Leita í fréttum mbl.is

Krónískir óþverra vírusar á hrjáðum líkama sósíalismans

lus.jpgÞó Swandeesý Sendiherrans sé ekki með veiruna þá er hún sjálf veira, veira í hinum langþjáða og þjakaða líkama sósíalismans og vinstristefnu á Íslandi yfirleitt. Það hafa orðið örlög raunverulegrar vinstristefnu hér um slóðir af hafna í klóm lýðskrumara, óheilindafólks og háskólagenginna, hrokafullra menntasnobbara, og má nú búa við þau ömurlegu kjör að vera í herkví hjá vondu fólki. Swandeesý Sendiherrans og hennar vildarlið, krataeðlissjúklingarnir í Samfylkingunni, Pírataskranið og leiksýning Gunnars Smára með svokallaðan ,,Sosialistaflokk Íslands, eiga lítið sem ekkert erindi við sósíalisma, stéttabaráttu og verkalýðshreyfingu, til þess er þetta lið óhæft sökum ólæknandi óheiðarleika, hugsjónaleysis og í sumum tilfellum annarlegra skoðana, - fyrir nú utan að stór hluti þessara gemlinga sem gert hefir sér að leik að vera í ,,vinstrimannaleik" er hálfvitlaust og mökkruglað.

Því miður er ekki hægt að beita samskonar sóttvarnaaðgerðum gegn vírusafarganinu, sem herjar á sósíalismann, og sóttvarnarlæknir og það fólk brúkar gegn kóvíði nítjánda. Ekki er heldur að vænta að vírusarnir sem eru að drepa sósíalismann gangi sér til húðar, samkvæmt einhverjum náttúrlegum lögmálum og verði úr sögunni, eftir tvö til þrjú ár. Þar af leiðandi er barátta fyrir gjörbreyttu þjóðskipulagi með afnámi óþrifnaðar eins og kapítalisma algerlega óhugsandi; sósíalískt þjóðskipulag verður ekki byggt upp með lukkuriddurum, menntasnobbi og hroka og efrimillistéttarfémínísma. En fémínísmi yfirleitt á enga samleið með sósíalisma, enda er fémínísminn borgaralegt þrugl úr sorptunnu andlegra öreiga og ójafnaðarmanna.

Síðust ár hafa einkennilegheit eins og fémínísmi og krataeðlisstjórnarskrárdrögin tröllriðið allri umræðu á vinstrivængnum svonefnda með í senn hlálegum og hörmulegum afleiðingum. Þessi aumu umræðuefni hafi gefið einstaklingum, sem eru ekki það sem þeir þykjast vera, vettvang til að þjóna athyglissýki sinni, sjálfhverfu og einhverri tegund af fráhrindandi geðveiki, sem þetta lið hefir komið sér upp. Það er alveg sjálfsagt að Swandeesý Sendiherrans og pabbi hennar, Gunnar Smári og Haukur Arnþórs, ásamt Þórhildi Sunnu, píratanum Leví, Þorvaldi Gylfasyni, Illuga Jökulssyni, Helgu Völu og öðrum persónum af sama tagi stofni sér óheiðarlega flokka að vild, en verra er þegar þetta vandræðafólk klínir þessari framleiðslu sinni á sósíalismann, - fegursta hugsjón mannkyns á margt betra skilið en slíkur söfnuður fái að valsa á lukkuriddaraklossum sínum yfir hana og komi á hana óverðskulduðu óorði.   


mbl.is Svandís ekki með veiruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband