Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2019
17.7.2019 | 17:20
Myndirnar gefa glögga mynd af viðskilnaði hrunósanna
Myndirnar úr Sundhöll Keflavíkur gefa ákaflega glögga mynd af því hvernig umhorfs var í Reykjanesbæ þegar loksins tókst að flæma Sjálfstæðisflokkinn þar frá völdum. Einnig veita myndirnar sérstaklega góða innsýn í þann heim sem blasti við Íslendingum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn, með hjálp Framsóknar og krataeðlisauðnuleysingjanna úr Alþýðuflokki og Samfylkingu, höfðu keyrt allt í klessu í hinni fávitalegu nýfrjálshyggjurússíbanareið.
Það hlýtur að gleðja glyrnur gamalla íhaldshjassa og örlítið yngri nýfrjálshyggjufífla að leiða Sundhöll Keflavíkur augum og dást að hinni framtakssömu poletik skipulögðu samtakanna, sem hafa á sinni könnu ekki ómerkari þjóðþrifafyrirtæki en ójöfnuð, fjárglæfrar, auðlindaþjófnað og fjölmarga fleiri óknytti sem of langt er upp að telja. Og eflaust eru götustrákarnir, sem köstuðu stólunum í tóma sundlaugina og krotuðu klám og ókvæðisorð upp um veggi, sannir nýfrjálshyggjupiltar því verkin sýna merkin, svo ekki verður um villst.
Svo er verið að fárast yfir frjálshyggjupostulunum sem sprautuðu táragasi á lögregluprjónana á Norvesturlandi á dögunum; þeir töldu sig eiga allt og mega allt, þar með talið að gusa táragasi upp í svínsglyrnurnar á Hálfdáni varðstjóra. Til frekari glöggvunar skal tekið fram, að umræddir postular eru vinsælir hægrimenn, sem sé þeir Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur. Hvernig áttu þeir að vita að Hálfdáns varðstjóra, sem aldrei hefir gott í hyggju, væri von með uppistand og læti? En það var sjón að sjá fyrir nærstadda að sjá á hlaup og hringsnúninga varðstjórans þegar hann óð um með augun stútfull af eitruðu táragasi, sem Vondalyktin og Apakötturinn höfðu fengið sent flugleiðis frá samtökunum sem kenna sig við kapítalískt ríki.
Allt í rúst í Sundhöll Keflavíkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2019 | 22:36
Þá væri skynsamlegara að greiða prestum Þjóðkirkjunnar hæri laun
Þetta var aldeilis þrifasamkoman hjá Pírataflokknum og ljótt er að heyra upptökuna af subbuskapnum. Annars minnir Pírataflokkurinn mest á sambland af munaðarleysingjahæli og vitfirringahæli, sem mundi sennilega heita á nútímamáli: samstarfsverkefni leiksskóla og unglingagéðdeildar. Og mikið djöfull tókst honum Helga Hrafni að kukka hallærislega yfrum hana Brýgýtu, sem þó kom löppunum undir pírataþvæluna, sem ekkert gagn hefir gert og mun aldrei gagn gera á einn eða neinn hátt.
Píratapólitíkin hefir stundum verið kölluð nýfrjálshyggja undirmálsins og virkar ekki á neinn hátt, sem betur fer mundi margur segja. Það er náttúrlega alveg út í bláinn að kjósa slík endemi inn á Alþingi og ófyrirgefanleg péníngaeyðsla í ekki neitt; það væri mun skynsamlegra að láta aurana sem fara í píratakjánaskapinn í að greiða prestum Þjóðkirkjunnar örlítið hærri laun.
En hvað varðar ,,ákveðin mannorðsmorð" þá vaknar spurningin hvort óákveðin mannorðsmorð muni vera til, og ef svo er, hvernig líta þessháttar morð út. Hefði til dæmis verið affarasælla fyrir galefuglinn Helga Hrafn að myrða mannorð Brýgýtu mömmu sinnar á óákveðin hátt? Hefði mannorð hennar máske verið minna myrt fyrir bragðið? En auðvitað átti Brýgýta ekki að láta bölvaðan ótugtarorminn Helga kukka svo viðstöðulaust yfir sig og raun ber vitni á upptökunni góðu; henni hefði verið nær að taka hvolpinn upp á skottinu og kasta honum út um næsta glugga, hefði hún gjört það má ganga að því sem vísu að hún hefði fegið glimmrandi kosningu í trúnaðarráðið.
Ég upplifi ákveðið mannorðsmorð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2019 | 17:09
Glæpirnir eru óteljandi og samfélagið markað af þeim til frambúðar
Jæja, eru þá stórkapítalistarnir utan úr heimi farnir að kaupa jarðir undan forseta Alþingis, þessum dæmalausa samherja auðvaldsins í bráð og lengd. Eftir situr bróðir forsetans virðulega hágrénjandi eins og hamslaus óþekktarungi og klifar þá því að ekkert samráð hafi verið haft við landeigendur út af kaupum Ratcliff (Rottukliff eða Rottuklettur eins og hann heitir á íslensku.) En það hefir ekkert upp á sig fyrir forsetabróðirinn að sitja grénjandi í Mogganum og vita ekki sitt rjúkandi ráð; það hefir nefnilega verið óskráð stefna stjórnvalda í þrjá áratugi að koma sem flestum bújörðum höndurnar á auðvaldsbesefum, sem liggja á þýfi sem þeir vilja losa um, í fullvissu þess, að auðvaldsgeiturnar hefji ekki sauðfjár- eður nautgripabúskap á jörðunum.
Rottukliff hinn breski er til dæmis afburðafjárfestir, sem komist hefir yfir heilmikin auð án þess nokkurn tíma að vinna fyrir honum; en þessháttar kvíajukkar þykja bestir og fjármagn þeirra ósköp þolinmótt eins og köttur sem bíður rólegur utan við holuna eftir að músin birtist.
Bráðum verður forsetabróðirinn sjálfur seldur, trúlega Rottukliffa, og allt í boði ríkisstjórnar íslenska lýðveldisins, sem horfir bara á með velþóknum meðan auðvaldið svelgir upp jarðirnar í landinu fyrir illa fengið fé.
Já, glæpir auðvaldsins á Íslandi eru óteljandi og þeir eru stórir og miklir og kapítalistarnir, siðblindir og hamslausir, líta athafnir sínar mjög jákvæðum augum og telja þær heyra náttúruöflunum og Guði til og þar með sé óhugsandi að hnika neinu til í þeim efnum. Til dæmis á ladinu okkar, þessu Íslandi sem svo er kallað, bjó þjóð sem hafði alla burði til að verða nokkuð til fyrirmyndar í heiminum; það fór eins og það fór. En í stað þess að ganga eins og siðað fólk götu sósíalisma og góðra siða tóku skipulögð glæpasamtök völdin og eyðilögðu samfélagið svo rækilega með siðblindu, græðgi og þjófræði, að í dag stendur ekki steinn yfir steini og litlar líkur eru á að samfélagið bíði þessa nokkru sinni bætur og láti sér lynda að vera glæpamanna- og villidýrahjörð.
Ratcliffe bætir við sig jörðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2019 | 23:37
Kolefnissporin sem byrja við Bakka
Hverslags fádæma úrkynjun er það nú, að kalla friðun leiðinlegrar snjóhrúgu á suðausturlandi ,,mikin sigur fyrir Íslendinga"? Með leyfi að spurja: hvað andskotans Íslendingar eru það? Eru það einhverjir giljagaurar og stekkjastaurar af óvættakyni, sem hafast við í sprungunum á snjáhrúgunni? Að minnsta kosti eru það ekki menn og konur sem lifað hafa í sveita síns andlitis á Íslandi frá örófi alda.
Ekki veit ég hvernig á því stendur, en allt í einu kom óforvandis upp í hugann mynd af þessu líka forláta kolefnisspori, ja eða öllu heldur kolaspori og kolasporum, sem hefjast á Bakka fyrir norðan land og enda við skóna hans Stengríms græna í forstofunni heima hjá honum. Þetta ku vera hið súrrealíska lífslistaverk hins róttæka vinstrisinnaða félagshyggjumanns, hvað svo sem slík nafgift kann að þýða í raun og veru.
Þó má ganga að því sem vísu að Stengrímur, Bjarniben og gluggaskrautin þeirra verða öll sem eitt sett á heimsminjaskrá UNESCO, því annar eins gaddavírsarfadrulla hefir eiginlega aldrei verið uppi á norðurslóðum og því ber að varðveita hana þótt hún sé kokkuð upp úr stigamennsku, ófyrirleitni, siðblindu og andlegri ofurfátækt og niðurlægingu. Það fylgir og þessháttar heimsminjaskrá, að þeir sem settir eru á hana í lifanda lífi eru að loknum lífsfíflagangi sínum stoppaðir upp eins og lundar og hrafnar, geifuglar og melrakkar. Slíka upphefð fá að sjálfsögðu einungis úrvalsbændur, sem kunna að leika með tilþrifum á alþýðuna.
