sinni þannig að þeir væru eins og nýsmíðaðir guðir á eftir.
Kári svarar siðfræðingunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2014 | 22:52
Hoggið í sama knérunn
Svo óð frú Ingveldur inní eiturstybbuna og linnti ekki látum fyrr en hún komst að hinu sanna: sem sé að um svívirðilegt hryjuverk væri að ræða, sem gestir hennar ættu enga aðild að. Uppúr því fóru gestirnir að tínast aftur inn, enda var þeim orðið kalt af að norpa kæðalaus um stéttina í rúma hálfa klukkustund. Húsbóndinn, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, lokaði öllum gluggum til að fyrirbyggja að annað hryðjuverk yrði framið á heimilinu. Svo var samkvæmið keyrt uppí hæstu hæðir á nýjan leik af tvíelleftum þrótti.
Ath. Meðfylgjandi mynd var tekin af einum veislugesta er hann flúði á braut eftir ólyktarsprenginguna.
Krefur Hjördísi Svan um bætur | |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2014 | 09:30
Það voru víðar hræddir hundar í gærkvöldi og nótt en á Suðurlandi
Þegar lögreglan mætti á staðinn til að freista þess að lægja öldurnar varð hún frá að hverfa vegna óblíðrar móttöku frú Ingveldar og gesta hennar. Og þegar Brynjar Vondalykt kom askvaðandi útá stétt með tvíhleypta haglabyssu í höndunum og digran vindil í kjaftinum lögðu laganna verðir beinlínis á flótta og létu ekki sjá sig meir í grend við heimili frú Ingveldar og Kolbeins, en hundar og börn nágrannanna máttu lúta þeim grimmu örlögum að grát sig í svefn.
Nú í morgunsárið var allt aftur komið á fúll svíng hjá frú Ingveldi og Kolbeini og ekki annað að sjá en þráðurinn hafi verið tekinn upp þar sem frá var horfið síðla nætur. Indriði Handreður var kominn inná lóð hjá nágrönnunum og farinn að pissa á stofugluggan hjá ræfils fólkinu sem þar býr og Máría Borgargagn byrjuð að sýna klúran látbragðsleik úti á gangstétt.
Hundar hræddir og leirtau glamraði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2014 | 21:33
Fátt boðaði hún af viti hér áður og fyrr, en eftir að hún féll í transið boðar hún enn minna, gvöði sé lof
Og þó að reynt sé að láta að því liggja að Þyrnirós fémínístanna og undanrennubúðingsins í VG hafi loks brugðið blundi situr eftir hin áleitna spurning: hversvegna svaf frú Tomm draumlausum svefni allt kjörtímabilið og sagði aldrei svo mikið sem eitt einasta orð uppúr transinu? En núna, en núna alltíeinu, bærir eignin á sér eins og transmiðill frá öndverðri síðustu öld og talar tungum um uppsagnir, karla og konur, ásamt með mjóróma hryglu um lág laun eða láglaunafólk! Nei, þá hefði verið betra að flokkseigendur VG hefðu leyft Þyrnirós sinni Tomm að sofa í friði.
Eða eins og frú Ingveldur sagði nýverið: ,,Já, angans kérlíngin hún Sóley átti sinn góða sprett þegar hún vildi senda jólasveinana í ,,kynleiðréttingu" og smávegis lífsmark var með henni þegar hún rak vinkonur sínar útum flestar þorpagrundir með atkvæðakassa til að skrapa saman atkvæði fyrir hana í 1. sætið á lista VG fyrir síðustu kosningar. Síðan það var hefir hún legið í dái, gvöð má vita hvar. En satt er það: fátt af viti boðaði hún hér áður og fyrr og enn minna nú eftir að hún féll í transið, gvöði sé lof. Ég held, svei mér þá, að hún boði meira að segja jafn lítið og formaður þeirra VGinga hún Katarína Jakobsen."
Hart vegið að leikskólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2014 | 18:12
Þá brutust út ógurleg fagnaðarlæti
Þegar þetta er skrifað, er gleðskapurinn orðin svo háttstemdur að viðbúið er gólfið á heimili heiðurshjónanna sökkvi í jörð niður með manni og mús, eins og gerðist hér um árið þegar söfnuðurinn í Hrunaprestakalli tók sig til og efndi til dansleiks í í kirkjunni að Hruna. Að sögn vitna, eru allir orðnir berrassaðir og mjög valtir á fótunum, ekki síst Máría Borgargan sem farið hefur á kostum í dag. Og bráðlega verður lögreglan kölluð á vettvang, því nágrannar frú Ingveldar og Kolbeins eru skelfingu lostnir vegna orrustugnýsins sem fylgir veisluhaldinu.
Gunnar Andersen dæmdur í fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.5.2014 | 10:29
Ósæmileg meðferð á tómthúsmanni
En þrátt fyrir ólýsanlega örbyrgð, þá sýndi Björgólfur samt slíkan höfðingskap og örlæti, að hann gaf Fjölskylduhjálpinni síðasta gula bindið sitt fyrir síðustu jól, og kom það í góðar þarfir því sá sem fékk bindið notaði það til að þétta leka á brotinni klósettskál.
Já, það er illa komið fyrir þeirri þjóð, sem lætur sína bestu syni og dætur tuttugustu og fyrstu aldarinnar búa við moldarkofakjör þeirrar átjándu. Þessháttar óréttlæti mun Skaparinn ekki láta órefsað.
Sáralítið til í þrotabúi Björgólfs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.5.2014 | 09:14
Góður og farsæll hreppaflutningur í aðsigi á Reykjanesi
En nú eru sem betur fer uppi vísbendingar um að Suðurnesjamenn séu búnir að fá nóg af hrunskaðvöldunum, sem þeir hafa haft í meirihluta bæjarstjórnar um árabil, og það sé loks að renna upp fyrir þeim hverskonar afburðamolbúar það eru sem stjórnað hafa þessu ólánssama bæjarfélagi. Það verður áreiðanlega mjög ánægjulegt fyrir kjósendur í Reykjanesbæ, að nota kjördaginn til að pakka bæjarstjóragarminum sínum niður í kassa og senda hann hreppaflutningi til síns heima, þ.e. á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í Reykjavík. Það mun eflaust mörgum þykja góður og farsæll hreppaflutningur.
Meirihlutinn fallinn í Reykjanesbæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2014 | 21:32
Borgargagnið dreymdi svikna æskuást í fyrrinótt
Sem betur fer eigum við þó enn góða einstaklinga eins og Máríu Borgargagn, Indriða Handreð, frú Ingveldi og Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og framsóknarmann. Guð blessi þau og varðveiti um aldir alda.
Í gærmorgun vaknaði Máría Borgargagn í herfilegu skapi. Þrátt fyrir að vera í samanherptum hlandspren, lét hún ekki undir höfuð leggjast að láta sitt fyrsta verk vera að reka sambýling sinn, Indriða Handreð, samstundis á fætur með illúðlegu bölvi og formælingum. Og þegar hann sinnti ekki ræsinu, gerði hún sér lítið fyrir og reif af honum sængina og velti honum útá gólf. Þá fyrst fór Handreðurinn að tína utaná sig leppana og var horfinn á braut innan tíu mínútna.
En svo var illu geðslagi Máríu er hún vaknaði um að kenna, að henni hafði dreymt ákaflega allan síðari part nætur þann draum sem henni langaði síst að dreyma. Fyrrum ástmaður hennar, sjálf æskuástin, hafði komið inní draum hennar og hagað sér dólgslega, eiginlega fyrirlitlega að hennar mati. Þennan ágæta mann, sjálfa æskuástina, hafði Máría Borgargagn á sínum tíma svikið í tryggðum á ömurlega lúalegan hátt. En við skulum ekki fara nánar útí þann sálm. Það sem Borgargagninu sveið samt sárast við heimsókn æskuástarinnar inn í draum hennar var rætin kviðlingur, sem mannfjandinn mælti af munni fram og hún gat því miður alls ekki gleymt, og er á þessa leið:
Ein var drósin dáldið glöð
og dásamleg hér forðum.
Nú er hún bara grimm og gröð
og ginið farið úr skorðum.
Ert þú Pollapönkari? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 60
- Sl. sólarhring: 132
- Sl. viku: 218
- Frá upphafi: 1539501
Annað
- Innlit í dag: 52
- Innlit sl. viku: 186
- Gestir í dag: 52
- IP-tölur í dag: 51
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007