Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2019
11.4.2019 | 20:11
Brasseríið nýja í samanburði við Skonsukarlinn fyrir 50 árum
Já er það sonalagað sem Brasseríið hans Eiriksson ætlar að bjóða fólki upp á? Samkvæmt myndum er það sem á að heita matarkyns í kompunni ekki upp í nös á ketti per skammtur, fyrir nú utan það að ekki liggur fyrir hvaða efni eru þarna á ferðinni. Best að fara ekki nánar út í þann sálm að sinni. En hræddur er ég um að blessaður öðlingurinn, Skonsukarlinnn, sá virti matsveinn, hefði ekki boðið nokkrum manni upp á aðra eins hörmung og sýnd er; Skonsukarlinn hafði skonsur og grjúpán, soðið ket og sígin fisk í öll mál, og í kaffitímum líka, fyrir utan aðrar hliðarkrásir.
So eru þarna myndir af háu langborði og stólum fyrir framan; þessi uppsetning minnir á fjós með gamla laginu, þar sem þeir sem sitja í stólunum eru kýrnar en langborðið jöturnar; en aungin mynd er af nautgripafóðurmeistaranum, sem á að hafa þann starfa með höndum að bera hveitiklessur og groms í skepnurnar og brynna þeim. Og ef kýrnar verða yxna, hvað þá? Verður fóðurmeistarinn að leika nautið líka? Það væri þá eftir öðru. Ekki minnist ég þess, að Skonskukarlinn væri að gera einhverjar gælur við sína viðskiptamenn, og áfengi veitti hann aðeins sjálfum sér, en hótaði þeim er vóru með kjaft illu og lét fylgja að, - ég hefi nú rotað stærra naut en þig" og það virkaði alltaf undur vel.
Nú, fyrir utan að vera eins og gamaldags framsóknarfjós þá er Brasseríið sérkennilega litlaust og flatbakan á myndinni fátækleg so af ber. Í fjósi gömlu Framsóknarmaddömunnar hefir flórinn einlægt verið kolsvartur, en í Brasseríinu er hann myglugrár eða kóngulóarvefargrár; í fjósnefnu Bjarts í Sumarhúsum var flórinn innan við fermeter að flatarmáli, úr grjóti og illilega drungalegur; en hvað sem annars um flórinn í Sumarhúsum má segja, þá bar hann skýr persónuleg einkenni, sem versthús í dag skortir all-hressilega. Skosnsukarlinn, aftur á móti, Skonsukarlinn skohh, hann stráði sígarettuösku á elhúsgófið hjá sér, cafékorg, og muldum skonsum, sem höfðu ofþornað í hitanum. Skonsukarlinn var stöndugur matsveinn, ólíkt nútímakokksum, og missti aldrei mann alla sína kokkatíð; jafnvel þó á stundum hafi innihald eldamennskunnar hjá honum verið afar óráðið og bragðið vakið ýmsa óhugunarlega hugrenninga, þá dó aunginn, sem er að vísu furðu einkennilegt, að ekki sé sagt dularfullt.
Eiriksson Brasserie opnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2019 | 17:47
Gott hjá Gvendi að sýna markmannarassgötunum í tvo heimana
Það er rétt hjá Gvöðmundi Þórði að sýna þessum markvarðarassgötu í tvo heimana og fleygja þeim í eldsofninn, eins og sagt er í hinni helgu bók kristinna manna. Í gærkveldi höguðu merkverðir íslenska handknattleikslandsliðsins með þeim hætti að aungvu máli hefði skift þótt þeir stæðu bak við markið eða hefðu verið að elta mýrisnípur og keldusvín austr í Flóa. Það er verst að ekki skuli vera hægt að sækja svona ekkisins markmenn til saka og dæma þá á Hraunið fyrir skammarlega frammistöðu. Eða hvað er hægt að segja um landsliðsmarkvörð sem víkur sér fimlega undan hverju skotinu á fætur öðru?
Í gærkveldi var samfellt sorg á flestum heimilum landsins; börnin grétu sig í svefn yfir óstjórnlegu tapi Íslands gegn Maggadonníju og djöfullegum aðförum markmannanna. En Gvöðmundur Þórður er sem sé búinn að bannfæra helvíska dárana og fela þá Sathani til skemmtunar. Og nýju markmennirnir skulu skohh ekki halda að þeir geti hagað sér eins og halklipptir hundar í íslenska markinu, verið blindfullir eða í annarlegu ástandi eins og höfuðsóttarrollur frá miðöldum. Já.
Og ef þessir delar tapa í Skopje, næstkomandi sunnudagskveld, þá þurfa þeir ekki að hafa fyrir því að koma heim aftur; þá verða þeir að láta sér lynda að fara hulduhöfði á Jövu, Balí eða Suðuramriku. Ekki mun heldur þýða fyrir Gwöðmúnd Þórð að reyna að laumast aftur til Íslands, ef allt fer á verta veg í Skopje; hann verður hixtalaust sendur í strigapoka til Blálands ef honum sést so mikið sem bregða fyrir á Íslandi eftir soleiðis uppákomu.
Guðmundur sendir markverðina heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2019 | 17:04
Mæling á gáfnafari þjóðarinnar. - Skýr falleinkunn
Skoðannakannanir um fylgi stjórnmálaflokka á Íslandi er fyrst og fremst mæling á gáfnafari þjóðarinnar, fattleysi og nautheimsku. Íslendingar hafa alltaf skorað hátt í sona könnunum, ekki síður en í kosningum, og má með sanni segja að þjóðflokkurinn, sem hér býr, sé með alvitlausustu þjóðarbrotum sem til eru á jörðinni; meira að segja apakettir og hundar standa Íslendingum framar gáfur og annað atgerfi varðar. Ekkert hefir þjóðin braggast við meiri menntun og hærra menntunarstig, eins og sperrileggirnir kalla það, so við liggur að ætla megi að svokölluðu menntun sé fyrst og fremst skaðmenntun, sem telst grátt gaman.
Það er eitt fyrir sig, að fáráðlingaflokkur eins og Píratar séu hér við lýði, hafi fulltrúa á Alþingi og 15% í skoðannakönnun. Annað mál er að djöflamergir eins og samtökin sem kenna sig við sjálfstæðið og viðreisn séu með yfir 30% fylgi, en þessháttar frammistaða íslensku þjóðarinnar bendir ótvírætt til að Íslendingar séu ekki aðeins heimskir og sé fyrirmunað að setja hluti í samhengi heldur séu þeir í þokkabót illgjarnir, gáðugir og haldnir óstöðvandi glæpahneigð.
Þó tekur út yfir allan þjófabálk að skrípalingahópur, þekktur af hneykslanlegur framferði og stórbrotinni reginheimsku skuli hafa bætt við sig frá síðustu könnun hafi nú heil 10% og 0.2% til viðbótar! Já, andlegri heilsu þjóðarinnar hefir hrakað svo hræðilega á síðustu árum að ekki getur annað verið en að endalokin séu skammt undan. Svo annarleg, ánaleg og blábjánaleg er niðurstaða könnunarinnar að heimskustu hundar mundu blóðskammast sín ef þeir ættu í hlut. En Fjandanum er skemmt.
Píratar og Miðflokkur bæta við sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.4.2019 | 22:31
Þau eru ekki aðeins jafnvíg á bæði kyn
Um Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og framsóknarmann hefir verið sagt, að hann sé jafnvígur á bæði kyn og ennfremur að hann hafi aldregi skammast sín fyrir það; einnig er talið að eiginkona Kolbeins, frú Ingveldur, sé líka glæsilega jafnvíg á bærði kyn. Á núverandi frjálslyndistímum er einsýnt að þau hjón eru meir en jafnvíg á höfuðkynin tvö, þau eru sem maður segir jafnvíg á öll kyn og kynþætti, og til viðbótar jafnvíg á dálítið sem siðað fólk hefir ekki í flimtingum.
Löngum var kvennpersónan Máría Borgargagn tilraunadýr í vísindalegri kynjahyggju frú Ingveldar og Kolbeins; síðar bættust í þann hóp fleiri einstaklingar, hvur öðrum frjálslyndari og vóru og eru öll þeirra umsvif í verulega frjálshyggjuátt. Þó gjörðist það eitt sinn upp úr miðjum vetri, að Ólafur bóndi þóktist um hánótt verða var mannaferða við bæ sinn. Þegar hann fór að kanna málið gat hann ekki betur séð en að tvær mannverur væru að smeygja sér inn í fjárhúsin. Þá vakti Ólafur bóndi Snata, vitran hund af úlfrakkakyni og bauð honum að flæma aðskotalimi í brott úr ærhúsunum.
Snati gladdist mjög, er hann hafði meðtekið boðskap bónda síns, og hvarf hljóðlaust út í myrkrið. Skömmu síðar heyrði Ólafur bóndi hundgá mikla frá fjárhúsun ásamt öskrum og óhljóðum af mennskum toga. Er þar var komið, réð Ólafur ekki við sig og mjakaði sér nær vettvangi og var með riffil sinn í höndunum, reiðubúnum til skots. Hann kom mátulega þar að þegar tveir menn með buxur niðri á miðjum lærum reyndu hvað þeir gátu að flýja undan ásókn Snata, sem kominn ver með öll tögl og halgdir í baráttunni um fjárhúsið og glepsaði hvað eptir annað í bera þjóknappa hinna flýjandi dólga. Það er í frásögur fært, þó ekkert sé sannað samkvæmt lögreglurannsókn og læknisskoðun, að um líkt leyti að ærnar, já og hrútarnir líka, í fjárhúsi Ólafs bónda fengu óskiljanlega og ónærgætna heimsókn, spurðist úr að herrarnir Indriði Handreður, þá opinber vanmetagemlingur við háskólanám, og Brynjar nokkur, síðar kallaður Vondalykt, einnig á framfæri háskólasamfélagsins, hefðu ekki með nokkru móti getað setið í stól, eða í sófa, eða á salernisskálinni í rúmar tvær vikur sökum slyss, sem aunginn fékk að vita hvers kyns var og því síður hvernig það bar að.
Da Vinci jafnvígur á báðar hendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2019 | 19:49
Aumingja blessuð manneskjan og dýraverndarsáttmáli Sameinuðuþjóðanna
Aumingja blessuð manneskjan að hafa vafrað eins og staurblindur kettlingur út í að verða búrtík og gluggaskraut Stengríms, Swabba og Sjálfstæðisflokksins og kvaka upp úr sér eins og sjálfvirkt segulbandstæki frösunum sem Stengrímur og Bjarniben stórvinur hennar hafa kennt henni að segja. Sjálf er blessuð manneskjan, eins og segir í ljóðinu: bara núll og nix frá náttúrunnar hendi.
Já, það varð nú endirinn á, að þeir sem glæptust til að kjósa VG í síðustu kosningum voru að kjósa Sjálfstæðisflokkin og allt sem sá alræmdi flokkur stendur fyrir að fornu og nýju. Þessi ósköp minna á kviðlinginn sem einn af flokkseigendum VG orkti fyrir all-löngu, en þar hefur flokkeigandin vers sitt með þessum orðum: ,,Úti í snjónum flokkur frýs, fána sviptur rauðum." Við þessar hendingar er svo tilvalið að bæta: ,,Stengrímur Swavar garmur og grís, gekk af honum dauðum." Þannig hljóðar nú hið heilaga orð í úlfagreni VG.
En mikið þó ósköp verður að hjálpa aumingja blessari manneskjunni til að komast úr þessu ástandi sem hún hefir villst inn í. Þetta stafar fyrst og fremst af skoðannaleysi hennar, trúgirni hennar, og þegar við bætist að persónan er leiðitöm verður hún auðveldlega fórnarlamb vondra manna, sem láta hana ýmist húka úti í glugga eða gelta og góla úti á hól og verða sér þar til skammar og aðhlægis. Meira að segja Brynjari Vondulykt ofbýður þessi vitleysa og hefir sagt frú Ingveldi einslega að meðferð dólgana á gluggaskrautinu varði fortakslaust við dýraverndarsáttmála Smeinuðuþjóðanna.
Stórmál að fljúga með John og Rose heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 17
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 141
- Frá upphafi: 1545310
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 131
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007