6.7.2011 | 14:26
Stjórnmálaleg heimska borin fram af pólitískum kjána
Hann ríður ekki við einteyming kjánaskapurinn í þessari Sóley Tómasdóttur, sem skreytir sig nú um stundir sem borgarfulltrúi VG í Reykjavík. Þessi hæfileikasnauða stjórnmálakona, sem stytti sér á heldur vafasaman hátt leið uppí 1. sæti VG fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar, heldur því fram að stefna VG í Reykjavík sé að leggja af Reykjavíkurflugvöll, en hvert starfsemi hans á að fara getur hún ekki svarað fremur en önnur hænsn af hennar kalíberi. Ég trúi því ekki að VG-hjörðin í Reykjavík vilji enn flytja flugvöllinn uppá Hólmsheiði eins og Swandees Sendiherrans hélt fram hér um árið til að hafa einhverja stefnu frekar en engi í flugvallarmálinu, en í þann tíð voru Swandees og önnur himpigimp í hennar náhirðakreðsu mjög á lofti í 2007-vímunni.
Auðvitað er það hárrétt hjá Ögmundi að Reykjavíkurflugvöllur eigi að standa þar sem hann er til frambúðar og að Hólmsheiðar ruglumþvælan sé gjörsamlega galin.
Þá berar frú S. Tomm stjórnmálalega heimsku sína á einkar nöturlegan hátt með því að bera fram innantóm náttúruverndarrök gegn Reykjavíkurflugvelli. Þvílíkur vaðall er að sjálfsögðu samkynja álíka þvaðri samviskulausra verktaka og bísnessmanna og verður ekki annað séð en frú Tomm Fílí-romm-bomm-bomm sómi sér ákaflega vel innanum þessháttar deleranta.
Það að Sóley Tómasdóttir taki sér stöðu með verktökum og braskaralýð ætti ekki að koma neinum á óvart. Þessi kyndugi ,,borgarfulltrúi" sem glutraði niður öllu fylgi VG í Reykjavík á ekki meira skylt við vinstristefnu, hvað þá róttækan sósíalisma, en styttan af Ólafi Thors fyrir framan ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu.
Það er fyrir löngu ljóst, að VG stendur ekki undir því nafni sem vinstriflokkur, sem honum var í upphafi ætlað. Ef þessi flokkur ætlar ekki að daga uppi sem uppþornaður skítaköggull verður að fara þar fram algjör og miskunarlaus hundahreinsun, illgresinu sópað burt. Verktakasleikjur og LÍÚ agentar, ásamt borgaralegum snobbviðrinum og pólitískum náttúruleysingjum, eiga ekkert erindi innfyrir dyr raunverulegs vinstriflokks. En því miður hafa það orðið örlög VG að fá inná sig húsfylli af slíku rusli. Spurningin er bara: Hver bauð þessum loddurum og skoffínum inn?
![]() |
VG vill flugvöllinn burt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.7.2011 | 22:59
Kannabisbóndinn í Langholti
Mig hefur lengi grunað að þeir ættu eftir að finna kannabisræktun á Langholtsveginum, það hefir af óútskýranlegri ástæðu legið einhvernveginn í hlutarins eðli. Og ekkert vantar uppá að Langholstvegurinn sé skuggaleg gata þar sem allra veðra er von.
Ef mér skjöplast ekki því meir, þá er kannabisbóndinn í Langholtinu frjálshyggjudrengur í Heimdalli og gáfaður samkvæmt því. Það er nafnilega þannig, að óharðnaðir óregludrengir, sem leiðast út í fíkniefnanautn og kannabisrækt, ánetjast í framhaldinu frjálshyggjurugli og Heimdalli.
Og hvernig haldið þið það sé fyrir starfsfólkið á Vogi að fá hlandgeggjaðan frjálshyggjutrúð úr Heimdalli til meðferðar, uppdópaðan með þarmana í buxunum? Það er á engann mann leggjandi að taka við þessháttar ófögnuði. Í Finnlandi geyma þeir svona ófögnuð uppi á fjöllum í rammgerðri girðingu eins og hreintarfa og jólasveina.
