Leita í fréttum mbl.is

Hin endanlega lausn Icesave-vandamálsins

bjö2Nú hefur um hríð margt verið rætt og ritað um holdlegt afkvæmi Sjálfstæðisflokksins, Icesave-vandamálið, og menn og konur ekki verið á eitt sátt hvernig meðhöndla eigi slíkt óbermi. Steingrímur okkar hérna Joð, ásamt Svavari, Jóhönnu, Össuru og öðrum slíkum kapítalistakindum, hafa af góðmennsku sinni viljað láta þjóðina greiða meðlagið fyrir Sjálfstæðisflokkinn í óþökk sömu þjóðar, en stjórnarandstaðan, sem að sönnu er sammála, hefur maldað í móinn, án þess að meina nokkuð mep því, með gífuryðum og bölvi að hætti drykkjurúta sem búnir eru að drekka frá sér geðheilsuna. Þennan leik hafa Steingrímur, Jóhanna og stjórnarandstaðan stundað linnulaust í bráðum ár og sér ekki enn fyrir endan á því leikriti. Á meðan hafa háttvirtir kjósendur glápt sínum fránu freðýsuaugum uppá stjórnarherrana eins og átján barna feður úr álfheimum, drepið tittlinga framan í hverja aðra og klórað sér í rassinum öldungis ráðalausir.

En lausnin á hinu eitraða Icesave-vandamáli er nær en fólki grunar. Hin endanlega lausn felst einfaldlega í því að Sjálfstæðisflokkurinn, ásamt frillu hans, Framsóknarmaddömunni, verði gert að borga allan kostnaðinn af þeirra holdgetna afkvæmi. Geti þessi óreiðufénaður ekki staðið í skilum, legg ég til að sjálfstæðis- og framsóknarmenn verði reknir til fjalla og geymdir þar innan fjárheldrar girðingar eins og hverjar aðrar óþrifaskjátur þar til þær hafa laxerað öllum frjálshyggju- og kapítalistahroðanum sem þær eru uppfullar af.


mbl.is Nýtt mat liggur ekki fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Now the time has been much discussed and written about the hold process offspring Independence Icesave-problem, and men and women do not have a consensus on how to treat it not óbermi. Steingrímur us here Iodine, and Svavar, Jóhönnu, Ossur and other such kapítalista sheep, have a human of his wish to let people pay by-layer for Independence in óþökk same nation, but the opposition, which truly agree, has maldað in móinn, without to mean anything because mep, with Gifu would curse and that means drunkards created a drink from their mental health. This game has Steingrímur, Johanna and opposition pursued editor available soon in years and not even the end of the play. During high respected voters watching their från fred haddock eyes offer Board sir as eighteen children from fathers Álfheimum, killing set will linga in front of each other and klórað of the buttocks öldungis employ loose.

But the solution of the poisonous Icesave-problem is closer than people think. The final solution consists simply in the Independence Party, along with his mistress, Framsóknar-maddömunni, will be made to pay the entire cost of their flesh getna offspring. That can not stand mess cattle in return, I suggest that independence and framsóknar-men will be driven to the mountains and stored in the capital but fences like every other óþrifa-skjátur until they have laxerað all frjálshyggju and kapítalista-fast as they are up full of.

Jóhannes Ragnarsson, 3.2.2010 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband