Bloggfærslur mánaðarins, júní 2018
3.6.2018 | 21:11
Hið ódauðlega listaverk mun fara á fúlgur fjár til kvótagreifa
Það er auðvitað afskaplega mikið varið í sona stórbrotið listaverk, þessa mergjuðu júgrasýningu; telpurnar eru hipp og kúl, eins og það heitir, og hinir listrænu hæfileikar bókstaflega leka af þeim eins og þorskalýsi. Frú Ingveldur og Máría Borgargagn eru ákaflega glaðar með hvernig tiltókst, enda er þessi sérstaklega vel heppnaða berbrjóstasýning runnin undar rifjum þeirra. Á sínum tíma, fyrir margt löngu síðan, óðu þær stöllur, frú Ingveldur og Borgargagnið, út um borg og bý, gersamlega berbrjósta á hvaða árstíma sem var og hvunær sólarhrings sem var; stundum bættu þær í betur og hlupu um naktar bæði að ofan sem neðan.
Á kosninganóttina síðustu fór Brynjar Vondalykt að gera sig breiðan heima hjá frú Ingveldi og Kolbeini og lýsti því yfir inni í herbergi að frú Ingveldur væri kona mikillar tittlingagleði. Um leið og Vondalyktin sagði þessi orð vildi svo óheppileg til að frú Ingveldur átti leið fyrir herbergishurðina og heyrði hin dýru orð. Og frú Ingveldur hafi engar vöflur á, snaraðist inn í herbergið og rak Vondulyktinni á kjaftinn svo hann lyppaðist niður eins og blaut drullutuska. Síðan lagði hún skjótt lykkju á leið sína, vóð að Máríu Borgargagni fram í stofu og rotaði hana líka. Því frú Ingveldur vissi vel að hinn grófi talsmáti Vondulyktarinnar var frá Borgargagninu kominn; frú Ingveldur mundi nefnilega ósköp vel þegar Máría Borgargagn hafði komið blaðskellandi úr einhverju saurlifnaðarhófi og hælt sér af því að hafa vakið mikla tittlingagleði hjá einhverjum lauslátum kallaskepnum.
En ef vér víkjum aftur að hinu ódauðlega listaverki frú Ingveldar og Máríu Borgargagns, sem sé að ota hálfberum unglingstelpum út á foraðið og láta þær vingsa júgrum sínum fyrir framan myndavélar mjög listrænna ljósmyndara, þá er jafnvíst og nótt fylgir degi, að margmilljarðamæringar, kvótagreifar og aðrir fínir menn munu bjóða stjarfræðilegar fúlgur fjár í hið mikla listaverk, sem aldeilis hefir aukið fagurfræðilegan hróður Íslands. Telpurnar verða nú að búa sig undir að láta fyrirberast í sölum einhvers kvótakóngsins, sem kaupir þær, og hrista sig berbrjósta framan í hann, eiginkonu hans og vini að nóttu sem degi og hort heldur þær eru aðframkonar af blöðrubólgu eða af niðurgangi.
Gengu berbrjósta frá Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2018 | 12:18
Plantin plómi, Tegódúra Trump og Manni bæjarstjóri í Koppavogi
Það hlaut að koma að því að Sjálfstæðisslektið í Koppavogi segði Tegódúru Trump upp aukaaðild hennar að Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn er nefnilega dýrgripur, sem ekki er ætlaður hvurjum sem er, en ekki safnþró fyrir hálfóða og ósiðaða lukkuriddara, sem þrá ekkert heitar en fá að komast að kjötkatlinum og éta upp úr honum alla bestu bitana.
Svo sjálfstæðisslektinu í Koppavogi til boða mun betri kostur en Tegódúru Trump þar sem er framsóknarpilturinn, sem er svo mikill plantin plómi og undur líkur Guðmundi Gúðmúndsen kaupmanni í útliti. Enn fremur er framsóknarpilturinn mun röskari lukkuriddari og vandræðaskjóni en Tegódúra og er því fremri henni að öllu leyti þegar kemur að aukaaðild að sjálfstæðissamtökunum miklu. Nú, einhverjir eru að fjargviðrast um, að brottrekstur Tegódúru frá kjétkatli Sjálfstæðisflokksins sé nokkurskonar margföld rýtingsstunga vondra íhaldskvikinda í bak Manna bæjarstjóra, sem óvíst er að hann lifi af.
So er nafn flokks Tegódúru Trump í Koppavogi verðugt íhugunarefni, en fyrirbærið heitir víst BF Viðreisn, sem vekur upp spurningu þess efnis hvort þessi BF Viðreisn sé eitthvað skyld BM Vallá, jafnvel náskyld. Jú, bæði Tegódúra og MB Vallá fóru sona dálítið hallloka út úr Hruninu og sonur gamla Vallárdólgsins er mér sagt að sé varaformaður Viðreisnar Benza og braskaranna. Allt er þetta hið kynlegasta mál, hlaðið ýmislegum tilbrigðum við spillingu, græðgi og hagfræðigéðbilun.
Lít á þetta sem uppsagnarbréf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2018 | 22:58
Knattspyrnudeild blindrafélagsins
Það var ekki við öðru að búast að við lægjum ósjálfbjarga í svaðinu eftir helvíska Norðmennina því þetta eru fúlmenni og fantar. Ekki var heldur björgulegt hjá Íslendingum að tefla fram markverði frá blindrafélaginu í Danmörku og fá honum til halds og trausts einhverja hálffulla leppalúða, sem virtust vera að bæta á sig meðan á leik stóð. Og á fimmtudaginn fáum við Ganverja, sem eru mikilir og sterkir blámenn sunnan úr Afríku, til að dusta okkur til svo um munar.
Og þetta skelfilega mannval ætlum við að senda austur til Rússlands í fylgd tannlæknis! Það verður aldrei barn í brók því í Rússlandi eru margar hryllilegar freistingar, sem ungir piltar eiga fullt í fangi með að standast. Ég vissi af ungum sveini af Íslandi sem álpaðist eins og vankaður sauður til Rússlands. Þar lenti hann í vodka og villtum meyjum og sá aldrei síðan til lands. Loks skutu einhverjir mafíósar eða Kósakkar hann niður þar sem hann sat á útikamri að hægja sér. Óþokkarnir skutu gegnum hurðina og okkar maður fauk í tættlum niður í saurþróna.
Því verður að segjast, alveg eins og er, að útlitið er svart hjá okkur núna. Annarsvegar sækir ógnarstjórn Bjarna Ben og Steingríms að alþýðunni og á hinum vængnum eru Dagur bé og hænsnaherinn hans að búa sig undir að berja á sömu alþýðu með endurnýjuðum meirihluta. Þegar ofan á þetta bætist leiðangur tanlækninsins með ungu drengina austur í Gúlagið, má heita að loftið yfir Íslandi sé sorta sveipað og haustmyrkur vonleysisns er lagst yfir lög og láð, þrátt fyrir að um þessar mundir eigi að heita um það bil lengstur dagur hér um slóðir.
Fyrsta heimatapið síðan 2013 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.6.2018 | 20:06
Upphafið að endalokunum
Dramb er falli næst og frekja, yfirgangur og yfirstéttarfíflska endar endrum og sinnum eins og í Vestmannaeyjum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn skeit ærlega í buxurnar í bæjarstjórnarkosningunum á dögunum. Í dag beinast hæðnisglottandi sjónir landmanna til Vetmannaeyja, en einkum þó og sérílagi Sjálfstæðisflokkis í Eyjum og æðstu strumpanna á þeim bæ.
Nú lítur út fyrir að undirmálsliðið, sem klauf sig með frekjuköstum og svívirðingum frá móðursamtökunum sé í þann veginn að mynda meirihluta með einhverjum óþekktum eyjalingum, sem þýðir að sjáft eðalauðvaldið er skilið eftir valdalaust í minnihluta, til athlægis öllum góðum mönnum. Með þórðargleði í hjarta sjá bæði Eyjamenn og Íslendingar hinn gjörfallna bæjarstjóra, Elliða, fyrir sér við að þrífa, í refsingarskyni, grútartanka að innan, eða samfallinn og gapandi, náfölan og starandi, að gella í einhverri skítaþró útgerðarauðvaldsins.
Já, vinir mínir og kunnaingjar, fall Elliða og eðalfrekjuauðvaldsins í Vestmannaeyjum var hátt og upprisa og uppreist æru víðsfjarri og skítaklessurnar eftir fallið upp um alla veggi. Það verða eftir vill örlög Sjálfstæðisflokksins að upphafið að endalokum hans sé nú hafið í þrotabúi Elliða og eigenda hans í Verstmannaeyjum og ekki verði staðar numið fyrr en Flokkurinn allur verði útmáður af jörðinni. Láti Gvöð gott á vita.
Segir ekki svigrúm í lögum fyrir frest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 2
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 82
- Frá upphafi: 1545375
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 74
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007