Leita í fréttum mbl.is

Hvað er eiginlega að þessum Þór Saari

Hvað er eiginlega að þessum Þór Saari, getur hann ekki hjólað af ærlegum myndarbrag í Jóhönnu Sigurðardóttur af innblásnu offorsi eins og Bjarni Benediktsson og hans góða fólk? Með þessu áframhaldi líður ekki á löngu að Þór lendi í ruslafötunni á sama hátt og hann fleygði skjölunum með hinum alvarlegu samskiptum Jóhönnu og Más í ruslið.

En Bjarni Ben stendur sína pligt í Jóhönnumálinu, eins og aðrir siðferðislega stöndugir sjálfstæðismenn, sem vinna nú hörðum höndum að því að gera Jóhönnu að opinberum stórlygara í augum almennings í sömu andrá og þeir klappa Guðlaugi Þór á kollinn fyrir dugnað í styrkjasöfnun fyrir sjálfan sig.  


mbl.is Heimatilbúinn vandi Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikta E

Það er Jóhanna sjálf sem hefur gert sig að þeim lygara sem hún er.

Benedikta E, 6.6.2010 kl. 15:16

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Heimatilbúið  bréf þar sem bæði upphaf og enda skortir! Og það á að vera "sönnun" Ef sönnunargögn þurfa ekki að vera haldbærari en þetta er víst hægt að dæm hvern sem er fyrir hvað sem er. En umræða um svona rugl sýnir hversu lágt stig er á umræðum í landinu.

Eyjólfur Jónsson, 6.6.2010 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband