Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2019

Ótvíræð tengsl milli Fjallafjölnis og þýzka ný-nazistann herra S. Jagsch

imagesÞað muna eflaust einhverjir eftir Rótarýklúbbnum Fjallafjölni, sem gliðnaði sundur og hvarf fyrir ætternisgnúp. Þetta var í alla staði vel eðla félagsskapur, sem lét eitt og annað gott af sér leiða. En svo sló kynvilla sér niður í Fjallafjölni og þar með úti um þetta géðuga félag, sem hafði, eins og áður sagði, látið gott af sér leiða fyrir samfélagið. Ekki bætti úr skák, að samhliða hinu félagslega meini, sem kreisti líftóruna úr Fjallafjölni, þá varð opinbert að formenni klúbbsins var í ofanálag ný-nazisti og speglaði sig berrassaður heima hjá sér með hitlershúfupottlok á höfðinu; götustrákar sem höfðu fyrir kvöldsport að liggja á gluggum hjá fólki hjá sáu til formannsins milli gluggatjaldanna og kjöftuðu óðara frá og þar með voru örlög Fjallafjölnis ráðin.

Nú, löngu seinna, kemur svo upp úr dúrnum, að nýkjörinn bæjarstjórnarmaður nýnazista í ríkinu Hesse í Þýzkalandi, er einmitt launsonur fyrrum formanns Rótarýklúbbsins Fjallafjölnis á Íslandi. Og sannast nú enn einsusinni að eplinu er ekki gjarnt að falla langt frá eikinni. Það var á sínum tíma til þess tekið, að eftir að upp komst um formann Fjallafjölnis, hve óskaplega sá maður væri nautheimskur, illa artaður og bilaður; einkum þókti hann horfa til sinna karlkyns samferðarmann með lesbíska fryggðargrettu á trýninu. Það var að sögn óviðfeldin sjón.

Svo hvarf formaður Fjallafjölnis sjónum manna. Sumir fullyrtu að hann hefði farið til Brasilíu, aðrir voru freka á því að helvísk kalltuskan hefði horfið í mannhafið í Bankokk á Tælandi. Allt um það þá hvarf formaðurinn, það var mestu um vert. Nú ku hinn nýönazistíski piltur, Stefan Jagsch ,,Fjallafjölnis" ætla hefja hið aríska merki feðra sin hátt á loft og láta óþjóðlega og ættjarðarlausa aumingja á Þýzkalandi hafa það óþvegið að hægriöfgasið. Nú á dögunum skriðu fáeinar nýönazískar rottur út úr holum sínum í Reykjavík og reyndu að haga sér dólgslega, sem þó fór fyrir ofan garð og neðan, því góðgjarn maður, sem átti leið um, tók rotturnar sér til handargagns og kreisti úr þeim belginginn áður en hann kastaði þeim ofan í sorptunnu.    


mbl.is Nýnasisti kjörinn bæjarstjóri í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lærður fyrirlestur frú Ingveldar hjá Hvatarkonum

ingv25_1222523.jpgÞað er ekki lengra síðan en í fyrradag, að frú Ingveldur flutti lærðan fyrirlestur einmitt um þetta málefni, ,,prump í kynlífi" fyrir fullum sal af konum úr Sjálfstæðsflokksfélaginu Hvöt. Frú Ingveldur hóf mál sitt á að velta upp spurningunni hvort nafnið á Sjálfstæðisflokkskennfélaginu væri stytting úr orðinu ,,Kynhvöt"; að af siðferðilegri ástæðu hefði kynhvötin orðið að einfaldri hvöt, sem væri ekki næstum eins dónalegt í sambandi við staðalímyndir , kvennfyrirlitningu og fémíníska smánun.

