Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Af vínhneigðum konum og afrekum þeirra

ingv25_1222523.jpgJá, er hún þá sona, blessuð gamla skrukkan? Þar í er líklegast fólgið hvers vegna hún er jafn ógn völt á fótunum og raun ber vitni. Hvað á gjöra við kérlíngar á tíræðisaldri, sem eru svaðblautar og delera stundum með afkáralegum munnsöfnuði og hranalegum illyrðum? Nei, það vitið þið auðvitað ekki. Einhvurjum kann að detta í hug að rétt væri að rassskella þær opinberlega, öðrum til viðvörunar. En það væri full-langt gengið.

Gamla geðstýfða Framsóknarmaddaman hefir svo lengi sem sem elstu framsóknarmenn muna haft ákavítisflösku innan seilingar, undir koddanum í bælinu sínu eða ofan í nærbuxunum til að halda því volgu. Stundum hefir kérlíng verið svo draugfull að allir húskarlarnir og griðkonurnar í Framsóknarfjósinu hafa orðið dauðhrædd, því gömlu Maddömunni er laus höndin og ofbeldissinnuð þegar hún er vel drukkin. Eitt sinn reif hún til ráðsmanns síns, þess er þá var, og lúskraði illa á honum; og þegar ráðsmaðurinn lá lémagna og nær meðvitundarlaus við fætur hennar heimtaði hún sveðju eða góð skæri til að geta klippt af helvítinu skottið.

Frú Ingveldur er líka liðtæk við flöskuna, aungvu síður en Framsóknarmaddaman og Englandsdrotning, en hún kann að fara vel með ölvunarástand sitt og dómgreind heldur hún óskertri þó fast sé drukkið, það þakkar hún kókinu, sem hún hefir ævinlega í handraðanum þegar hún drekkur. Að vísu hefir henni endrum og eins hlaupið kapp í kinn þegar hún hefðir orðið þess vís að Kolbeinn hennar Kolbeinsson, eiginmaður frú Ingveldar til áratuga, hafi verið að drýgja hór eða stunda ósæmilegan kynferðisósóma án hennar leyfis. Haft var eftir grandvörum sjúkraflutningamanni, sem fékk eitt sinn það verkefni að sækja Kolbein slasaðan eftir eiginkonu hans og frama með hann á sjúkrahús, að það hefði vissulega verið úr hófi sorglegt að koma að Kolbeini með brotinn leyndarlim eftir fantatök frú Ingveldar og Máríu Borgargagni og Indriða Handreði dauðrotuðum og berrössuðum fyrir ofan rúm. Í kjölfarið á þessu atviki lá Kolbein milli heims og helju á gjörgæsludeild í heilan mánuð og var lengi vel ekki hugað líf, því leyndarlimurinn hans var illa brotinn, tvíbrotinn að sögn, og svarblár að lit. 


mbl.is Drottningin byrjar að drekka fyrir hádegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr vöndu að ráða hjá fyrrum kjósendum VG, þeim er vandir eru að virðingu sinni þrátt fyrir allt

x7Það þarf auðvitað aungvann að undra, að liðlegur helmingur þeirra sem glopruðu atkvæðum sínum á VG að ætli alls ekki að láta sömu villu henda sig við næstu kosningar. Furðulegast er að hátt í helmingur þeirra plötuðu ku vera tilbúnir til að kjósa VG aftur næst; eðlilegast væri að aunginn af fyrri kjósendum mundi kjósa þennan ófögnuð meir.

En það er ekki um auðugan garð að gresja fyrir fyrir fyrrum kjósendur VG að finna stað fyrir atkvæði sín. Sennilega væri affarasælast fyrir þá að sitja bara heima við næstu kosningar, í hæsta lagi að fara á kjörstað og skila auðu eða gjöra atkvæðaseðilinn ógildan með því að skrifa upp heldur blautleg afmorskvæði á framhlið hans. Ekki er fýsilegt fyrir þessa kjósendur að kjósa flokka úr safni gömlu Framsóknarmaddömunnar, eða einhvern hinna óheiðarlegu krataeðlisflokka eða einhver af svæsnustu auðvaldssamtökunum. Ónei, þessháttar drasl kjósa fyrrum áhangendur VG ekki, þá viljum vér heldur útskitna salernisskál inn á Alþingi.

En væri þá ekki gráupplagt fyrir uppgjafa VG-ara að færa sig yfir á sosialistaflokk Gunnars Smára? Í fljótu bragði væri það þjóðráð. Eða hvað? Því er til að svara, að hvur á sósíalisti, sem vandur er að virðingu sinni, mundi aldrei glepjast á að kjósa þann hálfvitlausa apakattasöfnuð sem hoppar hvað ákafast og hæst kringum útrásarvíking þann fyrrnefndan, er tekið hefir yfir sosialismus á Íslandi. Í þeim ranni sannast hvað best, og trúlega endanlega, að ekki er viðlit að stofna skítsæmilegan og nothæfan kommaflokk fyrir lukkuriddurum, fémínístum og hálfvitlausum og biluðum hoppurum, sem einlægt eru fyrstir á vettvang þegar þeir frétta af flokkstofnun einhvers staðar. Þetta höfum vér séð gerast hvað ofan í annað síðustu fjörutíu árin eða svo; allrahanda fúleggjabandalög, borgarastéttarflokkar, krataeðlissjúklingafylkingar, vitfirringasamkomur og efrimillistéttarfémínístakompaný hafa komið fram á sjónarsviðið með samskonar öskrum undir sama lagi. Allt hefir þetta lið ætlað að bjarga kapítalismanum og berjast gegn spillingu, spillingu, spillingu, - nú síðast hafa lukkuriddaraberserkirnir í krataeðlishjörðinni og hið borgaralega fémínístauppsóp sameinast í fullkominni géðveikisöskursymfóníu og orgíu útaf einhverju kjánaplaggi, sem valinkunnir krataeðliskverúlantar settu saman og það kallar ,,nýju stjórnarskrána"; öllu má víst nafn gefa ef fíflskapurinn er nægur, þér að segja. Sannlega er það ekki efnilegt, piltar mínir, og allt farið út um læri og maga og svo kraumar kóvíð nítjándi ofan í öllum hroðanum.  


mbl.is Meirihluti kýs VG ekki aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar berserkur gamla Kolbeins fannst myrtur

kol27Alltaf er jafn upplífgandi að fá fréttir af því að einhver, eða einhverjir, hafi gengið berserksgang, en það sýnir oss að enn eru brekserkir meðal oss. Í kauptúninu, hvar Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, ólst upp og sleit barnsskóm sínum, var hroðalegur berserkur, Andrés að nafni, trylltur maður sem lék sér að því að rífa upp jarðýtur og velta þeim á hliðina. Þennan berserk notaði gamli Kolbeinn, faðir Kolbeins Kolbeinssonar, kaupfélagsstjóri og útgerðarstjóri, til að innheimta skuldir fyrir sig af skuldseigum óbótamönnum og einnig til að jafna um andskota sem gamla Kolbeini var í nöp við.

Svo fékk Kolbeinn kaupfélagsstjóri óvænt fréttir af því að berserkurinn væri farinn að halda við mágkonu gamla Kolbeins. Morguninn eftir fannst berserkurinn dauður niður við höfn, hafði verið skotinn í hnakkann með stórvirki skotfæri. Aldrei komst upp hvur valdur væri að morðinu, enda lítið gert til að upplýsa málið og nokkrum mánuðum síðar höfðu flestir gleymt voveiflegri burtsiglingu berserksins í þorpinu. 

En nú hafa einhverjir orðið óðir við að sjá einkarekið strætóskýli í Reykjavík og mölvað allt glerkyns í því. En ekki hafa þó berserkir verið þar á ferð, því ef svo hefði verið væru uppitöðurnar verið rifnar upp með rótum og þeim vafið saman eins og tvinnaspottum. Að brjóta gler er létt verk og löðurmannlegt, en að snúa saman gildum járnstöngum er aðeins á færi berserkja og heljarmenna.  


mbl.is Virðast hafa gengið berserksgang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórvandræði með forseta í Bandaríkjunum og á Íslandi

Capitalist_pig-690x580Þá eru blessuð forsetahjónin í USA bæði komin með skitupest af kóvíð nítjánda stofni og komast ekki milli herbergja nema með bleyju svo ekki hellist nú niður af þeim á gólfin. Þetta er afar vont mál og hvur veit nema vírusinn komist í höfuðið á Trumpinu og gjöri þar afleitt ástand blátt áfram djöfullegt. Lengi vel var Dónald ekki kóvíðnítjándatrúar og vísaði sögum um drepsóttina frá sér sem hvurjum öðrum lygum og hræðsluáróðri; þetta væri í mesta lagi dauf smá-kvefpest, kverkaskítur.

Síðastliðinn vetur veiktist einn dyggasti stuðningsmaður Trumps á Íslandi, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður af kóðvíði nítjánda og drapst næstum því af pestinni. Hann gerði í sig í öndunarvélinni, talaði tungum og sagði fjálglega frá fjölbreytilegu ástarkynferðislífi sínu og frú Ingveldar og fleiri sæmdapersóna í óráðinu. Þetta máttu hjúkrunarkonurnar á Landspítalanum hlusta á í marga sólarhringa og sumar þeirra gengu af vitinu af að heyra slík yfirgengileg bersöglismál í klámi og klúrum athugasemdum og dvelja nú á Kleppi. Ennfremur þjáðist Kolbeinn af þrálátri standpínu og áráttu til að viðra gandinn í kvenna viðurvist meðan hann dvaldi að öndunarvélinni og kenndi um ísmeygilegum bylgjum frá mótornum sem knýr vélina áfram Af þessu getur fólk séð hve undurslæmur og hættulegur sjúkdómur kóvíð nítjándi er og ekki á færi Trumpara að sleppa við skakkaföll ef þeir sýkjast af honum.

Og ekki má gleyma garminum honum Katli, það er að segja forsetamyndinni okkar hér uppi á Íslandi. Það er nú meiri labbakúturinn. Í gær vafraði þetta niður í þing eins og gemlingur í óráði og þvaðraði fordæmalausa vitleysu og kjaftabull. Meðal annars grenjaði hinn þurrpumpulegi forsetasteggur okkar um yfirskilvitleg fyrirbæri eins og þetta sem grillufangarar kalla ,,nýju stjórnarskrána" og eitt vitleysislegt landráðaplagg með ákvæði fyrir krataeðlissjúklingana um fullveldisafsal og lítt dulinn landsöluboðskap. Þó segja megi að Bandaríkjamenn séu óheppnir með forseta, þá erum við Íslendingar ekki síður ólánsamir með okkar forsetadraug. Trúlega var hið kostulega hjal forseta Íslands í Alþingishúsinu í gær aðeins sjúkdómseinkenni sem fylgja kóvíð nítjánda en ekki bein merki þess að þessi Bessastaðakurfur sé ekki endanlega hrokkinn upp af standinum.


mbl.is Trump-hjónin með COVID-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að þegar hún var borin í burtu dauð ...

x29Ég má til með að skjóta hér að litlu en fjarska lýsandi ljóðmæli eftir eitt af særstu þjóðskáldum okkar, sem var svo mikið þjóðskáld, að þegar hann hrökk upp af gleymdi þjóðin honum á augabragði og nú veit aunginn hvað þetta ástsæla þóðskáld hét, né heldur hvurjir foreldrar þess vóru. En þetta fræga kvæði kom sem sé upp í huga allrar alþýðu í landinu í kveld, meðan ráðsmaður gömlu géðóðu Framsóknarmaddömunnar þrumaði yfrum þingheim úr ræðupúlti Alþingis:

,,Hún Framsóknarmaddama var að baka brauð,
en brenndi sig og gjörði skyssu slíka,
að þegar hún var borin í burtu dauð
var brauðið ónýtt líka."

Það sem ráðsmaðurinn Framsóknarmaddömunnar hélt vera kjarnyrta eldmessu hjá sér í Jónseldklerksstíl varð aldrei nema í mesta lagi væminn goluþytur með ólykt. Hins vegar ruku nokkrir húskarlar og griðkonur í Framsóknarfjósinu upp með skrækum fagnaðaröskrum og ólíkindalátum, er þau hlýddu heima í Fjósi á ræðubrögð ráðsmanns síns. Öskrin vóru svo geigvænleg, að gamla Framsóknarmaddaman, sem lá samkvæmt venju áfengisdauð í bæli sínu, rumskaði og reis upp við dogg og hrækti önug út í loftið og heimtaði neftóbak og soðningu með mörfloti. Svo var ræðu ráðsmannsins lokið og allir í Fjósinu þögnuðu og sú gamla lyppaðist út af eins og hundsskrokkur og var strax farin að hrjóta. Svona var nú orðskrúð ráðsmanns gömlu Framsóknarmaddömunnar á Alþingi mikil eldmessa og vakningaráhlaup. 


mbl.is „Ræðan mín er ónýt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkennilegt tómstundagaman steiktra og brenglaðara Kínamanna

kol33Mikið þó asskoti hljóta þeir að vera brenglaðir og steiktir til höfuðsins þessir Kínamenn að láta sér koma til hugar að safna upplýsingum um ekki merkilegra eða géðugra fólk en þetta sem er á myndinni sem fygir þessari frétt. Hvaða lifandi maður getur haft áhuga á á honum Gjeir okkar hérna Haaardý, eða Styrmi Gunnarssyni, að ekki sé nú talað um rafta og viðundur á borð við Sigurð Kaupþing, Katrínu Júl og Sigurð Bessason? Við vitum öll, að leiðinlegra fólki er vandfundið á jarðarkringlunni, þannig að gera má ráð fyrir að skráin atarna sé listi yfir einkennilegt fólk sem einhver sérvitringur í Kína hefir gaman af að safna.

Svo hefir frú Ingveldur frá sagt, að hennar sæla langamma, frú Ingveldur í Austurkoti, hafi safnað fróðleik um einkennilegt fólk af hennar kynslóð. Í þeim drögum kemur fram, að talsvert margir þeirra einkennilegu náunga sem þar eru nefndir, eru forfeður og formæður þeirra ,,nútímamanna", sem Kínamaðurinn hefir safnað sér upplýsinga um. Þetta eru sem sé génatískir furðufuglar frá fornu fari sem sérvitringurinn í Kína hefir fengið augastað á, sem útaf fyrir sig er gott.

Ekki er fyrir að synja, að samkvæmt bókum langömmu frú Ingveldar, að sumir forfeður kínagullana vóru bölvaðir vandræðamenn eða vandræðakonur, og er trúlega best að fara ekki mikið út í þá sálma. Ein kérlíngin, formóðir eins þunnildisins í myndasafni Kínverjans, var til dæmis hengd af sveitungum sínum, án dóms og laga, fyrir mikinn og sérkennilegan ófrómleik, dónalegan og villtan. Þeir kunnu það, gömlu mennirnir, hvurnig fara átti með óprúttnar kérlingar sem ógnuðu samfélagslegri allsherjarreglu í sveitinni.  


mbl.is 411 Íslendingar á skrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umbótaöfl krataeðlisins, de la 101, flytja rónana á öskuhaugana í Gufunesi

roni.jpgÞað er sko frábærlega krataeðlis- og fémínístalegt, de la 101, að flytja rónana af Austurvelli og koma þeim fyrir í gámum eða hrútakofum á gömlum og illa lyktandi sorphaugum Reykjavíkur. Það er náttúrlega aungin hemja að láta þessa bölvaða drykkjurúta vera sí-slangrandi, á vinnutíma góðborgara, fyrir augunum á alminnilegu fólki og betri borgurum af auðvalds- og krataeðlisstétt og viðkvæmum efrimillistéttarfémínístum. Jájá, bara á haugana með rónalýðinn og dópistasvínin.