![]() |
Kannabisræktun við Langholtsveg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.7.2011 | 20:56
Hvort er hann sextugur eða níræður?
Jahéna, er ekki nema karltruntan hann Mángi Kjartans sextugur á morgun. Mér væri nær að halda að hann héldi uppá níræðisafmælið sitt um þessar mundir, svo aldurhniginn var hann orðinn fyrir liðlega fjörutíu árum, þegar ég sá hann fyrst emjandi á orgelharmóníum á fylliríisskralli einhversstaðar í fjandanum.
Á þessu umrædda skralli var mér nefnilega bent á karl nokkurn uppi á sviði, ærðið torfkofalegan, sem paufaðist við orgelgarm og var í hátt og hreyfingum eins og gömul sjóndöpur kona, sem staulast í myrkrinu fram göngin með náttpottinn sinn í höndunum. Mér var sagt að þetta væri sá kunni tónlistarmaður Mángi Kjartans úr Keflavík. Eftir að hafa virt fyrirburð þennan fyrir mér dágóða stund, dró ég þá ályktun að Mángi þessi Keflavíkurbóndi væri væri í raun og sannleika ekkert annað en öldruð skrukka; gott ef ég hélt ekki á þeirri stundu, að þar væri sjálf Framsóknarmaddaman komin í eigin persónu og varð hálf skelkaður við. En þegar skrukkan fór að reka upp hryglur, sem líktust engu öðru meir en suðvestanhryðjum, varð ég sannfærður.
Síðar frétti ég að Mángi Kjartans væri svo mikil framsóknarmaddama, að hann væri kominn í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn til sveitarstjórnar í Hafnarfirði. Mig minnir að hann hafi fengið fjögur atkvæði.
En nú er sem sé staðan á þann veg, að téður Mángi ætlar að halda uppá sextugsafmílíð sitt á morgun, þrátt fyrir að verða níræður þann sama dag, og mun eflaust verða glatt á hjalla hjá blessuðum öðlingnum, ef ég þekki hann rétt. Og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og frú Ingveldur munu mæta í veisluna ásamt Indriða handreði og Máríu borgargagni og fleira góðu fólki.
![]() |
Til heiðurs Magga Kjartans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2011 | 22:43
Barátta síra Baldvins
Það fer hver að verða síðastur að láta krýna sig til víxlubyskubs í Skálholti því svo er fjarað undan trúarstofnunum landsins að þær mun hlunkast um koll á næstunni, hver á fætur annarrai, alveg eins og borðin og bekkirnir hjá kapítalistunum í musterinu þegar Frelsarinn heimsótti þá. Það er nefnilega svo komið, að því hærra sem klerkmenntaðir ná að olnboga sig upp metorðastigann í kirkjunni því tortryggilegri verða þeir í augum múgsins á götunni.
Um langa hríð hefur síra Baldvin þjónað Hvalvíkurprestakalli ásamt að vera prófastur Giljárþinga. Aldrei í hans tíð hefur komið upp hneykslismál þar í prófastsdæminu og aldrei hefur nokkru sóknarbarni þar um slóðir dottið í hug að hegða sér óskikkanlega, enda eru hórdómur og drykkjskapur þar ókunn fyrirbrigði.
Nú er það svo, að síra Baldvin hefur lengi barist gegn öðrum kennimönnum kristninnar, þvaðri þeirra og fáfræði. En umfram allt hefur hann háð hverja orrustuna annarri skæðari fyrir því að gera presta náttúrulausa með góðu eða illu og banna kvenpresta með öllu því slík uppáfyndning sé óhæfa og vélabrögð andskotans. - Því hverjum dettur í hug, hefur hann oftsinnis mælt í stólræðum, - að Lausnari vór hafi verið og sé einhver ólukkans meykjérlíng. Og nú er komið í ljós að síra Baldvin hefur haft lög að mæla, hans kenning hefur verið kórrétt og hans kristindómur virkað í Giljárprófastsdæmi.
![]() |
Fjórir vilja í Skálholt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.6.2011 | 22:01
Minnir um margt á endurfundi Kolbeins skrifstofustjóra og frú Ingveldar
Mikið er dásamlegt að Kristrún Ösp sé aftur byrjuð með Dwight Yorke. Það fór bókstaflega unaðsstraumur um gjörvalla íslensku þjóðina þegar upplýst var, að hið forna par hefði tekið upp þráðinn sem frá var horfið fyrir daga lögfræðiskjátunnar sem kom eins og boðflenna inní líf hinnar errilegu júnku, Kristrúnar Aspar.
Þessi hugljúfa saga um Yorke og Öspina minnir um margt á yndislega endurfundi Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og frú Ingveldar eftir að Kolbeinn hafði strokið á vit ævintýranna í heila viku með Máríu þeirri borgargagni, sem hefur hin síðari ár haldið heimili við góðan orðstýr með Indriða handreði.
Þegar Kolbeinn skrifstofustjóri drattaðist loks heim eftir stranga útiveru tók frú Ingveldur á móti honum með vænu kjaftshöggi og barði hann síðan rausnarlega með slöngubút uns Kolbeinn spangólaði af sannri vitfirringu eins og halaklipptur hundur. Þar á eftir dró frú Ingveldur eiginmann sinn upp tröppurnar og inná eldhúsgólf og fletti hann klæðum og þó honum hátt sem lágt með skrúbb uppúr lút af grænsápu og Lúxsápu. Fjörgaðist og mjög ástarlíf þeirra hjóna eftir fyrrnefnt þrifabað og magnaðist ástareldurinn svo stappaði nærri fullkominni geggjun.
Hinsvegar varð það hlutskipti Indriða handreðs að gráta eins og gelgjumær með sótthita þegar sambýlingi hans, Máríu borgargagni, þóknaðist að skjögra heim eftir aðfarirnar með Kolbeini Kolbeinssyni. En Máríu borgargagni brá ekki hætishót við vol og kveinstafi handreðsins og huggaði hann eins og lamb sem búið var að týna móður sinni.
En helgina það á eftir, drengir góðir. En helgina þar á eftir settust þau Kolbeinn og frú Ingveldur að veisluborði með Indriða handreði og Máríu borgargagni og varð þar heldur glatt á hjalla og heitt í kolum þá er yfir lauk eftir hádegi á sunnudag.
![]() |
Kristrún Ösp er byrjuð aftur með Dwight Yorke |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.6.2011 kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.6.2011 | 21:15
Stjörnusýslumaðurinn veldur aðdáendum sínum vonbrigðum
Heldur þykir okkur aðdáendum stjörnusýslumannsins Stones sem okkar manni hafi fatast flugið með að varpa ekki þessu hroða ómenni í Vestmannaeyjum beint í dýflissuna þegar ljóst varð hvert skrímsli það hafði að geyma.
Fram til þessa hefur yfirvald Árnesinga verið ódeigt við að bjóða allslags glæpahundum og óráðsíufólum byrginn og jafnan haft sigur. Helgi eftir helgi hefur hinn hugprúði stjörnusýslumaður falið varðsveit sinni að berjast við vistola drykkjurafta, innbrotsþjófa, óða kvenvarga, auk hættulegs fólks í annarlegu ástandi. En á virkum dögum hefur hinn ósérhlífni stjörnusýslumaður og menn hans gert hvert strandhöggið öðru stærra í ranni kannabisbænda og annarra eiturbyrlara.
Það er von okkar, aðdáenda herra Stones, að hann finni rétta strikið aftur og láti engann óbótamann ganga lausan héðan í frá innan sinna vébanda heldur tjóðri þá strax í bak og fyrir um leið og hann hefur hödur í hári þeirra.
Vér viljum sem sé ekki, að glæpamenn gangi lausir eins og hverjir útrásarvíkingar.
![]() |
Hefði átt að krefjast gæsluvarðhalds |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2011 | 00:22
Það hefur lítið breyst síðan 1927
Og loks spyr ég yður, ritþý ,,Morgunblaðsins": Hafið þér nokkurn tíma komið auga á neitt háleitara takmark en ytra glys og glingur og saðning munns og maga? Eftir hverju keppið þér? Hverjar eru hugsjónir yðar? Hvert er það guðspjall, sem þér viljið boða mannkyninu?
Þér hafið tranað yður fram til að skrifa stórt dagblað, þótt yður vanti allt nema framhleypnina og sjálfsálitið til þess að gera dagblað viðunanlega úr garði. Ábyrgðartilfinning getur því ekki verið yðar keppikefli.
Þér fyllið blað yðar daglega með lygum og rangfærslum, sem eigingjarnir prangarar hafa leigt yður til að skrifa. Sannleikurinn getur því ekki verið yður keppikefli.
Þér hundeltið menn og göfug málefni með látlausum rógburði og andstyggilegum fláttskap. Einlægni getur því ekki verið hugsjón yðar.
Þér látið brúka yður til þess að halda uppi vörnum fyrir ranglátu þjóðskipulagi. Réttlæti getur því ekki verið yður eftirsóknarvert.
Höfundur: Þórbergur Þórðarson, 11. september 1927 .
![]() |
Aukinn kostnaður á útgerðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.6.2011 | 21:03
Meðvirknisgrátkór heldur konsert í minnismerki Hrunsins
Borgarastéttin á Íslandi virðist líta á réttarhöldin yfir Gjeir Haaarde mun alvarlegri augum en flesta hefði órað fyrir. Það er engu líkara en borgarastéttin eins og hún leggur sig liggi endilöng á höggstokknum og reyni nú í allsherjarfáti gera allt til að sleppa við öxina.
Og það er ekki annað hægt en að hlægja að þessum buslubrögðum forréttindafólksins, sem hefur það meðal annars á samviskunni að hafa staðið þétt að baki stjórnmálamönnum frjálshyggjuöfgana, bankaræningjanna og peningageðsjúklinganna með an þeir voru að koma efnahag landsins fyrir kattarnef.
Nú stingur þetta vandræðafólk upp kollinum í tónlistarhúsinu Hörpu, sem er einhver áþreifanlegasti minnisvarðinn um óhóf, sukk og siðblindu borgarastéttarinnar, og upphefur hræsnisfullan meðvirknis grátkonsert til dýrðar einum helsta hrunsmeistaranum úr hinum pólitíska armi auðvaldsins, Gjeir Haaarde.
Og nú dugar ekki minna en að reyna að spila á alla þá strengi siðblindunnar sem hugsanlega gætu mjakað fleirum til meðvirkni með þeim öflum þjóðfélagsins sem niðurlægðu okkur og komu okkur á kaldan klaka.
Ég vona að allir sæmilega hugsandi menn láti ekki þvætting eins og tal um pólitíska aðför að Gjeir Haaardi, óréttlæti í hans garð og skaleysisfjas hans, villa um fyrir sér.
Og að lokum: Hvað hefði verið sagt ef enginn hinna bersyndugu stjórnmálmanna frjálshyggju- og hrunstímabilsins hefði þurft að svara til saka fyrir dómstóli?
![]() |
Geir á sanngirni skilda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2011 | 22:58
Undirmálsdót og hreinræktaðir lúsablesar
Hvaða söfnuður skal það vera sem gerir út þann furðulega uppskafning, Sigmund Erni Rúnarsson? Það er engu líkara en þessi manngarmur sé handbendli einhverra allt annarra en heiðarlegra jafnaðarmanna, sem ég vona að séu enn til, því viðhorf hans benda til að hann sé af einhverjum ástæðum svo illa spilltur og lítt jarðbundinn að hann eigi einfaldlega ekkert erindi inn á Alþingi.
Fyrir stuttu síðan hélt Sigmundur þessi Ernir opin fund með formanni LÍÚ austur á fjörðum, sem virtist hafa þann einn tilgang að gera fiskveiðistjórnunarfrumvarp sjávarútvegsráðherra tortryggilegt. Og nú hælir þetta furðulega fyrirbæri sér af því að hafa greitt atkvæði gegn því að fyrrverandi ráðherrar væru dregnir fyrir Landsdóm, nákvæmlega eins og hin gjörspillta hjörð Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks gerði.
