28.12.2022 | 23:33
Ferðimannvandamál Framsóknar
Tja, það er varla nema um tvennt að ræða varðandi lausn á ferðamannaþjónustu vandamálinu. Annars vegar er að ríkið taki alfarið yfir ferðaþjónustuna í landinu og sendi Jóhannes framsóknarbarn Skúlason á leikskóla til endurhæfingar og upprifjunar á leikskólanámsefni, eða hitt að ferðaþjónustufrekjurnar komi sér sjálfar, á eigin reikning, upp tækjum og tólum og einkabjörgunarsveit til að finna og moka moka ferðamennina sína upp úr snjó, bjarga þeim og hlú að þeim og sjá um greftrunarkostnaðinn þegar ferðimaður deyr utanvegar í ofveðri og stórhríð.
Þetta er svo einfalt, að jafnvel Lilja Alfredós ætti að geta kraflað sig fram úr vandamálinu á annan hvorn veginn og það þótt hún hafi aldregi staðist dýralæknispróf. En mikið ósköp er gleðilegt að sjá hvað ráðherrar Framsóknarmaddömunnar eru hlaupnir í góð hold; þau bókstaflega róa í spikinu eins og fordekraðar varphænur sem fyrir löngu eru hættar að verpa. Enda hefir gamla Maddaman, þótt skemmd sé af elli og eiturnautnum, látið fæða ráðherra sína á fyrsta flokks merarsméri og graðhestaskyri með hristing úr sauðarjóma og glussa útá, frá kaupfélagskompaníi giftusama kaupfélagsstjórna í Skagafirði, síðast liðin fimm ár með þeim aðdáunarverða árangri að velmegunarkleprarnir hafa hlaðist eins og ofvörur utan á ráðherragarmana.Svona stríðaldir ráðherrar, sem gamla Maddaman hefir komið sér upp, eru sannarlega ekki hristir fram úr erminni, og þeim verður vafalaust aungin skotaskuld að afgreiða ferðamannaiðnaðarvandamálið og snúa upp á trýnin á talsmennum ferðagræðginnar svo þau hvorki æmti né skræmti meir. Þó eru vaxandi áhyggjur af leiðinlegu málefni sem borist hefir ráðsmanni, húskörlum og griðkum Framsóknarfjóssins til eyrna, jafnvel þeirri gömlu líka: Sem sé að ráðherrar Fjóssins séu sífellt meira og meira að verða eins og ljósrit hvert af öðru og erfitt sé, einnig fyrir velsjáandi menn í fullri dagsbirtu, að þekkja ráðherrana hverja frá öðrum; þetta ástand varð til verulegs ama á fundi Landsambands Framsóknarkvenna, sem merkilegt nokk er enn til, en þá sýndist einni virðulegri gamalfrauku að Lilja Alfredós væri Sigurður Ingi og skildi ekkert í því að hann væri í gulri dragt og gengi um eins og sperrtur hænuungi. Og það var lífsins ómögulegt að leiðrétta þennan sorglega misskilning, enda voru landsambandskonur orðnar ærið drukknar þegar þetta gerðist.
![]() |
Getum auðvitað aldrei sigrað brjálað veður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2022 | 21:05
Nú viljum vér Stjörnusýslumanninn Stones upp reistan.
Það er sem maður segir: allt hefir farið í hund og kött hjá ríxlögregluembættinu, dómsmálaráðherra og ríkisstjórninni, sem hefir verið falið að byggja landið með lögum, síðan Stjörnusýslumanninum Stones var steypt af stóli og hann vanvirtur opinberlega og gamla ríxlögreglustjóranum var komið fyrir á vandræðamannaheimili fyrir óhæfa uppgjafa ríxembættisuxa. Já, svo er það.
Eftir að hr. Stones var velt úr sessi og honum stungið undir stól, hefir hryðjuverkaógnin færst nær oss og nær og stríð brotist út í Úkraínu og brátt mun Seðlabankinn verða tekinn til gjaldþrotaskipta og ferðaþjónustuiðnaðurinn verða út í snjóskafli á heiðum upp og gaddfrjósa í hel. Manni skilst hreinlega, að Stjörnusýslumaðurinn Stones hafi verið hýddur og síðan hafi niðurlæging hans verið fullkomnuð með því að því að setja hann niður við lítið borð úti í horni hjá Ríxlögreglustjóraembættinu og honum fengið sérverkefni að föndra við; vér héldum að svoleiðis lagað væri einungis gert við óþekka og kvensama presta sem farið hafa yfir strikið, þeir eru settir í sérverkefni á Bysskubbsstofu og eiga þaðan ekki afturkvæmt.Nú er það svo, að hryðjuverkaógn og hryðjuverkaiðnaður er ætíð á snærum skipulagðra samtaka og því lífsnauðsyn að bregðast hart við, ekki með því að færa viðbúnaðarstig úr A í B, heldur úr A í einhvern bókstaf sem er langtum aftar í stafrófinu en B. Nú er við hæfi að setja viðbúnaðarstigið úr A í Ö. En fyrst af öllu þarf Ríxlögreglustjóraembættið að læra að skammast sín og endurreisa Stjörnusýslumanninn Stones, biðja hann innilegrar fyrirgefningar á hnjánum og fela honum síðan að leggja til atlögu við hryðjuverkin, en aðallega þó hryðjuverkamennina, eða konurnar ef það eru konur sem eiga í hlut, sem liggja í leyni og bíða eftir hentugu tækifæri til að terroríséra undirstöður þjófélagsins og valdstjórnina.
![]() |
Krefst útskýringa frá lögreglu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2022 | 15:49
Til hamingju
Til hamingju Bjarniben, atvinnurekendur, fjárfestar og samherjar.
Til hamingju Sigurður Ingi, Björn framsóknarmaður Snæbjörnsson á Akureyri, Vilhjálmur framsóknarmaður og lýðskrumari á Akranesi.
Til hamingju Katrín Jakkó, Drífa Snædal, Halla Gunnarsdóttir og Stenngrimur Johoð.
Til hamingju Samfylking og krataeðlisskitur, Kristrún, Halldóra Saleks, Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar, Karl Th. Birgis og Sighvatur Björgvins.
Til hamingju allir saman með núll og nix samninginn hanns Viljálms og ykkar.
Og enn meir til hamingju með að þurfa ekki að skíta ykkur út með því að deila kjörum með verkafólki Starfsgreinasambandsins og vera á sömu launum og sá undirmálslýður.
Nú er glatt í döprum hjörtum þeirra sem heyra til hinni samdauna samtryggingu valdsins á Íslandi. Arðránið er tryggt enn um hríð. Já, þetta blússandi arðrán, þessi blússandi gróði, þessi blússandi stöðugleiki Sannra Íslendinga við kjötkatla auðvaldsins og rúllettuborð kapítalismans. Þökk sé yður, heilagi herra Mammón. Heill sé yður, Pétrar Þríhrossar íslenskra stjórnmála, auðvalds og skepnuskapar.
En þó svo að verkalýðurinn hafi tapað þessari orrustu fyrir verklýðsforstjórunum sínum á hvítu Landkrúserunum, þá kemur dagur eftir þennan dag og okkur er lofað að þá upp verði staðið muni hinir síðustu verða fyrstir og hinir fyrstu (Bjarnirben, SA og Skaga-Villi) síðastir. Enn fremur verður fall þeirra mikið og lendingin lágkúruleg og skammarleg eins og heimsmetssamningurinn hans Villa og hans Framsóknar-Björns og hennar Saleksdóttur.
![]() |
Kjarasamningur SGS og SA samþykktur hjá SGS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2022 | 17:53
Nonniboy vísað úr pissukeppninni. En líka örlítið af Giljá, Giljagaur og jólatréskeppninni
Það er margur hlandvandinn í þjóðfélaginu og ekki alltaf á allt kosið í þeim efnum. Nú hefir almenningi borist til eyrna að Nonniboy, ráðherra í ríkisstjórn íhalds og afturhalds, hafi hafi farið í svokallaða pissukeppni við Þórhildi Sunnu á Alþingi og tapað. Þórhildur Sunna byrjaði, hún gerði sig til og sprændi sjö metra og fjörutíu og átta sentímetra. Svo, svo gerði Nonniboy sig til og það gerðist ekkert. Ja, ef til vill er full mikið sagt að ekkert hafi gerst, því heiðgulur leiðindapollur, sem rauk upp af, myndaðist við fætur Nonniboy. Því var Þórhildi Sunnu dæmdur sigurinn en Nonniboy var vísað úr keppni, hreinlega kastað út á götu. Er betur var að gáð, kom í ljós að mergurinn málsins var, sá að Nonniboy láðist að opna buxnaklaufina þegar hann gerði sig til og mé í buxurnar. Því fór nú sem fór.
En það er fleira að gerast á þingi þessi dægrin. Til að mynda fer hin fræga jólatréssamkeppni Alþingis fram einhvern næstu daga, en þá reyna þingmenn með sér hver þeirra líkist mest jólatré. Síðustu árin hefir jólatré VG í Norðausturkjördæmi einokað keppnina með fáheyrðum yfirburðum, því annað eins gangandi jólatré árið um kring hefir ekki þekkst áður hér á landi. Og vissulega mun frú B. Ólsen sigra keppnina þetta árið eins og hin fyrri. Baráttan stendur nefnilega bara um annað sætið. Þrír alþingismenn þykja líklegastir, en það eru Björn Leví, Diljá Mist, sem sumir eru farnir að kalla Giljá Þrist eftir Silfrið á Ríkisútvarpinu síðasta sunnudag, og Helga Vala. Þar á eftir koma svo minni spámenn eins og þingmaður kaupfélagsstjórans á Sauðárkróki, ráðhurran með langa nafnið, Thorgerdur Kattrin og Klobbi Magg. Allt er þetta gott og blessar og gaman verður að fylgjast með hver hreppir annað sætið í jólatréskeppni Alþingis að þessu sinni.En fyrst minnst hefir verið á hana Giljá Þrist, eða hvað þeir nú kalla þingmanninn, þá er ekki úr vegi að nefna, að orðið hefir vart við nafna Giljár, sem sé bulvaðan þorparann hann Giljagaur. Og sá slær ekki slöku við fremur en fyrri daginn. Hans kjörorð hafa löngum verið: ,,Giljum konur - kneyfum vín". Helvískur gaurinn er talinn hafa komið til byggð kringum tuttugasta nóvember síðast liðinn og tók þá þegar til við þar sem frá var horfið um síðustu jól. Nú gerðist það, illu heilli, á aðventunni í fyrra, að bóndakurfur í Húnavatnssýslu, andlegur óreiðumaður með svínsnáttúru, gjörði sér lítið fyrir og hugðist afvegaleiða Giljagaur er hann heimsókti sveit kurfsins. Þannig kom bóndinn þarfanauti búsins fyrir í rúmi griðkonunnar en bjó aftur um griðkonuna í tuddabásnum í fjósinu, því honum langaði að sjá hvernig Giljagauri mundi verða við þegar hann ætlaði að heilsa upp á griðkuna. Þegar Giljagaur bar að garði í niðamyrkri hugði hann sér gott til glóðarinnar með griðkonunni, vóð að bóli hennar og smó undir sængina og fór strax að láta vel að tuddanum, sem þar hraut í besta yfirlæti. Því miður geðjaðist tudda illa að lostafullum blíðulátum Giljagaurs og rak annað hornið undir buxnastreng hans og sveiflaði hinum veðurbarða jólasveini eitthvað út í buskann. Því varð ekkert um jólagleði Giljagaurs það árið, en hann var fluttur daginn eftir þungt haldinn til síns heima á kviktrjám. Vofir nú yfir bóndakurfinum í Húnavatnssýslu hefnd Giljagaurs og jólasveinasamfélagins og verður fróðlegt að vita hvernig það allt saman fer.
![]() |
Þarf að sætta sig við pissukeppni á þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.12.2022 | 18:33
Hugsjónalausir lýðskrumarar sem reynst hafa verkafólki dýrir. - Júdasar líkar lenda...
Það gerist ekkert meira eða merkilegt úr þessu í þeirri kjarasamningalotu sem nú stendur yfir, þökk sé Villa skagamanni, Aðalsteini húsvíkingi og hinum íhaldsframsóknarkrötunum í Starfgreinasambandinu. Framhjá þeim auma afleik, sem lítur sannast sagna út eins og vísvitandi óleikur viðkomandi lýðskrumara, kemst afgangurinn af verkalýðshreyfingunni ekki svo glatt framhjá, - nema svo vel vildi til að félagsmenn verkalýðsfélaganna felli felli þessa Villasmán íhaldsframsóknarkrataeðlisins.
Þegar fólk var farið að gera sér vonir um að verkalýðshreyfingin, og einkum þá sá hluti hennar sem snýr að verkafólki, væri að endurnýja sig og hrista af sér langvarandi spillingardrungann og auðvaldsþjónkunina og verða öflug, róttæk og sterk, þá spruttu fram lýðskrumarar, sem fólk hafði sett traust sitt á, og eyðilögðu á augabragði það sem fólkið hélt að verið væri að byggja upp. Á þessari stundu veit enginn hvort, og þá hvenær, annað tækifæri til öflugrar samstöðu og sigra gefst á grundvelli heilbrigðrar og róttækrar stéttarbaráttu þar sem samtakamátturinn skilar því sem stefnt var að. En svona fór um sjóferð þá, eins og svo margar slíkar á síðustu áratugum. Fyrir mann sem stendur álengdar og fylgist með, þá blasir við honum ráðalaus verkalýðshreyfing, sem hvað eftir annað tekur þjóðskipulag auðvalds, arðráns, nýfrjálshyggju og þjófræðis fram yfir skipulega stéttabaráttu fyrir betra samfélagi og verkalýðsvöldum. Nei, hálaunaðir lýðskrumarar, verkalýðsforstjórarnir, vilja ekki, þegar til kastanna kemur, rugga bátnum, - það gæti nefnilega ógnað ríkjandi ástandi; því svo samdauna eru þeir orðnir samtryggingu valdsins, alræði auðvaldsins og nýfrjálshyggjunnar, að þeir telja það skyldu sína að verja þjóðskipulag arðræningjanna fyrir stéttabaráttu verkafólks.
![]() |
Við hefðum viljað meira |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2022 | 12:25
Þokumökkur hræsninnar í bland við dónalegar brosgeiflur
Mikið var framkoma Katrínar Jakobsdóttur á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis sérkennileg í morgun. Það var ekki þessi rútíneraða aðferð hennar í að tala í hringi í kringum umræðuefnið þannig að orðræða hennar er einn þokumökkur af hræsni, sem vakti athygli, heldur þessar sífelldu brosgrettur og geiflur framan í viðmælendur hennar á fundinum, en þær virka á mann eins og fyrirlitlegur dónaskapur af hennar hálfu í garð nefndarfólksins. Iðulega er óljóst hvaða tilgangi þessi broslæti eiga að þýða; hvort forsætisráðherra er að hæðast að þeim er hún talar til á falskan, ísmeygilega og niðurlægjandi hátt; eða hvort ráðherrann er ekki meðvitaður um hinar yfirlætisfullu brosfettur sínar; eða er þetta bara aumkunarverður loddaraháttur og fíflska?
Allt um það, þá er fullljóst af málflutningi Katrínar Jakobsdóttur fyrir eftirlitsnefndinni í morgun, að þar fer nýfrjálshyggju hægrislúbert af andstyggilegri tegund, borgarastéttarfrauka sem svarist hefir í bandalag með verstu auðvaldsbesefum og últrahægrigaurum sem völ er á á Íslandi. Hið sama má hæglega lesa út úr ýmislegu kjaftasnakki annarra þingmanna VG í fjölmiðlum, en það þvaður verður æ ískyggilega með hverjum deginum sem líður. Hverskonar fólk er þetta lið, ef fólk skyldi kalla?
Eflaust heldur þessi hlálega ,,Vinstrihreyfing" áfram að vera mönnum hulin ráðgáta enn um sinn. Það er ekki gott að segja hvað vakti, og vakir, fyrir þeim sem gert hafa VG út undir merkjum vinstristefnu, gott ef ekki sósíalismus, þótt aldrei mætti nefna sósíalisma upphátt þar á bæ svo Stenngrimur, Flokkseigendurnir og undanrennubörnin heyrðu. En óheiðarlegt og gráðugt fólk er og verður óheiðarlegt og undirförult, alveg eins og eigendur VG, og við því er aungin lækning til.
![]() |
Óheppilegt að náinn ættingi var í kaupendahópnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.11.2022 | 20:30
Skemmtilegra skólaslagsmála minnst
Skólaslagsmál eru alltaf skemmtilegir atburðir, sem lífga upp á tilveruna, ekki síst í svartasta skammdeginu. Það til dæmis óborganleg ánægjustund að sjá skólastjórann sparka óþekkum nemandi eins og heypoka niður allar tröppurnar og fylgdi eftir með fantagóðu sparki í afturendann um leið og hinn ógæfusami nemandi smeygði sér út um fordyrnar. Og ekki varð nú síðra þegar sami skólameistari sló nemanda á trantinn í miðjum morgunsálmi að öllum nemendum aðsjándi. Slík meistarastykki verða lengi í minnum höfð.
Þá var uppþotið á kennarastofunni lengi rómað. Þá slógust skólastjórinn og menn hans við hina á stofunnu með þeim afleiðingum að kennsla féll niður í skólanum í viku meðan kennararnir og meistarinn voru að ná sér. Þeif fóru víst ómjúkum höndum um hvurja aðra kennararnir. En verstar voru þó kennslukonunar, en þær bitu, klóruðu, hræktu, spörkuðu og notuðu óleyfileg barefli. Eftir þennan mikla bardaga var skólastjórinn enn ruglaðri í höfðinu og þókti varla á bætandi. Mestu umskiptin í fari skólastjórans voru á kynferðissviðinu, vitanlega. Hann fór að áreita fólk, aðallega kvenfólk. Svo fannst þessi skólastjóri dauður einn morguninn utan á einum vegg skólans, hann hafði verið hengdur upp á löppunum og aldrei upplýstist hver drýgði dáðina.
Svo blossuðu upp général-slagsmál á Hjallastefnuskólanum og það kom í hlut Hálfdáns Varðstjóra og bera klæði á vopnin og stilla til friðar. Þetta tókst nokkuð vel hjá Hálfdáni, utan hvað hann skrifaði í lögregluskýrsluna, að allir hefðu kennararnir á staðum verið útúrdrukknir, en það var nú víst ekki sannleikanum samkvæmt, og fyrir bragðið voru kennararnir sviptir kennsluréttindum og sendir í afplánun. Sá eini sem var ölvaður þennan dag var Hálfdán sjálfur og hann fór margar ferðir, ber að ofan, í fangaklefana á lögreglustöðinni til að yfirheyra kennarana, sem hann hafði hneppt í varðhald. Þannig fór um sjóferð þá og ekki meira með það.
![]() |
Fimm ákærðir fyrir hópslagsmál í Borgarholtsskóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2022 | 18:01
Vígður húskarl sem veit ekki neitt
Hvaðan úr skrattanum bar þennan Willúm að? Hann kom úr Framsóknarfjósinu. Á hann eitthvert sérstakt erindi í poletik? Nei auðvitað ekki. En hann var hafður í marineringu í Framsóknarfjósinu í tólf ár. Akkúrat, alveg eins og þegar hákarlinn sem þið étið á þorrablótunum þegar þið eru orðin mígandi full, hann kvað dysjaður í fjóshaug í tólf ár. Svo var hann vígður. Vígður? Já, gamla Framsóknarmaddaman vígir sjálf lukkuriddarana sem hún sendir á þing. Þetta er mikil helgiathöfn sem fer fram í fjósflórnum. Áður en gamla Maddaman hélt úr bæli sínu til vígslunnar mé hún í kopp, Maddömukoppinn. Þegar sú gamla vígir lukkuriddara til þings stökkvir hún alltaf úr innihaldi koppsins á riddarann sem krýpur í flórnum, það er sem sé siður.