Eflaust verður gáll á drykkjurútunum þegar þeir verða komnir á beit inni í Gufunesi, fyrir framan hina nýmóðins hrútakofa jafnaðarmannanna í Reykjavík; það verður að segja eins og er, að þetta er skohh jafnaðarmennska í lagi, krataeðlið bókstaflega kraumar og snarkar þessu rónaumbótaúrræði þeirra. Eyþór Laxdal og hans íhöld hefðu ekki getað gjört betur í þessum málaflokki en krataeðlisfjósin.

Á meðan doktórar heimsins, vísiddamenn og mannkynsfrelsandi hugsuðir berjast á hæl og hnakka við að finna upp bóluefni við kóðvíð nítjánda, fara litlar sögur af afrekum vísiddanna við að þróa gott lyf við krataeðlinu og krataeðlisvírusnum, sem veldur persónuröskunum, géðbilun og áttunarvanda, sem lýsir sér í því að sjúklingurinn veit ekki hvað hann vill, hvað hann er, hvert hann er að fara og er lýginn og ómerkilegur í umgengni við þjóðfélagið.  


mbl.is Fyrstu íbúar í smáhýsin í nóvember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynskipti rækjunnar og kyngreining Katrínar

,,Súld og kuldi
á húsunum buldi,
meðan kaffibrauð
og kleinur
krakkafjandinn muldi." 

drunk3Sona orkti nú þjóðskáldið okkar góða þegar það lá afvelta uppi í hlíð undir hraundröngum. Síðan þetta fallega ljóð fæddist hafa liðið mjög mörg ár, en í þá daga var ekki verið að fárast hvurs kyns börn og fullorðið fólk væri því það leyndi sér auðvitað ekki. Í þá daga voru öll fimm til sex ára börn fullnuma í æxlunarfræðum og kunnu skil á hvurnig ætti að bera sig að við að gjöra dodo. Í dag er svartnætti fáfræði æskulýðsins staðreynd, sbr. ,,Í kvosinni", riti Flosa Ólafssonar, 2. prentun, bls. 21. 

En mikið djöfull held ég verði gaman þegar Katrín fer að kíkja uppundir lýðinn og kyngreina hann. Að vísu einfaldar það málið fyrir Katrínu, að kynin eru bara tvö og nokkuð auðvelt að greina á milli þeirra; þetta er ekki eins og hjá rækjunni, sem skiptir um kyn á miðjum aldri, breytist úr karldýri í volduga kérlíngu. Því er við að bæta, að þrátt fyrir kynskipti rækjunnar þá er intersexúalismus, pankenndir og BDSM óþekkt fyrirbæri í rækjuheiminum og teljast þar ekki til kynja. 


mbl.is Aldursviðmið kynskráningar verði 15 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þriðji og trúlega síðasti formaður VG brátt krýndur

x29Þetta verður þriflegur ,,fundur" með tilheyrandi fettum og brettum, handapati, aulabrosum og falsi. Katrín er alltaf tagltæk auðvaldinu að tala máli þeirra og gera það sem það segir henni að gera; þetta gerir kérlíngarskömmin með glotti á vör og frussar á eftir þegar hún heldur að aunginn sjái til hennar.

Hvað Katrín ætlar að blaðra við blaðamennina skiptir litlu eða aungvu máli, aðalatriðið er halda dulitla sýningu á sjálfri sér. En brátt kalla Stenngrimur Johoð, Álfheiður og Swabbófjölskyldan á eintal og segja henni nú sé komið að því að taka af henni formannsnafnbótina hjá VG og færa Swandeesý Sendiherrans hana, svo sem fyrir löngu var ákveðið. Þau Stenngrimur eru öll sammála um að svo sé farið að falla á gluggaskraut þeirra að ekki verði mikið legur við unað og því sé best að fara með það í kjallarann áður en næstu alþingiskosningar fara fram. Dagar fyrirsætustarfa með framkvæmdastjóra NATÓ eru liðnir. Þetta er sem sé ákveðið, staðreynd og þannig er þetta bara.

Þegar Stenngrimur Johoð hrökklaðist úr formannsstól VG stóð svo illa á að flokknefnan atarna var á góðri leið með að þurrkast út. Þá varð úr, að Álfheiður og Swabbófjölskyldnan setti dugnaðarforkinn mikla af vegna óvinsælda hans og gjörði varaformanninn, sem þá var fyrir tilviljun og í skrumsskyni Katrín nokkur Jakobsdóttir, að formanni; þetta þókti fyrirtakssnúningur, ágæt sjónhverfing, og fylgishrunið VG stöðvaðist um sinn því það var svo flott að gjöra sona stelpu að formanni, þrátt fyrir að hún hefði afskaplega lítið til brunns að bera í stjórnmálum. Nú er VG aftur komið á braut útþurrkunar, Katrín farin að láta heldur betur á sjá og kjósendur farnir að fá skömm á henni, svo ekki þarf að bíða ýkja lengi til viðbótar að krýna Swandeesý Sendiherrans þriðja og trúlega síðasta, formann VG


mbl.is Katrín boðar til blaðamannafundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rís upp af sorphaugnum og gólar og gargar að leiðtogum verkafólk

asiGylfa Arnbjörnssona hagfræðings og forseta ASÍ verður ekki minnst fyrir að hafa staðið með verkafólki og öreigum. Hann klöngraðist eins og hver önnur boðflenna eitt sinn á 1. maí upp í ræðustól á Íngólfstorgi og var baulaður niður og þegar hið harðkapítalíska nýfrjálshyggjubankakerfi hans valt eins og dauð rotta á hliðina á haustdögum 2008 og fólkið safnaðist saman og mótmælti, skreið Gylfi eins og blauð búrtík undir skrifborðið á ASÍ kontórnum og skalf þar í margar vikur. Hins vegar var karl ekki hræddur þegar hann var að faðma helstu sendisveina auðvaldsins að sér eftir að hafa skrifað undir svikasamninga við atvinnurekendavaldið.

hræddurSvo tók fólkið í ASÍ í taumana og kastaði Gylfa og fleiri af hans kalíberi út á sorphaug og skipaði í þeirra stað fólk sem stendur því nær. Eftir að Gylfi var borinn út hefir verið hljótt um hann, svo sem vera ber um ónothæft skran sem tekið hefir verið úr umferð. En nú stökkur þetta mannkerti allt í einu upp eins og vankaður hani og galar vanþóknunargóli á verkalýðsforustuna. Það er auðséð að þetta fyrirbrigði kann ekki að skammast sín, enda haldinn krataeðlissjúkdómnum og tilheyrandi hnjáliðamýkt gagnvart auð- og valdasöfnurum kapítalismans.

Svo sem fer hefir fram komið þá er Gylfi Arnbjörnsson hagfræðingur, en það þýðir að hann hefir numið kapítalískan áróður við háskóla. Hagfræði er að sjálfsögðu einsleit háborgaraleg innrætingartugga, sem ekki á neitt skylt við fræði eða fræðimennsku. Og þó að svokölluð ,,hagfræði" sé aðeins lævís aðferð auðvaldsins til að halda verkafólki niðri undir yfirskini fræða og háskólastimpla, þá veigra eintökin sem hafa fengið háskólastimpil hagfræðiblekkinganna sér ekki við að ráðast á verkafólk með menntahroka og undirförulum viðbjóði. Á hverjum degi staðfesta hinir ,,hagfróðu" menn með orðagjálfri sínu og aumu innræti orð þjóðskáldsins þegar það mælti af gefnu tilefni: - Ráðlegt er að hafa í hakk hagfræðinga og skítapakk. 


mbl.is Hugnast ekki orðræða verkalýðsforystunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband