Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2016

Ten pánds for Dollý

hreggHaraldur bóndi á Rein er ekki fyrsti bóndin á þeim bæ sem lendir í hremmingum vegna framkomu stjórnvalda við hann. Hinn merki kristsfjárbóndi, Jón Hreggviðsson sem einnig bjó að Rein, tapaði næstum höfðinu í viðskiptum sínum við réttlæti kerfisins og æra hans fauk veg allrar veraldar. Jón bóndi leitaði til konungs til að fá að minnsta kosti að halda höfði sínu, en núverandi Reinarbóndi leitar til Bjarna Ben fjármálaráðherra í þeim tilgangi að hann komi í veg fyrir að fantar kerfisins svipti hann ekki æru og eignum! Það væri þokkalegur andskoti ef íbúar á Akranesi og nágrennis verða vitni að því að ráðuneytisstjórar kæmu askvaðandi, með fulltingi sýslumanns á rauðum kjól, dómara og kerfiskarla úr ráðuneytunum, og bæru Harald bónda út af sínu eigin heimili og skipuðu honum að koma sér hið snarasta burt úr þessum landshluta, ella hefði hann verra af.

Það sem Haraldur bóndi gæti lært af málatilbúnaði þeim sem hann hefir ratað í, er hversu fáránlegt og hættulegt æru og eignum manna það er skipa persónurnar Vigdísi Hauks og Guðlaug Þórðarson í embætti formanns og varaformanns fjárlaganefdar. Ef Haraldur karlinn frá Rein lendir í svartholinu á Bessastöðum, eins og forveri hans, þá skal hann þakka þá vegsemd áðurnefndum Vigdísi og Guðlaugi. Og ef hann vill ver forsjáll, þá ætti hann að læra Pontusrímur eldri utanbókar nú þegar til að hafa eitthvað gott til að raula fyrir munni sér í prísundinni, því birta til bóklesturs eða annarra verka er ekki til staðar í svartholinu.

dog1Og fyrst við erum farin að spjalla um skagabændur og búalið, þá sakar ekki að geta þess að það var einn af sveitungum Jóns Hreggviðssonar og Haraldssonar sem um árið rataði í kunningskap við tíkina Dollý og eigenda hennar í Grimsby á Englandi. Það væri synd að segja, að sveitungi þeirra kumpána Jóns og Haralds hafi ekki haldið heiðri Skagamanna hátt á lofti þar ytra. Það sannaðst best þegar kom að kveðjustund, en þá sagði eigandi tíkurinnar engilbjörtum rómi við Skagamanninn knáa: No monní for mí, ten pánds for Dollý.


mbl.is Segir hótun Guðmundar „grafalvarlega“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er tímabært og hvað er ekki tímabært?

xb2.jpgFyrst Katrínu Jakobsdóttur þykir timabært að lauma ákvæði um fullveldi og sjálfstæði Íslands inní sjórnarskrána er eð minnsta kosti jafn tímabært að hún sjálf, ásamt flokkseigendaklíkunni í VG, gangi nú þegar annaðhvort í Viðreisn eða Samfylkinguna, helst báða þessa flokka. Því miður er umræddri flokkseigendaklíku og Katrínu margt annað betur gefið en að koma heint fram, undirferli og svik er aðall þessra ræfla og þá ekki síður rógburður og fleira þokkalegt af því tagi.

Þeir sem greiða VG atkvæði sitt í kosningum í þeirri barnslegu trú að VG sé róttækur sósíalistaflokkur eru að kasta því á glæ. Það hefir hingað til ekki þótt til fyrirmyndar að fleygja perlum fyrir svín, - á sama hátt er þeim sósíalistum og verkalýðssinnum farið sem kasta atkvæðisrétti sínum í svaðið með því að kjósa hægriflokkinn VG. 


mbl.is Vill ákvæði um valdaframsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvur er munurinn á Brýgýtu og Sigmundi Dávíð? Eða Swandeesý og Illuga?

x16Ætli það þyki orðið fínt í efri-millistéttarkreðsunum og hjá yflirstéttarkonunum, að troða sér með ofbeldi inní viðtöl í sjónvarpi og öðrum fjölmiðlum? Að minnsta kosti var Brýgýta okkar Píratíus orðin svo íll vegna tveggja mánaða áhugaleysis fjölmiðla á henni að hún beitti troðningsleiðinni til að sjónvarpsáhorfendur fengju að sjá ásjónu hennar á skjánum. Þá fullyrðir Brýgýta, það sé fult af flottum konum, sem fjölmiðlar geti talað við um allan fjandann. Hitt er annað, að það sem Brýgýtu þykir flott kona og skemmtileg er í augum næsta manns ekki flott kona, hörmungarblábjáni og leiðindahró. Þess utan hefur fjölmiðlafólk nú aðallega áhuga á þvæla hvert við annað á öldum ljósvakans.

Svo má til sanns vegar færa, að Brýgýta, kerlingarkjökrið, sé orðin mönnum, já og líka konum, fremur hvimleitt sjónvarpsefni og þyki fögnuður af hverjum fréttatíma þar sem ekki heyrist á hana minnst. Og Brýgýta er ekki ein efri-millistéttar- og yfirstéttarkvenna sem orðnar eru lýðum leiðar fyrir meira og minna innantómt gjamm og gaspur. Langflestar konur og langflestir karlar af fyrrnefndum stéttum hljóma í eyrum almúgans eins og sjálf þjóðarógæfan holdi klædd. Hver er til dæmis munurinn á Brýgýtu og Sigmundi Dávíð þegar Kögun, Toyota og Tortóla sleppir? Eða á Hönnu Birnu og Swandeesý Sendiherrans annarsvegar og Gunnari Braga og Illuga Gunn hinsvegar? Eflaust vefst fyrir allmörgum að svara þessum tveimur spurningum, en einhverjir munu sjá, þegar þeir fara að hugsa málið, að þarna sé að ferðinni afbrigði af ,,nýju fötum keisarans", sem sé: að munurinn á þessum persónum sé hverfandi lítill, ef hann er þá nokkur.

Og eitt eiga þessar efrimillistéttar- og yfirstéttarfraukur allar sameiginlegt, en það er að neita tilvist verkalýðsstéttarinnar og láta sem hún sé ekki til. Aldrei heyrist kvak eða prump í þessum kvinnum um verkakonur eða verkakarla, sem bendir eindregið til þess að þær fyrirlíti verkalýðsstéttina eins og hún leggur sig og forðast þar af leiðandi að óhreinnka ekki á sér tunguna, hvíttuðu tönnurnar og margmálaðarvarirnar með því að nefna saltfiskkerlingar á nafn eða aðra lágstéttalúsera.  


mbl.is Tróð sér inn í viðtal hjá Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dónalegur munnsöfnuður og guðlast af verstu tegund

lus.jpgHvurskonar andskotans vanþakklæti er í þessum framsóknarmaurum þarna fyrir norðan? Hafa þeir ekki enn áttað sig á að það var engin minni persóna en Drottinn Alsherjar sem skaffaði Norðlendingum, fyrir milligöngu gömlu Framsóknarmaddömunnar, þennan afbragðsþingmann, flokksformann og fyrrverandi ráðherra sem Sigmundur Dávíð er? Ég er ansi hræddur um að þessi Jóhannes Gunnar sé aungin framsóknarmaður og hafi aldrei verið. Hafi hann í einhvern tíma starfað í nafni Framsóknar á Akureyri hefir hann verið það sem kallað er vargur í véum og þarmeð ómarktækur þegar framsóknarfjósafræði er til umfjöllunar.

Nú segir blessað ,,orðið á götunni" að ef Sigmundur Dávíð hefði tapað í dag væri hann nú þegar kominn í efsta sæti hjá Íslensku þjóðfylkingunni í Suðurkjördæmi. Alltaf má fá annað skip og svo framvegis. Og björgunarflekinn var klár ef útaf bæri. Svo ber þessi náungi, Jóhannes Gunnar, uppá Sigmund að hann tengist einhverju Tortóla-dæmi! Hvurn fjandann sjálfann á svona talsmáti að fyrirstilla? Væri ekki nær að maðurinn skriði öfugur inní músarholuna í staðinn fyrir að fara um með blammeríngar og meinyrði um fræknasta núlifandi son Framsóknarmaddömunnar?

ing18Sem betur fer stóðust þeir fyrir norðan land prófraunina í dag og sýndu svo um munar úr hvurju heilasellurnar í þeim eru gerðar - og kusu ástkæran son Maddömunnar til eilífs lífs í hymmnaríki Framsóknarfjóshlöðuloftsins, - eða alla vega fram að næstu helgi. Svo þegar þeir vóru búnir að afhelga prestssoninn í dag og fleyja honum í hina pólitísku mógröf með tilheyrandi buslubænum, bölvi og ragni, þá skreið fram úr kör sinni sjálf Framsóknarmaddaman, nálega blind, elliær, skræk og skítug, og aðlaði Sigmund okkar Dávíð og heitir hann nú fullu nafni í gerðarbókum Framsóknarfjóssins Sygmoundur Wintris Kögunar von Panama. Nafnið er að vísu langt, en á móti kemur að það er þjált í munni og frábærlega gott að muna það. Og Kolbeinn Kolbeinsson er þegar dansa, ber neðan nafla, á heimili sínu og Máría Borgargagn er búin að drífa sig úr að neðanverðu líka, sem er aðdáunarvert af liðlega sextugri kvennsnipt með ýmisleg frægðartiltæki af misjöfnu tagi á afrekaskránni. 


mbl.is „Meira en ég get sætt mig við“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samstillt samvinnuátak forðaði oss öllum frá hræðilegu slysi

Finnur og GulliEkki er bölvaðri vitleysunni á framsóknarmenn logið. Meðvirkninni og sjálfshatrinu virðast aungin takmörk sett hjá þessum sérkennilega þjóðflokki og þegar þeim stendur til boða að kjósa eða endurreisa gjörspillta flokksfélaga eru þeir allir að vilja gerðir til að gera þessháttar axarsköft að veruleika. Stundum tala framsóknarmenn um að þeir séu samvinnumenn og þrungnir samvinnuhugsjón, sem brýst einungis út sem samvinna um að viðhalda völdum alræmdra spillingarpésa svo að Framsóknarflokkurinn líti út eins og skipilagður bófaflokkur eins og Sjálfstæðiflokkurinn.

Í dag höfu framsóknarmenn fyrir norðan land tækifæri til að losa sig við einhvern afkáralegasta spillingarungling sem á fjörur þeirra hefir rekið og velja í hans stað mann með tiltölulega lítinn splillingarstimpil á sér. Auðvitað hóf samvinnuhugsjónin sig uppúr öllu valdi á þessari miklu örlagastund, og með samstilltu samvinnuátaki vörðu þeir heiður grútarpiltsins úr innstu spillingarelítu Framsóknarfjóssins en förguðu Höskuldi prestssyni eins og illa framgengnu graslambi.

Undanfarnar vikur hefir Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður lagt nótt við dag að sansa framsóknarmenn fyrir norðan með öllum undarlegustu rökum er hann hefir yfir að ráða, að ekki megi undir neinum kringumstæðum skerða eitt einasta hár á höfði Sygmounds Wintris von Panama, þar eð sá dengur sé á þessum viðsjárverðu tímum sá samnefnari spilltustu framsóknarelítunnar sem að hún vilji hafa samvinnu um hafa á hæsta toppi mykjuhaugs Framsóknarfjóssins. Í kveld mun Kolbeinn fagna góðu dagsverki að heimili sínu ásamt helstu mógúlum Framsóknar, Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar. Er viðbúið að í þeirri veislu fari Máría Borgargagn, Indriði Handreður, Óli Apaköttur og Brynjar Vondalykt á sínum bestu kostum, að ógleymdum gestgjöfunum frú Ingveldi og Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni. ,,Það á ýmsum eftir að hitna í bölvaðri rassborunni í kvöld" var haft eftir Brynjar Vondulykt eftir að hann hafði frétt úrslitin í vinsældarkosningu framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi.


mbl.is Sigmundur með afgerandi forystu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undanrennuloddarar í blindraleik

xv34Ekki hefi ég hugmynd um hvernig sjóndaprir loddarar fara að því að leiða lista, eða yfirleitt að leiða nokkurn skapaðann hlut. Ef blaðamaður hefur hug á að segja frá framboðslistum Flokkseigendafélags VG á hann að orða fyrirsögn fréttar um það afrek einhvernveginn á þá leið, að tiltekin dekurdýr af undanrennutegund séu í efstu sætum á listum VG í Reykjavík. Þá ætti blaðamaðurinn að gera að umtalsefni, að umræddur flokkur kalli sig ,,vinstrihreyfingu", að sjálfsögðu í blekkingarskyni, þrátt fyrir að hann sé í grundvallaratriðum vel hægramegin við miðju, en kanski örlítið til vinstri við Sjálfstæðisflokkinn.

VG er alls ekki sá flokkur sem býsna margir halda að hann sé, þ.e. flokkur róttækra sósíalista og ég er nokkuð viss um að ýmsir þeirra sakleysingja sem ljáð hafa nafn sitt á lista flokksins gera sér litla grein fyrir hverskonar kapítalískt apparat VG er. Það ætti heldur ekki neinn að þurfa að leita lengi til þess að sjá í gegnum sjónhverfingar þessara loddara, sem hafa gert það að starfi sínu að svíkja út atkvæði sósíalista á heldur auðvirðilegan hátt. Þannig er VG höfuðmeinsemd í húsi sósíalista, illkynja vandamál sem í raun á sér engann tilverurétt. Það er ekkert að marka eitt einasta orð sem flokkseigendur VG og búrtíkur þeirra segja, meining þeirra er fölsk eins og nóta sem skolast hefir til við að lenda ofaní undanrennufernu frá Mjólkursamsölunni.

Öll vitum við að sorpi ber að farga á til þess gerðum sorpeyðingarstöðvum. Á sama hátt á að farga skemmdum eplum í stjórnmálum á ruslahaug sögunnar. Ef íslenskir sósíalistar þekkja ekki sinn vitjunartíma og kasta falsspámönnum sínum og þeirra loddarasamtökum á borð við VG ekki fljótlega í sorpeyðingarofninn mun loddarastóðið eyða þeim sjálfum, en einkum þó og sér í lagi hugsjónum þeirra og andlegu heilbrigði.   


mbl.is Katrín og Svandís leiða í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innanfjóssmál og fóstureyðing

reiðÞegar gamla Framsóknarmaddaman sá í hvað stefndi með ráðsmann hennar, Sigmund Dávíð, tók hún á sig rögg, skreið uppúr kör sinn og braust inní tölvu ráðsmannsins til að afla sér upplýsinga er gætu varpað ljósi á hvur fjandinn væri á seyði í höfðinu á honum. Skömmu síðar ákvað gamla konan að láta til skarar skríða gegn ráðsmanninum, lækka hann í tign og láta hann gista framvegis í haughúsinu. Innbrotið þjóðþekkta, sem Sigmundur Dávíð bar á borð fyrir þjóðina, er því aðeins innanfjóssmál í Framsóknarflokknum og á þar af leiðandi ekkert erindi til annarra stofnanna til úrlausnar.

En þrátt fyrir hryllilegar hremmingar frá því í vor og til þessa dags lét Sigmundur okkar Dávíð sér ekki muna um að bruna frá Akureyri síðastliðið laugardagskvöld og mæta á ball og skemmtidagskrá að heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns. Þar var margt gott haft um hönd til að efla andann, lyfta honum uppá æðra plan. Meðal skemmtiatriða var einstaklega djörf leiksýning þeirra hjóna, Máríu Borgargagns og Indriða Handreðs, sem fóru á þvílíkum kostum að meira að segja frú Ingveldur klappaði þeim lof í lófa. Og Sigmundur skemmti sér konunglega líka og tísti af kæti.

Þegar skemmtanahaldi var um það bil að ljúka að frú Ingveldar og Kolbeins, kom uppúr dúrnum að Brynjar Vondalykt hafði haft ofanaf fyrir sér meðan aðrir skemmtu sér, að míga á laun á all-flest gluggatjöldin á heimilinu. Þetta fólskuverk launaði frú Ingveldi Vondulyktinni með því siga bæði Borgargagninu og Kolbeini eiginmanni sínum á hann. Að þeirri viðureign lokinni hældi Vondalyktin sér af því, að nú hefði hann barnað Máríu í lokahnykknum. Þegar honum var sagt að Máría Borgargagn væri komin úr barneign, hló eins og sá er valdið hefir og fullyrti slíkir smámunir væru honum ekki um megn, fjarri því. Og eftir hádegi í dag þorði Borgargagnið ekki öðru en að gjöra þungunarpróf á sér og hugsar nú ekki um annað en fóstureyðingu.


mbl.is Kannast ekki við tölvuinnbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið djöfullega áfall, skandall og höfuðglæpur

xv34Ragnheiður litla Elín, sem spaugarar, sem ekki eru vandir að virðingu sinni gerðu að ráðherra, virðist þeirrar skoðunnar, að hörmulegt gengi hennar í prófkjöri sé áfall fyrir stjórnmálin. Eins og gengur eru ekki allir sammála hinum fallna ráðherra hvað þetta varðar. Hinsvegar gjörðist annað atvik og öllu alvarlega í sama prófkjöri og Ragnheiður Elín hafnaði á blessuðum rassinum sínum. Víg Árna Johnsen í þessu prófkjöri er hinn alvarlegi atburður prófkjörsins, skandall og áfall. Hefir Árni nú mátt sæta því reginhneyksli, að vera veginn í tveimur prófkjörum í röð. Tvíelleft fall hins frækna eyjamanns er ekkert minna en höfuðglæpur, sem ber að vísa til rannsóknar embættis ríkislögreglustjóra, þjóðaröryggisráðs og glæpadómstólsins í Haag.

Þó má segja, að huggun harma þeirra, er afvelta lágu í forinni þegar atkvæði höfðu verið talin í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins, felist í að nú eru komnir til skjalanna tveir fræknir flokkar sem láta sér ekki muna um að endurvinna hædda og smáða einstaklinga sem illfyglin í Sjálfstæðisflokknum hafa rifið hjörtun úr. Þjóðfylkingin og Viðreisn eru góðir kostir fyrir Ragnheiði Elínu, mr. Johnsen, Hönnu Birnu, Sigmund Dávíð og fleiri af því tagi, sem eiga nú um sárt að binda. Nú er bara um að gera fyrir hið góða fólk, sem farið hefir halloka síðustu daga, að velja annað tveggja, að láta Jón Magnússon hrl. og Þjóðfylkinguna eða Thorgerði Katrínu og Viðreisn sálusorga sig og endurreisa. 

Þriðji möguleikinn fyrir burtflæmdar sálir er kvennalisti auðvaldskerlinga. Efrimillistéttar- og yfirstéttarfraukur hafa um all langt skeið þóttst lifa við andlegra hægðateppu, - ,,verið með ryðgaðan gaddavír í rassborunni," eins og frú Ingveldur orðaði það svo snyrtilega á baráttufundi efrimillistéttar- og yfirstéttarfémínísta. Ennfremur hreyfði frú Ingveldur þeirri hugmynd, hvort ekki væri rétt að bjóða Árna Johnsen að ganga í fémínístaflokk efrimillistéttar- og yfirséttarkvenna, þær gætu sem best litið þannig á að Árni væri trans, þ.e. kona í röngum líkama. Fékk hugmynd frú Ingveldar gott brautargengi og hefir Árna nú þegar verið boðin aðild að kvennalista kapítalískra kerlínga.