Það er víst ekki ofsögum sagt að mannval á Alþingi hefur farið mjög hrakandi við hverjar kosningar síðustu 25 árin eða svo. Og er nú svo komið í þeim efnum að stór hópur alþingismanna er samansafn af undirmálsdóti og hreinræktuðum lúsablesum. En ef til vill á þjóðin það skilið af hafa í forsvari fyrir sig grams af þessu tagi, enda var það þessi sama þjóð sem kaus þennan ófögnuð yfir sig. En á þessu þarf að verða bragarbót, á því leikur enginn vafi, - eða hvað?
![]() |
Stoltur af mótatkvæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2011 | 19:08
Eva Joly sagði fyrir að svona yrðu viðbrögð þeirra
Það þýðir nú lítið fyrir herra Haaarde að bera fyrir sig fyrir sig einhverja málsmeðferð, sem honum er ekki að skapi, og reyna að verja sig með hártogunum og ruglanda. Fyrir liggur að herra Haaarde ber tvímælalaust gríðarlega ábyrgð á Hruninu Mikla sem forsætisráðherra og þar áður sem fjármálaráðherra. Það liggur líka ljóst fyrir að hann á mun meira í umræddu Hruni en Ingibjörg Sólrún, Björgvin Sig. og Árni greyið Mathiesen. Það er auðvitað óásættanlegt að Ingibjörg, Björgvin, Árni og fleiri stjórnmálaafglapar sleppi við Landsdóm, en það jafnframt enn óásættanlegra að Gjeir Haaarde komist hjá því líka. Það var einfaldlega ekki hægt að láta þann pólitíska hrunagosa sleppa við að svara til saka.
Eva Joly benti okkur á fyrir nokkrum mánuðum, að viðbrögð hrunverjanna, sem dregnir verða fyrir dómstóla, yrðu einmitt með nákvæmlega sama hætti og herra Gjeir Haaarde býður landsfólki uppá nú. Til dæmis er kjaftæðið í Gjeir um að ákæra Alþingis á hendur honum sé pólitísk aðför að persónu hans, dæmigert fyrir menn sem kunna ekki að skammast sín fyrir stórkostleg afglöp sem varða alla þjóðina.
Það er afar sorglegt að verða vitni að því, að það fólk sem skapaði skilyrðin fyrir Hrunið með fáheyrðum athöfnum sínum, athafnaleysi og oft á tíðum dólgshætti, skuli ekki sýna ein einustu iðrunarmerki. Þvert á móti hefur þetta þokkalið látið fá tækifæri ónotuð til að reyna að ljúga sig af fullkominni forherðingu útúr öllum málum og rugla umræðuna með því að halda fram að efnahagsástandið sé núverandi ríkisstjórn að kenna! Ja, þvílíkur andstyggðar þvættingur og ófyrirleitni. Efnahagsástandið nú er engu öðru að kenna en þeirri stjórnmálastefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn fylgdi á árunum 1991-2009, lengst af með Framsóknarflokknum.
Það væri ráðlegast fyrir mógúla Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks að halda tröntunum á sér saman fyrst um sinn, en leggja þess í stað alla áherslu á að læra iðrun og bera sig eftir að stunda heilbrigt siðferði í stað siðleysis.
![]() |
Skýrslan var aðalheimildin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Baráttumál kvenna á ýmsum aldri fyrr og nú.
- Meðan ábyrgir leiðtogar fagna í Moskvu flaðra krataeigirnar u...
- Einelti gegn útgerðarmanni og eitthvað fleira
- Það er hamingja vor og lán að eiga ígildi kóngs
- Þá hefir frú Sæland fallið á léttasta prófi allra prófa. Aumi...
- Renturnar á Hjáleigunni
- Nýfrjálshyggjubyltingin étur börnin sín
- Litaforsetar nútímans á Íslandi og í Bandaríkjunum
- Mjög vond tíðindi af frú Ingveldi og hennar fjölskyldu
- Hrunistar, afturgöngur og krataeðlisauðvaldsstúss út um móa o...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.5.): 8
- Sl. sólarhring: 103
- Sl. viku: 660
- Frá upphafi: 1548515
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 574
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007