Leita í fréttum mbl.is

Kærkomið tækifæri fyrir hrunsfígúru

os1_1052504.jpg Sá held ég verji nokkurn skapaðan hlut með kjafti og klóm, utan höfuðórana um að selja sjálfstæði og fullveldi Íslands í hendur frjálshyggjukapítalistunum í Brussel, blessaður pólitíski ógæfumaðurinn hann Össur Skarphéðinsson. Afturámóti sér Össuri ræflillinn eflaust kærkomið tækifæri, í viðskiptum Birgittu við heimsvaldasinna Bandaríkjanna, til að stökkva fram á fjölmiðlavöllinn og tala digurbarkalega og leika stórkallsfígúru í auðvirðilegri smæð sinni.

Hvenær ætla Össur Skarphéðinsso og Jóhanna Sigurðardóttir að hunskast til að segja af sér ráðherradómi og þingmennsku ? Þau voru ráðherrar í langinnsta hring hinnar illræmdu hrunstjórnar Gjeirs Haaarde og tóku fullan þátt í að teygja lopann með glæpsamlegu aðgerðarleysi sem endaði með hámarkstjóni. Að þessi þokkahjú séu enn ráðherrar, já meira að segja í valdamestu ráðuneytunum, sýnir betur en allt annað siðleysi þeirra og flokksins sem gerir þau út.

Útí hafsauga með allar hrunsfígúrur og landsöluagenta! 


mbl.is Sendiherrann kallaður á fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband