Bloggfærslur mánaðarins, desember 2018
12.12.2018 | 15:17
Hlálega hjákátlegir giljagaurar misbjóða fólki með fíflslátum
Hjákátlegt já. Auðvitað er það hjákátlegt. Enda eru hinir fjórir kærarar heldur en ekki hjákátleg númer, að ekki sé sagt hlálega fáránleg. Satt að segja eru þetta fjórir vandræðagemlingar, sem aunginn veit hvað við á að gera. Sumir eru nokkuð áfram um að reka þá á fjöll eins og sauðskepnur meðan aðrir berjast við að þurka endemin einfaldlega út úr minni sínu eins og hvurja aðra óþægilega óra eður martröð. Og hvað eru sona geggjarar, sem annaðhvort eru komir í leyfi frá þinghaldi eða nenna ekki að mæta til vinnu sinnar á þingi að boða saklaust fólk, vant að virðingu sinni, til þinghalds? Sér er nú hver andskotans óþrifnaðurinn.
En ef þessir leiðinlegu giljagaurar vilja endilega halda áfram að vekja athygli á sér og gera sig að enn meiri yfirvigtarfíflum, þá er þeim það heimilt. En mikið ósköp hvað fólk, sona almennt, er orðið þreytt á fíflalátum þessara manna, sem so á að heita að þjóðin hafi kosið yfir sig til löggjafarstarfa. Gunnbirni bónd á Eyri dreymir nú orðið á hverri nóttu geltandi hundsspott, sem hann er að reyna að reka af höndum sér með svipu. Og að stúlku í Meðallandinu sækir púkafans með andlitsdrætti fjórmenninganna.
Ef ekki hægist um, hvað ófrið af fjórmenningunum varðar, er einsýnt að kalla verður til særingamann, særingameistara, til að kvða ófögnuðinn niður. Berast nú böndin mjök að síra Baldvini, presti og prófasti til Gemlufallsþinga, sem nú heita Svarhamraþing eftir dálitlum kletti austan við bústað síra Baldvins. Víst er um það, að ef síra Baldvin lætur til leiðast þá mun endanlega úti um Miðflokkinn og Miðjúngana, sem fólk er farið að líkja við plágurnar miklu, Móðuharðindin og gosið í Ejafjallajökli.
Hjákátlegt að vera boðuð til þinghalds | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2018 | 18:25
Og frjálshyggjusnatarnir vitna um vegin að Mammóns náð
Svo leiðir auðvaldið frjálshyggjusnata með status fram á völlinn og lætur þá vitna notendagjöld rétt á meðan auðvaldið er að renna niður síðasta bita af lækkuðum sköttum á sjálft sig. Öll munum við eftir þegar kratafrjálshyggjukjánanum Sighvati var sigað á sjúklinga til að kenna þeim að heilsa kostaði pénínga; en þrátt fyrir kennsluna og fleiri frjálshyggjuframsóknarkrata hefir heilbrigiskerfið dregist upp á sama tíma og skattar á ríkt fólk af stétt auðvaldsins hafa verið lækkaðir og lækkaðir, - og lækkaðir enn meir. Nú eru það frjálshyggjufíflin í VG sem att er á foraðið til að styðja auðvaldið, kapítalistana, arðræningjana á braut lægri skatta á auðmenn og fávitalegrar gjaldtöku af almenningi undir því yfirskini að nú þurfi að framkvæma hratt. Merkilegt hvað fólk er endalaust svag fyrir hagfræði og lífshugsjón Bör Börssonar og lætur þessháttar sjálfstortímingarvél eftir eldsneyti til að halda sér gangandi, kosningar eftir kosningar.
Nú hefir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður í leyfi, verið tekinn inn í Frægðarhöll fru Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar. Í rökstuðningi fyrir inntökunni segir, að komið hafi í ljós að Ágúst Ólafur sé ákaflega vífinn, af útvötnuðum hægrikrata að vera, og hafi staðfesta hans í þeim efnum komið á óvart; enn fremur hafi komið skemmtilega á óvart hvað téður Ágúst Ólafur sé orðljótur, einkum við konur, ókurteis og andstyggilegur. Hér fyrrum hafi aðeins verstu slordónar, rónar, togarajaxlar og neftóbaksfantar til sveita verið skifaðir fyrir fyrrnefndum dygðum en nú virðast jafnvel aumustu rindlar úr bómullarumhverfinu á háskólalóðinni vera farnir að rífa kjaft og vera ágengir við skílífan kvennpéníng.
Það er náttúrlega engin smávegis upphefð fyrir eitt veiklað smákratelsisbarn, stubb, að vera tekinn inn í Frægðarhöll frú Ingveldar og Kolbeins og bætast þar með í hóp stórstjarna á borð við Brynjar Vondulykt, Indriða Handreð, Óla Apakött og Márí Borgargagn, svo nokkur nöfn séu nefnd. Svo er þetta eftiminnilegu sigur fyrir krataeðlið og viðukenning á að það fellur við nýfrjálshyggjuna eins og flís við rassgat. Í kveld verður sungið og spilað á sverustu blekkingatól og auðvaldsgúbburinn Nonni gólar sem naut uppi á hól.
Hvað vit er í að láta gulu vestin rykfalla inni í geymslu? Er ekki rétt að dusta af þeim og láta slag standa og steypa auðvaldinu á Íslandi af stóli í eitt skipti fyrir öll, svo það geri ekki meira af sér? Jú, það er rétt og rúmlega það.
Veggjöld verða að vera sanngjörn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2018 | 10:39
Úr öskunni í eldinn, - hrakfallasaga íslensks fótboltaþjálfara
Æ, hann er búinn að vera ósköp sloj undanfarið hann Heimir og allur eitthvað á undanhaldi. Og nú hefir hann tekið á sig rögg og vaðið eins og blindur kettlingur úr öskunni í eldinn. Úr öskunni, af því íslenska fótboltalandsliðið var sem ein öskuhrúga eftir að Heimir hafði búverkað þar, og í eldinn, þar eð ólíft er fyrir hita í Katar, auk þes sem félagslið í fótbolta þar um slóðir eru á svipuðu styrkleikarstigi og meðallið í þriðju deildinni færeysku.
En hann hefir sem sagt verið sloj hann Heimir og hann mun verða það áfram svo þetta er allt í lagi. Hvaðan manninum hefir komið þetta þjálfaraoflæti er ekki gott að segja, því náttúrlegu hæfileikarnir eru ekki neitt umfram að vera sona og sona. Það hefir heldur ekki verið beinlínis skemmtilegt fyrir nýja landsliðsþjálfarann okkar, hann Hamrén svennska, að berjast við að hífa íslenska fótboltalandsliðið upp úr öskuhrúgunni og drulluleðjunni sem það var komið í og sér ekki enn fyrir endann á þeirri björgunaraðgerð.
Og fyrst vandamálið með Heimi hefir verið leyst úti í Arabíu þá getum við snúið okkur að öðrum aðkallandi vandamálum, en af þeim eigum við nóg og sér aldrei til botns í því öngþveiti. Til dæmis er Miðflokksvandamálið og Sigmundur skelfilegur kross fyrir eina litla þjóð að bera og ekki bæta úrkynjun og ómerkilegheit hinna flokkanna úr skák; við verðum nauðsynlega að koma þessum flokkum burt úr íslenskum veruleika, senda allt helvítis klabbið til Arabíu, til Katar, og Sádí, og gæta landamæra okkar vel á eftir til að varna því að einhver, eða einhverjir, af þessum hryllilega fénaði sleppi aftur inn í landið til að valda enn meiri óskunda.
Heimir kynntur með húh-myndskeiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.12.2018 | 20:20
Ræða frú Ingveldar í morgun og eilítið af gölu hænunni púddýpúdd
Litla göla hænan hún púddýpúdd sagði ekki ég, en sat þó sem fastast eins og dáleiddur jólasveinn við borðið og hlýddi á gamanmál klaustumunkanna. Loks varð að draga hana út á stélinu, en púddýpúdd braust um og vildi komast að borðinu aftur. Svo fauk hún út um dyrnar og skoppaði eftir götunni og staðnæmdist ekki fyrr en í rennusteininum. Svona fer fyrir litlum gölum hænsnum, sem vilja ekki láta fjarlægja sig úr vafasömum félagsskap.