Auðvitað veit simpill húskarl Framsóknarmaddömunnar ekki til þess að heilbrigðiskerfið sé vanfjármagnað, - hann veit ekki einusinni hvað vanfjármögnun er, skilur ekki orðið. Því síður hefir þessi náungi spurnir af því, að heilbrigðiskerfið, spítalarnir og allt klabbið sem er undir ríkinu hefir verið vanfjármagnað á vísvitandi og skipulega hátt í þrjá áratugi af Sjálfstæðisflokknum, iðulega með fulltingi íbúa Framsóknarfjóssins. Nei, hann veit ekki neitt, vissi ekki neitt og mun aldrei vita neitt. Þannig er nú, kæru samlandar, framsóknarmenningin.
Hins vegar - hinsvegar - veit Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður nákvæmlega hvernig er í pottinn búið, enda löngum verið kært með honum og frú Ingveldi eiginkonu hans. Nú, markmiðið er einfalt og fyrirsjáanlegt og í raungerðum fasa sem er innan armslengdar, að ekki sé sagt skítslengdar, sem sé að eyðileggja heilbrigðiskerfið, sem við eigum í sameiningu, þannig að auðveldar verði að einkavæða það með manni og mús án þess að eigendur þess, fólkið í landinu, verði vitlausir. Þetta er langtímaverkefni, sem framkvæmt er samkvæmt uppskrift beint úr verkferlafræðibók nýfrjálshyggjunnar. Og Katrín litla Jakkó og Swandeesý sjávarútvegsráðherra eru báðar vel með á nótunum, líka dýralæknagengið í Framsóknarfjósinu og litla gula hænan, - en Willúm veit ekki neitt, aumingja karlangastráið.
![]() |
Ekki hægt að alhæfa að þetta sé fjármögnunarvandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2022 | 14:18
Nonnýboy fer í stríð
Nú ætlar Nonnýboy að fara í stríð og þá þarf að huga að ýmsu. Tilgangur stríðsins, er að sögn ráðherra, að uppræta ,,skipulögð glæpasamtök" og kenna liðmönnum þeirra þá lexíu sem dugir. Það verður gaman að sjá félagi Nonnýboy, klæddan svörtum, skósíðum leðurfrakka og með korða á lofti, stýra stórskotaliði sínu gegn skipulögðum ofbeldishrottum og eitursölum, sprúttsölum og hnífabardagamönnum. Vér sjáum í anda, hið ofurþjálfaða herlið úr fórum ríxlögreglu stjóra reka þorparann á flótta á götum Reykjavíkur og stráfella þá með nákvæmri skothríð úr hreindýrariffunum, sem Nonnýboy mun eflaust útvega hersveit sinni.
Já, kæru vinir í réttlætinu, þá verður gaman að lifa þegar Nonnýboy, með aðstoð undirlautinants síns og herdeildarinnar, hefir upprætt eiturseljandi hnífaódrætti og þjóðfélagið komið í fastar skorður með sínum arðbæru fjámála- og fjárfestaspekúlasjónum, nýfrjálshyggju tómu jakkafatanna, vel heppnuðum einkavæðingum og enn betur heppnuðum kvótasamsuðum. Svo beinum við auðvitað herliði voru að þessum fjandans hælisleitendum, sem nú þegar hafa komið landinu á hausinn og gjört fjölda manns öreiga og í strætið. Já, kæru vinir, þau eru hroðaleg þessi skipulögðu glæpasamtök, sem brúka grímur, hnífa og skammbyssur og venja æskufólk vort á vanabindandi og bráðdrepandi eitur og vændisstörf.
Því miður hafa sæmdarhjónin og menningartilfellin, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson farið varhluta af vargöld skipulagðra undirheimasturlunga. Eina nóttina kom heimilisvinur þeirra hjóna, Óli Apaköttur, illa til reika og skríðandi til þeirra og sagði sínar farir ósléttar. Ofbeldismenn höfðu brotið á honum með því kveikja í rassinum á honum og brennimerkja hann á pungnum. Frú Ingveldur lagði kalda bakstra við brunasárin meðan Kolbeinn blandaði framsóknarskólp handa sjúklingnum. Daginn eftir kom svo Brynjar Vondalykt í heimsókn með þetta rokna glóðarauga, sem hann segir að grímuklæddur ofbeldisfantur hafi gefið honum inni í svefnherbergi harðgiftrar frauku af góðu standi. Telur Vondalyktin víst, að bófinn, eiginmaður fraukunnar, hafi sent þann grímuklædda misyndismann á vettvang í hefndarskyni. Af þessum sökum hafa frú Ingveldur og Kolbeinn vopnast all-rækilega á heimili sínu og eru nú þess albúin að takast á við útsendara skipulagðra glæpasamtaka. En þau hjón gleðjast mjög yfir herkvaðningu Nonnýboy og óska þess að honum takist að ráða niðurlögum óvinarins.
![]() |
Ekki mitt hlutverk að fegra hlutina fyrir almenning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2022 | 13:51
Árás á eitt ríki NATO er auðvitað árás á öll ríki NATO, það er klát mál
Fyrst Úkraínumenn skutu eldflaug á Pólland þýðir það einfaldlega hernaðarárás á NATO ríki og þar með hernaðarárás á öll NATO ríki. Og úr því að svo er komið verða hermarskálkar NATO selskaparins, hvort heldur þeir heita Biden, Bjarni Jónsson eða Bjarniben, að efna til géneralárásar á Úkraínu með öllum tiltækum vopnum; og eira engu; og linna ekki látum fyrr en þessi fjárans Úkraína verður ein rjúkandi rúst.
Það verður samt að viðurkennast, að það er kyndug ákvörðun þeirra úkraínsku að skjóta niður friðsaman bóndabæ í Póllandi úr því að þeir ákváðu að fara að dæmi Hitlers heitins á síðustu öld og ráðast inn í Pólland. Að vísu hefir þeirri tilgátu verið varpað fram að sprengingin atarna í Póllandi hafi ekki verið af völdum þeirra úkranísku, heldur hafi bóndabærinn sem varð fyrir óhappinu verið útibú íslenska Framsóknarfjóssins í Póllandi, og hafi handlangarar framsóknaraðalsins þar verið að sýsla með hættuleg efni úr fórum Framsóknarísku kjarnorkustofnunarinnar með þessum hroðaafleiðingum. Framsóknarmennirnir hafi sem sé troðið meters löngum hólki, sem var einnig meter í þvermál og fullur með kjarnorku, á bólakaf ofan í Framsóknarfjóshauginn, sem búið var að koma upp þar eystra. Því miður yfirsást vísindamönnum gömlu Maddömunnar að reikna með eiturgufunum í haugnum og geislavirkninni frá þeim, því fór sem fór, en gufurnar og geislarnir boruðu sig inn og ræstu kjarnorkuna á hólknum og allt sprakk í loft upp og til andskotans.
En mikið er hressilegt að sjá hver blessaðir undanrennuungarnir í VG eru orðnir stríðfúsir og tilbúnir til að fórna sér fyrir NATO; það vantar bara upp á að þeir krefjist heimstyrjaldar og fái sjálfir að vera í fremstu víglínu. Mikið mega Björnbjarna, litla, stríðsæsta ráðherradúfan með langa nafnið, og Gölle a. vinur Björnsbjarna, vera ánægð með hve vel hefir tekist til að temja veslings ungalingana þeirra Stenngrims og Álfheiðar. Þegar svona er komið, og krakkagrey sem héldu eitt sinn að þau væru soldið róttæk til vinstri, en eru tilbúin að axla byssuna og þjóta út á vígvöllinn, þá verður stríð, meira segi ég ekki.
![]() |
Mjög líklegt að eldflaugin hafi verið úkraínsk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Í steininn með íhöld og viðreisnarvembla
- Brennuvargur í Hafnarfirði - og sögur af andstyggilegum brenn...
- Afglöp séra Atgeirs og klámhögg utangarðs Sælendinga
- Kvikuprinsessan þjónustar auðvaldið af stílíséruðu krataeðli
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.9.): 3
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 421
- Frá upphafi: 1553850
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 342
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007