Svo fór frú Ingveldur út í annan og meira aðkallandi sálm, það er sjálft fundarefnið: endaþarmsblástur í miðjum klíðum samræðis. Auðvitað tók frú Ingveldur dæmi ur eigin reynslu og lífi. Meðal annars kvaðst hún hafa hafnað upp í hjá ótíndum sóðakalli út Sjálfstæðisflokknum, og sá djöfull lét ekki bíða eftir tíðindunum, því þegar hæst stóð í stönginni teygði helvískur sig eftir pípunni og fór að kynda upp. Þegar kallhelvítið hafði drukkið bæði tóbaksreyk og pípusósu upp í kjaftinn á sér og lúngu þá hófst hann handa á ný með því losa viðbjóðslegt eiturgas aftan úr sér. - Sem betur fer, sagði frú Ingveldur, - þá leið yfir djöfulsins skúnkinn þegar eimurinn steig houm til höfuðs. Ég las minningagrein um þetta svín fyrir ekki svo alls-löngu í Morgunblaðinu þar sem honum var hælt mikið fyrir hvað hann hefði um sína daga verið háttvís og og einstakur fjölskyldufaðir.

Undir lok erindisins vék frú Ingveldur svo að eiginmanni sínum, Kolbeini Kolbeinssyni, þeim orðlagða óþverra í kynlífi. Sigri hrósandi sagði hún Hvatarkonum nokkrar subbulegar sögur af Kolbeini, viðbjóðinn af að hafa Brynjar Vondulykt inni á heimilinu hjá sér og villt athafnalíf Máríu Borgargagns og Indriða Handreðs. - Og þegar ég vil hafa reglulega huggulegt heima í mínu einka svefnherbergi, hrein frú Ingveldur upp yfir sig og Hvatar konur vóru farnar að þreifa um sig og sjúga upp í nefið, - þá rek ég korktappa upp í helvítis rassagatið á eignunum svo ég eigi ekki þennan hvimleiða eiturefnahernað á hættu, þegar ég ætla að hafa það reglulega huggulegt heima fyrir, já. 

  


mbl.is Hvað veldur prumpi í kynlífi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ taktu nú í hann Títa mín

Slý slý og slumma
slafurrí auber trumma.
Allt er það á pervisu plani,
púkalegt í ónýtu skrani. 

doll1Puntudúkkurnar hans Bjarnaben ætla aldeilis að pluma sig í ráherruleiknum. Sú nýja er á framhliðinni sem plantinn plómi en eins og Péturskirkjan í bak. Og Bjarni á þær báðar, blessuð er það eign. En hvernig ætli líði nálarauganu úlfaldans; þetta fólk kemst náttúrlega fyrr í gegnum téð nálarauga en inn í Hymmnaríki, það vita Guð og menn.

Þó er hlægilegast, að hinir forskrúfuðu kratar, sem eru að þykjast vera sósíalistar, eru afskaplega glaðir með með nýja ráðherrann og þakklátir Bjarnaben að hafa ekki skipað miðaldra, hvítann kalldjöful. Nú segja kratagoggurnar að hann Bjarniben sé so mikið upp á jafnréttið, en í þeirra orðabók, sem bæði er þunn og illa prentuð, merkir orðið jafnrétti það sama og að velja kvennmann umfram kallmann til bitlingsverka, þessvegna eru gargpúturnar ákaflega jákvæðar Bjarnaben og minnast hans hratt og ákaflega í draumum sínum og buslubænum.

Æji, taktu nú í hann títa mín
og Títa mín og Títa min,
þó að þú angir eins og svín,
eins og svín í stíu.  




mbl.is „Ætla að nálgast þau af auðmýkt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er poletisk sláturtíð í vændum

xb6_1254663.jpgNú líður senn að sláturtíð á Íslandi, blessunarlega segja sumir, og eru þegar farnir að brýna hnífgélurnar sínar og ketaxir. Í poletikinni verður líka brátt sláturtíð, þar sem okkar fræknustu auðvalds- og íhaldsberserkir vaða upp í hnésbætur í poletisku blóði hins blóðlausa VG. Og þó að Katrín reyni af mætti að koma sér enn meir í mjúkinn hjá Engeyingum og arðránsklíkum Sjálfstæðisflokksins með því að éta ofan í sig hraðar skattalækkanir auðherrana eins og vambsíður Repúbíkani, þá verður henni ekki þyrmt í yfirvofandi hildarleik.

Það er nefnilega þannig, að innan Sjálfstæðisflokksins ríkir sá andi, að VG liðið séu úrþvætti, sem nota megi tímabundið í hallæri, en þegar hallærinu sé lokið þá eigi að spraka gríðarlega fast í rassgatið á íhaldssleikjunum í VG, fara yfir þær með plóg og herfi og moka þeim að lokum ofan í mógröf eða skurð fjarri mannabygðum. Vissulega eru sláturvélar þokkapiltanna í Sjálfstæðisflokknum komnar í gang og starfsmennin þar byrjuð að hafa í flimtingum neyðarlega hláleg örlög ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, þeirrar ríkisstjórnar sem Sjálfstæðisflokkurinn skammast sín niður fyrir allar hellur fyrir að hafa átt aðild að.

Í staðinn fyrir niðurlægt og fíflað VG munu Engeyjingar leiða Miðflokkinn til öndvegis og trúlega Pírata líka. Þegar þar verður komið má heita ótrúlegt annað en að VG taki af skarið og fari að dæmi Júdasar heitins Ískaríót og hengi sig frá skildingunum sem Sjálfstæðisflokkurinn gaukaði að þeim í upphafi fyrir að hafa afnot af VG-kjánunum í ríkisstjórnarskyni. Trútt er að nú séu flestir í Flokkseigendafélagi VG, en það er eina fólkið sem eftir er í því félagi, komnir með blautan botn eftir að orðrómurinn um stjórnarslit og brottspark VG hvisaðist út. En það er allt í lagi, farið hefir fé betra. 


mbl.is Vonar að hröðun skattalækkana mælist vel fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau fá nærbuxur og bláa kjóla

xSjáiði piltinn Johnny Boy, hann er skohh ekki banginn við að hjóla í undrið frá Brúarlandi, Stenngrím, þem þó er Samherji Johnny Boy, og örgluggaskrautið, sem minnkar og minkar dag frá degi. Nú skal spyrnt við fótum og farið í dauðhreinsunarleiðangur um ríkisstjórnarlendurnar og þegar kolbítur, sem lengi hefir legið og ornað sér við steikaraofninn í Valhöllu, skríður loks úr hýði sínu er voðinn vís því sem slíkur eirir hann aungvu sem honur er ekka að skapi.

Er nú sem sjáist fyrir endann á stjórnarfári Bjarnaben og Katrínar og mun Bjarnaben í framhaldinu gert að finna nýja hækju, sem ekki teflir í tvísýnu öflun rafurmagns fyrir sæstrenginn góða, sem bíður handan við hornið og mun gera nokkra bónbjargarmenn á snöpunum feykn ríka og mikla menn. Bjarniben getur vel tekið Miðflokkinn upp í til sín, því að í flatsæng hans kuðlaðri og þefmikilli er hátt til lofts og vítt til veggja, en Miðflokksmenn virkjunarmenn meir en í meðallagi og meir en ákafir í að tengja sig við sæstrenginn þegar öllu verður á botninn hvolft.

x25Og af því Bjarniben dubbaði í gær upp hvítvínslegna humarbarnið til ráðherradóms, gæti hann líka tekið Píratabörnin upp að hjarta sér og gert að ríkisstjórnarfólki. Herra McCarthy litli og Mogensentelpan mundu falla eins og flís við rass við hliðina á hvítvínsmaríneraðri og humarétandi Valhallardömunni í ríkisstjórn. Hinsvegar, ef Johnny Boy fær að framkvæma ætlan sína og sprengir ríkisstjórna í tættlur og í háaloft þá er ómögulegt að segja hvar og hvernig ráðherrar og þingstúfarnir koma niður og allt fer í kosningar með ófyrirsjánlegum afleiðingum. Þess vegna verður Bjarniben að koma í veg fyrir sprengingar og hengingar með því að kippa Johnny Boy inn í ríkisstjórnina, kasta Stenngrími og hans dóti út á klakann, en stað þess bjóða Miðflokkungum og Pírötum í bæinn og bjóða þeim ráðherrastóla, spillingarbittlinga, bysskubbsstóla, nærbuxur og bláa kjóla.


mbl.is Þingmaður hótar stjórnarslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Henni verði kent að aka skriðdreka

Sú var þó aldeilis skelfingu lostin telpukvölin hún Katrín hérna okkar Stenngímssen Ben eftir að hafa átt orðastað við varaforseta sinn og Sjálfstæðisflokksins og Samherja hans í VG. Í sjónvarpsviðtali strax eftir fundinn sýndi Katrín merki æðisgenginnar taugaveiklunnar og við að maður fengi á tilfinninguna að hún mundi hoppa út um gluggan þá og þegar. Að vísu gerði greyið tilraun til að bera sig soldið mannalega þegar húns sagðist hafa trúað Pencinu fyrir nokkrum menningarlegum hommasögum með hamfarahlýlegu ívafi, og var aungvu líkar en þá hefði herra Pence, vinur og stýrimaður Trumhrútur2ps orðið eitthvað hvumpinn og veitt aumingja stelpunni ráðningu. Nú er hún líklega á leið til að eiga samtal við áfallahjálparteymi.

Þetta eru sannarlega ótrúlegar hamfarir sem veslingurin hún Katrín hefir lent í að undanförnu. Nú er hún víst hætt að hjóla og nota salernispappír, farin að veipa og gusa í sig landa við ólíklegustu tækifæri. Þá eru allir komnir upp á móti henni nema Bjarniben, hann er sannkallað tryggðartröll við Katrínu. Handan við hornið bíður Swandees Sendiherrans eftir tækifæri til að stanga Katrínu fyrir hin ógnarháu poletisku björg. Vitað er að Stenngrímur sjálfur, Swabbó og Álfheiður standa þétt að baki Swandeesar; þessi aðgerð ku ganga undir leninafninu ,,gluggaskrautsbyltingin." Þetta verður örugglega mátuleg bylting fyrir Swabbólingana og Stenngrím.

Í heimsókn herra Pence varaforseta Bandaríkjanna í dag hefir lítið farið fyrir lang þýðingarmesta fundi hans. En séra Pence hélt á fund frú Ingveldar og Kolbeins að heimili þeirra, á meðan fjölmiðlagægsnin héldu að hann væri að skrafa við ördverga á borð við Guðna Th. og Dag Bjé. Aðrir á þeim fundi að heimili frú Ingveldar og Kolbeins voru þau Máría Borgargagn, Indriði Handreður, Brynjar Vondalykt að ógleymdum Óla a. Apaketti. Þarna var farið ýtarlega yfir bráðaðkalland upprisu bandaríska hersins suðrá Miðnesheiði og næstu aðgerðir þar að lútandi. Til dæmis lagði Máría Borgargagn til, að Katrínu Jakobsdóttur verði kennt að aka skriðdreka meðan ábyrig aðíljar byggi upp nýja og ógnvekjandi Atómstöð. Selja land, grafa bein ...



mbl.is Katrín vildi ræða fleira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Létt verk og löðurmannlegt fyrir Pénnsarann að láta Kötu segja já og amen

x26Það verður létt verk og löðurmannlegt fyrir Penecið að spjalla um herstöð við Katrínu Jakobsdóttur og fá hana til að samþykkja með hraði að Bandaríkjamönnum sé heimilt að reisa hér aðra og mikið stærri herstöð en sést hefið áður á Íslandi og að sjálfsögðu búnum öllum fullkomnustu árásardrápstólum sem völ er á. Pólitískt séð er Katrín hvorki eitt né neitt, nix, núll og cóla. Hennar hlutverk er að vera sætt gluggaskraut Stengríms, Swabbafjölskyldunnar og Bjranaben; auk þess þykir Engeyingum ákaflega gaman að skreyta tertur með henni og púnsskálar í veislum sínum.

Kanski verður Katrín gerð að heiðurslautínanti við risahersveit bandaríska herveldisins og NATO á Keflavíkurflugvelli. Ef til vill mun hún hljóta embætti kadetts hjá Kananum, sona rétt eins og Jón sálugi Sigurðsson var kadett í Hjálpræðishernum hér áður. So veður hún látin hafa riffil og skipað að vega Rússa og Kínverja sem hér eru að þvælast úr launsátri. Djöfull held ég telpan okkar verði skrautleg þá.

x5Nú, það liggur fyrir, að liðsafli sá er fylgir varaforseta Bandaríkjanna þarf ekki að óhreinka sig á að sprauta auðvalds- framsóknar- og kratavírusum í rassalinginn á íslenska forsætisráðherranum, því fyrir er hún uppfull af soleiðis sníkjudýrum; og ekki þurfa Stenngrímur og Swabbó Sendiherra á þessháttar læknisaðstoð að halda, því þeir eru Samherjar auðvaldsins, vestrænna frelsishagfræðimógúla, NATO, USA, ESB og LÍÚ. Og brátt munu allar eiginirnar grénja við gítar og sítarundirleik kvæðið góða um að á Miðnessheiðinni sé bandarískur basi með offíséraklúbbum, wiskíi, kóki og kanamellum.


mbl.is Ætlar að ræða herstöð við Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bröndóttir fánar kvennfélgas alþýðu og Advanía-auðvaldsins eiga að hræða og pirra Pennsarann

paunkÁ skrifstofum kvennfélagsins Eflingar finnast aungvir rauðir fánar, þeir fóru allir undir pottinn við undirskrift kjarasamninganna í vor. Ef sæmilega er leitað um kontórinn þeirra Bandaríkja-Sollu og Amríku-Vidda má aftur á móti finna þeim mun fleiri bröndótta fána, en það eru kyndug flögg til heiðurs bröndóttum köttum og bröndóttum kúm, en þær síðarnefndu ku eiga mjök undir högg að sækja nú til dags; til dæmis er algengt viðkvæði kúbænda dagsins í dag að nú hafi þeir hakkað hevítis bröndóttu beljuna í gær og séu þar með dæmdir til að éta kétfarsið af henni fram að jólum.

En bröndóttu fánarnir er sem sé dregnir að húni í dag utan við höfuðstöðvar alþýðunnar; einnig hefir auðvaldsfélagið Advanía látið draga samskonar flögg upp við sínar höfuðstöðvar. Tilgangurinn með þessum hátíðarhöldum er, að því manni er sagt, að pirra varaforseta Bandaríkjanna og hræða og sýna honum fram á að hann eigi sjálfur að gjörast bröndóttur og helst að láta gelda sig í leiðréttingarskyni.

Ekki er samt víst að Pennsarinn komist í vont skap þótt hann sjái hin bröndóttu flögg álengdar. Pensarinn er nefnilega kræfur karl og hraustur, sem gerir sér ekki rellu út af fánum utan við andlega moldarkofa alþýðunnar og auðvaldsins. Pennsarinn er skohh maður kristinn, þó hann hafi skömm á því sem haft er eftir Jésú Kristi í guðspjöllunum; so er kalluglan Repúblíkani, en það er mjög hinsegin söfnuður í Amríku, herskár og ógn kaldur í merkingunni fífldjarfur.


mbl.is Hinsegin fánar í Guðrúnartúni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftan og framan og allt um kring þau verði á verði, því Pennsarinn er ófyrirleitinn og brögðóttur

ingv23.jpgJa, hún er nú aldeilis köld kerla í krapinu hún Sólveig Anna, forkvendi kvennféglagsins Eflingar. Svo sem kunnugt er, þá var Efling upphaflega vekalýðsfélag, en Sólveig Anna og hinir háskólalærðu fylgihnettir hennar inn á Eflingakontórinn breyttu Eflingu um leið í kvennfélag og þau höfðu komið sér fyrir á undarlega háum launum í nýju mjúku leðurhægindunum. Á tillidögum, eins og í dag, bregða Sólveig Anna og Viðar framkvæmdastjóri hennar sér í gult vesti, sem heyra til nýjum leikbúningum kvennfélagsins, að heiskur múgurinn fari að halda að þau séu sérlega harðsnúið slagsmálafólk og hugrökk með afbrigðum.

Í dag hafa Bandaríkja-Solla og Amríku-Viddi framkvæmdastóri hennar ákveði að fara í stíð við varaforseta Bandaríkjanna af því að þau vildu frekar fá stríðskvendi sem varaforseta Trumpsins. Þau ku ætla að berjast við karlinn úti á miðju einhverju því stræti í Reykjavík sem lokað verður annarri umferð en þeirri sem fylgir heimsókn herra Pence, góðkunningja áður títtnefndra hjúa. Þetta verður líklega allra laglegasti bardagi og líklegt að Bandaríkja-Solla og Amríku-Viddi muni blása fnyk úr kvennfélgskontór Eflingar framan í Bandaríkja-Pence og vita hvort kallskrattinn kafni ekki hreinlega af fýlunni.

Einhverju sinni orkti þjóðskáldið Flosi Ólafsson, sem einmitt var einn af stofnendum Rauðsokkufélagsins sællar minningar, eitthvað á þessa leið:

,,Eg sé ég hýran Hafnfirðing
í Hellisgerði,
aftan og framan og allt um kring
ég er á verði."

Það er hætt við, að ef Bandaríkja-Solla og Amríku-Viddi verða ekki á verði aftan og framan og allt um kring, þegar þau berjast við Bandaríkja-Pennsarann, þá geti þannig farið að hollingin á þeim kunni að verða bæði kynleg og hláleg að orrustu lokinni.


mbl.is Sýni lokunum engan skilning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meirhlutafulltrúar orðnir taugabilaðir vegna sorphirðu

ero1Auðvitað er óásættanlegt að einhverjir leppalúðar úti í bæ geti komið í Ráðhús Reykjavíkur með himinháa reikninga og heimta að meirihluti borgarstjórnar borgi þá umyrðalaust og haldi síðan kjafti eins og steindauð rotta. Ónei, soleiðis óþverraskap viljum við ekki hafa. Borgarstjórnarmeirihlutinn þarf sína pénínga í að þrengja götur og mála þær bröndóttar, hefja ryðbrunna hermannabragga úr stríðinu til vegs og virðingar fyrir milljarða á milljarða ofan og kaupa gras frá útlöndum, helst trénuð puntstrá, til að planta kringum braggahróið.

Það segir sig sjálft, að stjórnmálaskörungar eins og þeir sem eru í borgarstjórnarmeirihlutanum, kæra sig ekkert um að vera truflaðir af óæðra fólki, fólki sem hefir gert svo herfileg mistök, sem sé  misstökk, að jafnvel hinir stórgáfuðu meirihlutamenn skilja hvorki upp nér niður. Það er líka vel skiljanlegt, að svokölluð byggðasamlög séu ofviða fólki sem tekið hefir að sér að vera fulltrúar Viðreisnar í kerfinu; meira að segja holugarpar á borð við Dag og Holu-Hjalla, að ekki sé minnst á Líf Magnínu og Píratagoggurnar, bera ekkert beskyn á byggðasamlög né kostnað við gas- og jarðgerð hjá Sorpu.

En þó að Dag og Þórdísi Lóu skorti eitt og annað til skilnings á venjulegri bæjarstjórnun þá verða þau að grjöra svo vel að hunskast til að borga kosnaðinn við sorpeyðingu; það dugar ekki einusinni fyrir þau að útvista öllu helvísku ruslinu og draslinu sem til fellur í Reykjavík, Reykjavíkurborg verður eftir sem áður að borga kosnaðinn af eyðingu þess. Nú, ef borgarfulltrúarnir í meirihlutanum láta útgjöld borgarinnar fara í taugarnar á sér verða þeir að fara til taugasérfræðinga til að fá bót meina sinna; eða til sálfræðinga; eða til geggjunarlækna, sem hafa sprautur og meðöl í fórum sínum til viðgerða á sona taugabilun. 


mbl.is Ekki hægt „að sópa undir teppið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband