21.7.2011 | 23:45
Misheppnuð skrif ölvaðra kvenna eru sorginni merkt
Æji, ég verð alltaf sorgmæddur þegar ég les misheppnuð spaugaraskrif drukkinna kvenna, jafnvel þó að vikomandi kvendi hafi misst 11 kílógrömm af spiki, sé löðrandi af svita og þefji samkvæmt því. Þá verður það seint talið til afreka að flækja hárlufsurnar á sér á snaga í mátunarklega í ölæði og rífa þær af hausnum.
Katrín Eyvindsdóttir lenti í svipuðu þegar hún skreið gegnum gaddavírsgirðingu í náttmyrkri eftir að hafa tekið þátt í óviðjafnanlegri jörvagleði þar sem koníjakk, hvítvín og kókaín voru á boðstólum. Að leikslokum var Karín öll klóruð um maga og lær eftir gaddavírinn og allmörgum hárum fátækari. Daginn eftir hélt hún því blákalt fram að hún hefði komist í kast við afturgöngu eða ójarðneskt villidýr á leið sinni heim.
Þá man ég eftir annarri konu, sem kvartaði sáran undan abelsínuhúð og marglyttumaga í hvert sinn sem hún var við skál. Það var leiðinleg kona.
![]() |
Kófsveitt í baðfatamyndatöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.7.2011 | 22:17
Það er margt jákvætt að gerast í þjóðlífinu
Það er afskaplega mikið í það varið, að kvikmyndaleikkonan Hayden Penettiere skuli hrósa Barrakki Ó. Bama fyrir beita sér gegn skrælingjum á Íslandi, sem hafa gerst sekir um að myrða hvali og éta þá í þokkabót í staðinn fyrir að horfa bara á þá og dást að mannviti þeirra og fegurð með kjökrandi tári.
Þaðheldégnú að Glámurogskrámur, Kolbrún Halldórs og fleiri slíkar brekkur fái unaðslegan fiðring innanum sig við að meðtaka boðskap Haydenar og sjái nú hag sínum betur borgið en áður.
Og það er fleira sem fer batnandi í þjóðlífi voru: Nú rétt í þessu var viðtal við Hönnu Birnu í sjónvarpinu, sem sýnir svo ekki verður um villst, að hún er aftur komin í sinn gamla skapvonskugír, andlitssvipurinn þrungin eilífðarfýlu og fasið allt ólundarlegt og pirringslegt.
Og ekki var hin fúllynda Hanna Birna horfin af vettvangi þegar ásjóna hrunböðulsins Einars Kr. Guðfinnssonar birtist á skjánum, bólgin af hræsni og spillingu. Og hver var boðskapur Einars Kr.? Jú, að gæta arðránshagsmuna LÍÚ-klíkunnar gegn fólkinu í landinu.
Já, það er svo sannarlega afskaplega mikið í allt þetta varið.
![]() |
Ánægð með aðgerðir gegn Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.7.2011 kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.7.2011 | 20:49
Þegar dómkirkjupresturinn gaf saman frú Ingveldi og Kolbein Kolbeinsson
Þeir láta sig ekki muna um að tala um drottinsumgjarðir, fossa og fjöll blessaðir pokaprestarnir okkar. Já, og gefa saman hjón útum allar koppagrundir af sömu hugsjón og bændur hleypa hrútum á ær á jólaföstunni.
Það var líka mikið um dýrðir þegar dómkirkjupresturinn gaf saman frú Ingveldi og Kolbein Kolbeinsson hér um árið. Áður en athöfnin hófst í Dómkirkjunni fundaði presturinn með veðandi hjónum og meðhjálparanum í skrúðhúsinu og veitti óspart messuvín, sem hann hafði endurbætt með spíritusi frá apótekaranum vini sínum. Kolbeinn Kolbeinsson, sem aldrei hefur látið letja sig til drykkju, fór slíku offari í messuvíninu að hann stóð varla í lappirnar á eftir fyrir altarinu. Í sjálfri brúðkaupsveislunni fór allt í handaskolum: Presturinn og meðhjálparinn gjörðust nærgöngulir við frú Ingveldi, en Kolbeini tókst að laumast afsíðis með Máríu borgargagni þegar þegar sambýlingur hennar, Indriði handriði, sá ekki til. Í veislulok slógust dómkirkjupresturinn og meðhjálparinn opiberlega um hylli frú Ingveldar meðan Kolbeinn Kolbeinsson svaf úr sér vímuna með buxurnar á hælunum í einhverjum afkima eftir einkar velheppnað trall með borgargagninu.
Segið þið svo að brúðkaupsveislur geti ekki verið dramatískar og stórbrotnar þegar vel er í þær lagt.
![]() |
Gefin saman við Seljalandsfoss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2011 | 20:22
Drottinn blessi varðsveit stjörnusýslumannsins
Það ætla ég að vona innilega til Drotins Guðs Almáttugs, að pissupólísar á borð við þann rússneska Alexei Isakov fyrirfinnist ekki í röðum íslenskra lögreglumanna.
Einkum og sér í lagi bið ég almættið um að slíkur hlandprestur leynist ekki í hinni fræknu varðsveit stjörnusýslumannsins Stones á Selfossi, því nóg hefur sá merki störnusýslumaður á sinni könnu í andstreymi lífsins að hann þurfi ekki að kljást við lögregluþjóna sem gera sér að leik að míga berrassaðir á gólf embættisins.
Nú minnsit ég allt í einu Hálfdáns lögregluþjóns sem pissaði ævilega inná gólf fangaklefanna á sinni stöð ef fangar voru þar fyrir. Og ef fangi dirfðist að finna að þessu framtaki Hálfdáns, læsti hann krumlu sinni fumlaust í fangann og velti honum eins og bandhnykkli uppúr pollinum á gólfinu og hótaði honum í leiðinni með mun róttækari refsingu ef hann héldi ekki kjaftinum á sér saman.
![]() |
Lögreglumaðurinn pissandi" er hættur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2011 | 19:46
Húmar að hinsta kvöldi í ævi flokks
Ósköp held ég það verði dapurt á Landsfundi VG, sem halda á í mont- og snobbhúsinu Hofi á Akureyri í haust, enda yfir fáu að gleðjast á þeim bæ. Steingrímur mun að sjáflsögðu grobba sig af vel heppnaðri einkavæðingu bankanna og öðrum þrifnaði í þeim dúr, hjóla smávegis til málamynda í Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn og gera mikið úr krafti sínum og dugnaði við ógurlega erfiðar aðstæður. Að svo búnu mun hinn mikli framsóknarforingi og kapítalisti láta fundarmenn kjósa hann sjálfann, ásamt valinkunnum flokkseigendum, búrtíkum, dekurdýrum og undanrennuprumphænsnum í stjórnir og ráð og slíta síðan fundi við eindæma undirtektir.
Eftir landsfundinn mun andlaus eyðimerkurganga taka við í lífi VG, uns þessi svikni og smáði flokkur geyspar golunni, uppþornaður eins og marglytta, á strönd hinnar kapítalísku úrkynjunnar og spillingar.
![]() |
Landsfundur VG í október |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.7.2011 | 21:30
Ferðamenn ævareiðir bílaleiguforkólfum
![]() |
Ferja bílaleigubíla yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.7.2011 | 20:43
Lagði til að Herjólfi yrði siglt upp Múlakvísl
Það er þriflegur andskoti fyrir sjálfstæðishetjur eins og Árna Johnsen, Jón Gunnarsson og framsóknarkurfinn Sigurð Inga Jóhannsson ef ríkisstjórninni tekst að smíða nýja brú yfrum Múlakvísl fyrr en áætlað hafði verið. Þessháttar frammistaða stjórnarinnar gæti hæglega stórskaðað fyrrnefnda þrjá heiðursmenn.
Það er því full ástæða til að hvetja þá bakkabræður, Árna, Jón og Sigurð til frekari dáða við að verða á undan ríkisstjórninni að byggja brú yfir bölvaða sprænuna atarna. Í hádeginu máttum vér landsmenn meðtaka áform herra Johnsen um að raða saman nokkrum gámum yfir kvíslina, sem bifreiðar myndu síðan aka um á harðaspretti. Áður höfðu Jón kaldi og framsóknarkurfurinn viðrað athyglisverðar hugmyndir um allrahanda ferjumennsku í munkhásenstíl. Mér hefur verið sagt að Jón Gunnarsson sjálfstæðishetja hafi m.a.s. lagt til að Herjólfi vestmannaeyjaferju yrði tafarlaust siglt upp Múlakvísl og látinn ferja fólk og bíla milli árbakka allt hvað af tæki svo ferðamannaiðnaður legðist ekki af á Íslandi.
En nú er sem sé að koma á daginn, að ekki er ein báran stök hvað varðar ófarir sjálfstæðisgarpa og framsóknarkurfa, því Ögmundur kommúnisti Jónasson innanríkisráðherra virðist ætla að verða á undan bakkaræðrunum að brúa Múlakvísl.
![]() |
Brú tilbúin fyrr en áætlað var |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.7.2011 | 19:39
Hræðileg mistök fréttamanns
Það vekur sannarlega furðu, að sá sem skrifaði hina stórgóðu frétt á mbl.is um olíuslóðina á Miklubraut skuli hafa látið undir höfuð leggjast að kenna nýverandi ríkisstjórn um téða olíuslóð. En sem kunnugt er, er mjög í tísku um þessar mundir hjá áhangendurm Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að eigna ríkisstjórninni allt sem þeir telja að neikvætt sé og aflaga hafi farið. Samkvæmt pólitískum rétttrúnaði fársjúkra auðvaldssinna liggur mikið við að koma því inní hausinn á þjóðinni að núverandi ríkisstjórn sé alvond; hafi yndi af að kvelja almúgafólk; sé á móti atvinnuuppbyggingu; standi fyrir eldgosum, jökulhlaupum og öðrum náttúruhamförum; geri ekki neitt (eins og Gjeir Haaarde) þegar vandi steðjar að; stundi últrakommúnisma, fasisma, skattpíningu og glæpamennsku í hvívetna; og það sem verst er: hafa í hyggju að kollvarpa kvótakerfinu með þeim afleiðingum að allur fiskur hverfur af Íslandsmiðum. Það er því ekki minna en hræðileg mistök af hálfu fréttamanns mbl.is að gleyma að geta þess að olísullið á Miklubrautinni í dag hafi verið ríkisstjórninni að kenna.
Á dögunum var blaðið News of the World lagt niður vegna glæpa og lágkúru stjórnenda þess. Að sjálfsögðu á Sjálfstæðisflokkurinn að hljóta sömu örlög og óþrifnaðarfyrirbærið News of the World.
![]() |
Olíuslóð á Miklubraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.7.2011 | 22:30
Sjálfsblekking Bolvíkinga er algjör

Það eru ljótu smámennin þessir Bolvíkingar, ef satt reynist sem sagt er, að þeir gráti að kerlingasið við það eitt að horfa á sauðfé á beit. Nær væri þessum kotkörlum að siga hundum sínum á ærnar, eða skjóta þær af færi með vopnum sínum, ef þeir eiga einhver slík í fórum sínum.
Þó hygg ég að það séu ekki kindur sem lagst hafa á garða Bolvíkinga að þessu sinni til og valdið þeim sorg og táraflóði. Miðað við lýsingarnar á framferði meintra garðára, fæ ég ekki betur séð en að þar sé valdur að verki sómi Vestfjarða, sveð og skjöldur, sjálf þingkonan Einar Kr. Guðfinnsson, sú hin sama og féll niður í ruslflokk í síðasta prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Er nú fátt betra í stöðunni þar vestra en heimamenn varpi hlandsprengju á ára þenna og freisti þess að hann fælist við og hlaupi á fjöll sem fætur toga, líkt og hann heði fengið beitta kvótaflaug úr vopnabúri LÍÚ í afturendann á sér.
Nei, Bovíkingar góðir, það hefur lítið uppá sig fyrir ukkur að kenna sauðfé og jafnvel sauðnautum um óknyttina sem Einar Kr. fremur.
![]() |
Rollur ráðast á garðana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2011 | 21:41
Þeirri konu gleymi ég aldrei
Minningin um Aðalbjörgu Arinbjörnsdóttur brennuvarg mun aldrei hverfa mér úr minni; ekki einusinni alzheimer eða gróf ellikölkun mun breyta þar nokkru um.
Aðalbjörg Arinbjörnsdóttir hneigðist furðusnemma til ýmiskonar hluta, sem almennt er ekki talið til kvenlegra dyggða. Átta ára gömul hafði hún á samviskunni að hafa lagt eld að nýbyggðri timbuverslun kaupfélags með þeim farsæla árangri að verslunin brann til kaldra kola. Og daginn eftir að hún fermdist í Kjalarvíkurkirkju kvittaði hún fyrir að vera komin í tölu kristinna manna með því að kveikja í kirkjunni, sem brann glatt í marga klukkutíma, enda stútfull af heilögum anda. En heilagur andi er afar eldfimur eins og menn vita.
Síðar á lífsleiðinni tók Aðalbjörg að sér ýmis viðvik fyrir menn, sem máttu til með að losna við vel tryggða húskumbalda, eða bifreiðar, eða jafnvel báta eða stærri skip. Þetta gekk allt ljómandi vel hjá Aðalbjörgu þar til hún tók að sér að brenna mótorbátt Gunnólfs Gunnólfssonar, Þjóðarsómann GK 913. En það fór með þessa ráðagerð Gunnólfs eins og allar aðrar ráðagerðir sem hann hafði tekið sér fyrir hendur. Þeim Aðalbjörgu hafði samist um að hún tæki að sér fyrir drjúga upphæð að koma á stað eldi í vélarrúmi Þjóðarsómans og ekki fara af vettvangi fyrr en útséð væri með að bálið slökknaði ekki af sjáfu sér. En því miður var andskotans vélarrúmið fullt af gasi, sem Aðalbjörg varaði sig ekki á. Og því fór sem fór: Um leið og hún kveiti á fyrstu eldspýtunni, sprakk Þjóðarsóminn GK 913 í loft upp og lét þar lífið Aðalbjörg Arinbjörnsdóttir, rúmlega hálffertug að aldri og lét eftir sig sex ófeðruð lausaleiksbörn.
![]() |
Brennuvargar í Breiðholti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Baráttumál kvenna á ýmsum aldri fyrr og nú.
- Meðan ábyrgir leiðtogar fagna í Moskvu flaðra krataeigirnar u...
- Einelti gegn útgerðarmanni og eitthvað fleira
- Það er hamingja vor og lán að eiga ígildi kóngs
- Þá hefir frú Sæland fallið á léttasta prófi allra prófa. Aumi...
- Renturnar á Hjáleigunni
- Nýfrjálshyggjubyltingin étur börnin sín
- Litaforsetar nútímans á Íslandi og í Bandaríkjunum
- Mjög vond tíðindi af frú Ingveldi og hennar fjölskyldu
- Hrunistar, afturgöngur og krataeðlisauðvaldsstúss út um móa o...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.5.): 44
- Sl. sólarhring: 134
- Sl. viku: 696
- Frá upphafi: 1548551
Annað
- Innlit í dag: 42
- Innlit sl. viku: 609
- Gestir í dag: 41
- IP-tölur í dag: 40
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007