mbl.is Áfall fyrir stjórnmálin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaut hann eins og rottu

flokkseigendur_786424Einhverju sinni orkti hirðskáld Flokkseigendafélgs Alþýðubandalagsins sáluga, sem síðar varð að Flokkseigendafélags VG, ótútlegur náungi og slóttugur, ferskeytlu til háðungar félaga Ólafi Ragnari Grímssyni, sem flokkseigendur hötuðu einlægu og óbrjótanlegu hatri. Kviðlingurinn mæltist sem vonlegt var fjarska vel fyrir á heimilum flokkseigenda, sem gerðu hann að opinberri morgunbæn og kvöldbæn fjölskyldna sinna sem og þjóðsöng þeirra. Umræddur kveðandisstubbur hirðskálsins ótútlega er svo hljóðandi:

Úti í snjónum flokkur frýs, 
fána sviptur rauðum.
Ólafur Ragnar  Grímsson grís
gekk af honum dauðum.

En nú er sem sé komið á daginn, félagi Ólafur Ragnar á enga sök á meintu andláti umrædds flokks, heldur er nú upplýst að þistilfjarðarundrið, Steingrímu J. Sigfússon, leyguþý auðvaldsins og Flokkseigendafélags VG, myrti flokk hinna rauðu sósíalista eins og hvur annar launmorðingi að beiðni flokkseigenda og kröfuhafa föllnu bankanna. Og hjóðar nú bæn hirðskáldsins í lauslegri þýðingu á þessa leið:

Úti í snjónum flokkur frýs, 
færður var hann Skottu.
Sköllótti kallinn Skalladís
skaut hann eins og rottu.


mbl.is Bera Steingrím þungum sökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brýgýtta kveður draugagang prófkjörssvindlara niður með tilþrifum

KölskiEnginn er kenndur það sem hann kemur ekki. Má vera, að í dag kannist enginn ekki við að Brýgýtta flokkseiandi hafi bisrt frambjóðendum og öðrum flokkshengslum Pírata í Norðvesturkjördæmi eins og óarga fordæða með hótunum, gargi og ójöfuði og tjáð þeim reinskilnislega að þau færu öll sem eitt til Andkotans í Helvíti eftir dauðan, vera greftruð utangarðs og bannfærð, ef þau skipuðu ekki framboðslistann í kjördæminu eftir hennar höfði. Og þau settu ekki hennar óskaprins í fyrsta eða annað sæti væri þeim voðinn vís.

Nú hafa einhverjir af uppljóstrunum innan Pírata séð að sér og játa að þau hafi verið að ljúga uppá Brýgýttu; hún hafi ekki aðeins látið það vera að skipta sér að prófkjörinu í Norðvestur heldur hafi hún ekki vitað af umræddu prófkjöri og ekki frétt af því fyrr en hún sá einhvern lygaflaum í fjölmiðlum um sjálfa sig og prófkjörið. Þetta minnir á blessaðann Frelsarann okkar, hann var hæddur og smáður, logið uppá hann og síðast krossfestur. Sennilega hefði Brýgýtta lent á krossinum, ef lygafjósin hefðu ekki séð sig um hönd og játað lygaglæpi sína hágrátandi og með bölvaðar buxurnar á hælunum. Hversvegna ódrættirnir vóru með buxurnar niðrum sig má fjandinn vita, en máske hafa þeir talið tímabært að viðra á sér berandann og bláendann.

Brýgýttu tóks þó, með óeigingjörnu harðfylgi, að reka hinn óforskammaða prófkjörsþjóð á flótta og strika frændgarð hans og vini af skrám Pírata og reka þann ófénað útí hafsauga. Þetta var náttúrlega snöfurmannlega gjört af Brýgýttu og minnir um margt á Snorra klerk á Húsafelli þegar hann safnaði saman öllu draugamori í ofanverðum Borgarfirði, breytti því pöddur og rak allan fénaðinn í röð undir Stórastein í réttarhorninu í Húsafelli. Þetta segir oss það að Brýgýtta er kraftakáld og trúarhita ufan það suðumark sem prófkjörssvindlarar og draugamor þolir.   


mbl.is Baðst afsökunar og lýsir yfir fullum stuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband