Bloggfærslur mánaðarins, september 2014
23.9.2014 | 20:38
Ólafur Ingi hefur rangann Svavar í huga
Málverkin tvö eftir Svavar Sendiherra, sem stóð til að bjóða upp hjá Brúni Rassmússen, eru tveggja ára gömul og heita Icesave I og Icesave II, eru eins og Óláfur Ingi segir, illa gerð og auk þess frámunalega klunnalega. Talið er að listamaðurinn hafi málað þau í illa grunduðu oflætiskasti og hafi jafnvel kastað upp á báðar myndirnar áður en málningin var þornuð. Síðan lágu þau í reiðileysi í einhverju kofaræxni á vegum Úlafars Þormóðssonar innanum brotnar og ryðgaðar sigðir og rauðleitar og fúnar tuskudruslur, uns hann rakst síðar á þessar furðulegu myndir fyrir tilviljun, þegar hann var að pissa þar inni, og ákvað að reyna að koma þeim í verð í Danmörku.
Verk eftir Svavar sögð fölsuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.9.2014 | 19:43
En illgjarnir þeir sem betur mega
Um hina óhrjálegu aplakálfa og platvinstrimenn, sem heyra til Flokkseigendafélagi og þingflokki VG, er vel viðeigandi að hafa orð Hjálmars Jónssonar frá Bólu: ,,eru þar flestir aumingjar en illgjarnir þeir sem betur mega." Hvað það er sem veldur því að þetta lið hefur gert það að hlutskifti sínu í lífinu að leika vinstrisinna er mér að mestu hulið, en veit þó, að þarna fara fremstir meðal jafningja, illa gerðir einstaklingar, ágjarnir, falskir og valdasjúkir.
Þeim, sem enn trúa því að VG sé vinstriflokkur, jafnvel róttækur og sósíalískur, vil ég vinsamlegast benda á að það er reginfirra og þvættingur. VG er í raun hægriflokkur, sem leggur kapítalískt hagkerfi til grundvallar í pólitík sinni, borinn uppi af sjúklegum valdastreðurum og óheilindagöltum, sem verja brambolt sitt með hundalógík á borð við þá, að þeir séu í pólitík til að hafa áhrif.
Þjóðin kjósi um NATO | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2014 | 18:08
Hvimleitt frekjukast ofdekraðs yfirstéttarkrakka
Svo mætir til leiks eitt af hinum undanrennublautu dekurdýrum Ögmundar Jónassonar og Steingríms Joð, Drífa Snædal, og kveðst taka undir ruglandina í þeirra háborgaralegu; slær úr og í tekst að þvæla málið enn betur inní umbúðir leyndarhyggjuþvættingsins. En auðvitað ætlar Drífa Snædal ekki að segja sig úr stjórn Íbúðarlánasjóðs, þrátt fyrir meinta annarlega stjórn hans, enda er stjórnarseta í Íbúðarlánasjóði sæmilega launaður pólitískur bitlingur.
Í raun og veru eiga apparöt eins og Steinunn Valdís og Drífa Snædal ekki eitt einasta erindi í pólitík af nokkru tagi, og þá allrasíst fyrir hönd stjórnmálaflokka, sem þykjast vinstrisinnaðir og eru sagðir byggja á arfleifð sósíalismans. Fénaður, sem aldrei getur komið hreint fram, er ekki treystandi fyrir einu eða neinu, nema þá helst að bralla með einhverja drullu á vettvangi samtryggingar svikulla atvinnustjórnmálamanna. En af svikulum atvinnustjórnmálamönnum eigum við svo mikið, að aðkallandi er að grisja rækilega í þeim hópi og helst að eyða honum alveg.
Tekur undir orð Steinunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.9.2014 | 19:00
Innilega til hamingju þjóð mín með torfhvelið og Framsóknarófreskjuna
Með ákvörðun sinni um flutning Fiskistofu í kjördæmi Steingríms Joð, Stjána Möller, Kristjáns Júll og Símúnds Dávíðs, opinberaði torfhvalurinn vitsmuni í einum manni, sem ekki hafa sést síðan Einstein var á dögum. Hinvegar botnar heimskur skríllinn ekki par í flutningi Fiskistofu norður í eina skúffuna hjá Samherja á Akureyri, ekki fremur en hann hefur fengið botn í stjórnvisku og sullumbrugg fyrrnefndra þingmanna Norðausturkjördæmis, sem vaðið hafa eins og jólasveinar um kjördæmið, ausandi jólapökkum á kostnað skattgreiðenda í gapandi lýðinn, hverjir hafa innihaldið allskyns gæluverkefni.
Nú rétt áðan var ég að skoða myndband á Facebook af þremur draugfullum framsóknartruntum, sem fara þar á kostum í sama háskerpuvitsmunanda og stafar frá torfhvelinu góða. Þessar griðkonur gömlu Framsóknarmaddömunnar og gifturíka kaupfélagsstjórans á Sauðárkróki, sýna svo ekki verður um villst, að þær eru afar upp með sér af hlutdeild sinni í uppgangi múslimahaturs á Íslandi.
Að öllu samanlögðu má ljóst vera, að haldi sem horfir, þá verður að koma böndum á Framsóknarófreskjuna áður en stórbrotið gáfnafar hennar nær að æra almenning umfram það sem orðið er. En sem kunnugt er, þá mun gáfnafar af þessu tagi og í svo miklu magni, flokkast undir stórfellt og óbætanlegt heilsufarsvandamál og félagslegt mengunarslys.
Skynsamlegt að flytja Fiskistofu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2014 | 19:48
Hin ógnarróttæka undanrennumenning á ,,vinstrivængnum"
Auðvitað er hinn uppvakti undanrennufélagsskapur tussufínn og skæslegur í eymd sinni og tilbúinn að þjóna ekki ómerkari platvinstritólum en Steingrími okkar hérna joð, Álfheiði, Ögmundi og Svavarsfjölskyldunni. Það er því mikil ábyrgð, sem blessuð börnin eru að taka að sér undir menntuðum starfsheitum á borð við ,,aðalritari" ,,talskona" ,,viðburðastýra" ,,innrastarfsfulltrúi." Að vísu minna starfsheitin atarna dálítið á titla starfsfólks í bankaútibúum, en það gerir ekkert til þar eð krakkagreyin eru svo helvíti kapítalísk í hugsun, að hreilega rýkur úr tálknunum á þeim.
Og ekki lætur róttækni undanrennulýðsins og dekurdýrana að sér hæða: Það kemur semsé fram, að unga fólkið, sem fær náðarsamlegast að kíkja uppúr buxnastrengjum Steingríms og félaga, vill endilega reka Hönnu Birnu úr embætti og hefir um það ljótan munnsöfnum, sem ekki hæfir fólki sem ekki er vaxið uppúr leikskólaþroska; ennfremur skilur það ekkert í því að Flokkeigendaklíka VG skuli ekki hafa drullast til að taka afstöðu gegn olíuvinnslu. Afturámóti virðist þessi rassvasasöfnuður Flokkseigendaklíkunnar eiga við umfangsmikinn trúaráttunarvanda að stríða og á erfitt með að gera upp við sig hvort hann sé múhámeðstrúar eða lífskounarfélagstrúar og kenna vissum framsóknarkéllínum um þetta vandamál sitt.
Nú er bara að bíða og sjá hvort undanrennuliðarnir fylgja hinni ógnarharðskeyttu róttækni eftir með því að boða sósíalisma, stéttarbaráttu og þjóðfrelsi, þjóðnýtingu framleiðslufyrirtækja, banka og tryggingafélaga, að ógleymdu afnámi kvótakerfis til lands og sjávar, einbeittrar andstöðu við inngöngu Íslands að auðvaldsbákninu ESB og úrsögn landsins úr NATO.
Ný stjórn ungra Vinstri grænna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2014 | 22:38
Sjálfsagt og bráðnauðsynlegt afbrigð af sprúttsölu á teikniborðinu
Allt um það, þá er einkar gleðilegt að hinn hámenntaði Daníel sé þeirrar skoðunnar, að matvörukaupmenn sjái um að pranga út brennivíni, rétt eins og de la Gvendur Gúðmúndsen í Gúðmúndsensbúð gerði fyrir liðlega hundrað árum.
Á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar var samþykkt með öllum atkvæðum, að allar matvöruverslanir tækju upp það fyrirkomulag, að hafa kétið, fiskinn og kálið í öðrum enda búðarinnar en brennivínið og bjórinn í hinum endanum. Ennfremur, að heimsendingarþjónusta á vínanda og öðru hressandi stöffi sé bæði bráðnauðsynleg og sjálfsögð, því að brennivínið verði að hafa sinn gang, eins og segir í samþykktinni. Að formlegum fundi loknum, skáluðu viðstaddir í kogara, nema Brynjar Vondalykt, hann skálaði í Admíralrakspíra. En því höfðu frú Ingveldur og Kolbeinn og gestir þeirra fyrrgreinda vökva í glösum sínum, að birgðir af viðurkenndum ríkisverslunarveigum voru á þrotum og þrjár klukkustundir þar til búðarholur ÁTVR væru opnaðar.
Fólk fái áfengið heim að dyrum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.9.2014 | 16:57
Bjóða fólki að hella það blindfullt í gegnum netið
Dörtítrixin, sem allrahanda kínalífselexsírsbruggarar færa í búning ,,hugrænnar atferlismeðferðar" virðast ótæmandi og endalaus fyrir skapandi athafnafólk með prófgráður frá hinum og þessum pungaprófsháskólum og árangurinn náttúrúlega eftir því. En þegar ágengir péníngaplokkarar þykjast geta svæft norðmenn í gegnum netið er skörin farin að færæst allmikið um of uppí bekkinn. Ég er mest hissa á að þessir atferlismeðferðardólgar skuli ekki vera farnir að bjóða vínhneigðu fólki uppá að hella það auga-blindfullt í gegnum netið og lofa því timburmönnum og öllu tilheyrandi á eftir.
Íslendingar hjálpa Norðmönnum að sofa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2014 | 16:30
Skepnutegundin ,,hægrimenn" geta ekki lært að hjóla
Öllum mun vera í fersku minni þegara einn graðbeittasti hægrimaður landsins klifraði uppá hjólhest og rann stjórnlaust niður brekku þar til hann rakst á aldraða konu, sem því miður beið bana við höggið. Til stóð að vista umræddan hægrigæðing á vitlausraspítala eftir þetta asnaspark, en þá greip Flokksforystan til sinna ráða og afstýrði því; þeir gátu ómögulega sætt sig við að þessi gimbrarlegi blárass fengi kleppsstimpil á sig.
Hjólreiðar ekki mál vinstri manna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.9.2014 | 13:23
Ítarlegri frásögn af flugdólgnum og hyski hans
Hið rétta í málinu er í sem allra fæstum orðum á þá leið, að flugdólgurinn atarna var enginn annar er góðvinur þjóðarinnar, sjálfur Brynjar Vondalykt og með honum í slagtofi voru ekki minni persónur en Óli Apaköttur, Máría Borgargagn og Indriði Handreður. Þau höfðu nefnileg brugið sér í fylliríi vestur í Halifax til að taka púlsinn á menningarlífinu þar um slóðir og um leið að hvíla sig á grófum tiltektum og fólsku hjónanna frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar.
Í Halífax hittu þau meðal annars fyrir hinn landflótta sjálfstæðismann og drulludela, Björn Kapílán og ferðuðust með honum um flesta lágmenningarafkima Halífaxborgar sem orð er á gerandi. Ferðalag um rangala og rottuholur með Birni Kapílán geta verið svæsnar og taugatrekkjandi, enda var Brynjar Vondalykt orðinn svo herskár, þegar til heimferðarinnar kom, að hann fann sig knúinn til að sýna farþegum flugvélarinnar í tvo heimana. Til að mynda meig hann yfir roskið fólk, sem vissi ekki hvað á sig stóð veðrið, og hafði í frammi sérlega dólgslega kynvillutilburði við væskilslegan eiginmann ungrar konu, sem vóru þar meðal farþega. Flugfreyjurnar fengu líka sinn skerf af villimennsku Vondulyktarinnar, því með harðfylgi tókst honum að svifta tvær þeirra fötum og troða þeim ofan í salerni, þ.e. fötunum. Þá var flugvélin stödd suðvestur af suðurodda Grænlands. Loks lokaði hann sig inni á salerninu með Máríu Borgargagni og sambýlingi hennar, Indriða Handreði og hófu þau strax eitthvað sem átti að heita samræði þar inni. Á meðan lá Óli Apaköttur steindauður af áfengisnautn og með buxurnar á hælunum í miðjum gangvegi farþegarrýmisins og varð ýmsum æðir starsýnt á manngarminn þar sem hann lá eins og skotinn mávur.
Ölvaður og ógnandi flugfarþegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2014 | 19:17
Á skilið innilokun, gapastokk og pólitíska útlegð
Afturámóti væri meira viðeigandi kæra Katrínu þessa fyrir aflægishátt og óafsakanlegt tómlæti þegar hún sem varaformaður VG lét sem hún sæi ekki einelti og djöfulgang Steingríms formanns og Flokkseigendafélagsins gegn fólki eins og Jóni Bjarnasyni, Guðfríði Lilju, Lilju Mós, Atla Gísla og Ásmundi Einari og fjölda annarra flokksmanna. Fyrir þann ræxnishátt ætti náttúrulega að loka gardínuskrautið inni og hafa það í gapastokk.
Og ekki vænkast hagur Strympu þegar þátttaka hennar í gríðalegum svikum VG í mörgum stórum málum og smáum, á ríkisstjórnarárum VG, eru tekin með í reikninginn. Að þeim ósköpum meðtöldum væri hæfileg lágmarksrefsing Katrínar Jakobsdóttur pólitísk útlegð til lífstíðar.
Segir kæruna tilhæfulausa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 61
- Sl. sólarhring: 133
- Sl. viku: 219
- Frá upphafi: 1539502
Annað
- Innlit í dag: 53
- Innlit sl. viku: 187
- Gestir í dag: 53
- IP-tölur í dag: 52
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007