Mikill sigur fyrir Íslendinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2019 | 23:13
Tani Seychelle-kóngur og spennandi norræn glæpasamtök
Hvern fjandann ætli þessi Víncét Tan, eða Tani eins og hann er kallaður, viti ,,spennandi norræna upplifun"? Því er fljótsvarað: hreinlega ekki neitt. Hann ætti heldur að eyða tíma sínum í að gá hvort hann geti gruflað upp aura í eigu íslenska fjármálaráðherrans á eyjunum Seychelle, en vitað er að umræddur ráðherra hefir átt þar pénínga, hvernig sem á því stóð, og þókti eftir sem áður verðugur þess að vera forsætis- og fjármálaráðherra. Soleiðislagað er ekki hægt nema í löndum þar sem íllvíg og skipulögð bandíttasamtök eru rekin og andlegur menningaarþroski hinna óbreyttu þegna er á sömu breiddargráðu og fábjánaskapur. Já.
Frú Ingveldur og Kolbeinn maður hennar hafa átt og eiga enn leyndareikninga bæði á Tortólu og Seychelle eyjum og með þeim hafa þau aukið hróður sinn innan íslenski bófasamtakanna um leið að reikningarnir hafa ávaxtað sitt pund, en telja þau sæmdarhjónin það vera guðdómlegan veruleik að láta péééníííngana vinna fyrir sig. Og reikningar þeirra frú Ingveldar og Kolbeins eru með þeim ósköpum gerðir, eins og reikningar annarra fjársýslumanna á Tortólu og Seychelle, að þeir bólgna alltaf í hvurt skipti sem tekið er út af þeim, það er nú svo einkennilegt með það.
En þegar lítil telpa, á að giska sjö ára gömul, spurði frú Ingveldi eftir farandi spurningar: Frú Ingveldur, hvað er arðrán? Þá sló frú Ingveldur telpuna utan undir með veskinu sínu þannig að blessuð litla stúlkan skondraði inn um kjallaraglugga og lá þar í öngviti inni á gólfi í góða klukkustund. Og Kolbeinn Kolbeinsso, þessi friðsæli og viðkunnanlegi skrifstofustjóri og framsóknarnarmaður reyndi að keyra launson Brynjars Vondulyktar niður úti á götu, af því að strákur hafði sagt að Kolbeinn væri helvítis rotta og auðvaldssvín. Launsonur Vondulyktarinnar, sem er snaggaralegur strákur og ráðagóður, gat með naumindum vikið sér undan bifreið Kolbeins, sem missti marks og þaut eins og eldflaug gegnum nálægt grindverk úr timbri og hafnaði á steinvegg íbúðarhúss, en Kolbeinn stökk út úr bifreið sinni, enda var upp kominn eldur í henni, og hvarf sporlaust af vettvangi; eftir á sagði hann Hálfdáni varðstjóra, að einhver óþokki hefði stolið bílnum og eyðilagt hann. Og þar við sat.
Geti boðið spennandi norræna upplifun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.7.2019 kl. 14:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.7.2019 | 21:24
Sjálfstæðisflokkurinn á Spáni, útibú
Sjálfstæðisflokkurinn á Spáni, útibú, hefir rænt norska ferðalanga um eina million krona. Það var þeim flokki líkt og í anda höfuðstöðva hans á Íslandi. En þetta er bara byrjunin á velheppnaði meðferð á ferðamönnum, því brátt mun Sjálfstæðisflokkurinn á Spaníá fara að dæmi yfirboðara sinna á Íslandi og hefja hrottafengið okur á farandsveinum frá öðrum löndum.
Í eina tíð fóru frú Ingveldur og Kolbeinn og þeirra fólk í fræknar sólarlandaferðir á Spán. Þeirri ferðasyrpu lauk fyrr en ætlað var, því Spánverjum geðjaðist ekki skemmtanavenjum frú Ingveldar og þeirr og bönnuðu ferðir þeirra til Spánar um aldur og ævi. Útslagið gerði þegar Brynjar Vondalykt, með buxurnar niðrum sig, elti kaþólskan kirkjuhöfðingja og þóktis ætla að kenna honum íslenskan byskubbaleik.
Það má segja, að Sjálfstæðisflokkurinn á Spáni sé útflutningsvara frá Íslandi, jafn sýktur og rotinn og sá íslenski. Á Spáni hafa menn auknar áhyggjur af uppgangi þessarar kynlegu mafíósasamtaka og er næsta víst, að brátt verði hernum sigað á þennan íllilega söfnuð, sem leggst á ferðamenn eins og tilberar á mjólkurpéníng manna fyrrum og tæma vasa þeirra og inneignir. Það eina sem kemur í veg fyrir að Spánverjar sendi herdeild á Sjálfstæðisflokkinn og sprengi hann í loft upp eins og skítahrúgu er hættan á því að höfuðustöðvarnar, Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi, reki upp ramakvein og heimti að NATO taki í djöfuls skottið á Spannjólanum og dusti hann til; árás á Sjálfstæðisflokkinn á Spáni jafngildir nefnilega árás á Sjálfstæðisflokkinn á Íslandi, en sem kunnugt er þá er Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi æstur aðílji að NATO og álítur að árás á einn sjálfstæðisflokk sé árás á alla sjálfstæðisflokka í NATO.
Svikin um milljón á Mallorca | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.7.2019 | 20:52
Fljótaprammi í Sandhöfn
Það þokkalegt hjá Eyjamönnum, með þennan frábæra hóp af einvala pólitískum gemlingum í þjónustu sinni að láta smíða lakan fljótapramma fyrir sig, sem ekki er hægt að brúka til siglinga nema í blankalogni. Og bráðum verður að vekja upp alla gamla og horfna Herjólfa til að sigla með spillta sjálfstæðismenn frá Vestmannaeyjum milli lands og Eyja og ríkið borgar. Þeir ætla ekki að gera það endasleppt þessir frekjuhundar, sem hafa óspart beitt samtökunum alræmdu sem kenna sig við sjálfstæði fyrir sig.
En fljótaprammin, sem þeir sigldu frá Pólandi, er náttúrlega algjört heimsmet sem seint verður jafnað. Fólk er samt hálf undrandi á að snillingarnir skuli ekki hafa stigið skrefið til fulls og komið skeiðandi á eintrjáningi beint frá fljótinu Missisippi í Amríku. Það væri nógu gaman að sjá hlaupadrengi íhaldsins í Vestmannaeyjum þeytast fram og aftur milla Eyja og Landeyjasands á eintrjáningi, því það færi þeim einstaklega vel, en fólk verður að láta sér nægja að hlægja að þeim veltast upp á sand á pólska fljótaprammanum, að minnsta kosti fyrst um sinn.
Og svo kemur að því að slagbrandur verður settur fyrir péníngaæðina úr ríkissjóði, sem liggur austur á Landeyjasand, og þá fyllist höfnin þar af sandi á nokkrum dögum. Og pólitísku spillingatröllin munu leggja sig mjög í framkróka með að gleyma Landeyjahöfn og heimta að allir aðri gleymi líka, og að hafnarnefnan arna verði strokuð út úr bókum ríkisins og sagnfræðinnar.
Ekki útilokað að enn þurfi gamla Herjólf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2019 | 20:36
Hver er þessi ókennilega grúppia í mancitykjólnum
Hvað er þessi kerla í Manchester City kjólnum að vesenast þarna í kringum hann þeirra Hafnfirðinga?; Bó er nefnilega kominn á það virðulegan aldur að ekki sæmir að einhverjar galgopalegar grúppíur séu að hringla kringum hann og flaðra upp um hann eins og hvolpar. Ég trúi ekki öðru en lögreglan í Hafnarfirði láti sonalagað ekki viðgangast og taki kvennpersónuna úr umferð áður en hún gerir meira af sér.
Og hvern fjandan varðar Man. City um Bó? Því getur aunginn svarað, það bregst mér ekki. Það var svo sem auðvitað að ekki væri hægt að stjörnufæra Bó formlega öðruvísi en að einhver eyðilegði allt og gerði hneyksli, sem aldrei gleymist. Og hver er þetta gamla hreðatré sem glápir í forundran á kerluna í mancitydressinu; ef þetta er ekki gamall forgálgamaður af síðtogurunum Hafnfirsku þá sklum vér hundar heita og tíkum ... Já, neinei nei.
En þókt illa hafi til tekist við stjörnuvígsluna í kveld og boðflennur hafi sett strik í reikninginn, þá blívur Bó um ár og öld og trúlega lengur, ef Gwöð lofar. Og í nótt koma drykkjurónarnir og raftarnir á vettvang og míga án nokkurar miskunnar á stjörnuna á strætinu; fulla konan í Hafnarfirði mun eflaust bæta um betur og gera ljótt að stjörnugarminn. Úfff...
Stjörnurnar munu hlaðast á gangstéttina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2019 | 17:53
Og málið vandaðist hjá Ingupu og Bernharði Búa
Ekki er nema vona að vandist málið þegar svo virðist sem hjónakornin frá Asíá hafi átt börnin framhjá hvoru öðru með einhverjum óþekktum aðíljum. Þetta gerðist líka á Íslandi þegar ljóskan Ingapu, náfrænka frú Ingveldar, ól manni sínum, Bernharði Búa, frænda Indriða Handreðs, tvo blámenn í stað hvítra tvíbura. Aðvitað varð uppi fótur og fit og aunginn vissi hvað á sig stóð veðrið. Bernharður Búi varð brjálaður og ætlaði að vega konu sína, hvar hún lá á sæng á Fæðingardeild Landspítalans; máttu viðstaddir hafa sig alla við að draga Bernharð Búa út af stofunni og binda hann fram á gangi.
Foreldrar Ingupu voru skelfingu lostnir því þeir héldu að Ingapu hefði haft framhjá með zúlúkaffanum í körfuboltaliðinu í hverfinu, en Ingapu harðneitaði og þverneitaði að hafa haft mök við nokkurn anann en eiginmann sinn elskulegan og dásamlegan. Í þessu stappi stóð þar til mikill doktór og prófessor í læknavísindum við Landspítalann kunngjörði þeim hjónum að hinir mjög dökku drengir væru svo sannarlega skilgetin afkvæmi þeirra sem mest ætti vera, það segðu allar DNA rannsóknirnar.
Næsta vers var að kanna ættir Ingupu og Bernharðs Búa, sem nú virtist endanlega genginn af vitinu og var vistaður í búri, sem staðsett var í fjárhúskró uppi í sveit. Um síðir komst upp að ein formóðir Ingupu hefði klöngrast um borð í skip nokkurt, sem lá úti við Engey einhvern tíma upp úr aldamótunum 1800, og komist þar í innilegt vinfengi við gríðarstóran afríkumann og síðan verið skilað í land barnshafandi. Nú, barn konunnar var snjóhvítt, sem og afkomendur þess þar til kom að Ingupu, en þá gerðu genin þess afríska innrás og smeygðu sér af fullum krafti í tvíburana og því fór sem fór.
Asísku pari fæddust hvítir drengir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2019 | 14:38
Hugleiðing og dæmisaga um kviðskegg og þau undur sem það getur gjört
Það er ákaflega mikið í það varið, svo ekki sé sterkar tekið til orða, að hlú vel að kviðskegginu, bera í það brilljantín, hárlakk og þorskalýsi. Það sem vinnst með því að sýna kviðskegginu alúð er þykk og gljándi snarrót, sem flatrarinn hefir unun af að skemmta sér í.
Sigurveig gamla Dræsa varð fyrir því óláni í lífshlaupi sínu, að eiginmaður hennar, Arnibjörn Hersir, missti allt sitt stálgráa hár af höfði sínu og andliti, og það sem verra var, hann missti kviðskeggið líka! Sjáf púnghárin og rövrarskeggið, hurfu svo að segja á eini nóttu án nokkurrar skýringar. Nú óru góð ráð dýr og Sigurveig okkar Dræsa fór með Arinbjörn á hárígræðslustofuna í London þar sem hún var reytt að neðan þar til hún var orðin blettasköllótt á þeim líkamsparti og leit út eins og hálfreytt andarbringa.
Nú, svo var afraksturinn úr flatlúsanýlendu Sigurveigar grædd ofan á skallan á Arinbirni og líka framan í hann, þannig að hann varð á eftir eins og enskur heiðursmaður. Þó er Arinbjörn ekki alskostar ánægður; hann kvartar oft um að honum finnist hann finna súrheyslykt, eða jafnvel útikamraþef, fyrir vitum sínum, og bölvar og ragnar eins og önugt blótneyti. Og þegar Óli þ. Apaköttur, stórvinur hans, sagði óvart við hann í fylliríi: - djöfull er að sjá þig skepnan þín, þú ert eins og kuntupíka í framan, þá geggjaðist Arinbjörn og hljóp niður elhúsborðið til að ná í rassgatið á Apakettinum og handleika hann, en Apakötturinn varð fyrri til og hljóp út, en Arinbjör Hersir kastaðist á elhúsvegginn og var lengi að jafna sig á eftir. En í kjölfarið á þessum sérkennilega atburði í eldhúsinu hefir Arinbjörn jafnan á orði, að það sé fullkomin ætlan hans að myrða Óla þ. Apakött með berum höndunum og henda hræinu af honum í rotþróna.
Elísabet Reynisdóttir, skallar og skapahár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 17
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 141
- Frá upphafi: 1545310
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 131
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007