Leita í fréttum mbl.is

Hvað þurfa glæpirnir að vera stórir?

mafia1.jpgAlgjörlega stórmerkilegt að rúm 40% Reykvíkinga skuli sjá ástæðu til að verðlauna Sjálfstæðisflokkinn, eftir allt sem á undan er gengið, með því að greiða honum atkvæði í borgarstjórnarkosningunum í vor. Satt að segja hef ég ekki nægilegt hugmyndaflug til að ímynda mér hverskonar óskunda Sjálfstæðisflokkurinn þarf að fremja til að fólk snúi við honum bakinu. Það er nefnilega sama hvert litið er, allstaðar er þessi gírugi félagsskapur á kafi í glæpum, spillingu, lygum, undirferli og andfélagslegum viðbjóði. Ef rökhugsun, réttlætis- og siðferðiskennd Reykvíkinga væri heilbrigð mældist fylgi Sjálfstæðisflokksins 4,1% í Reykjavík en ekki 41%.  

Það er því ekki að ástæðulausu þó spurt sé: Hvað þurfa glæpir Sjálfstæðisflokksins að vera stórir svo fólk sjái þá?


mbl.is Sjálfstæðisflokkur í sókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Jóhannes Ragnarsson.

Ég held að margir í Ólafsvík séu þér ekki sammála. þínar haturs tilfinningar sæma þér ekki hvað þá að skrifa um það á þessum vettvangi. Að láta menn síðan kjósa um það hvort Sjálfstæðisflokkurinn verði leystur upp er þér til minnkunar.

Þér væri nær að fjalla um mál með heiðarlegum hætti, enginn flokkur er þar undanskilin.

Hvað sagði þinn flokkur fyrir kosningar ætlaði hann ekki að bjarga öllu og leysa öll má strax ekki veit ég betur. Á meðan er þjóðinni að blæða út, og fyrirtækjum þessa lands.

það hlýtur að fara í menn eins og þig að Sjálfstæðismenn séu í sókn. Ég undra það ekki.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 1.2.2010 kl. 22:45

2 Smámynd: Hjalti Sigurðarson

Við kjósum hann bara afþví hann skárstur og ekki mengaður af ranghugmyndum stjórnlyndi og einræðisstefnu Kommúnista og þjóðernis-félagshyggju. Svo eru þeirra frambjóðendur bara betur menntaðir og gefnir. Þú nefnir auðvitað ekkert efnislegt og hvað þá málefnarlegt þannig að það er erfitt að svara þér þannig. En það er vert að líta í eigin barm, Dagur fukkaði upp hundruðum miljóna í laugardalnum og veitt stærstu lóð sem veitt hefur verið, fyrirtæki sem hann vann hjá og svo ákvað 100daga meirihlutinn að það ættu að vera 30þ. manna byggð í Úlfarsárdal. Við getum bara ekki treyst svona fólki og svona veikum meirihlutum eða barnalegum flokkum sem neita að virða skoðanir 40-45% reykvíkinga, afþví að þeirra leiðtogi vill verða borgarstjóri og hafa með sér smá flokka. Við viljum ekki að borgin sé rekin með 20% halla eins og ríkið, það er alvöru glæpur.

Hjalti Sigurðarson, 1.2.2010 kl. 22:59

3 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Ætli 30% Reykvíkinga séu ekki á einhvern hátt tengdir sukki sjálfstæðisflokksins, og vilja ekki að það komist upp, reyna þess vegna að viðhalda valdaklíkunni.

Þessi hér á undan er dálítið hlægilegur greyið, en ekki náði hann 7 sætinu sem hann stefndi að í glæpaklíkuflokknum.

Sveinn Elías Hansson, 1.2.2010 kl. 23:02

4 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Þar kom einn á milli, ég átti við Jón Pál.

Sveinn Elías Hansson, 1.2.2010 kl. 23:03

5 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Lítið er hann nú skárri þessi Hjalti.

Sveinn Elías Hansson, 1.2.2010 kl. 23:04

6 Smámynd: Viðar Helgi Guðjohnsen

Jóhann er góður maður enda setti ég hann í eitt af efstu sætunum. Töluvert hærra en það 7. sem hann sóttist eftir. Rétt mælir hann þegar hann nefnir að núsitjandi stjórnvöld eru að eyðileggja landið og vænlegast er að refsa þeim viðurstyggilegu flokkum sem nú varpa þjóð sinni í erlenda skuldasúpu.

Viðar Helgi Guðjohnsen, 1.2.2010 kl. 23:06

7 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ja, nú þarftu að spyrja hversu marga Stalin þurfti að drepa, til þess að það teldist  ásættanlegt. Glæpir félaga Svarvars eru auðvitað smámunir, en glæpir félaga Jóhannesar er auðvitað of litlir þar sem hann hefur sennilega ekki neinn drepið eða ekki framið þjóðnýðingsverk.

Sigurður Þorsteinsson, 1.2.2010 kl. 23:21

8 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Jóhannes Ragnarsson.

Ég ætla ekki að eyða orðum í þennan Svein sem er með fúkkayrði gagnvart mér. Ef mín orð hafa komið honum úr jafnvægi þá verður hann að gera það upp við sjálfan sig.

Það er lámarkskrafa að menn fari rétt með. Þið ættuð frekar að taka á ykkar mönnum stað þess að vera með ónot út í Sjálfstæðisflokkinn það er enginn flokkur sem kemst undan því sem hefur skeð.

Hinsvegar er landið stjórnlaust vegna lélegra stjórnar flokka sem lofuðu öllu fögru, þar á meðal að bjarga þjóðinni.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 1.2.2010 kl. 23:23

9 Smámynd: Þorvaldur Guðmundsson

Það er vegna þess að siðblinda er landlægur sjúkdómur á klakanum Jóhannes.

Þorvaldur Guðmundsson, 1.2.2010 kl. 23:27

10 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Jóhann.

Hvaða fúkkayrði eru það sem fara fyrir brjóstið á þér?

Sveinn Elías Hansson, 1.2.2010 kl. 23:48

11 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Viðar.

Hverjir stofnuðu til þessarra skulda?

Sveinn Elías Hansson, 1.2.2010 kl. 23:50

12 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Til marks um grímulausan hugsunarháttinn þá kallar þetta lið þá landráðamenn sem starfa  við björgunarstörfin og standa við það upp undir hendur í forinni eftir Sjálfgæðingsflokkinn. 

Það má með góðum vilja kalla það slys eða einfeldningshátt þegar venjulegt launafólk kýs Sjálfgæðingsflokkinn einu sinni en ef það er endurtekið verður það ekki útskýrt nema sem masókismi á hæsta stigi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.2.2010 kl. 00:31

13 Smámynd: Auðun Gíslason

Alveg er skelfilegt að lesa athugasemdirnar hér!  Hér eru allir sótraftar á sjó dregnir ómerkilegum málflutningi sínum til stuðnings!  Jósef Stalín, kommúnismi, þjóðernis-félagshyggja (hvað sem það nú á að vera).  Það vantar ekkert uppá að umræðan sé málefnalega, eða hvað?  Og svo eru menn tæpast skrifandi á íslensku! sbr.  "Ég undra það ekki."

Það er svo sem ekkert undarlegt, að Sjálfstæðisflokkurinn njóti svona mikils fylgis.  Miðað við athugasemdirnar hér! 

Alveg er það merkilegt, hvað þessi gáfaða þjóð getur verið vitlaus!  Eða þannig! 

Auðun Gíslason, 2.2.2010 kl. 00:32

14 Smámynd: Auðun Gíslason

Auk þess legg ég til að Sjálfstæðisflokkurinn verði bannaður!

Auðun Gíslason, 2.2.2010 kl. 00:34

15 Smámynd: Björn Birgisson

Ég þekki fúkkalykt. Hún er vond. Hvað þýðir fúkkayrði? Kannast við fúkyrði. Þau eru til ama.

Björn Birgisson, 2.2.2010 kl. 00:49

16 Smámynd: Hjalti Sigurðarson

Auðun: Hvernig getur þú reiknað með eitthverju málefnalegu eftir þetta geðsjúka innslag. Ég segi ekkert að Sjálfstæðisflokkurinn sé laus við spillingu ef þið teljið hluti eins og að ráða fólk og annað smotterí sem spillingu en vinstristjórninn er komin uppí 70manns í ráðuneytunum, þannig það er á báða bóga, aðalatriðið er að vera ekki með halla rekstur og borga sem lægsta skatta, þá hafa þessir menn minna að sukka með, hvað fór hærra útsvar í RVK í borga af skuldum R-listan og tóman góðærisóþarfa.

Hjalti Sigurðarson, 2.2.2010 kl. 09:25

17 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er hryggilegt að horfa uppá blinduna hjá annars ágætum mönnum eins og Jóhanni Páli og Hjalta Sig. Þeim virðist gjörsamlega fyrirmunað að tengja saman hluti, sem liggja í augum uppi, á rökrænan hátt svo úr verði sá napri veruleyki sem blasir við.

Sjálfstæðisflokkurinn er ekki stjórnmálaflokkur í þeirri merkingu sem almenningur leggur í það orð heldur samtök stórra hagsmunaaðila sem verða æ siðblindari með hverju árinu sem líður. Í skjóli Sjálfstæðisflokksins voru framin slík glæpaverk gegn þjóðinni á síðustu árum að við liggur að landið sé gjaldþrota. Þeim, sem ekki hafa hæfileika til að sjá hvernig aðfarir þessara illvígu samtaka hafa rústað landinu, er varla viðbjargandi; þeir eru algjörlega óhæfir í öllum umræðum um stjórnmál. 

Jóhannes Ragnarsson, 2.2.2010 kl. 10:33

18 identicon

Það hljóta allir að sjá að það er algjörlega sjálfsagt mál að Sjálfstæðisflokkurinn verði bannaður. Hvað hefur hann komið okkur út í?  - Værum við að glíma við skuldavanda upp á rúmlega fjórar þjóðarframleiðslur ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki búið til "þykjustunni" hagvöxt með Kárahnjúkum t.d.? - Væri sjávarútvegurinn jafn skuldsettur og umdeildur hefði Sjálfstæðisflokkurinn ekki verið við völd? -  Hefði bankahrun átt sér stað ef Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hefðu ekki selt bankanna til sinna velgjörðarmanna? - Væri embættismannakerfið jafn sýkt og spillt hefði Sjálfstæðisflokkurinn ekki verið við völd? - Væri jafn mikil fátækt og tekjuskipting á Íslandi ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki verið við völd? - Og seinasta spurningin sem ég spyr sjálfan mig: Væri þjóðin jafn gráðug og blind á spillingu hefði Sjálfstæðisflokkurinn ekki verið við völd seinustu 18 ár? Svar mitt er nei.

P.s. Það er Jóhanni ekki til framdráttar að rasistinn og þjóðernissinninn Viðar Guðjohnsen sé að lýsa yfir stuðningi við sig.

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 12:50

19 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Jóhannes!  Það sannast að fólk er fífl

Ingibjörg Friðriksdóttir, 2.2.2010 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband