Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2019
21.7.2019 | 17:03
Þeir hafa lengi verið til vandræða
Þeir svensku hafa lengi verið til vandræða, og nú hafa þeir tekið upp eftir Rússum að fljúga blindfullir stórum farþegaflugvélum. Fyrir skömmu tókst góðgjörnum mönnum úr farþegahópi sænskrar flugvélar að yfirbuga drukkna áhöfn vélarinnar og snúa henni á rétta braut, en flugvélin stefndi hraðbyrir beint út úr gufuhvolfi jarðar, samkvæmt ákvörðun flugstjórans. Ef ekki hefðu verið djarfir kunnáttumenn meðal farþega væri flugvélin á leið út úr sólkerfinu, ef hún væri þá ekki búina að rekast á aðvífandi vígahnött.
Nú er ástandið í Svíþjóð með þeim hætti, að stjórnvöld eru alveg við það að loka öllum flugvöllum landsins og kyrrsetja öll sænsk loftför, hvar sem þau eru stödd í heiminum, vegna fullra flugstjóra og enn fyllri flugfreyjum. Og margar sögur eru í gangi núna um drykkjulæti um borð í sænskum flugvélum og fæstar geðugar. Farþegi í háloftunum, sem þurfti að bregða sér á toilet til að gjöra bæði meira og minna, kom að yfirflugstjóranum og yfirflugfreyjunni í heldur óviðeigandi stellingum um leið og hann opnaði dyrnar á taðhúsinu; og þau voru svo andskoti augafull að þau ultu eins og dauðir kartöflupokar fram á gang um leið og opnað var. Þá létu flugstjórar annarrar sænskrar flugvélar flugfreyjurnar færa sér saklaus hjón fram í stjórnklefann til þess að þeir gætu nauðgað þeim á óvenju svínslegan hátt.
Fyrst svona er í pottinn búið hjá þeim svensku er sjálfhætt fyrir þá að stunda flugvélaútgerð, en fara þess í stað að ferðast á hestum eins og villtir forfeður þeirra. Vér sjáum fyrir oss sænska berserki norðan úr jötunheimum koma ríðandi á sænskum hesttruntum og herja á ósæmilegan hátt að Norðmönnum og Dönum í því augnamiði af hafa af þeim lönd, konur og þræla. Það er sem maður segir alveg ógurlegt ástand á þeim svensku og brátt rekur að því að innflytjendur frá suðrænni stöðum leggi á flótta undan þessum brennivínsóðu skepnum.
Bylgja ölvunarmála hjá SAS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.7.2019 | 20:35
Frægir kokteilar og mismunandi áhrif þeirra
Þar með hafa Mosfellingar loksins höndlað hamingjuna í eitt skipti fyrir öll því þeir hafa komist að því að hin sanna vellíðan og lífsgleði fæst í flöskum af Stalínískum vodka, sem í eina tíð þókti hálfgert stríðsöl, en var samt heldur mildara sem slíkt í samanburði við hinn fræga Vodka Wyborowa sem sumir sturluðust af. Til að fela græðgi sína í Stalíníska vodkann hafa Mosfellingar tekið til bragðs að setja saman uppskrift af drungalegu glundri með því að sulla berjum og bjór saman við þann Stalíníska og svo sitja þeir og drekka ófögnuðinn þar til þeir renna eins og dauðir selir undir borð.
Í gamla daga, þegar vaskir menn gengu um götur með flösku af Stalíníkum vokda í beltinu, var til siðs að hella smávegis af kóki eða pólói saman við vodkann til bragðbætis. Og vel man eg þegar við helltum saman Stalínískum, kakólíkjöri, tveimur bjórtegundum og álaborgarákavíti í einn svæsinn kokteil. Þegar það gerðist vorum við í höfn í Hirtshals í Danmörku, en það er mikill sjóara- og drykkjubær á vesturströnd Jótlands. Eins og gefur að skilja, þurfti ákveðinn röskleik og persónulegan karakter til að geta kneyfað umræddan drykk. En þegar svosem fjórðungur var eftir í flöskunni, mé Spögelsið samanvið gutlið og gaf það fyllirafti á bryggjunni, sá djöfull fanst tveimur dögum síðar á reki í höfninni, steindauður. Þetta var Dani, þannig að við gerðum enga rellu út af örlögum hans.
Síðar, þókti einhverjum okkar tilkvæmilegt að halda ærlega kvennadrykkju, af hinum pólska gaddavírsdrukk, Vodka Wyborowa, á einföldu herbérgi að hótél Esju í Reykjavík. Á milli fimmtán og tuttugu mættu á staðinn og hófu drykkju þegar í stað. Ekki þurfti að hvetja gálurnar til þambsins, en ekki leið á löngu þar til þær vóru allar sem ein kolbrjálaðar og höfðu uppi öskur, hótanir og formælingar. Eins og gefur að skilja mæltist þetta einstaka númer illa fyrir hjá starfsliði hótélsins og innan skamms kom hersveit lögregluprjóna, slefandi af einhverskonar skítafryggð, og dró allt kvennfólkið út á hárinu. Eftir þetta höfum vér aungvar spurnir haft af þessum fyllikuntum, en þær munu nú vera orðnar rosknar og krumpaðar og anga eins og súrheysgryfjur eða beinaþrær. Og um þetta allt er óþarfi að hafa fleiri orð.
Drykkurinn sem er að gera allt vitlaust í Mosó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.7.2019 kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2019 | 21:51
Að æðardúnn sé bölvað ekkisins dóp? Já, auðvitað er hann það
Ekki er það ný frétt að æðardúnn sé bölvað helvítis dóp. Í gamla daga þekkti ég marga ónáttúrubesefa og óreglusnata sem voru sínkt og heilagt að troða æðardún upp í nasaborurnar á sér, undir vörina, undir forhúðina og svo framvegis. Þessir delar studuðu það að éta dúninn með brennivíni og urðu illilega sturlaðir af; einn þeirra elti móður sína sálugu með reidda öxi svo veslings konan ákvað að hlaupa frekar í sjóinn en að láta son sinn höggva sig í spað.
Svo hafa grófustu óregludólgar, lífs og liðnir, sagt mér að mest sé þó varið í að sprauta sig í æð með æðardúni. Af einni slíkri sprautu sé á svipstundu hægt að fljúga upp í áttunda eða níunda himinn og rorra þar tímunum saman. Fornvinur minn, E.B. Sig. matreiðslumeistari fékk sér stundum dún þegar hann vildi virkilega gera sér dagamun. Ef hann gat ekki fengið dún með því að stela honum úr sæng einhverra elti hann uppi kollur og blika og reytti af bringunni á þeim hverja tuttlu og sleppti þeim síðan aftur og var oft hlálegt að sjá æðikollur sem notið höfðu athygli E.B. Sig. matreiðslumeistara; en þó voru þær kollur ekki sýndar sem höfnuðu á pönnu hins mikla mikla meistara og voru færðar upp á disk sem pekingendur.
Í fréttinn af kókaíni og æðardúni er sagt frá því að blaðasnati The Guardian vitni af miklum krafti í einhvern prest af Íslandi sem sinn helsta heimildamann. Af orðbragðinu að dæma getur varla verið um annan klerk að ræða en síra Baldvin. Hvaða prestur annar hefði getað tekið upp á því að hegna meðhjálpara sínum með því að troða blágörn hans fulla með æðardúni? Og auðvitað varð mannauminginn geggjaður og fór að elta og ónáða pútur í þorpinu. Svo dó þessi meðhjálpari og síra Baldvin lét dysja hann utangarðs án yfirsöngs. Þessi meðhjálpari hafði sér til sakar unnið að hafa barnað kvennmann sem honum kom ekkert við og var auk þess gift öðrum manni.
Æðardúnninn sama gamla kókaínið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú eru uppi dagar hinna miklu játninga hjá Pírata-hjörðinni og hvur píratakonan af annarri brýst fram á sjónarsviðið og lýsa yfir að þær séu helteknar af áfallastreituröskun vegna Brýgítu; ættu þessar eiginir ekki að fara í skaðabótamál við Brýgítu, krefjast tug milljona í bætur og helst að fá Brýgítu kerlíngu dæmda til ævilangrar þrælkunar í tugthúsi, já eða í haughúsi fjóss, sem væri líklega enn betra.
Samkvæmt lýsingum hinna óhamingjusömu stúlkna úr Píratastandinu er Brýgíta gamla algerð Grýla að viðbættum Leppalúða; hún er svo ísmeygilega vond og gegnsósa af mannhatri og siðferðisvillu, að það er blátt áfram stórhættulegt að koma nálægt henni, jafnvel hættulegra en að vera samvistum við gemlinga með ebólu og ecólíbaktéríu. Það var því mikið gustukarverk hjá Helga Hrafni að hrinda þessari vondu djöflagrýlu fyrir hin poletisku björg og hinum Pírötunum til óstjórnlegs sóma að hafa aðstoðað Hrafnsungann dyggilega við hið mikla þjóðþrifaverk.
Þegar betur er að gætt, má sjá í hendi sér, að allir flokkar ættu að taka sér Hrafnsungann og Píratanan sér til fyrirmyndar í Brýgítu-málum. Til dæmis átti fólkið í VG fyrir lifandis löngu að hafa afgreitt Stengrím J. á sama hátt, snúa hann niður á hornunum og færa hann Sorpu að gjöf; hið sama áttu þau að gera við hina aumingjana í Flokkseigendafélaginu. Þetta gerðu Framsóknarmenn við endemið Sigmund Davíð og mun það þjóðþrifaverk lengi rómað með lýðnum. Kjósendur sjálfir afgreiddu verstu loddara Samfylkingarinnar með því að fella þá af þingi, og hið sama gerðu þeir við þunnildisflokkinn Bjarta framtíð. Sjálfstæðisflokkurinn er aftur á móti samur við sig, þar gilda önnur og myrkari lögmál; ef þeir ná ekki að fá þann næstversta til trúnaðarstarfa taka þeir hiklaust þann versta og lengi getur vont versnað á þeim bæ, skal ég segja ukkur. Já.
Þessi óreiða bjó til einræðisherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2019 | 13:34
Góðar fréttir fyrir dæmigerða Íslendinga
Þetta eru nú aldeilis góðar fréttir fyrir Íslendinga og bera gáfnafari þeirra og greind svona heldur ófagurt vitni, vægast sagt. Að tæplega þriðjungur kjósenda sé reiðubúinn að greiða Miðflokki klausturmanna og Pírötum atkvæði sín er svo fáránlega absúrd að ekki er möguleiki á að koma orðum að svo sorglegri endaleysu. Þessi niðurstaða er ekki hvað síst ultrafáránleg og hláleg í senn fyrir þá viðblasandi staðreynd, að Miðflokkurinn hefir nýverið gert sig að fífli og til skammar fyrir opinbert fyllirí með svívirðingum og aðdróttunum í garð fólks sem ekki var á staðnum til að svara fyrir sig, en Píratar unnu sér til frægðar á dögunum, ofan á tómhyggju sína og lýðskrum, að drulla og sí-drulla yfir sjálfa móður þeirra, maddömu Brýgýtu, sem er álíka heimskulegt og að framsóknarmenn tækju sig saman að svívirða gömlu Framsóknarmaddömuna fyrir framan alla þjóðina.
Og hvernig er þetta eiginlega með okkur? Árum saman hefir miklum áróðri verið haldið út um að flokkakerfið sé ónýtt, útelt, glæpsamlegt; á Íslandi ríki þjófræði, fjárstekrar glæpaklíkur ráði stjórnmálaflokkunum, Alþingi og ríkisstjórn. Miðað við allar þessar upphrópanir í fjölmiðlum og á torgum mætti ætla að byltingarástand ríkti á Íslandi og að einungis fáeinir blóðdropar væru eftir í auðvaldsskrímslinu og ekkert væri eftir annað en að stífa af því viðbjóðslegan hausinn. En, ónei, piltar mínir, ekki aldeilis. Auðvaldsskjátan lifir enn góðu lífi, sílspikuð og pattaraleg, flokkakerfið sömuleiðis; en best er að dómgreindarskortur og pólitísk fíflska kjósenda er einstaklega vel á sig komin, rær í spikinu og má var mæla fyrir vellíðunardæsingum og fryggðarstunum, enda er jarðvegurinn góður fyrir dómgreindarbresti og fábjánahátt á Íslandi.
Óréttlæti, mismunun, skipulögð glæpastarfsemi og þjófræði virðast vera höfuðíþróttir Íslendinga, ásamt með lágkúru, lágmensku, sóun raunverulegra verðmæta og andlegri örbirgð. Slík þjóð, sem þannig hagar sinni tilveru, bíður fátt annað en að riðlast aftan á sjálfri sér, svona eins og Brynjar Vondalykt og Kolbeinn gera þegar frú Ingveldur hefir læst þá báða í einu inni í miðstöðvarkompunni. Og endileg höldum áfram að hneykslast í einhverskonar þórðarglaðri vandlætingu á framferði Sigmundar og hans kóna á klaustri; fullkominni fíflsku og innanþurrkuðum rembingi Pírata; viðurstyggilegum svikum og loddaraskap VG og Samfylkingar; og glæpaeðli óþverraflokka, sem ýmist kenna sig við sjálfstæði, framsókn eða viðreisn. Og skilja síðan ekkert í hvernig stendur á allri þessari samfélagslegu óstjórn, vanstjórn, ofstjórn og glæpastjórn. Í því ljósi má með sanni segja, að frasinn leiðinlegi, að kjósendur fái ævinlega þá stjórn sem þeir eiga skilið, sé bæði sannur og réttur þegar kemur að okkur Íslendingum. Áfram skal halda við að kjósa allskyns afturfótafiðrildi og háfjallamerar inn á þing, sem aðeins hygla heimskunni og órættlætinu.
Miðflokkurinn tekur af Sjálfstæðisflokki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2019 | 21:10
Þegar Friðfinnur ný-nasisti drakk sig sódó
Á gamalsaldri gjörðist Friðfinnur heitinn ný-nasisti og hengdi upp mynd af Hitleri upp á stofuvegg heima hjá sér. Um sömu mundir rak hann eiginkonu sína, Pétrínu Storð að nafni, horaða og trjásulega, burt af heimilinu og hótaði að skóta hann með haglabyssunni ef hún lét sjá sig í námunda við húsið sem þau höfðu búið í í stinn fjörutíu ár. Ekki varð undrun samborgaranna minni þegar Friðfinnur bar inn til sín ókjör af sódavatni. Þegar hann var spurður hvað allt þetta sódavatn ætti að þýða, svaraði Friðfinnur því til að hann ætlaði að drekka allt þetta sódavatn til þess að verða sódó.
Eitt kvöldið kom Friðfinnur askvaðandi í knæpuna á horninu, svo vopnaður, að segja má með sanni að hann hafi verið grár fyrir járnum. Veitingamaðurinn varð mjög felmtraður við uppákomuna og hugðist biðja Friðfinn í góðu að fara út og koma svo bara aftur þegar hann hefði afvopnast. Þessu svaraði Friðfinnur með því einu að reka skeptið á haglaranum í trýnið á vertinum og var hann þar með úr sögunni það kvöldið. Síðan settist Friðfinnur að drykkju og talaði margt undir borðum. Meðal annars tjáði hann viðstöddum að hann væri ekki einungis ný-nasisti og ný-frjálshyggjumaður, heldur og væri hann nú orðinn vel sódómískur.
Fám dögum síðar varð íbúum bæjarins ljóst, að Friðfinnur væri búinn að gera hús sitt að hættulegu víghreiðri. Hvenær sem var sólarhringsins bárust hastarlegi skothvellir frá húsi hans og stundum sprungu vítisvélar í garði nágrannans, eða úti á strætinu, sem stórhætta stafaði af. Svo kom að því að ríkisstjórnin lét málið til sín taka og sendi þyrlu á vettvang, sem sturtaði bílhlassi af sprengiefni á hús Friðbjarnar. Sprengingin varð svo grimm, að ekki hvarf hús Friðbjarnar eitt af vettvengi heldur þurrkuðust næstu tíu hús í kring út af yfirborði jarðar. Þegar þett gerðist var Friðfinnur því miður ekki heima, hann var í heimsókn hjá Valfríði systur sinni, sem er gallhart ný-nasistafól. Nú býr fólk á staðnum sig undir hið versta, því öllum mun nú ljóst vera að Friðfinnur er ekki heill á geðsmunum, með öðrum orðum : snarbrjálaður og hættulegur. Að framansögðu má því ljóst vera að Friðfinnur er aunginn ,,Friðfinnur heitinn".
Fílar í sódavatni hluti af sýningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2019 | 20:02
Þeir í sveitinn tóku ráðin í sínar hendur og málið leystist farsællega
Ekki er á þá logið þessa helvítis graðnagla, þeir vaða um allt og eira aungvu. Og ekki er það eins og þetta séu strákafífl, nei nei, þetta eru afgamlir skarfar, sem vaða inn í ungmeyjahópinn miðjan og barna telpurnar tafarlaust og skammast sín ekki fyrir fremur en ástsjúkir hundar. Og hver er kominn til að staðfesta að stúlkan Anna Lúndberg, sem sögð er 25 ára og er ólétt eftir ljótan og rónalegan karlfjanda, sé 25 ára en ekki 15 ára eða 12 ára? Nei, sona karla á að grafa eins og sjórekin hræ af hvölum til að ekki stafi af þeim óþrifnaður.
Þegar þessir gömlu ódámar koma til umræðu er tillagan um geldingu ekki langt undan. Í Varðmannahreppi á Langbarðanesi tóku þeir sona óþokka, hann hafði barnað þjár kornungar systur í einum og sama mánuðinum, og geltu hann með viðhöfn. Handlægnasti smiðurinn í sveitinn tók að sér að berja saman geldingarstokk með fallaxarsniði. Svo skelltu þeir undan djöfli og hann hefir verið alveg til friðs eftir það.
En mikið er dólgurinn Mikjáll Sheen gamall og ljótur; það sést meira að segja á myndinni af mannkertinu að það er mjög vond lykt af honum, enda er kauði í uppáhaldi hjá þeim málsmetandi manni, Brynjari Vondulykt, sem þekktur er fyrir annað en að sitja auðum höndum í kvennafans. Og stundum þarf ekki kvennfólk til að Brynjar Vondalykt láti til sín taka, það vita menn eins og Kolbeinn og Indriði Handreður, sem hafa stundum ekki getað setið á stól heilu vikurnar eftir misjöfn viðskipti við Vondulyktina.
Kærastan 25 árum yngri og á von á barni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2019 | 20:14
Síra Baldvin ræddi mál séra Múlla við helgiathöfn
Síra Baldvin boðaði þegar til bænastundar í musteri sínu um leið og fregnir bárust af því að séra Múlli Krekar hefði verið færður í gæsluvarðhald. - Það gerist nefnilega ekki á hvurjum degi, sagði síra Baldvin, - að norskum prestum sé stungið í tugthúsið, því miður leyfi ég mér að segja. Norskir prestar eru undantekningarlaust pokaprestar, géðíllir og andfúlir, því Fjandinn hefir blásið brennisteini og þurrum hanaskít í nasir þeirra svo þeiri hagi sér nú nógu illa.
- En hvað um það, hélt síra Baldvin áfram. - Séra Múlli í Noregi var alltaf eins og hvur annar ódráttur, kvennsamur, brennivínsþyrstur bögubósi eins og einhver Æritobbó. Hann kvað hafa ætlað að leiða Ítali til hryðjuverka, Sathani til vegsemdar, en páfinn okkar, hann Jóhannes Pétur eða Páll, hann skohh, sá við helvítinu honum séra Múlla og setti fótinn fyrir hann.
En hvað Noregsmönnum hefir gengið til að ala séra Múlla sér við brjóst í allan þennan tíma og vissu þó alveg, að helgisamkomur hans voru buslubænir og einskis verður samhnýtingur af rausi um drauga, afturgöngur, hálfholdgaða púka á leiðum dauðra manna og annað þar fram eftir götunum. En Norsarar eru heimskir og alveg ótrúaðir, nema þeir sem eru villutrúar. Þeir stinga undan sonum sínum þegar þannig liggur á þeim og sitja tímum saman blindfullir út í bílþegar fjölskldan hefir snúið við þeim baki. Að þessu sögðu hrópaði síra Baldvin AMEN! og sló meðhjálpara sinn bylmingsfast í rassinn með heilagri ritningu svo hann steyptist fram yfir sig á kirkjugólfið, söfnuðinum til heilmikillar gleði, því meðhjálparinn er óvinsæll maður á sínum heimaslóðum.
Umdeildur klerkur í gæsluvarðhald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2019 | 19:38
Sá ein er glæpur er upp kemst
Sannast nú enn og aftur hið fornkveðna, að sá einn er glæpur er upp kemst. Í gærkvöldi komst upp um ósiðlegan fund hjá Pírataflokknum og keppast nú allir við að fordæma fund þenan sem náttúrulega ógéðslegustu samkomu sem þeir vita um. En Helgi Hrafn, garpurinn svorni, stendur þó keikur og segist glaður kukka aftur yfir Brýgýtu ef á þurfi að halda. Nú vitum við ekki hvað margir sona ógeðslegir fundir hafa verið haldnir fyrir luktum dyrum hjá Pírötum, það er að segja fundir sem ekki rötuðu í formi upptöku inn á fjölmiðla; þeir kunna að skipta tugum, jafnvel hundruðum.
Það hafa svo sem verið haldir óteljandi fundir stjórnmálafauta á Íslandi þar sem lögð hafa verið á ráðin um allrahanda glæpi, einkum fjármálaglæpi af stórbrotnu tagi, ósvífna og angandi af þjófræði. Þá hafa þessi illfygli ekki hikað við að fremja landráð og föðurlandssvik í þeirri fullvissu að þau mundu komast léttilega upp með þá glæpi, sem í öðrum löndum varða við gálga og höggstokk.
Hvað hænsnaher Pírata varða, þá er líklegt að sá söfnuður verið lagður niður innan skamms og hann jarðsungin og ,,komi þá allir Hrafnar hér, hans á leiði að skíta." En á móti kemur, að nú er Katrín Jakkó komin með gleraugu, tussufín og vel pússuð, og jafnast hún nú alveg við gleraugnaberandi gluggaskraut annarra flokka, Ráðherrans með langa nafnið og frú Andersen, Vigdísi hjá MiðFramsókn og Oddnýju Samfylkingarinnar. Og með gleraugun framan í sér, skákar Katrín loksins jólatrénu þeirra í VG.
Þetta var bara einum of mikið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2019 | 18:57
Glæpir hreppsnefndamannsins leiddu hann í géðrannsókn og fangelsi
Öll munum við eftir helvískum hreppsnefndarmanninum, sem skreið heim til sín úr réttunum í stað þess að ganga eins og siðað fólk. Nei, kallálkan hafði komist í ókeypis brennivín, fyrir utan að hann hafði hálfan lítér af kogara með sér í úlpuvasanum. Allra mann var hann kátastur í réttunum og sló um sig með allrahanda vafasömu orðbragði; hann vildi selja eiginkonu sína Elliða hreppsnefndaoddvita fyrir tvö kvígildi, þ.e. skjöldótta kú Elliða, merkan grip, og sex ær loðnar og lemdar. Þegar einhver benti hreppsnefndamanninum á að ær væru ekki lemdar um þessar mundir, það væru þrír mánuðir í fengitíma, hrökk kallkvikindið svo við að hann rúsdrakk sig um koll af kogesnum bak við kamarinn. Eftir það skreið hann um réttina og skreið síðan heim á fjórum fótum.
Því miður varð hreppsnefndarmanninum það líka á, að lát undir höfuð leggjast að skrá brennivínið sem hann þáði ókeypis í réttunum í hagsmunaskráningabókina. Fyrir þá sorglegu yfirsjón var hann kærður og var sendur í afplánun í fangelsi að undangengini nákvæmri géðrannsókn. Þegar hreppsnefndarmaðurinn sat fyrir svörum geðlæknanna, sem höfðu í höndunum bréf frá oddvitanaum þar sem glæprir hreppsnefndarmannsins voru tíundaðir í löngu máli og hátíðlegu. Þegar talið barst að skriði hans í réttinni og víðar lýsti hreppsnefndamaðurinn því yfir að hann væri yfirfallinn af skriðdýrseðli og væri það sennilega ættgengt.
Því getum við fullyrt að Páwell má heita ljónheppinn að hafa skráð boðsmiðana sína og fyllikuntuhátíðina fyrir neðan Suðurlandsbraut í sumar. Hefði hinn virðulegi borgarfulltrúi gleymt að skrá, stæði hann í sporum hreppsnefndamannsins, sem fyrr er getið, og væri á leið í gapastokkinn. Hinsvegar lítur ver út fyrir borgarmeistaranum; hann skráði ekki boðsmiðann sinn og á því fyrir höndum hræðilegan dóm fyrir stórspillingu, slóðaskap og óhreinst hugarfar. Verði borgarmeistarinn fundinn sekur, sem hann verður, þá er ekki örgrannt um, að finna verði nýjan borgarmeistara, og kemur þá nafn Brýgýtu Jonsdóttur sjálfkrafa upp, svo eðlileg er hún sem eftirkona Dags.
Enginn skráð boðsmiða nema Pawel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 9
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 133
- Frá upphafi: 1545302
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 123
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007