Í morgun hélt frú Ingveldur ræðu að heimili sínu yfir hálfdauðum og steindauðum sálum. Hún mælti: - Það get ég svarið, en helvítis stólkornið hún Máría mín Borgargagn hefir þann óborganlega hæfileika að geta ævinlega komið manni á óvart með uppátækjum sínum og málsnilld. Hún reif sig bókstaflega upp á rassgatinu fyrr í morgun frá því að hafa legið bak við stofusófann hér í minni eigin stofu megnið af nóttinni. Hún var skohh ekkert að tvítóla við að ganga beint út á stétt þó hún væri nakin; hún meira að segja lyfti örum fætinum eins og hundur sem ætlar að fara að míga utan í ljósastaur og prumpaði ferlega.
Þegar þarna var komið sögu í ræðu frú Ingveldar leit hún niður í kjöltu sér og þagði fáein augnablik. Svo hóf hún ræðu sína á ný og talaði í fremur tempruðum rómi, hægt og skýrt: - Það fór samt svo í þetta sinn að aftangufur Máríu vinkonu minnar náðu að smjúga með morgunkulinu inn um útidyrnar og létu ekki staðar numið fyrr en uppi í steindauðum nösunum á Kolbeini Kolbeinssyni, þeim auma skálk og skítmenni. Og eins og hendi væri veifað reis þetta steindauða gægsn upp við dogg og varð hreint eins og alræmt lostaskrýmsl í framan og hugðist renna á lyktina en hafnaði óvart við hliðina á Brynjari okkar hérna Vondulykt þar sem hann steinlá með allt niður um sig fyrir framan klósettdyrnar. Það er sem ég segi: Þeir verða aldrei afþyrstir þessir aumingjar og vita skjaldan sem aldrei handa sinna skil, hvað þá þeir hafi nokkra einustu glóru um hvurt miðlimur þeirra þvælist eða hafnar.
Tóku ekki þátt í tali þingmannanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2018 | 17:48
Fransmenn sýna hernaðarskrýmslinu í vestri blóðugar vígtönnurnar
Þar dró að því að Fransmenn sýndu hinu ferlega hernaðarskrýmsli í vestri og foresetaafmán blóðugar vígtönnurnar. Líklega hefir farið fyrir forsetanum, þegar Fransarar urruðu á hann, eins og kattarafmán sem hefir skitið í hjónarúm húbænda sinna, þ.e. skriðið undir rúm eða inn í skáp liggur þar nú lamaður og skjálfandi eins og sinustrá í vindi. Og vissulega munu yfirvöld á Frakklandi ekki láta þar staðar numið heldur fara með herlið vestur um haf, herskip flogvélar og annað þarflegt, lækka t.d. skýjakjúfa í New York með kröftugri skothríð af orrustuskipum franska ríkisins.
Ef fer, sem horfir, að Frakkar geri alvöru úr gamni og geri ferð sína til Bandaríkjanna með óvígan her, að hætti Napóleons sáluga, þá munu hin kjaftforu en blauðu og undirförulu stjórnvöld í Washington þegar í stað gefast upp og þar með verða Bandaríkin lítilmótleg annexía frá Frakklandi. Það væri trúlega geðug lausn og farsæl á leiðinlegu vandamáli.
Og til að vera nú ekki minni menn en Frakkar ættum við Íslendinga að láta slag standa þegar Frakkar taka Manhattan og USA, að fara með okkar her og víkingasveit til Færeyja, Hjaltlands og Orkneyja og innlima þessar eyjanefnur undir íslenska ríkið. Sem betur fer eigum við nóg af gjörspilltum, pólitískum slúbertum sem hægt væri að gera að jörlum og hertogum á eyjunum atarna ef til til kemur. Sem kunnugt er, þá orðið allt of þröngt um okkur Íslendinga á okkar smánarlega skeri og oss skortir fleiri þræla og þjóna til að halda við höfuðstóli vorum. Avo er aflaust afar gaman fyrir drengina í víkingasveitinni og á varðskipunum að fá að taka Færeyjar. Ekki verður síðra fyrir þá að storma inn til Leirvíkur, sem er ein mikil höfn á Hjaltlandi, og gera þar gott strandhögg eins og gamla daga þá forfeður órir gjörðu þar þegar þeir voru á leið til Íslands til að nema þar land.
Láttu þjóðina okkar vera | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.12.2018 | 17:55
Að Leppalúði sé að taka við af Grýlu? Þa getur ekki verið
Þá hefir Krampakarrenbauerkerlingin tekið við af Merkelkérlíngunni hja þýðverskum auðvaldsflokki. Þessi kostulegu umskipti eru lík því ef Leppalúði skipti um hlutverk við Grýlu, en það mundi aunginn taka mark á soleiðis endaleysu, þó ekki væri af öðru en að Grýla er körsk kerling en Leppalúði er aumingi sem aldrei hefir getað skeint sig svo lag væri á. Á Þýskalandi vita þeir er vita vilja fullvel að Merkelskrukkan er sosem aungin garpur og körsk er hún ekki, en þeir vita líka Krampakarrenbauerkerlingin er óttaleg gufa og liðleskja, so segja þeir soldið annað um hana, en frá því segi ég ekki því mín bloggsíða er ekki vettvangur fyrir óþverraklám og íllt umtal eins og í kláustrinu hjá Miðflokkungum.
So fer senn að líða að því að íslenski bróður- og systurflokkur þýðverska Sjálfstæðisflokksins verður að skipta um formann. Stjórnmálafræðingar, sem vit hafa á Sjálfstæðisflokknum á Íslandi eru býsna sammála um að næsti forsperrileggur Íhaldsins verð aunginn annar en Jón Magnússon hrl. Þegar þetta var borið undir frú Ingveldi fór hún að tala um veiklaðar unglingsskjátur sem eru lausar í rásinni og enn ekki hættar að míga í buxurnar. Annað mál sé að góðir menn með stáltaugar og þykkan, hrjúfan trjábörk á sálinni, eigi stuðning vísan til hvers sem vera skal. Svo kvartaði frú Ingveldur sáran undan rottugangi og ótrygga innviði eftir tönnur illra nagdýra og hálfholdgaðra smádjöfla.
Sem betur fer blés frú Ingveldur til öflugrar samkomu að heimili sínu strax upp úr hádegi í dag, en í gær var borið inn til þeirra hjóna úr fullum sendferðabíl frá Áfengisö og tóbaksverslun ríkisins og í dag afa sendisveinar díleranna verið á stöðugum þönum með brún umslög að heimili frú Ingveldar og Kolbeins. Fljótlega eftir að sendi út tilkynningu sína samþykkti Alþingi fjárlögin og stundu síðar fóru stjórnarþingmenn að streyma að frú Ingveldar og Kolbeins. Og það er hlálegt en þó satt, eins og þjóðskáldis sagði, að núna rétt fyrir klukkan sex kom Sigmundur nokkur Davíð fljúgandi eins og vígahnöttur út um aðaldyrnar á húsi frú Ingveldar og brotlennti úti á þjóðbraut miðri. Ef við þekkum rétt til á þessum vettvangi, sem við gerum, þá á piltur eftir að fara ekki ófáar ferðir í loftköstum út húsi og út á götu áðurm en klukkan slær tólf að miðnætti.
Bandamaður Merkel sigraði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.12.2018 | 15:33
En ég get aldregi fyrirgefið þér að hafa kallað mig fernu ...
Fyrir margt löngu rakst kunningi minn einn á kvennsnipt nokkra, sem hann þekkti, á vertshúsi, hvar hún sat til borðs náunga, sem kunningja mínum skildist að væri mjólkurfræðingur. Fátt markvert kom fram í samtalinu, sem varð þeirra í millum, nema hvað kunningi minn lét þess getið við kvensniptina, að hann skildi ekki hvað hún væri að gera með þessum helvítis fernutittlingi. Síðan slitu þau talinu og kunningi minn fór sína leið. Mörgum árum síðar rakst hann á mjólkurfræðinginn, sauðdrukkin á einhverjum veitingastað. Og mjólkurfræðingnum virtis mikið niðri fyrir og drap tittlinga í sífellu, vonskulegur á svipinn. Svo tókst mjólkurfræðingnum, eftir talsverða áreinslu, að tauta út úr sér: - Mér hefir svo sem alltaf líkað ágætlega við þig, Matti minn, en ég get aldrei fyrirgefið þér að hafa kallað mig fernutittling hér um árið.
Svona hefir Sigmundi, krossberanum þeim arna, liðið, alveg eins og mjólkufræðingnum, í gærkveldi eftir að hafa hlýtt á svæsinn málflutning litlu ungfrú Alfredós í Kastljósinu. Það er ljóst að Sigmundur mun aldregi fyrirgefa ungfrúnni það ofboðslega ofbeldi sem hún beitti hann í fyrrnefdu Kastljósi. Þetta beinir athyglinni að því hvað gert er við ofbeldisfólk þegar það stundar opinbert ofbeldi. Stundum láta hlutaðeigandi ofbeldislætin sem vind um eyru þjóta, í annan stað er hringt á lögregluna og hún beðin að handtaka ofbeldiskvikindið og loka það inni.Í tilfelli Sigmundar Davíðs virðist sem hann hafi látið undir höfuð leggjast, af einskærri góðvild og sáttafýsn, að láta handtaka og kæra ungfrú Alfredós fyrir hið illa ofbeldi sem hann mátti þola af hennar hálfu.
Í stað þess að vera maður með mönnum, sem míga standandi, og hjóla í ungfrúna með réttlætið og lögmenn að vopni, hlaupur hann eins og kvíga, sem týnt hefir meydómnum á slyslegan hátt, beint í fjölmiðla og rekur upp ramakvein, öskrar, æpir og grenjar undan ungfrú Alfredós, sem hann segir hafa sært sig stærra og meira hjartasári, en áður hefir þekkst í samanlagðri mannkynssögunni. Með þessu endemis háttarlagi sínu hefir Sigmundur gengið sjálfviljugur í flokk með mjólkurfræðingnum sem grénjaði árum saman út af því að hafa verið kallaður fernutittlingur á vertshúsi í viðurvist hjákonu sinnar. Héðan af liggur leiðin aðeins niður hjá forstjóra Miðjungsflokksins og síðustu smugunni fyrir hann að skríða aftur inn í Framsóknarfjósið hefir verið tryggilega lokað samkvæmt skipun gömlu Framsóknarmaddömunnar.
Segir ekkert hafa sært sig eins mikið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2018 | 11:33
Þér skulu aldrei koma nálægt háaloftinu
Trúlega hefir verið gjörð loftárás á háaloftið hjá þeim þarna í Reykjanesbæ með þeim afleiðingum að enn er ókunnugt um mannfall sem og tilefni árásarinnar. Og að sprengjuoddurinn hafi loks fundist minnir eilítið á þegar atgeir Gunnars tók lagið og söng dagana áður en Gunna vó með honum, því sagt er að sá er fann hafi heyrt einhverskonar útburðargaul ofan af lofti og gengið á hljóðið. Auðvitað er þetta válegur atburður þegar svo er í pottinn búið því oss grunar að sprengjuoddurinn hafi fundið á sér að brátt dægi til tíðenda.
Þá minnir fundurinn á háaloftinu í Reykjanesbæ að vissu leyti á hina sorglegu sögu um gleðimanninn á fjörðum vestur, sem vaknaði upp við að tönnur hans vóru horfnar, báðið gómarnir, og fundur hvurgi hvernig sem svipast var um eftir þeim. Staðan var sem sagt sú, að okkar maður vaknaði ekki einungis herfilega tilbraður með skrælnaðan munn af þurrki heldur voru nú tönnur hans á bak og burt. Áratugum síðar hófust lagfæringar á miðstöðvarkerfinu í húsi vestfirska gleðimannsins, meðal annar var farið upp á háaloft og hæðarboxið við kyndinguna tekið niður; komu þá ekki í ljós tönnur okkar manns og hafði nokkuð á þær fallið með tímanum þarna í ryðlituðu miðstöðvarvatninu. Var talið að okkar maður hafi á sínum tíma klifrað öldungis blindfullur eins og Miðflokksmaður í klaustrinu upp á háaloft og gubbað í hæðarboxið og hafi þá tönnurnar þvæls með, en sökum óminnisástands hafði okkar maður ekki hugmynd um þetta ferðalag sitt.
Allt að einu eru niðurstöður færustu vísindamanna á þá leið, að best sé að koma aldreigi nálægt háaloftinu því þar kunna að leynast bæði fáránlegar minningar og ískyggilegir hlutir, sem best færi á að héldu sig þar til eilífðarnóns. Og fjandinn má vita hverskonar vessar hafa í sumum tilfellum runnið um miðstöðvarpípur og ofna íbúðarhúsa, en í ýmsum tilfellum leikur grunur á einkennilegum efnum og skuggalegum saman við volgruna.
Fann sprengjuodd uppi á háalofti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2018 | 23:01
Þá er þessu nú lokið með ómótstæðilegum gráthrinum í kverkunum
Jæja krakkar mínir, nú er komið nóg af umræðu um fullu kallana í klaustrinu. Niðurstaðan af því öllu er, að aunginn Íslendingur, sem berað hefir skoðun sína á brennivínsöskrum kallana, hefir aldrei á sinni lífsfæddri æfi heyrt annað eins klám og sóðakjaft, nema Sigmundur Davíð, hann hefir oft heyrt álíka og enn oftar mikið verra og samtvinnaðra klám, kvennfyrirlitningu, kvennhatur og kvennsemi og hafa menn núorðið talsverðan áhuga á hvaða endemi það eru í röðum þingmanna sem eru enn hroðalegri en Gunnar Bragi og Bergþór Óla í munnsöfnuði undir áhrifum Bakkusar gamla.
Jú, vissulega var raunarlegt að horfa upp á litlu ungfrú Alfredós berjast við grátinn, eða öllu heldur gráthrinurnar sem virtust vera við að springa fram úr öllu andliti hennar; og ósköpin öll minnti hún á aðra litla ungfrú, sem sé litlu úngfrú Gúðmúndsen þegar hún var að barma sér út af honum Garðari Hólm í Brekkukotsannáli. Já, þetta var virkilega flott númer hjá hjá þeirri stuttu í Kastljósinu í kvöld og féllu margir fyrir framgöngu hennar og frelsuðust inn í Framsóknarfjósið. Enda mun nú sjálf gamla Framsóknarmaddaman, jafn elliær og geggjuð sem hún er orðin, skriðið upp úr kör sinni og gjört litlu fröken Alfredós að klausturjómfrú í Framsóknarfjósinu, en því embætti fylgir að færa gömlu Maddömunni fullt vatnsglas af óblönduðu ákavíti klukkan sjö hvurn morgun er Guð gefur.
En klausturlífi Sigmundar Davíðs og þeirra er hér með formlega lokið, nema hvað enn á eftir að greiða dulítið úr sendiherraspillingunni sem upp komst eftir gáleysislegt tal í klaustrinu. Að vera sendiherra erlendis fyrir Ísland er eftirlaunastarf fyrir aflóga stjórnmálagarma, sem eru búinr að gera soleiðis í buxurnar að þeir geta hreinlega ekki meira. Þegar þar er komið sögu eru þeir sendir út fyrir landsteinana og látnir hafast við í góðum húsum, sem íslenska ríkið á, með þjónustufólki, ókeypis sendiherrabrennivíni og kvennaþjónustu sem er sko ekki í ætt við neina guðsþjónustu. Ef allt fer á versta veg, sem það gerir auðvitað ekki, verður víst að sópa stjórnmálaforingjum, fyrrverandi og núverandi, sendiherrum og einhverju fleirum saman og dæma þá refsingar, fangelsisvistar, hjóls og steglu. Þykir mörgum sem nú sé illa burtsofnaður og horfinn Guðmundur fjósarauður, sem hafði það embætti að flengja sakamenn opinberlega á Austurvelli og láta þá svo í gapastokk til að krakkar og hundar gætu pissað á glæpamennina.
Þeir eru ofbeldismenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.12.2018 | 13:34
Vér förum fram á að utanríkisráðherra hætti að mala og gala en láti heldur verkin tala
Hvaða endemis þvaður er þetta í drengkjökrinu Gvuðlaugi a. Þórðarsyni? Hann skal ekki halda það stundinni lengur, að hann geti bara sett upp svip eins og hann sé að bresta í grát og afneitað sínum elsku bróður, Gunnari Braga, sem nú er í launalausu leyfi frá vinnu sinni. Betra hefði verið fyrir drenginn að ganga frá ráðningu Gunnars Braga í embætti sendiherra þegjandi og hljóðalaust og senda hann umyrðalaust til Nýju Jórvíkur. Vil ætlum, sem sé, að Guðlaugur okkar hérna a. Þórðarson sé ekki sá glópur að hafa ekki áttað sig á, að í tímans rás hefur allur andskotinn verið skipaður til sendiherra fyrir Íslands hönd. Hr. Guðlaugur utanríkisráðherra: vér frábiðjum oss sem sagt sona orðræðu og samtal í bráð og lengd.
Já, það hefir margur sóðagripurinn verðið sendur af landi brott til útlanda til að gerast sendiherra Íslands, so viðkomandi gæti daga verið viðhafnarklæddur eins og hann væri að fara gifta sig og fengið sér sendiherrabrennivín hvenær sem honum þókast. Og sannarlega er Gunnar Bragi ekki verri en gengur og gerist og alls ekki verri en meðaltalið af sendiherrunum, sem skipaðir hafa verið hingað til. Svo má ekki gleyma því að það er ákveðin landhreinsun af að senda vissa einstaklingar; stundum verður svo mikil landhreinsun af því að senda jakkafatamann eða dragtkvenndi af landi brott að fólk tekur eftir því, sem kemur fram á þann hátt að því þykir sem fargi hafi verið létt af því.
Nú er tími til kominn, teljum vér, að utanríkisráðherra loki á sér munninum og fari að leita að höndum sínum uppi í jakkaermunum. Þegar hann hefir loks fundið höndurnar á sér þá skal utanríkisráðherra brúka þær til að semja embættisbréf sendiherra fyrir Gunnar Braga, Sigmund, Steingrím, Jón Baldvin, Loga Vindbelg, en þó einkum og sér í lagi skrautritað embættisbréf fyrir sendiherra Íslands í Kambodíu til handa Össúri Sckarphéðinssyni fyrrum kammerjómfrú í utanríkisráðuneytinu.Nú kann aunkver að spurja: En konunrnar?, hvurs eiga þær að gjalda? Eiga þær ekki að fá embætti? Stutta svarið er: Jú. Langra svarið er að skipunarbréfin eru þegar tilbúin fyrir Katrínu Jakk, litlu ungfrú Alfredós, Swandeesý Sendiherrans (að sjálfsögðu) og frú Andersen og Hönnu Birnu að ógleymdri Finni Ingólfssyni. Að lokum: koma so Gulli litli, láttu verkin tala það er til einskis að gal (tóma vitleysu).
Gunnar Bragi verður ekki sendiherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 59
- Sl. sólarhring: 133
- Sl. viku: 217
- Frá upphafi: 1539500
Annað
- Innlit í dag: 51
- Innlit sl. viku: 185
- Gestir í dag: 51
- IP-tölur í dag: 50
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007