Leita í fréttum mbl.is

Kærkomið tækifæri til að tala digurbarkalega og leika stórkallsfígúru

os1_1052504.jpgSá held ég verji nokkurn skapaðan hlut með kjafti og klóm, utan höfuðórana um að selja sjálfstæði og fullveldi Íslands í hendur frjálshyggjukapítalistunum í Brussel, blessaður pólitíski ógæfumaðurinn hann Össur Skarphéðinsson. Afturámóti sér Össuri ræflillinn eflaust kærkomið tækifæri, í viðskiptum Birgittu við heimsvaldasinna Bandaríkjanna, til að stökkva fram á fjölmiðlavöllinn og tala digurbarkalega og leika stórkallsfígúru í auðvirðilegri smæð sinni.

Hvenær ætla Össur Skarphéðinsso og Jóhanna Sigurðardóttir að hundskast til að segja af sér ráðherradómi og þingmennsku ? Þau voru ráðherrar í langinnsta hring hinnar illræmdu hrunstjórnar Gjeirs Haaarde og tóku fullan þátt í að teygja lopann með glæpsamlegu aðgerðarleysi sem endaði með hámarkstjóni. Að þessi þokkahjú séu enn ráðherrar, já meira að segja í valdamestu ráðuneytunum, sýnir betur en allt annað siðleysi þeirra og flokksins sem gerir þau út.


mbl.is Össur: Birgitta varin með kjafti og klóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Hjartanlega samála þér. Nú er það okkar að koma þeim frá hið bráðasta!

Sigurður Haraldsson, 8.1.2011 kl. 19:29

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Það eru alltaf jafn málefnaleg og skynsamleg hjá þér bloggin Jóhannes.

Jón Ingi Cæsarsson, 8.1.2011 kl. 21:41

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú verður að eiga það við sjálfann þig og þína samvisku, Jón Ingi, hvort þér finnst eðlilegt og siðferðilega verjandi að Jóhanna og Össur séu enn ráðherrar og alþingismenn.

Jóhannes Ragnarsson, 8.1.2011 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband